Vísir - 22.05.1964, Side 2
JON BIRGIR PETURSSON
RITSTJÓRI
' ;
Með honum eru Hreiðar Ársælsson
V1SIR . Föstudagur 22. maí 1964.
r
Ingi ^orsfeinsson formaður F. R. 8.:
BJARTSÝNN Á
FRAMTÍDINA "
„Ég er bjartsýnn á sum-
arið framundan“, sagði
Ingi Þorsteinsson, form.
FRÍ í viðtali um verkefni
frjálsíþróttamanna í fyrra
kvöld. „Mér finnst að þær
áætlanir og sú vinna sem
FRÍ hefur lagt fram und-
anfarin ár, sé nú að bera
ávöxt, við erum að eignast
bráðefnilega íþróttamenn
og allgóða breidd. Ég er
ekki í nokkrum vafa um
að áframhaldandi vinna
við þjálfunarmál og út-
breiðslumál okkar á eftir
að hefja frjálsar íþróttir
upp“.
Þjálfunarmálin eru mjög erfið
hjá FRÍ ekki síður en öðrum íþrótta
greinum. Sambandið hefur einn
þjálfara, Hörð Ingólfsson, sem hef
ur látið margt gott af sér leiða, og
innan skamms hefst leiðbeinanda-
námskeið að Núpi í Dýrafirði og
mun Sigurður Guðmundsson, kenn
ari þar sjá um námskeiðið. Seinna
í sumar er von á bandarískum
þjálfara, Thomas Ecker, sem mun
þjáifa frjálsíþróttamenn nær tvo
mánuði.
ÞÓROIFUR BtCK OG KR
CCGN .. IANDS“UDINU
rr
Spennondi leikur á
sunnudng í Luugurdul
Fyrsti stóri leikurinn á
þessu ári í knattspyrnunni fer
fram n. k. sunnudag kl. 16.00
og verður ekki annað sagt en
að talsverð eftirvænting ríki
fyrir leikinn, sem er milli KR
og „Iands“liðs, þ.e. þegar KR-
liðið hefur verið dregið frá.
Með KR Ieikur okkar bezti
knattspyrnumaður nú og jafn- <&-
framt eini atvinnuknattspyrnu-
maðurinn okkar I dag, Þórólfur
Beck.
Lið KR og ,,lands“liðsins hafa
verið yalin og eru þannig skip-
uð talið frá markverði til v. út-
herja.
„Lands“lið: Helgi. Dan. (ÍA) —
Árni Njálsson (Val) — Guðjón
Jónsson (Fram) — Jón Leósson
(ÍA) — Jón Stefánsson (ÍBA) —
Matthías Hjartarson (Val)) —
Jón Ól. Jónsson (IBK) — Skúli
Ágústsson (ÍBA) — Jón Jó-
hannesson (ÍBK) — Kári
Árnason (IBA) — Hermann
Gunnarsson (Val).
Varamenn: Guttormur Ólafs-
son (Þrótti), Högni Gunnlaugs-
son (iBK), Eileifur Hafsteins-
son (IA) og - .Idur Scheving
(Fram).
KR: — Heimir Guðjónsson —
Hreiðar Ársælsson — Bjarni
Felixson — Þórður Jónsson —
Hörður Felixson — Sveinn
Jónsson — Örn Steinsen —
Þórólfur Beck — Gunnar Felix-
son — Gunnar Guðmannsson
— Sigurþór Jakobsson.
Varamenn: Gísli Þorkelsson>
Kristinn Jónsson, Þorgeir Guð-
mundsson og Jón Sigurðsson.
Þórólfur er kominn heim frá
Skotlandi fyrir nokkrum dög-
um og er í hinni beztu þjálfun,
varð að vísu fyrir smáóhappi
í leik á dögunum, en er búinn
að jafna sig að fullu og verður
skemmtilegt að sjá hann nú.
Þórólfur lék einn leik hér í
fyrra með KR, það var gegn
Haka, en þá var Þórólfur ekki
I æfingu og sýndi fæst af því
sem í honum býr.
Búast má við óvenjumiklu
fjölmenni á vellinum á sunnu-
dag og er fólki eindregið ráð-
Iagt að fá sér miða fyrr en sfð-
ar. I fyrra mynduðust miklar
biðraðir rétt í þann mund er
leikur Haka og KR var að hefj-
ast og komust hinir síðustu
ekki inn fyrr en 20 mínútur
voru búnar af leik, — og þá
mátti segja að leiknum væri
lokið, því búið var að skora
öll mörkin.
Miðar verða seldir fyrir
leikinn í sölutjöldum sem verða
við Útvegsbankann og eins fyr-
ir utan verzlun P.&Ó. innarlega
á Laugavegi. Hófst sala úr
tjöldunum í morgun og heldur
áfram í dag og á morgun.
Leikur KR og „restar“, eins
og leikurinn er oft kallaður
manna á meðal, er háður í til-
efni af 65 ára afmæli KR á s.l.
vetri.
Frjáisíþróttamenn virðast hafa
æft nokkuð vel í vetur hjá félögum
sínum en landsliðsæfingar féllu nið
ur í vetur. Um páskana dvöldust
landsliðsmenn við æfingar austur í
Haukadal hjá Sigurði Greipssýni og
leiðbeindi Benedikt Jakobsson þar.
1 sumar er skipulögð mikil út-
breiðsluherferð víða um land undir
stjórn Höskuldar Goða Karlssonar.
Á landsliðið hafa hlaðizt verkefni
og vónandi tekst liðinu betur upp
nú en áður og vissulega eru sterk-
ar vonir til að svo verði. Meistara-
mót Norðurlanda fyrir unglinga fer
fram í fyrsta skipti í Osló 8. og 9.
ágúst og er ráðgert að FRÍ sendi
6 — 8 unglinga þangað. Boð hefur
borizt um að senda fararstjóra og
keppanda til A-Berlínar í júní á
alþjóðlegt frjálsíþróttamót og á
heimavelli eiga íslendingar eftir að
glíma við V-Norðmenn 21. og 22.
júlí og 8. og 9. ágúst fer fram I
Reykjavík tugþrautarlandskeppni
milli íslands, Norðmanna og Svía
Framh. á bls. 6
'
Úr landskeppni Islendinga og Dana I fyrrasumar — þá unnu Danir okkur í fyrsta skipti.