Vísir - 08.04.1964, Blaðsíða 15
VI S IR . Miðvikudagur 8. apríl 1964.
wm*»-~ ^\ • r>-nK«we»w.... «BW B22E
Vér bjóðum /ður
Ödýr plastskilti svo sem
Nú var sem mikil breyting
yrði á Emmu Rósu. Hún kippt-
ist við og leit ringluð í kring-
um sig.
- Ó, guð minn góður, þetta
er herbergið, sem þrælmennin
fóru inn í með mig undir því
yfirskini að ég mundi hitta hér
móður mína. Hvar eru þeir?
— Þeir eru á hröðum flótta —
þeir tóku til fótanna, er þeir
heyrðu okkur koma. Þekktuð
þér þá?
— Að minnsta kosti annan
þeirra — morðingja Jacques
Bernier, en hann reyndi svo að
drepa mig.
- Eins og mig grunaði. Segið
mér hvað gerðist, ungfrú.
— Þeir þvinguðu mig til að
drekka eitthvað, sem var mjög
beiskt_ Svo missti ég meðvit-
und, og ég man ekkert, fyrr en
ég opnaði augun áðan. Ef þess-
ir menn koma aftur, drepa þeir
mig, vemdið mig fyrir þeim.
— Verið óhrædd, sagði Óskar.
Þér eruð hjá fólki, sem vill yð-
ur vel. Þessi kona er Soffía
Rigault, systir mín, sem á hús-
ið héma. Hún hefur hjarta úr
gulli, skal ég segja yður. Og ég,
ja, ég hef tvöfalda ástæðu til
þess að vilja hjálpa yður. —
í fyrsta lagi vil ég vernda yður
fyrir þessum þorpara, og í öðru
lagi vil ég hefna mín á honum
fyrir að leiða grun að mér fyrir
morð, sem móðir yðar enn er
grunuð um.
— Þér trúið þó ekki, að móð-
ir mín sé sek, spurði Emma Rósa
áköf.
— Að hún sé sek, nei, ég held
nú ekki — ekki sekari en ég, en
um það skulum við tala seinna.
Nú þarf ég bara að fá vitneskju
um sitt af hverju, vltneskju, sem
ég get aðeins fengið frá yður.
Emmú Rósu var svo hrollkalt,
að tennumar glömruðu í munn-
inum á henni og hún titraði frá
hvirfli'til ilja.
— Æ, þér eruð votar í fæt-
uma. Setjizt nú hérna með fæt-
urna að eldinum, meðan Soffía
býr um yður. Svo er mest um
það vert að reyna að sofa til
morguns.
- Já, sagði Soffía og faðm-
aði Emmu Rósu að sér, nú skul
uð þér vera alveg róleg, við
skulum gæta yðar.
— Þökk, þér eruð mér svo
góð, sagði Emma Rósa hrærð.
Hún bar allt í einu hönd að aug
| um sér og hún varð skelfd á
! svip.
— Hvað — er eitthvað að?
— Þetta er einkennilegt, mér
líður eins og þegar ég vaknaði
úr dái eftir fyrstu morðtilraun-
ina. Það er eins og ég sjái hér
allt í þoku.
- Það stafar sjálfsagt af
geðshræringunni, sagði Soffía.
Það líður vafalaust fljótt frá.
- Já, sagði unga stúlkan, nú
greiðist þokan dálítið frá.
— Það er gott, talið nú við
ibróður minn, meðan ég bý um
j yður.
— Eruð þér nógu hress til
|að svara mér? spurði Óskar.
- Já.
— Segið mér þá hvernig þessi
þrælmenni gátu lokkað yður
hingað.
Emma Rósa sagði honum allt
af létta um það.
— Og þetta bréf, sem notað
var sem beita — hafið þér það
íennþá?
— Já, ef þeir hafa ekki stolið
því frá mér.
Hún þuklaði í vasa sínum.
— Nei, hérna er það, sagði
hún og rétti Óskari það.
Hann las það með athygli.
— Já, þetta eru ekki neinir
bjálfar. — Og þér hafið þannig
ekki sagt þernu yðar neitt.
— Nei, hún hlýtur að óttast
um míg. ' " .■-• •• - . |
— Við reynum að róa hana.
— Ætlið þið að fara með mig
til hennar í fyrramálið?
— Nei, það væri heimskulegt.
— Hvers vegna?
— Vegna þess, að þrælmennin
myndu þá komast að raun um,
að yðúr hefir verið bjargað, og
þar sem þeir hafa nú fengið þá
flugu í kollinn að ryðja yður úr
vegi, mundu þeir gera nýja til-
raun, og þá er ekki vist, að ég
komi á réttu augnabliki til að
bjarga yður. Eigi okkur að tak-
ast að uppgötva hinn seka, er
nauðsynlegt að menn telji — að
minnsta kosti í bili, að þér sé-
uð horfnar. Við tökum yður með
til Parísar til Soffíu systur minn
ar, sem mun annast yður.
— En vesalings móðir mín —
á hún líka að vera áhyggjufull
út af hvarfi mínu, ef það berst
henni til eyrna?'
— Það skulum við athuga.
Berið þér ekki traust til mín,
ungfrú?
— Fyllilega, sagði Emma
Rósa áköf.
— Þakka yður fyrir, ungfrú,
sagði Óskar glaður, og ég á það
líka skilið, og yður mun aldrei
iðra þess, því að það er ég,
:Rigolo, sem skal sanna sakleysi
móður yðar og afhjúpa hinn
arma.
— Hve ég mun blessa yður
alla mína daga, sagði Emma
Rósa hrærð.
