Vísir - 08.04.1964, Blaðsíða 3
VÍSIR . Miðvikudagur 8. apríl 1964.
3
Sæmundur Gislason form. landsliðsnefndar K. S. I. reynir sig á Frímann Gunnlaugsson form. landsliðsnefndar H. S. í. og Einar Björnsson, formaður Knattspyrnu-
þolhjólinu, en Páll Guðnason form. Vals horfir á. ráðs Reykjavíkur njóta hvíldar í hinum þægilegu stólum.
Þar missa þeir pundin off kílóin
1 r:ri;-;pv!^hnóÞoHi' U V J
í gær opnaði Jón Asgeirsson,
aut. fysiotherapeut, glæsilega
bað- og nuddstofu í kjallara
hótel Sögu. Stofan er opin jafnt
fyrir almenning sem gesti hót-
elsins, og þar getur fólk fengið
einhverja þá fullkomnustu þjón-
ustu, sem bað- og nuddstofur
(Sauna) og sólbaðs. Stórt og
vistlegt herbergi er þar með
ýmsum tækjum fyrir þrekæfing-
ar, m. a. geta menn skroppið á
bak hjólhesti, sem segir til unt,
hversu mikið þol og þrek menn
hafa, eða reynt sig í lyftingum.
Á eftir eiga menn þess kost að
slappa af í þar til gerðum stól-
um. Einnig er hægt að skreppa
inn i litla, afþiljaða klefa og
ieggja sig stundarkorn. Ekki má
heldur gleyma nuddinu, en
tveir nuddarar starfa á stofunni.
Jón rekur auk þess sérstaka
sjúkradeild, þar sem bæði eru
stuttbylgju- og hljóðbylgjutæKi.
Sérstakir tímar eru ætlaðir
kvenþjóðinni, og ekki má he'd-
ur gleyma „timburmannatíman-
ur“ fyrir hádegi á mánudögum.
hafa upp á að bjóða.
Blaðamönnum og gestum var
í gær boðið að skoða bað- og
nuddstofuna, og um leið notuðu
margir tækifærið og losuðu sig
við nokkuð af „lánstraustinu“.
Viðskiptavinirnir eiga þess kosi
að njóta steypibaðs, gufubaðs
Jón Ásgeirsson sést hér aðstoða einn gestanna í erfiðri æfingu.
Þegar mest verður að gera,
munu 6 manns starfa við nudd-
og baðstofuna.
Jón hefur áður starfrækt stofu
á Hverfisgötunni, en með til-
komu þessarar glæsilegu udd-
og baðstofu hættir hún.
Áhugi íslendinga á nudd- cg
gufubaðstofum fer vaxandi,
enda hafa allir gott af þvi að
skreppa i gufubað og auka svo
þrek sitt og þol á eftir. Og
ekki má gleyma megrunarnudd-
inu, sem nýtur vaxandi vin-
sælda.
Bræðurnir Þórður og Jón Ásgeirssynir sjást hér leiðbeina gesti í
lyftingum.