Vísir - 02.10.1964, Síða 9
VÍSIR . Föstudagur 2. oktöber 1.964.
■JEMlll ............III II l'll II I 2
DRAUGAGANGUR sða
,tekkíaetísk fyrirbæri'?
Samtal við William George Roll parasálfræðing
forseta alheimssamtaka parasálfræðinga
Á okkar vísindalega þenkj-
andi öld er fátt eða ekkert
tekið gott og gilt, nema vfs-
indin hafi áður lagt blessun
sína yfir þao. Til skamms
tíma Iétu menn sér nægja að
trúa á Guð og vona það bezta,
en nú þykir mörgum vissara
að bíða átekta, þangað til bú-
ið er að sanna tilveru hans
með strangvísindalegum að-
ferðum. Vísindalegar rann-
sóknir ljá hverju viðfangsefni
virðuleikablæ, og jafnvel svo
óvísindalegur hlutur sem
draugagangur vex strax í á-
liti, þegar farið er að tala
um hann sem „telekínetísk
fyrirbæri“ eða „PK“ (psyc-
hokinetics). Skyggni, forspár,
hugsanaflutningur og þvíum
Iíkt er ekki til að fussa að,
ef þess er gætt að kalla það
hinu nýtízkulegra nafni
„ESP“ (extrasensory percept-
ion). Um að gera að fylgja' i
með tímanum, hvort sem i
hlut eiga draugar eða lifandi
fólk.
Sú vísindagrein, sem einkum
fjallar um rannsóknir slíkra
fyrirbæra, nefnist „parapsycho-
logy“ eða „parasálfræði“ á
vafasamri íslenzku (orðið
„dularsálfræði“ hefur verið
notað, en er heldur óheppilegt,
vegna þess að parasálfræðin
leggur einmitt höfuðáherzlu á
að svipta öllum dularhjúpi af
svoköliuðum dulrænum eða
yfirnáttúrlegum fyrirbærum).
Þessar rannsóknir eru stundað-
ar viða um lönd, bæði vestan-
tjalds og austan, og alKeims-
samtökum parasálfræðinga
(Parapsychological Association)
tilheyra nú meira enþrjátíuþjóð
ir. Núverandi forseti þeirra,
William George Roll, er stadd-
ur hér um þessar mundir í
annarri heimsókn sinni tii Ís- ,
lands, og fæst við athuganir á
íslenzkum miðlum og hérlend-
um reimleikafyrirbærum eða
öllu heldur ESP og PK, svo að
notuð séu nýtfzku hugtökin.
ÍSLAND FRJÓSAMUR
AKUR.
,,Ég álít ísland sérlega frjó-
saman akur í þessum efnum“,
segir hann og talar hægt og
varlega, eins og honum sé um-
hugað um að hlaupa ekki á sig
með neinum fljótfæmislegum
fullyrðingum. „Hér virðist vera
margt til að rannsaka og óvenju
mikið til af nákyæmum frá-
sögnum um ýmiss konar hreyfi-
fyrirbæri og dulræna hæfileika.
fólks. Ég myndi segja, að það
gæti borið góðan árangur að
koma hér á fót parasálfræði-
legri rannsóknastofnun, helzt f
sambandi við Háskólann, þar
sem sérmenntaðir menn ynnu
að vísindalegum athugunum á
öllum tegundum ESP og PK
fyrirbæra“.
„Hafið þér rætt þá hugmynd
v'ið íslenzka sálfræðinga?“
„Já, og mér fannst þeir taka
henni mjög vel. Almenningur
hefur lifandi áhuga á svona
málum, en það er þýðingarmik-
ið, að parasálfræðilegar rann-
sóknir séu framkvæmdar með
strangvísindalegum aðferðum
og hleyp'idómalausu hugarfari.
Parasálfræðingurínn þarfaðvera
hvort tveggja í senn: djarfur og
áræðinn í verkefnavali og jafn-
framt gætinn og íhaldssamur i
aðferðum. Hann má ekki ganga
út frá neinu sem gefnum hlut
og ekki láta sínar persónulegu
skoðanir hafa áhrif á niður-
stöður rgnnsóknanna“.
„JTvernig mynduð þér skil-
greina parasálfræðina í
fáum orðum?“
„Ég býst við, að henni mætti
lýsa sem rannsókn á ýmsum
mannlegum hæfileikum, sem
nútímavlsindunum hefur enn
ekki tekizt að skýra eða skik
greina á fullnægjandi hátt. Þeir
skiptast aðallega í tvo flokka:
annars vegar ESP eða skynjun-
arhæfileika, sem ekki tak-
markast Við hið venjulega svið
mannlegra skynfæra, þ.e.a.s.
fjarhrif, forspár, skyggni, dul-
heyrn, hlutskyggni o.s.frv., og
að hinu leytinu PK eða hreyfi-
fyrirbæri, sem orsakast af okk-
ur ókunnum kröftum".
