Vísir - 02.10.1964, Síða 6
o
CliS
V1S IR . Föstudagur 2. október 1964.
SálfræðSngur —
fr'ramh. aí 9. siðu
virðast þau gerast kringum ein-
hverja sérstaka persónú eða
persónur, og í afar mörgum til-
fellum virðist vera um einhvers
konar óheilbrigt sálarástand að
ræða, bældar tilfinningar eins
og t.d. reiði eða hatur, geð-
truflanir eða innbyrðis spennu
í sambúð heimilfsfólksins. Sum-
ar manneskjur, sem ekki geta
fengið útrás fyrir tilfinningar
sínar á eðlilegan hátt, virðast
gera það í staðinn á parasál-
fræðilegan hátt, ef svo má að
orði komast; hin niðurbælda
orka leitar þannig út gegnum
annan farveg, án þess þó að
fólkinu sé það meðvitað. Einn
þáttur rannsóknanna felst ein-
mitt i að leggja sálfræðilegar
prófanir fyrir viðkomandi aðila,
og það hefur iðulega sýnt sig,
að sálrænu jafnvægi þeirra hafi
verið ábótavant".
„TJafið þér rannsakað fyrir-
bærin að Saurum?“
„Ne'i, því miður hafði ég
ekki aðstöðu til þess,, þó að ég
færi þangað, þar eð fyrirbærin
gerðust þá ekki lengur. Ég
varð að láta mér nægja að tala
við heimiiisfólkið og heyra frá-
sagnir þess og annarra af at-
burðunum. En ég hef gert at-
huganir á nokkrum Islenzkum
miðlum og vildi gjarnan geta
komið aftur hingað seinna til að
halda þvf áfram“.
„Hafa rannsóknir yðar leitt
yður að þeirr'i niðurstöðu, að
Ifkur séif fyrir, að maðurinn lifi
áfram með fullri vitund eftir
líkamsdauðann, eða finnst yður
ástseða til að ætla hið gagn-
stæða?“
„Ja, ég hef ekki skilyrði til
að svara þeirri spurningu af-
dráttarlaust. ESP og PK rann-
sóknimar miða hvorkj að því
marki að sanna né afsanna
framhaldslífið, enda væri ekki
hægt að kalla þær vfsindalegar,
ef svo væri. Áður en við getum
farið lengra, verðum við að
skilja eðli ESP og PK til fulln-
ustu og gera okkur grein fyrir
takmörkum þeirra. Á það stig
eru rannsóknirnar enn ekki
komnar, en ég vona og býst VifS,
að sá dagur renni upp fyrr eða
síðar, að við vitum raunveru-
lega, hversu langt ESP nær og
hvar takmörkin Iiggja. Þá fyrst
verður hægt að beina athygj-
inni að sönnunum fyrir fram-
haldslífi eða raunar sjálfstæðu
lífi persónuleikans utan lík-
amans, hvort sem maðurinn er
dáinn eða utan líkamans um
stundarsakir. Það er eðlilegt, að
fólk þrái að Vita með vissu,
hvort lífið haldi áfrám eftir
dauða líkamans, en að mínum
dóm'i er hyggilegra að fara hægt
í sakirnar og mynda ’ sér ekki
vanhugsaðar skoðanir af of
miklu bráðlæti. Parasálfræðin
er ung vísindagrein og enn á
frumstigi, en ég hef þá trú, að
hún eig'i ’eftir að opna. víðáttu-
mikíl þekkíngarsvið í framtíð-
inni, ef þess' verðúr vandlega
gætt að stunda rannsóknirnar
ævinlega með varfærni, dóm-
greind og hleypidómalausu hug-
arfari". — SSB.
Myndsjá ■—
Framh. af bls 3.
afsala sér og leggja niður
kjarnorlcuvopn sín. Sú skoðun
er talin mæta tríikilli andúð
þjóðhollra Breta.
Verkamannaflokkurinn hygg
ur að það mál sem verði flokkn
um mest til framdráttar sé
krafa hans um að braskgróði
verðj skattlagður hátt.
