Vísir


Vísir - 15.10.1964, Qupperneq 8

Vísir - 15.10.1964, Qupperneq 8
V í SIR . Fimmtudagur 15. október 1964 VISIR ^tgerandj: Blaðautgafan v'ISIR Ritstjóri: Gunnar G Schram AðstoOarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjórar: Þorsteinn Ó. Thorarensen Björgvin Guðmundssor Ritstjómarskrifstofur Laugaveg: 178 Auglýsingai og afgreiðsla Ingólfsstræti 3 Áskriftargjald er aO kr ð mánuði t lausasölu 5 kr eint - Simi 11660 (5 Ifnur) Prentsmiðja Visls — Edda h.t Farsæl stjórnarstefna Á nýafstöðnum fundi í flokksráði Sjálfstæðismanna var, eins og frá hefur verið skýrt í blöðum, lýst ánægju yfir því, „að tekist hefur að standa vörð um gengi ís- lenzku krónunnar. í ályktun fundarins segir ennfrem- ur. „Fundurinn fagnar þeim alhliða árangri, sem við- reisnarstefnan hefur áorkað í íslenzku þjóðfélagi, þar sem nú ríkir frelsi í stað fjötra og hafta áður og tekist hefur að endurvekja fjárhagslegt álit íslendinga með örðum þjóðum'. Stjómarandstæðingar segja eflaust að það þurfi engum að koma á óvart, að flokksráð Sjálfstæðis- manna leggi blessun sína yfir stjórnarstefnuna; sem allir eiga að geta séð og viðurkennt, hvar í flokki sem þeir standa, ef þeir aðeins vilja líta á málin með sann- gim; og heilbrigðri skynsemi. Eitt af fyrstu og brýnustu verkefnum viðreisnar- stjómarinnar var að endurvekja traust annarra þjóða á íslenzkum gjaldmiðli. Þetta tókst á ótrúlega skömm- um tíma og með minni fómum en jafnvel hefir mátt búast við, miðað við það, hvemig ástand gjaldeyris- málanna var orðið. — í árslok 1959 höfðu bankamir átt hreinar gjaldeyriseignir í frjálsum gjaldeyri að upphæð 220 millj. kr., en í árslok ’59 vom þessar eignir með öllu horfnar og í þeirra stað komin gjaldeyris- skuld, sem nam 65 millj. kr. Gjaldeyrisstaðan hafði m. ö. o. versnað um 285 millj. kr. á þessum fimm ár- um. Auk þess hafði hún á sama tíma versnað um 15 millj. kr. í jafnkeypisgjaldeyri, eða um 300 millj. kr. samtals. Hér var því í hreint óefni komið og augljóst hvar enda mundi, ef ekki yrði tekin upp alger stefnubreyt- ing og nauðsynlegar ráðstafanir gerðar, þótt óvinsælar kynnu að reynast í bili. Mikill meirihluti þjóðarinnar skildi hvað í húfi var og andstaða almennings var hverfandi lítil og hefði engin orðið, ef leiðtogar stjóm- arandstöðunnar hefðu ekki reynt að æsa fólk upp sér til stjórnmálalegs framdráttar. En þrátt fyrir allan áróður stjómarandstæðinga sér allur þorri þjóðainnar, hver breyting er á orðin, og fáir mundu nú vilja skipta á ástandinu í dag og því sem hér ríkti á tímum vinstri stjórnarinnar. Við eigum nú stærri gjaldeyrissjóði en nokkru sinni áður og út- Ut er fyrir að þeir vaxi enn. Það er fráleit kenning, að þetta sé einungis að þakka góðum af labrögðum og hag- stæðu markaðsverði, þótt hvorttveggja eigi þar auð- vitað sinn þátt í, en ekki nægir það vinstri stjóminni, eins og menn muna. Sé stjórnarstefnan röng duga ekki góð aflabrögð og hátt markaðsverð. Það verður að stjóma af festu og forsjá. Hefði fjármálastjómin nú undanfarið verið lík því sem hún var á tímum vinstri stjómarinnar, ættum við enga gjaldeyrissjóði, þrátt fyrir hin góðu aflabrögð og hagstætt útflutningsverð. ☆ bæklingi þeim sem mót- stöðumenn handritaafhend- ingar í Danmörku gáfu nýlega út guma þeir allmikið af því, hvað vel sé búið að íslenzku handritunum í Kaupmannahöfn. Ég notaði tækifærið til að kynna mér þessa hlið málsins úti f Kaupmannahöfn, fyrst og fremst með þvf að heimsækja safnlð og ætla ég hér að rekja nokkuð hvers ég varð vísari. pVrst skulum við rekja sög- una. Hús Áma Magnússonar stóð i Stóra Kannikustræt'i, þegar bruninn mikli kom upp í Kaupmannahöfn 20. október 1728. Ámi dró í einn dag að koma hinu mikla bókasafni sfnu undan, en þegar það verk var hafið næsta dag, var lögð aðal- áherzla á að bjarga skinnbóka- safninu. Það er því ekki talið að neinar íslendingasðgur sem ekki vom til í öðrum handrit- um