Vísir - 02.10.1964, Side 1

Vísir - 02.10.1964, Side 1
Hervirki umm á innbrótsstöBm Mikil hervirki og spjöll voru unnin í tveim innbrotum í ná- munda viö Skúlagötu í nótt. Hins vegar var tiltölulega litla stolið. Annað þessara innbrota var í Hafnarbíó. Þar voru sprengdar upp hurðir og hirzlur og tilraun gerð til að brjótast í gegnum vegg, en án árangurs. Þjófurinn hafði 1 þús- und kr. í peningum upp úr krafs- inu, en tjónið sem hann olli með i Framh á Ols 6 Veðurathuganastöð verð- ur sturfrækt nllt áriB á Kili Húsi og tækjum komið upp á næstu sumri Vísindadeild NATO hefur veitt íslendingum 20 þúsund dollara styrk til veðurathugana á há- lendinu. í gær skýrði Hlynur Sigtryggs son veðurstofustjóri Vísi frá því að gert væri ráð fyrir því að nota fé þetta til að koma upp veðurathuganastöð á Hveravöll- um á Kili og til kaupa á tækj- um í þessa stöð. Veðurstofustjóri gaf Vísi enn fremur þær upplýsingar, að fyr- irhugað væri að veðurathugana- stöðin yrði starfrækt allt árið a. m. k. næstu fimm ár, og leng ur ef fjárhagur og aðrar aðstæð ur leyfðu. Undanfarin sumur hafa veður athuganir verið gerðar á Hvera- völlum, en þær voru aðeins í nokkrar vikuityfir hásumarið og gefa þar af leiðandi enga hug- mynd um vetrarúrkomuna. Stöðin verður byggð í 600 metra hæð yfir sjó og þegar hefur verið gerð bráðabirgðaá- ætlun um 100 fermetra hús. Ekki er þó enn fullráðið. hvort það verður byggt svo stórt. Það fer eftir fjárhagsástæðum. Gert er ráð fyrir að í því verði sæmi- legur dvalarstaður fyrir tvo menn að vetrinum, en e. t. v. fyrir fleiri menn yfir sumarmán uðina, sem þá ynnu að ýmsum öðrum rannsóknum á hálendinu, svo sem jöklarannsókum, dýra- lífi og gróðurrannsóknum, sem segja má að allt sé að meira eða minna leyti tengt veðráttunni. Húsið á að byggja næsta sum- ar, en undirbúningur að smíði þess verður hafinn í Reykjavík í vetur, svo fljótlegra verði að koma því upp að sumri. Það á að verða fullbúið til íbúðar næsta haust. Jafnframt verður komið upp veðurathuganatækjum, en sér- stök áherzla lögð á úrkomu- og snjómælingar. Verður mælum komið fyrir á ýmsum holtum og Framh. á bls. 6. Hundritumálið er í góðum höndum hjá hhmm nýju kennslumálu ráðherru DANA Hinn nýi kennslumálaráð- herra Dana K.B. Andersen er 49 ára gamall er frá Nörrebro í Kaupmannahöfn. Hann er af efnafólki kominn, en snerist til jafnaðarstefnu á kreppuárunum um 1930. Á stríðsárunum kynnt ist hann Hans Hedtoft og Hal Koch í æskulýðssamtökum er þei rstofnuðu. Eftir striðið hóf hann svo þáttttöku í stjórnmál um. Hann hefur gegnt fjölda trún- aðarstarfa aðallega í sambandi við kennslu og menntamál. Á sfðasta þingi var hann talsmað- ur Jafnaðarmannaflokksins á þingi og þótti þar sterkur á svellinu. BLAÐIÐ í DAG BIs. 3 Myndsjá frá útlöndum — 4 Warren-skýrslan — 7 Hreingemingaferð í óbyggðir — 8 I hnattför öðm hverju — 9 Draugagangur eða „telekínetisk fyrirbæri“? Samtal við Gylfa Þ. Gíslason me nntamúlarúðherra Ég er þess alveg fullviss, að danska ríkisstjómin mun leggja handritafrumvarpið fyrir þingið óbreytt frá því sem það var á síðasta þingi. Jafnframt hef ég örugga vissu fyrir því, að á danska þinginu er traustur og mikill meirihluti með frumvarpinu óbreyttu. Þannig mælti menntamálaráðherra, Gylfi Þ. Gísla son, í viðtali við Vísi í morgun, en ráðherrann er nýkominn heim úr Tokyo-för sinni. Hann skýrði Vísi