■j^Jenn velta því mjög fyrir sér,
4 hvernig þessum kosningum
muni Ijúka. Skoðanakannanir
eru framkvæmdar og getrauna-
starfsemi hefur verið stofnuð,
þar sem menn geta veðjað líkt
og á fótboltaleiki, hvemig úr-
slitin verði. Það er greinilegt
að mjög mjótt verður á munun-
um. Fyrir nokkmm mánuðum
lá Ihaldsflokkurinn svo lágt að
menn þóttust sannfærðir um að
hann hefði tapað kosningunum.
Nú þykjast menn sjá það af
skoðanakönnunum að hann sé
risinn upp og eigi heldur meira
fylgi en Verkamannafiokkurinn.
Kannski verður svo mjótt á
mununum, að þriðji flokkurinn,
hinn Frjáislyndi flokkur fái
oddaaðstöðu á þingi. '
Veðuratliugun —
Framh at ois 1
stöðum í nágrenni Hveravalla
til að mæla regn- og snjómagn.
Það verður og hlutverk stöðv-
arfnanna að rannsaka sambandið
milli hitastigs og bráðnunar á
snjó og ýmsar fleiri snjómæling-
ar.
Vísir innti Hlyn veðurstofu-
stjóra eftir því hvort lærðir veð-
urfræðingar yrðu sendir til
starfa í þessari fyrstu óbyggða-
stöð Veðurstofunnar, sem starf-
ar allt árið. Hann kvað það ekki
nauðsynlegt. Hins vegar væri
æskilegt að fá t. d. veðurfræði-
nema frá einhverjum háskóla til
að veita stöðinni forstöðu, enda
tilvalið fyrir veðurfræðing eða
veðurfræðinema, sem væri ann-
að hvort að skrifa magisters-
eða doktorsritgerð. Á Kili væri
gott næði til slíkra starfa að vetr
inum.
Skipsfpur —
. vamtl af Ols Ib
miklar aflaklær, margir hverjir
t.d. Þorsteinn Gíslason, skip-
stjóri á Jóni Kjartanssyni SU,
en hann kennir dönsku, reikn-
ing, íslenzku og siglingarfrœði.
f 2. bekk C og D verða skip
stjórar þeir, sem hafa haft rétt
indi til að stjóma bátum allt að
120 lestum að stærð, en yfirleitt
eru síldarskipin orðin miklu
stærri. Hafa margir skipsíjórar
því orðið að fá undanþágu til
að stýra stærri skipum eða þeir
, orðið að afsala sér skipstjórn á
þeim. Er því nauðsynlegt fyrir
skipstjórana að öðlast réttindi
til að stýra stærri bátum og var
því komið á fót sérstakri dcild
fyrir þá, en námsefnið verður
sama og krafizt er fyrir fiski-
mannaprófið, en skipting náms
efnis nrkkuð önnur.
f 2. bekk C verða yngri menn
irnir, en í 2. D hinir eldri, harð
iaxiar hinir mestu. Bekkjarskrá
in lítur þannig út í þeim bekk:
Aðalbjörn Haraldsson, stýri-
maður á Gullver, Ársæll Eyjólfs
son, skipstjóri á Sæúlfi BA,
Ásgeir Sölvason, skipstjóri á Ás
geiri Torfasyni IS, Benedikt
Ágústsson, skipstjóri á Hafrúnu
IS, Einar Árnason, skipstjóri á
Sigurði AK, Guðbjörn Þor-
steinsson, skipstjóri á Árna
Magnússyni, Hávarður Olgeirs-
son, skipstjóri á Hugrúnu IS,
Heigi Aðaigeirsson, skipstjóri á
Sigfúsi Bergmann, HÖrður Guð-
bjartsson, skipstóri á Guð-
bjartj IS. Jóhann Adolf Odd-
geirsson, skipstjóri á Oddgciri
frá Greniv., Kristb"'.rn Þ. Árnas.
skipstióri á Engey RE, Óli Sig-
urður Jónsson, skipstjóri á Guð-
björgu GK, Páll Gunnarsson,
skipstjóri á Jóni Oddssyni GK,
Sigurður Sigurðsson, skmstjóri
á Náttfara ÞH, Svavar Sigur-
iónsSon, skipstjóri á Gylfa II.