hafi glatazt þar, hins vegar e.t.v. m'ikið af ýmis konar brot- um, sem vafalaust hafa inni- haldið efni sem ekki var hægt að fá annars staðar. Sá hluti safns hans sem mest tjón varð á var skjalasafn hans, bréf og ýmsir gerningar frá 14. og 15. öld. Missir mikils hluta þessa safns er óbætan- legur og er þetta vafolaust or- sök þess, að þetta t’..,abil er eins og myrk öld i sögu íslands. Þar skortir flestar heimildir. Xfftir bmnann mikla var hand- ■*“* ritasafn Árna flutt með Há- skólabókasafninu upp á kirkju- loft Þrenningarkirkjunnar og . Próvíantgarður séður af hafnarbakkanum á Kristjánsbryggju. hugi Dana fyrir að búa betur að safninu og Virðist sem eina hvöt þeirra hafi vcrið sú, að þangað er bezt að ganga eftir torginu mikla fyrir framan Kristjánsborgarhöll, þar HEIMSOKN var inngangur I það gegnum hinn fræga Sívalatum. Var gengið upp eftir snígilhalla turnsins, sem Kristján IV hafði látið gera svo hann gæti ekið f vagni upp í tuminn. Var geymsla safnsins þar í 130 ár algerlega óViðunandi. Þar var safnið m. a. þegar Jón Sigurðs- son hóf störf sín við það. Svo var það árið 1861 sem ný bókasj.fnsbygging Kaup- mannahafnarháskóla var fullgerð og er sú bygging enn bókasafn Háskólans og stendur við Fjólustræti. Þar var Árna- safni kom'ið fyrir í mjóum klefa þvert fyrir gafl byggingarinnar og varð að ganga í gegnum endilanga bókageymslu Háskóla safnsins tll þess að komast þangað inn. Aðstaða safnsins þama var e'innig algerlega óvið- unandi og mátti það vera í þessum þröngu húsakynnum í nærri heila öld. jþá gerist það 1957, að allt í einu vaknar upp mikill á- lslendingar vom farnir að gera kröfur til handritanna. Þá var allt í einu rokið t'il og safninu í fyrsta skipti fengin viðunandi húsakynni. Þannig átti að sýna, hve . Dan'ir Iétu sér annt um bessi menningarverðmæti og siðan hefur kveðið við söngur- inn að íslendingar gætu ekki varðveitt handritin eins vel og Danir. Frá sama tíma var farið að veita aukin fjárframlög til safnsins og í kringum 1960 var farið að be'ita í auknum mæli ljósmyndatækni og viðgerða- tækni við varðveizlu handrit- anna. Síðan þykjast Danir geta sagt eftir 3—4 ár, að íslend'ing- ar geti ekki lært að beita sömu tækninni. Cem sagt árið 1957 var Árna- ^ safn gert að sjálfstæðri Há- skólastofnun og það var flutt í svokallaðan Proviant-garð, sem er gömul birgðaskemma danska flotans. Húsið stendur við hliðina á Konunglega bóka- safninu og t'il þess að komast Próf. lón Helgason sngði að heim- flutningur hundritanna myndi ekki hindra rannsóknarstörf, — en það verður að Ijósmynda handritin fyrst bflaumferðin æðir um utan af Amager, yfir Knippelsbrúna. Við getum staðnæmst við brúna í leiðinni. Hinum megin liggur Gullfoss við bryggju, blár strompborði hans er gamalkunn ur. Svo er Knippelsbrúnni lyft meðan tvö skip og risastór hafnarkrani sigla fram hjá. Um- ferðin stöðvast yfir brúna, en það tekur ekki langan tima, skipin hraða sér 1 gegn, og allt heldur áfram sinn vanagang. Svo höldum við suður Krist- jánsbryggju. Þar er nú verið að reisa risamiklar ráðuneytis- byggingar í nýtízku stíl í algeru ósamræmi við dökkrauðu múr- steinsbyggi-.gamar allt í kring. Frammi við bryggjuna liggja fragtskip, sem eru að taka um borð glerflöskur og ýmis konar vörur, en á bak við bygginga- framkvæmdirnar sér í gaflinn á rauðu múrsteinshúsi, og eru múrarnir klæddir rauðum blöð- um humals og bergfléttu. Þetta er Próvíantgarðurinn, hið hið gamla birgðahús. ■yið göngum inn sundið milli Konunglega bókasafnsins og Próvíantgarðsins. Svo beygjum við til hægri, eftir mjórri hellu- lögn og að lítilli hurð í krik- anum. Hurðin er lítil blámáluð og við dyrabjöllu stendur áletr- að „Den Amamagnæanske In- stitut'* Dyrabjalla er knúð og andsvarið kemur suð í dyra- sfma, — gera svo vel, dymar em opnar. Fyrsta táknið um það, hvemig tæknin er tekin i

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.