Vísir - 08.06.1964, Síða 7
V1 S I R . Mánudagur 8. júní 1964.
7
Gunnlaugur
Scheving
T hvert sinn er ég dvelst fjarri
íslandi birtast mér endur-
minningar um land og þjóð eins
og í myndum Gunnlaugs Schev-
ings, líkt og list hans hafi kennt
mér að skynja og skilja sál og
fegurð þessa lands.
Þar birtist ísland „ögrum
skorið“, þar sigla íslands hrafn-
istumenn á hallandi bátadekki
í haugasjó. Lítil sjávarþorp
kúra í þunglyndislegri fegurð
sinni. Þar ríkir kyrrð sveitasæl-
unnar undir tærum bláma vor-
himinsins, birta sumarsins breið
ist með næstum suðrænni
gnægð yfir fjall og dal. Fagrar
heyrast raddirnar um „sumar-
arlangan dag“, og fagrir ljóma
þar litirnir.
Þó eru það ekki einungis nátt
úran og fegurð þessa lands, sem
eru geymdar í myndum Gunn-
laugs — þar óma einnig mann-
...
FERÐIR
I VIKU
BEIIMA LEIÐ
TIL
LONDON
leg örlög og saga þeirra frón-
búa, er byggðu það frá önd-
verðu. Menn, sem hann mótar,
eru stórbrotnir og svipmiklir.
Bókaskreytingar Gunnlaugs í
Njálu og Grettissögu jafnast á
við það bezta, sem á því sviði
hefur gerzt á Norðuriöndum.
Gunnlaugur málar sægarpa,
sveitarstúlkur, búkarla, smiði og
smaladrengi, börn og dýr. Litlu
máli skiptir, hvort hann lýsir
sambúð manna i sínum hvers-
dagsleika eða í æðri veruleika
sagna og ævintýra. Myndir hans
eru alitaf sanr.ar. Þetta listræna
jafnrétti mismunandi stiga vit-
undar og veruleikans — er einn-
ig fremst í verkurn Ásgríms og
Kjarvals — er einkenni, sem
setur sérstakan og persónulegan
svip á iist Gunnlaugs og veldur
þvi, að hún er þjóðleg í eigin-
legri merkingu orðsins „öll góð
list er þjóðleg“! Að sjálfsögðu
má draga upp aðra mynd af
íslandi eins og raun ber vitni.
En Gunnlaugur þræðir sína
braut alltaf sjálfum sér sam-
kvæmur, óháður, að því er virð-
ist, og ótruflaður af öllum „ism-
um“ dagsins, þó ekki utan
tengsla við anda síns tíma. Enda
þótt furðu virðist sæta, eru upp-
áhalds fyrirmyndir hans hinir
miklu meistarar 15. og 16. aldar
á Ítalíu. En þangað hefur hann
aldrei komið. Hann sá þá í Ber-
Iín. Einkar fróðlegt og skemmti-
legt er að hlusta á Gunnlaug,
er hann lýsir myndum þeirra.
Gerir hann það. eins nákvæm-
lega og fjörlega og hann hefði
skoðað þær í gær; en til Berlín-
ar kom hann fyrir rúmum þrjá-
tíu árum. Það, sem á erindi til
hans í þeirri list, er um leið
frá upphafi viðfangsefni, sem
honum er hugnæmt: mynd
mannsins í strangri kompositi-
on. Þannig hefur list hans —
burt séð frá áhrifum nútíma-
málara — fest sterkar rætur í
arf fortíðar og nærist úr djúp-
um stráumi listar gegnum ald-
irnar.
Eins og hver annar skapandi
listamaður hefur Guhnlaugur
bersýnilega sinn drösul að
draga; én hann gerir það með
skapfestu og jafnaðargeði. Eng-
inn getur kvongazt Iistargyðj-
unni, svo að hann megi heimta
af henni eins ósvikulan inn-
blástur og órofna sköpunar-
gæfu og daglegt brauð. Gunn-
laugur fer ekki varhluta af því.
í verki hans skiptast á flóð og
fjara.
En sé litið yfir verk hálfs
þriðja áratugs, — þann tíma
hefur hann starfað, að loknu
námi, — þá hefur honum lán-
azt að skapa stórfenglegan
myndheim: eina þá dýrmætustu
íslandslýsingu, er ég þekki til.
Þjóðin stendur í mikilli þakkar-
skuld við þennan listamann.
Ég árna honu... allra heilla á
sextugsafmæli og óska þess af
einlægni, að honum megi endast
starfsorka og sköpunargleði i
fjölda mörg ár.
Kurt Zier.
i
MttWSJE
Stórborgin London er
höfuðsetur lista, mennta
og heimsviðskipta.
London er brennipunktur flugsamgangná
um allan heim. Við fljúgum 10 sinnum í
viku til Bretlands í sumar, þar af þrjár
ferðir beint til London. Tíðustu ferðirnar,
þaegilegustu ferðirnar, beztu ferðirnar,
það eru ferðir Flugfélagsins.
Knattspymufélagið VALUR
HANDKNATTLEIKSDEILD
Meistara, I. og II. flokkur kvenna A.
Útiæfingar hefjast þriðjudaginn 9. júní kl.
20.30. Nauðsynlegt er að þær, sem ætla að
vera með í sumar, mæti á þessa fyrstu æf-
ingu. Rabbfundur eftir æfinguna.
Nýir félagar velkomnir.
Stjórnin.
Bíleigendur othugið
Ef orkan minnkar en eyðslan eykst, eru
óþéttir ventlar númer eitt. Okkar sérfag eru
ventlaslípingar. Leggjum áherzlu á góða
þjónustu.
BIFVÉLAVERKSTÆÐIÐ
m
VENTILU