Vísir - 26.08.1964, Qupperneq 1
y
VISIR
Umm AÐ ATHUGUN Á
UTSVÖRUM OG SKÖTTUM
54. árg. — Miðvikudagur 26. ágúst 1964. — 194. tbl.
í frétt, er Visi hefur borizt
frá ríkisstjórninni segir, að sam
komulag hafi orðið um það milli
Stúlkurnar í Fiskiðjuverinu við Grandagarð höfðu nóg að sýsla í gærdag, þegar Höfrungur III kom með
síldina. Þær eru á karlmannskaupi cg vel að þvf komnar, enda gengur undan þeim við sorteringuna.
Ljósm. Vfsis, j. b. p.
ríkisstjórnarinnar, ASÍ og BSRH
að láta fara fram athugun á
þvf, hvort unnt verði að veita
afslátt og frekari greiðslufrest
á opinberum gjöldum.
Fréttatilkynning ríkisstjórn-
arinnar um þetta efni fer hér
á eftir:
„Viðræður hafa farið fram
milli ríkisstjórnarinnar, Alþýðu-
sambands Islands og Bandalags
starfsmanna rfkis og bæja um
álagningu og innheimtu opin-
berra gjalda yfirstandandi árs.
Samkomulag varð um, að
framantaldir aðilar, ásamt
Sambandi íslenzkra sveitarfé-
laga, tilnefni einn mann hve”
t'il þess að athuga alla mögu
leika á því að veita afslátt og
frekari greiðslufrest á álögðum
opinberum gjöldum og kanna
nánar önnur þau atriði, sein
fram hafa komið í viðræðunum.
Skal athugun þessari hraðað
og greinargerð og tillögur lagð-
ar fyrir fulltrúa ríkisstjórnar-
innar, A.S.Í. og B.S.R.B."
Sildin að koma
í FAXAFLÓA?
Höfrungur III fékk góðan afla út af J'ókli
Fyrsta sildin sem veiðist í
Faxaflóa nú barst á land í gær
með Höfrungi III. Hafði skipið
fengið um 800 tunnur vest-
ur við Jökul í gærmorgun í
fjórum köstum.
Yfirleitt var síhlin smá. Var
um 500 tunnum landað á Akra
nesi hjá Haraldi (í frysti og
beitu og til útflutnings). Hitt
var flutt í Fiskiðjuverið við
Grandagarð, þar sem unnið var
af kappi seinni hluta dagsins
í gær við að Isa niður til
útflutnings.
Skipstjóri á Höfrungi III, er
aflaklóin Garðar Finnsson frá
Önundárfirði. „Hann skrgpar
upp síld, hvar sem er“, sagði
einn hásetanna á bátnum við
blaðamann Vísis.
Sturlaugur Böðvarsson á
Akranesi hefur ávallt haft mikla
trú á því að síld væri í Faxa-
flóa undir haust og hefur hann
venjulega látið báta fyrirtækis
síns reyna síldveiðar síðari hluta
sumars eða á haustin. Hefur
það venjulega farið svo að sfld
hefur fengizt og einnig nú.
NÝJA NIÐURSUÐU VERKSMIÐJA N
TEKUR TIL STARFA / HAUST
Verksmiðjubyggingin að verða fokheld
Niðursuðuverksmiðjan nýja,
sem er í smfðum f Hafnarfirði
á að taka til starfa í haust, ef
allt gengur samkvæmt áætlun.
Er byggingin nú að verða fok-
held en vélarnar eru væntan-
Iegar innan skamms og verða
þá settar niður eins fljótt og
unnt er.
Hið nýja fyrirtæki, sem
heitir Norðurstjarnan, fékk Ióð
undir starfsemi sína í Hafnar-
firði, alveg v'ið sjóinn eða á
hafnarbakkanum við nýju upp
fyllinguna. Var Halldóri Guð
mundssyni trésmíðameistara
falið að sjá um byggingarfram-
kvæmdir. Hefur bygging verk-
smiðjunnar gengið mjög ve).
Byggingin var steypt upp siðari
hluta vetrar og í sumar. Margi:
menn eri) nú að vinna í bygg-
ingunni og er Iögð áherzla á
að Ijúka henni sem fyrst.
Framkvæmdastjóri hefur vec
ið ráðinn Kristófer Magnússoi
en hann hefur kynnt sér niður-
suðu erlendis. — Miklar vonir
eru bundnar við hið nýja niður-
suðufyrirtæki. Sú leið var farin
í sambandi við stofnun þess að
leita samVinnu við hið þekkta
norska niðursuðufyrirtæki
Bjellands. Er talið að á þann
hátt verði meiri möguleikar tii
þess að hafa framleiðsluna 1.
flokks og tryggja sölu hennar
erlendis.
MARGIR
AREKSTRAR
í GÆR
Mikið var um bifreiðaárekstrn
á götum Reykjavikur í gær. Á tfma
bilinu frá kl. 1 e.h. til kl. 8 að
kvöld höfðu lögreglunni borizt til-
kynningar um 8 árekstra. Það þykir
henni hins vegar helzt tll mikið
við jafn góð ökuskilyrði og voru
i gærdag.
Samkvæmt upplýsingum frá um
ferðardeild rannsóknarlögregiunn -
ar hafa verið bókaðir hjá henni
rösklega 1800 bifreiðaárekstrar frá
áramótum, en það er um 220 á-
Framh. á bls. 6.
Verksmiðjubygging Norðurstjömunnar í Hafnarfirði.