Vísir - 04.11.1964, Side 5

Vísir - 04.11.1964, Side 5
□aaBBQcaaaQaBDaaaaoaaaoDaaaaaaaaQaQC9Baai3!3BBiae<cinanaaa3nE30EKnu3m3E!nBC!DODaeiaanDaa V í S I R . Miðvikudagur 4. nóvember 1964 ' ' ' ■ utlönd í ■ pi rútlönd £ morgun útlönd í 'morgun utl'önd. í morgun aaaaaaaaaaaaaaaaDaBaaaDaaaaaaaaaaaaaaaDaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaanaaaaaaaaaDaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa Sigur frjálslyndu afíanna i Bandáríkjunum J^yndon Johnson hefur verið endurkjörinn forseti Bandaríkjanna. Fyrsta ályktun, sem menn draga af þessu er að stefna Bandaríkjanna muni verða óbreytt áfram. Víst er um það, að með þessu léttir af bandalags- og vinaþjóðum Bandaríkjanna þeim óhug og ótta sem þeim stafaði af hinum frambjóðandanum, Barry Gold- water, sem sizt fór minnkandi við glannafengnar og tækifæris sinnaðar yfirlýsingar hans í kosningabaráttunni. Svo að nú er ljóst, að kúrek inn og barnakennarinn frá Tex as verður áfram forseti Banda- ríkjanna næstu fjögur árin eða svo lengi sem heilsa hans leyfir Þar með er þó engan veginn sagt, að stefna hans f hinum ýmsu þýðingarmestu málum verði óbreytt. Eftir kosningarn ar er aðstaða hans í embættinu gerbreytt. Við verðum að athuga, að á þessu eina ári síðan Johnson tók við völdum, hefur honum eiginlega enginn tími verið gef inn til að setja sitt eigið mark á stefnu Bandaríkjastjórnar. það liðu margir mánuðir svo eftir dauða Kenne- dys forseta, að Johnson stóð í skugga hans Hann gerði lítið annað en að framfylgja hans stefnu. Að vísu kom það fljótt fram, sérstaklega í innanríkis- málum, að hann var ennþá rösk ari og lagnari en Kennedy hafði verið að koma málunum fram. í utanrikismálunum er vart hægt að segja, að hann hafi komið með neitt nýtt, nema ef vera skyldu viðbrögðin austur í Indo-Kína. Það má síðan heita, að John- son hafi rétt verið farinn að venjast forsetastólnum í Hvíta húsinu þegar önnur og annarleg sjónarmið komu til sögunnar og fóru að takmarka athafnagetu hans. Það var strax snemma sl. vor, sem Goldwater kom fram á sjónarsviðið með sína róttæku gagnrýni. I innanríkis- málunum taldi Johnson þá æskilegt að láta hart mæta hörðu og hóf framkvæmd ým- issa stefnskrármála, sem Gold- water var í andstöðu við. Þar þorði hann að mæta honum. Á utanrikismálasviðinu hefur hann farig ' sér miklu hægar, senni- lega af ótta við það, að þar ætti bandariskur almenningur erfiðara með að skilja viðhorf in og vandamálin út um víða veröld og að Goldwater myndi takast að nota þau til að blekkja kjósendurna til fylgis við sig. oidwater var sennilega ^ svo langt aftur úr sam- tíð sinni, jafnvel aftur úr ríkj- andi skilningi samlanda sinna á félagsmálasviðinu, að hann hef ur aldrei getað gert sér vonir um að vinna kosninguna á því. Sterkasta fylgið hefur hann frá svertingjahöturunum í Suður- ríkjunum, en þeir eru bara orðn ir ailtof fáliðaðir, til þess að forsetaefni geti unnið kosning- ar á því. Hitt var miklu hættulegra og viðkvæmara fyrir Johnson for seta, hvað gerðist t.d. í Indo- Johnson Kína? Hefði hrun orðið í Suður Vietnam gat það haft þau á- hrif, að almenningur fleygði sér í fang Goldwaters. Kínverska sprengjan var líka liættuieg, þó hún væri lítil og ómerkileg gat hún orðið