Vísir - 15.10.1964, Page 16
taka utanríkisráðuneytin við
Framh á bls 3
Fimmtudagur 15. október 1964.
H. R. Hirschfeld.
Viðræður utanríkisráðuneytanna
um Loftleiðamálið hófust / morgun
i gær komu hingað til lands
þrir fulltrúar utanríkisráðuneyta
Norðurlandanna, Noregs, Sví-
þjóðar og Danmerkur. í morg-
un klukkan 11 hófust viðræður
við þá í ráðherrabústaðnum. Þar
er rætt um loftferðasamning oj
ferðir Loftleiða til Norðurlanda
Fulltrúi íslands i þessum við
ræðum er Níels P. Sigurðssoi
fulitrúi í utanríkisrúðuneytinu.
Erlendu fulltrúarnir eru Pe
Lind frá sænska utanríkisráðu
neytinu, Erik Trane frá Dan
mörku, en þeir komu báðir meí
flugvél Flugfélagsins í gær
kvöldi. Frá Noregi kom Gunna
Rokstad úr norska utanrfkis
ráðuneytinu með flugvél Loft-
leiða í gær.
Fréttamaður frá VIsi var stadd
ur á Reykjavikurflugvelli í gær
kvöldi, þegar sænski og danski
fulltrúinn komu og ræddi stutt
lega við sænska fulltrúann, Per
— Hver er tilgangurinn með
komunni hingað?
— Tilgangurinn er að reyna
að komast að samkomulagi um
loftferðasamning við Island. Þar
sem árangur náðist ekki í við-
ræðum flugmálastióranna, þá
málinu til að reyna að ná ein-
hverju samkomulagi.
— Það er nú stundum talað
um það, að með þessu sé málið
orðið pólitískt, Nú vegi pólitísk
sjónarmið þyngra en samgöngu
málahliðin?
Hirschfeld ambassador
Þfóðverja á förum
Ambassador Vestur-Þjóðverja á
íslandi, Hans Richard Hirschfeld,
er í þann veginn að láta af störfum
hér á landi og er á förum nú f viku-
iokin.
Hirschfeld hefur verið ambassa-
dor á íslandi frá því um miðjan
febrúar 1957 og hefur því gegnt
ambassadorsstörfum hér á landi
lengur heldur en nokkur sendifull-
trúi nokkurrar annarrar þjóðar.
H. R. Hirschfeld er nú um hálf
sjötugur að aldri. Hann stundaði
lög og stjórnvfsindi og lauk prófi
1930. Árið 1936 gekk hann i utan-
ríkisþjónustu Þjóðverja og hefur
verið i henni meira eða minna síð-
an, f Bandaríkjunum, Sviss og Belg-
íu. Áður en hann kom til ts-
lands hafði hann verið aðalræðis-
maður Þjóðverja 1 Antwerpen.
Þau ár sem Hirschfeld hefur starf
að á íslandi hefur hann unnið mik-
ið og gifturíkt starf í þágu okkar
tslendinga, þannig að fullyrða má,
Ráðizt á mann
Ráðizt var á mann á götu i
Reykjavík f fyrrinótt, hann barinn
níður og slasaður.
Þetta skeði á mótum Grettisgötu
og Frakkastígs nokkru eftir mið-
nættið. Sá sem fyrir árásinni varð
heitir Elfas S. Sveinbjörnsson til
heimilis að Holtsgötu 31. Hann lá
á götunni þegar lögregluna bar að,
blóðugur í andliti og kvartað'i und-
an þrautum f maga. Hann var þeg
ar fluttur í Slysavarðstofuna, en
blaðinu er ekki kunnugt um hve
mikil meiðsli hans eru.
Árásarmaðurinn mun vera gam-
alþekktur uppivöðsluseggur, sem
lögreglan hefur margsinnis haft
afskipti af.
að öðrum ólöstuðum, að hann hafi
gert meira fyrir íslendinga en senni
lega nokkur erlendur sendifulltrúi
annarrar þjóðar hér á landi. Hann
hefur unnið ósleitilega að menn-
ingartengslum og viðskiptatengsl-
um Vestur-Þýzkalands og íslands
og stuðlað manna mest að þvf að
útvega islenzku námsfólki og öðr-
um styrkveitingar frá heimalandi
sfnu.
H. R. Hirschfeld er mikill mann-
kostamaður og hvers manns hug-
Ijúfi, sem áunnið hefur sér traust
og vináttu allra, sem honum hafa
kynnzt. Hann er llka mikill og ein-
lægur Islandsvinur og hann segist
fljótlega munu heimsækja vini sfna
og kunningja hér á landi að nýju.
Hirschfeld mun fara héðan sjó-
leiðis n.k. laugardag.
Fulltrúar utanrfkisráðuneyta Svíþjóðar og Danmerkur við komuna til Reykjavfkur í gærkvöldi. Til vinstri
Per Lind frá Sviþjóð og Erik Trane frá Danmörku.