svo frá, að hann hefði hitt Helweg Petersen þáverandi kennslumálaráðherra Dana á fundi menn'ingarmála- ráðherra Evrópuráðslandanna í London snemma á árinu. — Þar fullvissaði hann mig um, að hvernig sem kosningarnar færu og hvernig sú stjórn yrði sem eftir þær settist að völdum, þá myndi hún leggja frumvarpið fyrir þingið að nýju. Og hann sagði mér ennfremur, að afstaða þeirra flokka og manna, sem hefðu stutt frumvarpið, væri ó- breytt, það er Jafnaðarmanna- flokkurinn og Radikali flokkur- inn myndu áfram styðja frum- varpið og fjöldi þingmanna úr öðrum flokkum. Vísir spurði menntamálaráð- herra, hvort hann þekkti hinn nýja kennslumálaráðherra Dana, K. B. Andersen. Hann svaraði: • — Ég er mjög vel kunnugur honum. Hann er nú ráðherra i fyrsta skipti en hefur verið tals- maður Jafnaðarmannaflokksins á þingi. Ég þekki náið skoðariir hans í handritamálinu, m. a. frá því hann var hér á íslandi á s.l. sumri sem stjórnarmeðlim- ur í stjórn hins nýja Dansk-ís- lenzka menningarsjóðs, sem kom'ið var á fót fyrir skömmu t'il þess að efla menningartengsl Daná og íslendinga. En hann er þannig tilkominn, að Danir fengu leyfi hjá Bandaríkjunum til að selja ýmis vopn og vistir o. fl. sem Bandarfkjamenn höfðu skilið þar eftir í stríðslok og notuðu féð til þess að koma á fót menningarsjóðum við öll hin Norðurlöndin. — Ég er þess fullviss, sagði Gylfi Þ. Gíslason menntamála- ráðherra, að hjá K. B. Ander- sen er málið i góðum höndum. Vísir spurði menntamálaráð- herra að lokum, hvað hann teldi að afhending handritanna myndi taka langan tíma eftir að danska þing'ið hefði samþykkt lög þar að Iútandi. Hann svar- aði: — Það veit enginn hvað lang an tima það tekur danska þjóð- Framh. á bls. 6. Gylfi Þ. Gíslason Engin brýn nuuðsyn fyrír SA S! uð berjust á móti LOFTLEIÐUM Flugvélar félagsins gefa ekki annað eftirspurninni Það er nú upplýst í dönsku blaði, að á sama tíma og Skand- ínavíska flugfélagið SAS er að reyna að gera hlífðarlausar til- raunir til að drepa niður ís- lenzka flugfélagið Loftleiðir, þá er aðsóknin að flugferðum þess » yfir Atlantshafið og til Vestur- Istrandar Bandaríkjanna svo mik il, að varla er hægt að fullnægja eftirspurninni. Það er danska blaðið BT, sem skýrir frá hinn' miklu sætanýt- ingu SAS í frétt í gær. Blaðið segir m. a.: ,,! dag byrjar októ- ber og túristatíminn ætti að vera fyrir löngu hjá liðinn. En í dag eins og í gær og eins og alla næ..u viku og alla síðustu mánuði sendir SAS þrjár troð- fullar flugvélar á dag frá Kaup- mannahöfn til New York, auk eins fullra flugvéla til Chicago og Los Angeles". Og flugvélarnar eru eins full- ar, jafnvel síðasta 134. sætið í bakaleiðinni frá Bandaríkjunum til Norðurlanda. Hin stóru flug- félögin hafa sömu reynslu og flugmálamenn klóra sér í hnakk- anum furðu lostnir yfir þvl hvað það blæs nú byrlega fyrir flug- inu eftir fyrsta erfiðleikaár far- þegaþotanna. Flugvélarnar eru svo hlaðnar að stundum verða þær að milli- lenda f Syðra Straumfirði í Grænlandi. Þegar þær eru full- hlaðnar og ef þær mæta mót- vindi, þá er ekki þorandi annað en að bæta benzíni á þær. I söludeild SAS segir BT að menn séu þó ekkert undrandi á þessu, því að þar telja menn að þetta sé aðéins árangurinn af ákveðnum undirbúningi, bæði vegna starfsemi á ferðaskrifstof um og vegna afsláttarmiða.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.