hættuleg áróðurs- sprengja. K osningabaráttan var að þessu sinni óvenjuleg, sem hún var háð af miklu þar ‘~öíeiri“Íjigrítú,. eh þekkzt -iþefur í áratugi.Mlt frá þyí 'í . kosn: Goldw|ter hafðj sjéifqr.gerl.sig QcnanaanannnnnannnannE’nanaaQDananaaaianaaaaaanaaananQDnDanDaaannranaiannanannaaaancinanEsnnnnananncnaaEaaEaaacniaaaaaQa; ingunum 1940 hafa viðhorf frambjóðenda beggja flokkanna verið svo lík, að vart hefur mátt á milli sjá muninn, þeir hafa komið úr frjálslyndari Örm um beggja flokka. En nú mætt- ust andstæðurnar, hin hægri- sinnuðu öfgaöfl náðu yfirhönd inni í Republikanaflokknum og hirtu til sín samstæð öfl innan demokrataflokksins, aðallega í Suðurríkjunum, meðan frjáls lyndustu menn í Republikana flokknum gátu með engu móti sætt sig við Goldwater og gengu í lið demokrata. Þannig hefur þetta haft í för með sér algerlega uppstokkun í stjórn málum, sem sést af því, að Suð- urríkin sem hafa jafnan fylgt demokrötum gerast nú republik önsk. Það er sannarlega furðu Iegur umsnúningur að flokkur Abrahams Lincolns skuli þann ig vera orðinn flokkur svert ingjahataranna í Suðurrikjun um. Alveg með sama hætti hafa hin þéttbýlu, gömlu landnema fylki í Norðausturhlutanum, sem verið hafa sterkasta virki republikana nú snúizt við og eru orðin hrein demokratisk. jþað hefur margt verið talað um það, að kosninga- baráttan hafi verið ljöt, bæði Johnson og Goldwater komi minni menn út úr henni. John son forseti hafi verð svertur með áróðri um Jenkins-málið og mqð þneyks'lskvikmýndinni að minnj manni með fáránleg- um yfirlýsingum í kjamorku- málunum. Hann hafi jafnvel eyðilagt svo mannorð sitt, að úti sé um allan annan stjórn- málaframa fyrir hann. Þó má vera, að þetta harka- Iega rifrildi og raunveruleg skipting í ólíkar stefnur verði til að hreinsa loftið. Ef til vill verða þessar kosningar nú til þess, að flokkarnir skiptast hreinlega niður í hægri flokk og frjálslyndan flokk, jafnvel þó frjálslyndari öflin í republikana flokknum reyni nú aftur að grípa í taumana. gvo mikið er víst, að að- staðan fyrir Johnson er nú allt önnur en áður. Fyrir framan hann liggur nú margra ára örugg valdaaðstaða og bak hjarl hans er í ennþá ríkari mæli en nokkru sinni áður, hin frjáislyndu öfl, sem hafa unnið sigur með honum. Hann þarf t.d. ekki að taka eins mikið tillit til Suðurríkjaaflanna eins og Kennedy og það gefur vonir um miklu örari félagsmálaþró- un undir hans stjórn en áður hefur tíðkazt. En það felur líka í sér nokkra hættu, þvi að mótspyrnan er þrátt fyrir allt enn sterk og andstæðurnar geta enn aukizt. Sama gildir á sviði utanrikismála, líklegra að hann verði miklu djarfari og gangi , lengra en áður á móts við ;.ftÚ3sa í alþjóðamálum Johnson sigraði — Framh at bls. I aði Keating með yfirburðum og kom fram í sjónvarpi snemma í morgun og þakkaði stuðning og traust. Með honum var kona hans Ethel og Averill Harriman, fyrrverandi ríkisstjóri í New York og nú ráðherra. í Massachusetts var bróðir Roberts, Edward endurkjörinn, en í Kaliforníu beið Pierre Sal- inger ósigur fyrir Murphy en þeir kepptu þar um þingmanns- sæti í öldungadeild þjóðþings- ins fyrir Kaliforníu. Murphy er talinn eiga sigur sinn að þakka, að framkoma hans í sjónvarpi vakti meira traust en