EA, Valdimar Jónsson, skip-
stjóri á Árna Geir KE, Víðir
( Friðgeirsson, skipstjóri á Hadd
SU, Þórarinn Ólafsson, skip-
stjóri á Þorbirni II. GK.
Sjúlsrðshús
Framb at bls 16
það kaldhæðnislega staðreynd,
að á sama tíma sem neitað hef-
: ur verið um 4 millj .kr. framl. til
bráðnauðsynlegrar stækkunar á
hjúkrunarkvennaskólanum, hef-
ur íslenzku þjóðinni verið boðið
upp á sjónvarp, sem kostar 180
milljónir króna. Hér væri um
óþarfa lúxus að ræða, sem á
engan hátt ætti að sitja í fyrir-
rúmi fyrir brýnustu lífsþörfum
þjóðarinnar.
í Hjúkrunarkvennaskólann eru
árlega teknir um 40 nemar, en
venjulega falla einhverjar úr,
svo að ekki útskrifast nema 30-
35 stúlkur á ári. Nokkur afföll
verða síðan á þeirri tölu, ýmissa
orsaka vegna, sumar sigla, aðrar
giftast o. s. frv. Þetta er allt of
lág tala miðað við þarfir okkar
í dag og það hefði a. m. k. fyrir
sjö árum átt að stækka skólann.
Þá værum við ekki jafn illa á
vegi stödd eins og raun ber
vitni, sagði læknirinn. Hann
sagði ennfremur að það væri
óvenjulegt að hætt væri við
skólabyggingu í miðju kafi um
jafn langt árabil og hér hefði
verið um að ræða. Þessi ráðstöf
un væri þeim mun undarlegri,
sem stækkun Hjúkrunarkvenna-
skólans væri brýnni en flestar
eða allar skólabyggingar í land-
inu í dag.
Það sem gera þarf og ekki
má dragast, sagði dr. Friðrik,
er að byggja viðbótarálmu þá,
sem um langt skeið hefur staðið.
til að byggja við Hjúkrunar-
kvennaskólann. í þeirri álmu
eiga að koma«kennslustofur og
þá myndi verða hægt að taka
miklu fleiri nema inn í skólann
en nú er gert.
Um hjúkrunarkvennavandræð
in í sjúkrahúsunum í sumar og
haust, sagði yfirlæknirinn, að
víða yrðu 2 — 3 hjúkrunarkonur
að inna af hendi störf, sem 6
hjúkrunarkonum væri annars
ætlað að vinna. Þetta fólk verð-
ur örþreytt þegar til lengdar læt
ur og það er fjarstæða að ætl-
ast til að slíkt fái staðizt þegar
fram í sækir.
Ástandið í sjúkrahúsunum
hefði þó orðið enn verra ef gift
ar hjúkrunarkonur hefðu ekki
hlaupið í skarðið yfir hásumar-
ið. Flestar þeirra af mikilli fórn
fýsi, því marga.r eiga illa heim-
angengt og verða að hlaupa frá
börnum sínum og heimilum til
að gegna mannúðarstörfum fyr-
ir þjóðina. Þessar konur eiga
sannarlega þakkir skildar, sagði
dr. Friðrik að lokum.
Ekki varð séð að þarna hefði
öðru verið stolið en tveim pakka-
lengjum af Camel-vindlingum. Þjóf
urinn hafði raunar Iagt af stað með
poka, sem í voru 500 krónur í
sk'iptimynd, tekið hann úr benzín-
afgreiðslunn; en annað hvort
gleymt honum eða skilið eftir í
1 glugga á smurstöðinni. Öllu var
í rótað og tætt innanhúss og aðkom
I an ljót.
