Vísir - 02.10.1964, Side 5

Vísir - 02.10.1964, Side 5
 5 V í S IR . Föstudagur 2. október 1964. »wn.v. ———B—1— Hreingerningaferð Frh. af bls. 7: föstudaginn 25. september s.l. þegar lagt var í síðustu Kjal- arferð. Þeir, sem höfðu gef- ið sig fram voru vegnir, og býsna margir léttvægir fundn ir. Aðeins fáir útvaldir fengu að fljóta með. Og þeir voru að vonum bæði montnir og stoltir. Næturferð inn í öræfi. Ferðin hófst klukkan 8 að kvöldi um það leyti sem rökkva tók, enda skjótt myrkt af nóttu. Það kom sér vel fyrir þá sem ekki höfðu áður séð eldbjarma leggja frá Surti, sem nú skartaði sínu fegursta við yzta sjóndeild- arhring. Eins fyrir þá sem eitt hvað vildu aðhafast við önn- ur skilyrði en dagsins Ijós var þetta myrkur í alla staði hið ákjósanlegasta. En tunglið tók fljótlega af skarið um öll „myrkraverk“ því það leið blindfullt upp á himinhvolfið, og þótti ýmsum þau forrétt- indi tunglsins næsta öfunds- verð þótt ekki yrði neitt að hafzt til að feta í fótspor þess. Klukkan rúmlega þrjú eftir miðnætti var komið í sælu- húsið í-Kerlingarfjöllum, eftir að ferðalangarnir höfðu skófl að burt snjóskafli einum á leiðinni sem virtist ætla að hefta ferð bílsins. Hálfri ann arri klukkustud síðar höfðu menn satt hungur sitt og tóku á sig náðir. En svefninn varð ekki langur, það biðu æin verkefni og um miðj- an dag átti hreingerningunni að vera lokið og halda þá norður á Hveravelli. Slæp- ingjarnir, sem ekki nenntu að vinna, voru reknir upp í Hveradali svo þeir tefðu ekki fyrir. Sæluhúsið í Kerlingarfjöll- um hefur undanfarin sumur verið einkum notað af skíða- fólki, sem dvalið hefur þar efra við skíðaiðkanir og skíða- nám. Það hefur verið mikið sótt og má segja að það hafi verið fullskipað um allt miðbik sumarsins. En nú er nýr skáli að taka við þessu hlutverki í Kerlingarfjöllum og var hann byggður í næsta nágrenni við sæluhús F.I'. á s.l. sumri. Auk þess er þriðji skálinn til staðar, en það er eins konar kennara- bústaður skíðaskólans. Þá má ekki gleyma tveimur salernis- byggingum og loks geymsluskúr við hlið sæluhússins, þannig að í Árskarði er risið upp heilt húsahverfi eða þorp með miklu lífi og fjöri allt starfstímabilið. Þegar við yfirgáfum Kerling- arfjöll um miðjan dag voru þar komnir nýir gestir, gangnamenn úr Hreppum, sem ætluðu að gista þar nóttina eftir. Ef til vill verða það síðustu gestir í Kerlingarfjöllum á þessu sumri. Degi var tekið að halla þeg- ar við þeystum á mótormerinni okkar í hlað á Hveravöllum. Þar er önnur borg: Sæluhús, salerni, íveruhús veðurathuganamanns, benzínsöluskúr, tveir kofar fjár varða, hesthús og loks rústir af hreysj Fjalla-Eyvindar. Á döf- inni er þó að byggja mesta stór hýsið, en það er veðurathugun- arstöð með ársíbúð fyrir gæzlu- mann stöðvarinnar og fjöl- skyldu hans. Einum úr okkar hópi leizt svo vel á staðinn, að hann vildi koma upp mikilli gufubaðstöð á Hveravöllum til lækninga og hressingar fyrir gigtveika og aðra aumingja til sálar og líkama. Hver veit nema slík stöð kunni að rísa upp í næstu framtíð og gefi milljónatekjur í arð. Boðið til veizlu. En hreingerningarhópur Ferðafélags íslands kom ekki að tómum kofunum á Hvera- völlum. Þar er fyrir hópur góðra gesta, og var raunar vitað um þá fyrir. Það er röskur tugur vaskra manna úr Biskupstung- um, sem eru nú í seinni leit á Kili. Það er búin að vera ára- löng venja að þessir tveir hóp- ar hittist á