Martin Luther King sæmdur
■ f - ..v. • • ■ •
friðarverðlaunum Nobels
Nobelsverðlaunanefndin til-
kynnti opinberlega f gær að banda
rfski blökkumannaleiðtoginn og
presturinn Martin Luther King
hefði hlotið friðarverðlaun Nobels
árið 1964. Hann er heimskunnur
maður fyrir baráttu sína til þess
að tryggja blökkumönnum í Banda
rikjunum fullt jafnrétti á við hvita
Martin Luther King er 35 ára
að aldri og yngsti maður, sem
hlotið hefur friðarverðlaunin, og
þriðji blökkumaðurinn, sem hlýtur
þau, en hinir eru Ralph Bunce
stoðarframkvæmdastjóri Sþ og A1
bert Luthuli, suður-afrfski blökku-
mannaleiðtoginn.
Þegar nefndin tilkynnti verð-
launaveitinguna var King nýlagst-
ur f sjúkrahús í Atlanta til 2 daga
almennrar læknisskoðunar. Kvaðst
hann taka við þeim hrærður og
í auðmýkt og mundj verja þeim
í þágu mannréttindabaráttunnar.
Hann kvað það ómetanlega viður-
kenningu á mannréttindastarfinu,
að hafa orðið þessa heiðurs aðnjót
andi. Eftir konu hans er haft, að
þau hafi vitað, að hann hafi verið
einn margra, sem stungið hafði
verið upp á, en hún kvað mann
sinn ekki hafa haft trú á, að verð
launin mundu falla honum f skaut.
Martin Luther King er fæddur í
Atlanta f Georgia-ríki. Háskólanám
stundaði hann f Boston og lauk
doktorsprófi í guðfræði og hefur
starfað sem prestur samtímis því
sem hann hefur barizt fyrir rétt-
indum blökkumanna. Hann hefur
jafnan boðað, að öll vandamál,
einnig kynþáttamálin skuli leysa
friðsamlega. Hann hefur fordæmt
alla valdbeitingu. Fjórtán sinnum
hefur hann verið fangelsaður fyrir
baráttu sfna.
Martin Luther King er heiðurs
doktor hins heimskunna Yaie há
skóia í Bandaríkjunum og 1960
Guðmundur Steinsson
Viðtal við Guðmund Steinsson
um hið nýju leikrit huns
N. k. miðvikudag frumsýnir
Þjóðleikhúsið nýtt fslenzkt leik-
rit, sem aldrei hefur verið prent-
að. Það er FORSETAEFNIÐ
eftir Guðmund Steinsson. Leik-
stjóri er Benedikt Árnason. Vfs-
ir átti stutt viðtal við höfundinn
í morgun og kvað hann leikrit
sitt vera ádeila ánútíma kosn-
ingabaráttu.
Guðmundur Steinsson varðist
annars allra frétta ?f leikritinu,
sem á auðvitað að vera leyndar-
mál þar til á frumsýningunni,
sem upphaflega átti að vera i
dag. En síðar var ákveðið að
æfa ennþá betur fyrir frumsýn
inguna svo að allt fari sem allra
bezt úr hendi. Höfundur sagði,
að leikrit hans væri f 7 atriðum
og Þorkell Sigurbjörnsson, tón-
skáld, hefði „uppdiktað" leik-
hljóðin. Hann kvað Þorkel sjálf-
an ekki vilja nefna þessa „tón
list“ tónlist. Leiktjöldin gerir
Gunnar Bjarnason.
Guðmundur sagði, að leikrit
hans gerðist á okkar tímum, en
væri ekki staðbundið, gæti gerzt
víða. Hann kvaðst hafa skrifað
annað leikrit, sem héti Fóstur-
mold, en ekki Móðir mín í kví,
eins og sumir hafa nefnt það
eftir einu atriðinu. Þetta leikrit
yrði sýnt hjá leikflokknum
Grímu í Reykjavík í vetur.
17 leikendur eru í Forsetaefn-
inu, sem frumsýnt verður f Þjóð
leikhúsinu n.k. miðvikudag og
fer Róbert Arnfinnsson með að-
alhlutverkið. Rúrik Haraldsson,
Gunnar Eyjólfsson, Kristbjörg
Kjeld og Gísli Alfreðsson fara
einnig með stór hlutverk.
Martin Luther King.
var hann valinn „maður ársins“
Bandaríkjunum.
Mikill fjöldi heillaskeyta barst
þegar f gær til Kings hvaðanæva að
úr heiminum og mörg helztu blöð
Bandaríkjanna óska honum til
hamingju í morgun og telja hann
maklegan sæmdarinnar.
I NTB-frétt í morgun segir, að
skandinavisku blöðin láti í morgun
í ljós mikla ánægju yfir, að Martin
Luther King hlaut friðarverðlaun
Nobels. John Danstrup skrifar um
hann I Politiken og ber þá saman
Luthuli og King, og ræðir trú
þeirra, einlægni og þann kærleik
ans innri mátt, sem þeir búi yfir.
Hann segir, að í dag sé enginn
Framh á bls 3.