Vísir - 08.04.1964, Blaðsíða 16
VÍSIE
MttMkudagur 8. april 1964.
Tilkynnti
stuld
til að villa
lögreglunni sýn
Um sfSustu helgi lentu tveir
bilar í kappakstri um götur bæj-
arins og var iögregiunni tilkynnt
um háskalcgan akstur þeirra
á Langholtsvegi.
Eftirlitsbifreið frá lögreglunni
var send til að hafa upp á bif-
relðunum og tókst henni fljótlega
að fmna aðra þeirra. Var ökumað-
ur hennar og farþegar fluttir í
Jögreglustöðina og tekin skýrsla
af þeim.
Rétt á eftir barst tilkynning til
lögreglunnar frá eiganda þeirrar
kappakstursbifreiðarinnar, sem enn
var ófundin að henni hefði verið
stolið og lögreglan beðin um að-
stoö við að finna hana.
Eitthvað þótti lögreglunni grun-
samlegt við þessa tilkynningu, og
kom heldur ekki heim við fram-
burð piltanna sem lögreglan hafði
Framh. af bls. 6
Féll út um
glugga
Fyrir miðnætti á sunnud.-nótt
féll maður út um glugga á 1. hæð
hússins nr. 133 við Laugaveg.
Maðurinn hrapaði niður í kjallara-
tröppur og var þarna um 3ja metra
fall að ræða
Maðurinn sem varð fyrir þessu
óhappi heitir Sigurður Jónsson.
Ekki er blaðinu kunnugt um hve
alvarlega Sigurður meiddist, en
það mun þó hafa verið talsvert
því hann var fluttur í Landspítal-
ann i gærmorgun eftir að hafa leg-
ið í slysavarðstofunni um nóttina.
Bcinin sem komu upp úr greftrinum á Tjömesi.
Bein úrkaþóhkum tíma fínn
ast við uppgröft á Tiörnesi
Bóndinn á Sandhóluni á Tjör-
nesi, Sigurþór Baldvinsson, kom
í vetur niður á beinagrindur í
túni sínu, er hann var að grafa
fyrir fjárhúsi. Er talið að þarna
hafi staðið gamalt bænhús og
séu beinagrindurnar úr graf-
reitnum við það. Er þá líklegt,
að beinagrindur þessar séu frá
því fyrir siðaskipti.
Blaðið átti stutt samtal við
bóndann, hann sagði að fyrir
nokkrum árum hefði hann verið
að byggja hlöðu f túninu og þá
hefði einnig orðið vart við bein.
En nú, þegar verið var að grafa
fyrir fjárhúsinu hefðu komið
upp tvær beinagrindur. Bóndi
tilkynnti ekki um fund þennan
til Þjóðminjavarðar, sennilega af
ótta við að það hefði f för með
sér röskun á túni hans og tafir
á framkvæmdum. Hann segir, að
sagnir hafa verið um það á bæn
um, að þarna hafi staðið bæn-
hús og hefði verið talið að
gömul skemma sem þar hefði
staðið hefði áður verið bænhús,
Engir munir hefðu fundizt hjá
beinagrindum þessum. Beinun-
um kom bóndi aftur fyrir í rnold
inni.
Blaðið átti tal við Kristján Eld
járn um þetta. Hann kvað það
miður, að fundurinn hefði ekki
verið tilkynntur. Hins vegar
sagði hann, að Þjóðminjasafnið
hefði ekki látið framkvæma
neinn uppgröft. Litlar minjar
væri að finna í kristnum gröfum
Það eina sem gert væri í slíkum
tilfellum væri að skrá staðsetn
ingu bænhússins og grafreits-
ins.
Þá talaði blaðið og við séra
Svein Víking, sem er að vinna
að skrá um bænhús á íslandi.
Hann sagði að vitað hefði verið
um fjögur bænhús á Tjörnesi,
að Saltvík, Bakka, Syðri Tungu
og Isólfsstöðum. Ekki hefði ver
ið vitað um staðsetningu
tveggja bænhúsa til viðbótar,
en sr. Sveinn hafði getið sér
til, að þau mundu hafa verið að
Sandhólum og Máná. Þótti hon
um vænt um að heyra, að upp-
gröftur þessi hefði sýnt að til-
gáta hans hefði verið rétt.
Fjöldi ísleazkra ferða-
manna á heimssýninguna
Eftir rúman hálfan mán-
uð hefst heimssýningin í
New York. Verður sýning-
in haldin í Flushing
Meadow á Long Island og
er á sama stað og heims-
sýningin 1939, en þar stend
ur þó eftir aðeins eitt af
þeim mannvirkjum, sem
hyggð voru fyrir þá sýn-
ingu. Ferðaskrifstofurnar
íslenzku hafa auglýst ferð-
ir á sýninguna og talsvert
liefur borizt af pöntunum
á miðurn
Njáll Simonarson hjá Ferðaskrif-
stofunni Sögu sagði í gær, að
hann hafi heimsótt sýninguna í
febrúar s.l. og hafi þá allt verið
á tjá og tundri. ,,Ég gat ekki ímynd
að mér að takast mundi að ljúka
! undirbúningi fyrir 22. april. En það
|voru 8000 manns að störfum og nú
j virðist sem allt ætli að standa
jheima". Njáll kvað talsvert mikið
bókað af pöntunum 2. júní og sömu
I leiðis í haustferðina á heimssýning
|una. Mjög gott tilboð hefur komið
ifram frá 13 bandarfskum flugfélög-
um, sem bjóða sameiginlega far-
miða, sem nota má eins mikið og
jviðkomandi mögulega getur á 15
dögum og kostar aðeins 100 dali.
' Slíkur miði sem gildir 45 daga,
jkostar hinsvegar 200 dali og má
; á heimssýninguna og eins til Miami
Beach.
Þannig Iagu beinin í jaroveginum.
segja að með slíkan miða í hönd
unum sé hægt að skoða öll Banda-
ríkin.
Hjá Lönd og leiðum eru 3 ferðir
ráðgerðar. Fyrsta ferðin er 17. maí
og hafa mjög margir látið skrá sig.
Tv^er ferðif til viðbótar verða í
sumar, 7. júlí og 15. sept. Eru
það ferðir, sem farnar verða bæði
DRANGAJÖKULÍ SIGLIR
- MEB NÝRRIÁHÖFN
Látlaus rannsókn stendur yf-
ir i smyglmáli skipshafnarinnar
á m.s. Drangajökli og á meðan
hefur öll skipshöfnin verið sett
í farbann.
Þetta mun þó ekki tefja ferð-
ir skipsins úr þessu, því að ný
áhöfn hefur verið ráðin á M.s.
Drangajökul. Lét hann úr höfn
í gærkveldi og fór þá til Ólafs-
víkur að iesta fisk. Þaðan er
hann væntanlegur til Keflavik-
ur í fyrramálið, fer að því búnu
til Vestmannaeyja og siglir það-
an til Rússlands. Skipstjóri í
þessari ferð verður Jón Þor-
valdsson, sem áður var skip-
stjóri á m.s. Vatnajökli.
Eins og áður hefur verið
skýrt frá hófst rannsókn á
máli áhafnar m.s. Dranga-
jökuls s.l. laugardag. Þá varu
10 skipverja teknir fastir oa
fluttir í fangageymslur lög-
reglunnar. Fleiri hefðu verið
teknir ef húsnæði hefði verið
fyrir hendi. Þrem þessara
manna var sleppt um kvaldið,
en sjö úrskurðaðir í gæzlu-
Framh. á- bls. 6