Vísir - 22.05.1964, Blaðsíða 5

Vísir - 22.05.1964, Blaðsíða 5
5 Gallabuxur — Zippbuxur — Drengja peysur — Telpupeysur - Skyrtur - Nærföt — Sokkar — Regngallai Regnkápur — Úlpur — Jakkar utíötíd 1 1 niorgun útlönd. í norgun útlönd í morgun V í SIR . Föstudagur 22. maf 1964. útlond í upphaf frekarí aðgerða Adlai Stevenson, aðalfulltrúi Bandarikjanna hjá Sameinuðu í þjóðunum, lýsti yfir þvi í ræðu á fundi Öryggisráðs í gær- kvöldi,' að Bandaríkjastjórn ætl- aði sér ekki að sitja hjá og horfa á það, að vopnuðu of- beldi væri beitt og vaðið yfir Suðaustur-Asíu. Hann lagðist eindregið gegn nýrri ráðstefnu um Laos, — ákvarðanir 14 þjóða ráðstefn- unnar frá 1954 hefðu marg- sinnis verið þverbrotnar, og eins myndi fara ef ný ráðstefna tæki einhverjar ákvarðanir. Einföld úrlausn varðandi Laos væri að flytja burt erlent herlið þaðan og svo yrðu nágrannaþjóðir að láta það í friði. Stevenson sagði, að íhlutun Bandaríkjanna í Suður-Vietnam væri að beiðni löglegra ríkisstjórna í landinu. Einnig ræddi hann umkvartanir Sianhouk prins, valdhafa Cambodia, og sagði að bezta lausniri til að tryggja hlutleysi þess lands væri að hafa gæzlu- : lið frá Sameinuðu þjóðunum til þess að gæta þeirra. Stevenson hafði verið kvadd- ur heim f skyndi frá London til þess að flytja þessa ræðu, og er það álit látið í ljós, eftir flutning ræðunnar, að Banda- ríkjastjórn ætli ekki að láta sitja við orðin tóm og séu vænt anlegar tilkynningar um að- gerðir. Það stóð heldur ekki á því, að eitthvað gerðist því að nærri þegar eftir að Stevenson hafði flutt ræðuna, bárust fréttir um það frá Kína, að skotið hefði verið á „bandarískar njósna- flugvélar yfir Krukkusléttu“, sem nú er á valdi kommúnista svo sem fyrr hefir verið getið. Talsmaður utanríkisráðu- neytisins gerði þessar kínversku fréttir að umtalsefni og sagði, að bandarískar, óvopnaðar flug vélar hefðu í gær flogið yfir Krukkusléttu til þess að afla upplýsinga um stöðu Pathet Laos liðsins þar, sem stutt er af Norður-Vietnam. Kvað hann allar upplýsingar sem aflað væri í könnunarflugferðum Iátnar í té hlutlausu stjórninni í Laos og Alþjóðaeftirlitsnefnd- inni. Kfna og Norður-Vietnam standa að bak: Pathet Laos og svonefndir sjálfboðaliðar og jafnvel reglulegir hermenn frá Norður-Vietnam hafa sem fyrr- um tekið sameiginlegan þátt í hernaðaraðgerðum, sem nú hafa leitt til þess að mikilvægur landshluti er á þeirra valdi — og nú er látið sklna í, að Path- et Laos vilji semja, og þannig er gleypt meira smám saman. Það er þetta sem Bandaríkin vilja girða fyrir og segir í NTB-frétt frá Washington að könnunarflugið kunni að verða „aðeins hin fyrsta af mörgum hernaðarlegum aðgerðum í Suð- austur-Asíu“ og er þetta haft eftir bandarískum embættis- mönnum. Vegna hættunnar, sem staf ar af kommúnistum í Laos, hafa verið til athugunar ýmsar að- gerðir til þess að bægja hætt- unni frá Suður-Vietnam og öðr um rfkjum Suðaustur-Asíu, m. a. aðgerðir gegn Norður-Viet- nam, flutningur herliðs til þessa heimshjara — liðsflutningur til Thailands, fallist stjórn landsins á það, og bein hernaðarleg íhlut un í Laos, „Frekari aðgerðir verða fyrir skipaðar," segja embættismenn „ef horfurnar versna enn frá því sem komið er.“ Tilgangurinn með könnunar- fluginu er ekki eingöngu að afla upplýsinga, herma sömu fregnir, hann er einnig til að sýna vald og getu Bandaríkj- anna í Suðaustur-Asíu. Bandarísk flotadeild, sem f eru flugvélaskip, er farin frá Indlandshafi, og hefir samein- azt aftur Sjöunda flotanum á Kyrrahafi. Hafa þá Bandaríkin þrjú stór flugvélaskip í Austur- og Suðaustur-Asíu. JLeiðtogamir í Laos: Souphanavon, Souvanna og Phoumi. Newsweek birtir myndina og bætir við (um Phouma): Kannski honum sé líka sama. Bifvélavirki Bifvélavirki eða bifreiðasmiður óskast. Uppl. í síma 10154. Iðnaðarhúsnæði Iðnaðarhúsnæði óskast ca. 100 ferm. helzt í Austurbænum, má vera í skemmu. Sími 21962. Forstofuherbergí Forstofuherbergi óskast í Hlíðunum eða Norðurmýri. Uppl. í síma 17891 EtDEffi með fairiaðinn á fjölskylduna Laugaveg 99, Snorrabrautar megín - Sími 24975 Með kveðju fró hr. Brown Hörkuspennandi saka- málasaga eftir Agatha Christie er á þrotum hjá forlag- inu, en fæst enn í flest- um bóksölustöðum. Þórsútgáfan, Sími 50802. Skerpingaverkstæðið er flutt af Grenimel 31 í Grjótagötu 14. BITSTÁL. Sími 21500. M.s. Skjaldbreið fer vestur um land til ísafjarðar 23. þ.m. Vörumóttaka í dag til Ól- afsfjarðar, Grundarfjarðar, Stykkis hólms, Patreksfjarðar, Sveinseyrar, Bíldudals, Þingeyrar, Flateyrar, Suðureyrar og ísafjarðar. Farseðl- >ar seldir á föstudag. GRIIFBNN AF MONTE CHRISTO ein frægasta skáldsaga heims, eftir Alexandre Dumas, nær 1000 bls., verð kr. 100.00. Fæst I Bókaverzl- uninni Hverfisgötu 26 RÖKKUR pósthólf 956, Reykjavík Keflavík — Keflavík Heimir, félag ungra sjálfstæðismanna í Keflavík efnir til kvikmyndasýningar fyrir almenning í Nýja Bíó, Keflavík n. k, laugardag kl. 17.00. Þessar kvikmyndir verða sýndar: 1. Bandaríkin kjósa Kennedy forseta. 2. Innsetningarathöfnin. 3. Evrópuferð Kennedys. 1. Indlandsferð Jackie Kennedy. 5, Heimsókn Kennedys til Vestur-Berlínar. 3. Kvikmynd frá atburðinum í DaJIas og útför forsetans. Öllum heimill ókeypis aðgangur meðan húsrúm leyfir. Heimir FUS.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.