Vísir - 14.07.1964, Page 3

Vísir - 14.07.1964, Page 3
V í SIR . Þriðjudagur 14. júlí 1964. 3 Svipmyndir frá Siglufirði Tunnuskipin koma og fara á Siglufirði. Eftir að síldarverksmiðjan brann reyndist óhjá- kvæmilegt að flytja inn tunnur. Síldarbátarnir streyma til Siglufjarðar að austan. Þar hafa verksmiðjumar ekki imdan að taka á móti því mikla magni, sem nú berst að Iandi. Sólar- hringsaflinn er ævintýralega mikill, þegar bezt lætur. Eitt ið á móti 440 þúsundum nú metið, sett um sl. helgi. Sfld- arverksmiðjurnar hafa alls tek- ið á móti fjórum milljónum mála, samanborið við 165 Hér er Sólrún ÍS 339 á leið inn Siglufjörð drekkhlaðin síld að austan. þús. mál á sama tfma í fyrra. Þetta er ótrúleg aukning, en staðreynd engu að síður. Verk- smiðjumar á Siglufirði hafa tekið á móti um 120 þúsund málum, sem er fjórum sinnum meira en á sama tíma f fyrra. Samt er Siglufjörður ekki síld- arbær á sama hátt og meðan síldin veiddist mest fyrir norð- an land. TIL SIGLUFJARÐAR 1 STAÐ ÞESS AÐ BÍÐA Nú veiðist hún austan við landið en bátarnir sigla til Siglufjarðar aðeins, þegar austlægari verksmiðjur geta ekki annað móttökunni og lönd- unarbið er þar í nokkra sól- arhringa. Sfldarbátamir eru Aflaskipið fræga Guðmundur Þórðarson undir löndunarkrönum síldarverksmiðjunnar Rauðku á Siglufirði. ekki nema 10—12 klukkustund- ir að sigla frá miðunum til Siglufjarðar, og losna því fyrr við aflann með þessu móti. TUNNUR FLUTTAR INN Mörg tunnuskip hafa að und- anförnu komið til Siglufjarðar, og nú eru háir tunnustaflar á öllum söltunarstöðvunum og setja þeir mikinn svip á bæ- inn. Þegar Tunnuverksmiðjan á Siglufirði brann sl. vetur, hafði hún aðeins smíðað um 17 þús. tunnur. Þess vegna er nú óhjá- kvæmilegt að flytja tunnurnar inn erlendis frá. SIGLFIRÐINGAR VONGÓÐIR En það gengur lítið á stafl- ana. Söltun hefur verið sáralítil á Siglufirði. Meðan bíða Sigl- firðingar og einstaka aðkomu- menn, en þeir fyrir austan salta alltaf eitthvað daglega. Það er því ekki eins mikið um að vera á Siglufirði og oft áður, þegar hupdruð ef ekki þúsundir að- komumanna hafa verið á staðn um við löndun, söltun og bræðslu. Þá var bærinn á fleygi ferð. Samt eru Siglfirðingar sjálfir ekki vondaufir. Þeir þykj ast vita að þeirra tími komi aftur. ÞÝZKT SJÓNVARP SÆKIR EFNIVIÐ TIL ÍSLANDS Hingað til lands er kominn þýzk ur sjónvarpsleiðangur til að taka upp dagskrárefni fyrir þýzka sjón- varpið og er hugmyndin að það verði flutt næsta haust eða vetur. Vísir átti stutt viðtal við leið- angursstjórana, Heinz Hemming og Peter Kerstan. Þeir starfa báðir á vegum sjónvarpsstöðvarinnar „Zweites Deutsches Fernsehen" er hefur bækistöðvar sinar í Mainz. — Á þetta að vera landkynn- ingarefni, sem þið ætlið að sýna héðan? — Að vissu marki, en með allt öðrum hætti en venjulega er átt við með venjulegum landkynning- armyndum. Okkar ætlun er ekki sú að sýna landslag nema að litlu leyti. Við ætlum okkur fyrst og fremst að gera pólitískri þróun þjóðarinnar skil og þá um leið • efnahagslegri afkomu og atvinnulífi svo sem vera ber. Það er m. a. hugmynd okkar að flétta inn í efniviðinn viðhorf Is- lendinga og samskipti við NATO og um leið herstöðvarnar á Kefla- víkurflugvelli. Við höfum líka hugsað okkur að draga fram I dagsljósið þorskastríðið við Eng- lendinga og eftirstöðvar þess. Reyn um eftir mætti að rekja I stórum dráttum efnahagslega þróun Is- lenzku þjóðarinnar og pólitíska sögu frá því I lok heimsstyrjald- arinnar síðari. Með hliðsjón af þessu er ætlunin að kvikmynda helztu og stærstu atvinnuvegi, svo sem fiskveiðarnar og fiskiðnað, samgöngur á sjó, landi og í Iofti, byggingar o. fl. — Hvað kom til að þið völduð efni frá Isjandi til sjónvarpssýn- inga? — Það hefur verið ákveðið að taka ýmis lönd til meðferðar og þ. á m. öll Norðurlöndin. Við er- um búnir að vera I Finnlandi. Sjón varpssendingin þaðan hlaut mjög lofsamlega dóma. Héðan förum við eða einhverjir okkar til Færeyja og Noregur verður eitt þeirra landa, sem verða næst á dagskrá hjá okkur. Island komst eiginlega strax á Fararstjóri þýzka sjónvarpsleiðangursins Peter Kerstan til vinstri, Heinz Hemming til hægri. dagskrá þegar Zweites Deutsches Fernsehen var stofnað I fyrra. Það er mikill áhugi á Norðurlönd- um I Þýzkalandi og þ. á m. Islandi. Hins vegar verðum við. að játa að Framh. ð bls. 4

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.