— Tölum ekki um það nú,
sagði Óskar, ég á hvorki bless-
un eða þakklæti inni hjá yður,
því að ég er jafn áhugasamur
um þetta og þér. Við erum í
rauninni samherjar, og þegar ég
vinn fyrir yður, er ég líka að
vinna fyrir mig.
— Jæja, sagði Soffía, hefirðu
nú fengið að vita það, sem þú
vildir?
Hún hafði komið inn í þessu.
— Já, svaraði Óskar.
— Ágætt, þá getur blessuð
stúlkan komið að hátta.
— Æ, ég er fegin, ég er alveg
úrvinda.
— Komið þá, sagði Soffía.
— Ég ligg hérna á legubekkn-
um, sagði Óskar, og læt fara
vel um mig, og strax og dagur
rennur, athugum við okkar ráð.
— Þökk, sagði Emma Rósa-og
rétti honum hönd sína.
— Ekkert að þakka, sagði
Óskar —. fyrr en sakleysi móður
ýðar œr:<sannað fyrir mitf starf.
— Þánn dag mun 'ég' leggja
hendurnar um hálsinn á yður.
— Það væri nú ekki sem verst
að fá slík laun, sagði Óskar bros
andi.
Soffía hjálpaði Emmu Rósu
;til að háttta og lagðist svo til
i svefns í herbergi við hliðina á
því, sem Emma Rósa svaf í, en
'niðri sat Óskar makindalega í
hægindastól og tottaði pípu
sína og hugsaði sem svo:
Þetta eru fífldjarfir fantar,
: sem ekki láta sér neitt fyrir
jbrjósti brenna, en svo sannar-
j lega skal sonur hans föður míns
sáluga klekkja á þeim. Hvernig
væri annars að líta í kringum
sig í borðstofunni, þar sem þeir
héldu sjálfum sér gildi?
Hér hefur ekki verið snert við
neinu, — þar átti víst stúlkan
að sitja, hugsaði hann, — nú,
þeir hafa keypt sér smurt brauð
og kökur, sennilega verið búnir
að kaupa birgðirnar, þegar ég
sá vagninn í Charentongötunni.
HURÐARNAFNSFJÖLD,
HÚSNÚMER,
FIRMASKILTl,
MINNINGARPLÖTUR
o. m. fl
Plasthúðum pappír—Spraut-
um flosfóðringu.
SKILTI & PLASTHÚÐUN S.F.
, ■■ , í. li S' í ' '■/.<&'■* vi- -x
Hreinsum
Sækjum —
sendum.
samdægurs
Efnalaugin Lindin
Skúlagötu 51,
sími 18825
Hafnarstræti 18,
sími 18821
Oill€l ÚRIN
bimsfrægu
Fást hjá
GARÐARI ÓLAFSSYNl
úrsmið
Lækjartorgi. Sími 10081
15
3 herb. íbúð við Óðinsgötu.
5 og 6 herbergja íbúðir x
Hlíðunum, 5 herbergja fbúð
við Skipasund, hús með
tveimur ibúðum við Lang-
holtsveg. Risíbúðir í Teigun
I smíðum í Kópavogi.
um. 2 og 3 herbergja fbúðir
í miðborginni. Einbýlishús í
Höfum fjársterka kaupend
ur að 2 herb. íbúðum og 3.
herb. íbúðum, ris kemur til
greina, 4 herb. íbúðum. Út-
borgun getur verið 450 þús.
og meira í suraum tilfellum.
JÚN MGMARSSON
tögmagur___________
HAFNARSTRÆTI 4
SiMi 20788
sölumaður:
Sigurgeir Magnússon
16 mm filmuleiga
Kvikmyndavélaviðgerðir
Skuggamyndavélar
Flestar gerðir sýningarlampa
Ódýr sýningartjöld
Filmulím og fl.
Ljósmyndavörur
Filmur
Framköllun og kópering
Ferðatæki (Transistor)
FILMUR OG VÉLAR
Freyjugötu 15
Sími 20235
Fanný ienonýs
T
A
R
Z
A
H
7UEING THE NIGHTOF THE FULL
/AOON > THERMAL WATEE GUSHE7
FORCEFULLY FR0WÍ GLÍFF R0CR,
AGAIWST NURSE NAOttl'S EACK/.
I Att G01UG.TO \\
PLUG THE ENP k
• OF THE LOG- S
SHELL.TARZAN..'.
, TELLYOUK
K, WOttAN NOT ,
fei' TO BE
f K. FRI5HTENEF!
...BUT, AT PAWN
THE GEYSER'S
ttYSTEKIOUS
FOKCE
FlttlNISHES,
UNTJL ONLY
AGENTLE
.Rtt SPRING
FLOWS
THROUÍH
THE FUG-
'OUT LOG. ,
SOttSTHINS
500? IS
HAPPENING
TOttE... -
I FEEL IT IN
MY SFINE!
Bh.l
tLLOT
dOH4
'CMSV0
Copr. U40. M|U Rlc4 Surrourh*. 13t^Tm. Bm V. B.r»l Otf.
Distr. by United Feature Syndicate, Inc.
Alla nóttina gusast vatnið i ar dagur rennur minnkar kraftur- loka fyrir endann á trjábolnum, ekki hrædd. Mér líður svo vel,
gegnum trjábolinn, og baðar lík inn, og það er aðeins lítill lækur segir Medu. segðu henni að vera andvarpar hún. Mér finnst ég
ama hjúkrunarkonunnar, en þeg sem rennur áfram. Ég ætla að ekki hrædd. En Naomi er alls vera að lifna við.
sémi 16738 ;
Gæruiíipur
kr. 998,00 I
Miklatorgi