Vísir - 08.06.1964, Síða 2
V í S IR . Mánudagur 8. júní 1964.
BÍRGÍR PETURSSON
Hvernig fer
5-manna nefndarínnar ?
Weirður reynsðulífið úrvnlsflii fiS
nfhEægis gegn Wnnderers i kvöld?
í kvöld fer fram stærsti leik-
ur ársins til þessa á knattspyrnu
sviðinu. Það er leikur brezku
knattspyrnumannanna Middles-
ex Wanderers, sem undanfarið
hafa hlotið mikið lof fyrir Ieik
sinn hér, og sterkasta úrvalsliðs
okkar, eða svo má heita.
Fimm menn háfa undanfarið
setið nótt og dag á rökstólum
um lið þetta. Aldrei fyrr hafa
eins margir menn komizt að
svo lítiLli niðurstöðu, og þó. —
Hver veit nema hér hafi einmitt
framtíðarlausn landsliða vorra
verlð fundin? Vonandi, að hin-
um vísu mönnum hafi tekizt
það.
í liðið hefur þessi landsliðs-
nefndarkvintett fundið unga
menn, sem Iftt háfa komið við
sögu. Kannski eiga þeir eftir að
duga betur en hinir gö'mlu, þrátt
fyrlr reynsluleysi sitt i leikjum
sem þessum. Svar við þessari
spurnjngu og öllum öðrum
spurr/nguni, sem upp kunna að
koma, kemur væntanlega
I kvöld, þegar þessi lið mætast,
en eflaust munu mörg þúsund
manns fara inn í Laugardal til
að horfa á þennan leik.
Liðin í kvöld eru þannig skip-
uð, og var ekki vitað um nein
forföll, þegar blaðið fór í press-
una:
MIDDLESEX WANDERERS:
Swannell — Taylor — Leon-
ard — Cantwell — Cole —
Brown — Candey — O’Rourke
Brima
Fay — Quail (fyrirliði)
combe.
ÚRVAL: Heimir Guðjóns-
son (KR) -— Jóhannes Atlason
(Fram) — Magnús Torfason
(Keflav.) — Ómar Magnússon
(Þrótti) — Jón Stefánsson (Ak-
ureyri) — Matthias Hjartarson
(Val) — Reynir Jónsson (Val)
Hermann Gunnarsson (Val) —
Jón Jóhannsson (Keflav.) — Ei-
leifur Gunnarsson (Akranes) —
Gunnar Guðmannsson (KR).
Leikurinn hefst kl. 20.30
stundvíslega og er fólki ráðlagt
að mæta tímanlega til að forð-
ast troðning við innganginn.
Brazilía
vann
Brazilíumenn unnu f gær
Portúgali í Ríó með 4 mörkum
gegn 1 f hinni svokölluðu
„litlu heimsmeistarakeppni“,
sem fram hefur farið undanfar
ið þar í borg. í hálfleik stóðu
leikar 2:1 fyrir Brazilíu.
vaun
VIKINGUR
BREIÐABLIK 2-1
Vxkingur vann Breiðablik i 2.
deildarkeppninni í knattspyrnu í
gærkyöldi á Melavellinum i Reykja-
vfíí með 2:1 eftir allspennandi
leik, en fremur illa leikinn af báð-
um aðilum.
Það voru Víkingar sem tóku
frumkvæðið í sínar hendur með
að skora úr vítaspyrnu í fyrri hálf-
leik. Það var bakvörðurinn, Brynj-
ar Bragason, sem framkvæmdi
hana og skoraði örugglega.
Snemma í seinni hálfleik skor-
aði Bergsteinn Pálsson 2:0 fyrir
Víking, en mark Breiðabliks kom
eftir 30 mínútna Ieik í seinni hálf-
leik og sfðustu 15 mínúturnar má
segja að Kópavogsmennirnir hafi
sótt án afláts, án þess þó að takast
að skora, en segja má að jafn-
tefli hefði verið fyllilega verð-
skuldað. Voru Breiðabliksmenn
mjög óheppnir og áttu meðal anu-
ars gott skot í stöng. Mark þeirra
skoraði Júlíus Magnússon.
UNGLINGAR UNNU 1:0
Lið unglinganefndar KSÍ vann
FH sem styrkt var „gömlum stjör/i
um“ víðs vegar að, m.a. Albert
Guðmundssyni og Hermanni Her-
mannssyni, sem vöktu mikla at-
hygli áhorfenda í Hafnarfirðí, en
þeir voru fjölmargir. Leiknum
lauk með 1:0.
Myndirnar á siðunni eru frá
leiknum. Efsta myndin er af Her-
manni og Albert. Hermann er með
gömlu. rauðu Valshúfuna s.'na, scm
hann bar stoltur í markinu í mörg
ár. Næsta mynd er úr leiknum.
Það er Ragnar Jónsson, hand-
knattleikskappi úr FH, sem er að
glíma við boltann, en álengdar er
efnilegur piltur, Ingvar Steinþórs-
son úr Þrótti. Þriðja myndin er svo
af fiði FH ásamt styrktarmönnum.
Hörður Markan skoraði tnark
unglingaliðsins eftir 15 mínútna
leik.