Kili þennan ákveðna laugardag á haustin. Báðir hóp- armr hlakka til og enginn vill verða af gamni næturinnar. Fólk snæðir nesti sitt og að því búnu er setzt að sameiginlegri drykkjuveizlu, sem varir fram yfir miðnætti. Konungurinn á Kili, þ. e. fjall kóngur Biskupstungnamanna, Þórður Kárason á Litla-Fljóti býður hópinn velkominn. Það hýrnar yfir fólkinu, það byrjar að syngja, og er heldur ekki neinum erfiðleikum bundið því Tungnamenn eru söngvin þjóð og raddmenn miklir og góðir. Einhver hefur sagt mér að þar væri beztur karlakór i sveit á íslandi og kjarninn úr þeim kór fer á hausti hverju inn á Kjöl til að blanda geði við reykvískt nreingerningafólk. Og svo er það einhvern tíma nætur eftir að mikið hefur ver- ið sungið nokkrar ræður verið haldnar, spaugsyrði flogið af vörum og dátt hlegið, að kon- ungurinn á Kili rís enn á fætur, kveður sér hljóðs og segir að leiknum skuli hætt. Það sé gegn siður á Islandi að hætta hverjum leik á meðan hann stendur sem hæst. Þá verði hann öllum eft- irminnilegur og menn sækist eft- ir að taka þátt í honum á næsta ári. Veröld Eyvindar. Og um þaS leyti sem söngur- inn þagnar og síðustu raddirnar fjara út gægist tunglið fram úr skýjarofi og lýsir upp dimmt Kjalhraun og blikandi jökla í fjarska. Þetta er veröld Fjalla- Eyvindar. Hingað flýði hann undan böðlum. Hann unni frels- inu og fjallaheiminum, og þótt móðir náttúra væri á stundum óblíð og örlögin hörð, var allt betra en brennimark og ánauð á Brimarhólmi. „Ég held það verði þoka í fyrramálið", sagði Þórður Kára- son. Svo bauð hann okkur góða nótt. Þ. Jós. Ljóst peningaveski tapaðist í gær innarlega á Laugavegi. Finnandi vinsamlega hringi í síma 20383. „Pierpoint" kvenmannsúr með svartri leðuról tapaðizt mánudags- kvöld 28. f. m. á leiðinni frá Tóna- bíói að Kleppsvegi 34. Finnand'i er vinsamlega beðinn að hringja í síma 37995. Tapazt hefur hvítur dúkur hálf- saumaður með brúnum klaustur- saumi frá Álfheimum 72 að B.P.- stöðinni við Suðurlandsbraut. — Finnandi vinsamlegast hring'i í síma 13585. GuIIarmband, mjótt (keðja) tap- aðist fyrir nokkru síðan. Finnandi vinsamlegast hringið í síma 13585. Svartur fressköttur týndist á laugardagskvöld. Sérkenni: með litla kúlu á kvið. Uppl. Amtmnns- stíg 2. Sími 12371 eða 19931. Gullarmband (keðja) tapaðist sl. miðvikudag, sennilega á Skóla- vörðustíg — miðbæ. Skilvís finn- andj vinsamlega geri aðvart í síma 37350. Ferðafélag Islands ráðgerir sunnudagsferð um Brúarárskörð. Lagt ’ af stað kl. 9,30 frá Austurvelli. — Farmiðar seldir við bílinn. Ráðskona óskast Ráðskona óskast i 1 mánuð út á landi. Gott kaup og fríar ferðir. Uppl. i síma 11247 frá kl. 5 —7 £ dag. Sendisveinar Sendisveinar eða sendimeyjar óskast til sendiferða fyrir hádegi OLÍUFÉLAGIÐ H.F. sími 24380. Afgreiðslustúlka óskast nú þegar. SÍLD OG FISKUR Hjarðarhaga 47. Frá Tónlistarskólanum í Reykjavík Tónlistarskólinn í Reykjavík verður settur laugardaginn 3. okt. kl. 2 e. h. Nauðsynlegt er að allir nemendur, taki með sér stundaskrá. Skólastjóri. ÚTBOÐ Tilboð óskast í að leggja hitaveitu i eftirtaldar götur i Langholtshverfi. Holtaveg, hluta af Langholtsvegi, Sæviöar- sund, Norðurbrún og hluta af Kleppsvegi. Útboðsgagna skal vitjað á skrifstofu vora, Vonarstræti 8, gegn 3000 kr.sldla- tryggingu. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Á útsölunni hjá DANIEL Hvítar manschettskyrtur kr. 125,00, 136,00 og 150,00 — Mislitar stærð nr. 14 á kr. 85,00. Sportskyrtur stærðir 14 og 14Vfc á kr. 135,00 175,00 og 180,00 — Ullarúlpur frá kr. 250,00— Nylonúlpur frá kr. 420,00 — Rykfrakkar frá kr. 150,00 — Terelynebindi frá kr. 80,00. Karlmannablússur frá kr 370,00 — Nylonskyrtur hvítar kr. 280,00. Verzlunin DANÍÉL Lnugnveg 66 WARREN-skýrslan — Framh ai bls 4 walds voru skýrustu og nýjustu förin á kassanum. Hér verður sem áður að taka fram, að þessi handarför eru ekki fullgild sönnun, því að það gat verið, að Oswald hefði i starfj sínu þurft að bera þessa kassa, einhvern tíma rétt áður. En þegar þetta kemur við hlið- ina á mörgum öðrum sönnunar gögnum, og einkum þar sem handarförin benda til þess að hann hafi ekki verið að bera kassann, heldur setið á honum I og lagt höndina þarna, þá er hér B um að ræða svo sterkar lfkur að þær nálgast sönnun. Sást á 6. hæð. Einn samstarfsmaður Oswalds að nafni Charle^ Givens ber vitni um það, að hann hafi séð Os- wald uppi [ geymslusalnum á sjöttu hæð um kl. 11,55 eða 35 mínútum áður en morðið var framið. Og var hann þá einn í salnum, Eftir það sá enginn starfsmaður bókageymslunnar Oswald fyrr en eftir morðið. Givens lýsir þessu svo, að harin hafi verið að vinna með gólfdúkalagningamönnum f geymslusalnum á 6. hæð. Kl. 11,45 hættu þeir vinnu og fóru niður í mat og út til að horfa á forsetann, Þpir fóru með lyft- unni niður á 1 hæð. Þegar lyftan var að fara niður, sá Givens að Oswald stóð á stigapallinum á 5. hæð. En eftir að þeir í lyft- unni voru komnir niður á 1. hæð segir Givens, „tók ég eftir þvf að ég hafði gleymt sígarettu- pakka mínum f jakkavasa mín- um sem hékk uppi á Iofti svo ég tók lyftuna aftur upp til þess að ná f sígaretturnar". Þegar Givens kom aftur með lyftunni upp á sjöttu hæð, sá hann Oswald þar. Og meðan hann var að ná í sfgaretturnar, spurði hann Oswald: „Heyrðu ætlarðu ekki að kbma niður. það er að koma matartími". Oswald svaraði: „Nei. En þeg- ar þér komið niður, viljið þér þá loka lyftuhurðinni"! Mátti skilja, að hann bað um þetta af því að hann ætlaði að fá lyft- una upp til sín með þvf að ýta á takka. Sjálfur gat hann þá hald ið lyftunni uppi á hæðinni hjá sér með því að halda dyrunum opnum. Paraffín-prófanir. Loks verður að vikja að paraffín-prófunum, sem fram fóru á Oswald eftir að hann hafði verið handtekinn. Slíkar prófanir eru gerðar til að finna út, hvort púðurryk þegar hleypt er af byssu hefur setzt á t. d. hönd manna, er þá algengt að púðurreyksleifar finnist á hönd- um manna og stundum á háls- inn, þegar skotið er af riffli. Slík ar leifar púðurreyks fundust á höndum Oswalds, en þær geta ekkj talizt sönnunargagn varð- andi forsetamorðið vegna þess að þær geta verið frá morðinu á Tippit lögregluþjóni. Hins vegar fundust engar púðurleifar á hálsi Osvalds og gerðu sumir aðilar um tíma mikið úr þvf og töldu, að það væri sönnun fyrir þvi, að Oswald gæti ekki hafa skotið af rifflinum. Rannsókn sýndi þó að þá á- lyktun er ekki hægt að draga einfaldlega vegna þess, að púður reykur komst ekki út úr skot- hólfi riffilsins, þar sem það er lokað með bolta Var þetta sann að með mörgum tilraunum, þar sem lögreglumenn voru látnir skjóta úr rifflinum í venjulegri miðunarstöðu og leifar púður- reyks komu ekki á hálsinn á neinum þeirra. Svo að paraffin prófanirnar gera hvorki að sanna né afsanna neitt.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.