Þá var þriðja innbrotið framið
1 í sölutum og biðskýli á mótum
i Kleppsvegar og Dalbrautar, ef inn
brot skyldi kalla. Komið var að
manni, sem var að brjóta rúðu
í glugga. Hann var útúr drukkinn
| og vissi Iítið hvað hann var að
I gera. Tveir menn tóku hann og
! héldu honum unz lögreglan kom
1 á vettvang og flutti hann í fanga-
' geymslu. 1 morgun var hann ryk
aður og mundi ekkert af ævintýr-
um neeturinnar.
Insibrof’ —
t-ramh -it bls t
skemmdarverkum sínum er marg-
falt. Allt var á tjá og tundri þeg
ar starfsfólk kom á innbrotsstað-
inn í morgun og lögreglan sagði
að aökoman hefði verið Ijót.
Svipuðu máli var að gegna með
hinn innbrotsstaðinn, en það var
Benzín- og smurstöð B.P. á Klöpp
við Skúlagötu. Þar var brotin rúða
síðan sprengd upp hurð á milli
smurstöðvarinnar og benzínaf-
greiðslunnar, en að því búnu hvert
hervirki unnið af öðru á skápum
og skúffum, sem allt var sprengt
upp og skemmt og eyðilagt. Tjónið
af skemmdarverkunum einum er
mikið. •
Handritin —
Framh u ols 1
þingið að afgreiða málið. En
eftir að það hefur samþykkt
frumvarpið er það aðe’ins fram-
kvæmdaratriði og samkomulags
atriði, hve langan tíma tekur
að undirbúa og framkvæma af-
hendingu.
— Það er talað um það í
dönskum blöðum að það geti
tekið tvö eða þrjú ár. Hvað seg-
ið þér um það?
— Ég hef heldur réiknað með
því að það taki mánuði, frem-
ur en ár, sagði ráðherrann að
lokum.
Kaupsýslu-
tíðindi
Áskriftarsími 17333.
SKIPAFRÉTTIR
SKIPAUTCCRÐ RIKISINS
M.s. HEKLA
fer vestur um land 8. þ.m. Vöru-
móttaka árdegis á laugardag og
mánudag til Patreksfjarðar, Sveins
eyrar, Bíldudals, Þingeyrar, Flat-
eyrar, Suðureyrar, fsafjarðar, Ak-
ureyrar. Húsavíkur og Raufarhafn
ar. Farseðlar seldir á miðvikudag.
Laghentir menn
Blikksmiðir og aðstoðarmenn óskast nú þegar.
BREIÐFJÖRÐS
blikksmiðja og tinhúðun,
Sigtúni 7. Sími 3500 og 34492.
Ibúð óskast
Hjón með 3 böm (eru á götunni) óska eftir
2-3 herb. íbúð strax. Reglusemi heitið. Fyrir-
framgreiðsla ef óskað er. Uppl. í síma 33736.
SENDILL
Unglingur óskast til sendistarfa nú þegar,
hálfan eða allan daginn. Fyrirspurnum ekki
svarað í síma. Upplýsingar hjá skrifstofu-
stjóra, Austurstræti 11, 3. hæð.
SEÐLABANKI ÍSLANDS.
Laghentir menn
Nokkrir laghentir menn á aldrinum 18—25
ára óskast til vinnu nú þegar. Nánari upp-
lýsingar gefur Ágúst Guðlaugsson yfirdeild-
arstjóri, sími 11000.
BÆJARSÍMI REYKJAVÍKUR.
Bremsuborðar
í rúllum fyrirliggjandi.
13/8”. I 1/2” —13/4” —
2” — 2 1/4” — 2 1/2” X 3/16”.
3” — 3 1/2” — 4” - 5” — X 5/16“
4” — 5” — X 3/8”. 4” X 7/16” 4” X 1/2”
SMYRILL . Laugavegi 170 . Sími 1-22-60