AÐFERÐIRNAR ERU
MARGHÁTTAÐAR
„Og hvernig fara rannsókn-
imar fram?“
„Aðferðirnar eru marghátt-
aðar, eft'ir því um hvaða teg-
und fyrirbæra er að ræða. Setj-
um svo, að ég ætli að athuga
ESP hæfileika einhvers tiltek-
ins manns. Þá byrja ég ein-
faldlega á því að rabþa við
hann I góðu tómi og læt það
ráðast, hvort nokkuð kemur
sjálfkrafa, meðan við erum
saman. Ef hann er fús t'il að
gera tilraunir með mér og ég
tel ástæðu til að halda áfram,
er næsta skrefið að taka upp william George Roll (Mynd: I.M.).
kerfisbundnar rannsókmr. Við
skulum segja, að hlutskyggni
sé hans sérstaka svið. Þá út-
vega ég t.d. fimm smáhluti, sem umsögn á við hvaða hlut, en
geta ver'ið allt mögulegt: bréf, ef maður'inn hefur hlutskyggni-
hárlokkar, skartgripir, persónu- hæfileika, kemur venjulega ó-
legir munir o.s.frv., og læt þá tvírætt í ljós, að ein umsögn-
í fimm nákvæmlega eins kassa, in er rétt í aðalatriðum, þegar
þannig að enginn viti, hvað er um tiltekinn hlut er að ræða,
í hverjum. Maðurinn lýs'ir því önnur á við annan o.s.frv. Ef
sem hann sér eða skynjar eða meirihlutinn reyn'ist réttur, held
finnur á sér í sambandi við ég tilraununum áfram og prófa
hvern kassa, og ég skrifa það a.m.k. 50 hluti, svo að hægt sé
niður. Síðan læt ég vélrita að útiloka þá skýringu, að um
fimm eintök af hverri umsögn tilViljun eða ágizkanir hafi
og sendi e'itt af hverri til eig- verið að ræða. Þetta er aðeins
enda hlutanna. Þeir eru beðnir ein aðferð af mörgum, og síðan
að athuga allar umsagnirnar er að vinna úr fengnum upp-
og sjá, hver á bezt við þeirra lýsingum, athuga þær staðtölu-
eigin hlut. Enginn veit, hvaða lega, gera skýrslur og undirbúa
framhaldsrannsóknir".
Fyrirbærin að Saurum hafa enn ekki verið upplýst.
HREYFIFYRIRBÆRIN
ERFIÐARI VIÐFANGS
„En hreyfifyrirbæri?"
„Þau eru að mörgu leyti erf-
iðari viðfangs, en jafnframt
mjög forvitnileg til fróðleiks.
Vandinn er sá, að þau gerast
sjaldan við æskilegustu skilyrði,
þ.e. í rannsóknastofunni, held-
ur verður maður að athuga þau
á heimilum viðkomandi fólks,
og oft og einatt hæ'fta þau al-
gerlega, þegar til Svendur að
hefja rannsóknir á þeim. Bezt
er að geta flutt inn á heimilið
og dvalizt þar um tíma, því að
þá byrja þau ósjaldan á nýjan
leik. Og eftir að þau eru aftur
komin í gang, er hægt að rann-
saka þau með ýmiss konar
mælitækjum".
„Hvernig tækjum til dæmis?“
„Ja, þau geta verið margvís-
leg. Stundum kemur t.d. í ljós,
að fyrirbærin gerast að jafnaði
i einhverju sérstöku herbergi,
en aldrei nema það sé mann-
laust. I þvi tilfelli er hægt að
innsigla herbergið og sjá, hvort
fyrirbærin halda áfram. Oft
gerast þau aðallega kringum
einhvern ákveðinn hlut, t.d.
borð, stól eða skáp, og þá má
koma fyrir rofum allt I kringum
hlutinn, þannig að þeir setji
af stað kvikmyndavélar, ef hann
byrjar að hreyfast, gefi Ijós-
merki, hringi bjöllu eða þar
fram eftir götunum".
„JJafið þér sjálfur séð hluti
hreyfast á óskýranlegan
hátt?“
„Já, nokkrum sinnum“.
„Teljið þér llklegt, að ein-
hvers konar vitsmunaverur séu
valdar að þess háttar fyrirbær-
um?“
„Það þori ég ekki að full-
yrða neitt um. Ég hef ekki orð-
ið var við neins konar skilaboð
eða tilraunir 1 þá átt að ná
sambandi við heimilisfólk með
höggum, sem ættu að tákna
eitthvað sérstakt. Ekkert, sem
bendir til, að vitsmunaverur
hafi staðið á bak við fyrirbær-
in“
OFT UM ÓHEILBRIGT
SÁLARÁSTAND AÐ
RÆÐA
„Haldið þér, að mikið sé um
svik og pretti, þegar hreyfi-
fyrirbæri eru annars vegar?“
„Nei, það held ég, að sé til-
tölulega sjaldgæft, þótt alltaf
komi sú skýring til greina að
órannsökuðu máli. En oftast
Framh. á bls. 6.