framkoma Salingers, og ennfremur mun það hafa haft sín áhrif, hvort sem trú- legt kann að þykja eða ekki, að kvikmyndir, sem Murphy lék í forðum daga, voru sýndar i kosningabaráttunni við miklar vinsældir, en hvað sem þessu líður er Murphy greinilega mað- ur að öllu leyti Kaliforniu- mönnum betur að skapi en Salinger. Johnson sigraði í Vermont, Nýja Englandi, sem demokratar hafa aldrei sigrað í fyrr, og hann sigraði einnig í Maine, þar sem demokratar sigruðu nú í annað sinn. En republikanar sigrpðu i j Georgie-ríki, sem er eitt Suð- urríkjanna, sem jafnan hefir verið óvinnandi. demokratavígi fram að þessu. f kosningunum í Ohio til öld- ungadeildar þjóðþir.gsins sigr- aði Robert Taft sonur fyrrver- andi leiðtoga republikanaflokks ins. KI. 5.30 I morgun' voru at- kvæðatölur forsetasefna þessar: Lyndon B. Johnson 30.926.- 967 eða 61.9%. Barry Goldwater 19.023.485 eða 38,1%. Var þá búið að telja 70% greiddra atkvæða og Johnson á undan í 44 ríkjum með 482 kjörmenn (þarf 270). Kosningabaráttan var ó- venjulega hörð og meiri aur kastað en dæmi eru til í sögu Bandaríkjanna fyrr og síðar. í lokaræðu sinni í Texas á mánudag sagði Johnson: Ég skuldbind mig til þess að verja öllum kröftum mínum til þess að varðveita friðinn og samtímís vernda frelsið. Ég óska þess, að auðnast megi að draga úr þeirri hættu, að til kjarnorkustyrjaldar komi, og að valdið um beitingu kjarn- orkr."opna verði áfram í hönd- um forsetans, og ég óska þess, að mér auðn,st að vinna að því að treysta og auka frelsi í heiminum. Goldwater kvaðst mundu — ef hann næði kjöri — koma fram af heiðarleika og segja þjóðinni satt frá „því ég fyrst stíg fæti hvíta húsið og þar til ég fer þaðan“. í morgun fréttist, að Johnson forseti væri kominn til Austin, höfuðborgar Texas, ásamt fjöl- skyldu sinni, og mndi 'ávarpa þjóðiná Uaðan. Hann hafði þá ekkert sagt opinberlega um kosningaúrslitin, en Barry Goldwater hafði ekki snemma í morgun játað ósigur sinn og var sagt, að það kynnu að líða 7—8 klukkustur.dir þar til hann gerði það. Virðist gæta nokk- urrar furðu yfir þessari tregðu, að því er sagt. va.r í einni frétt. Þingkosningarnar. 1 Washington-frétt í morgun var sagt, að þegar demokratar voru búnir að fá 218 sæti í deildinni og þar með meirihluta hefðu þeir verið búnir að vinna 13 sæti frá republikönum og í kjördæmum, sem verið var að telja í þá voru þeir á undan í 56. Þá hafði flokkur republikana fengið 61 sæti, þar af unnu þeir 8 af demokrötum og á undan I 67 kjördæmum. í Alabama (einu Suðurríkjanna) unnu þeir fimm sæti af demokrötum. Góðar horfur eru á, að demo krötum bætist að minnsta kosti 2—3 þingsæti í öldungadeild- inni, þar sem þeir hafa nú 66 þingsæti en republikanar 34. Kos'ið var um y3 sæta. Þrir öldungadeildarþingmenn hafa fallið: Keating fyrir Kenne dy í New York, J. Glenn Beall í Maryland fyrir Joseph Tyings Edwin L. Mechem í New Mexi- co fyrir Joseph M. Montoya. Sbr. og það, sem áður var sagt sigur Murphys í Kalifornfu og Tafts í Ihio. í heimaríkjum forsetaefna. Bæði forsetaefnin geta verið ánægð — einkanlega Johnson — með sigra í heimaríkjum sínum. Fylgi Johnsons í Texas reyndist 2:1 og sigraði enda með yfirburðum í Dallas, þar sem menn eru vanir að kjósa republikana — og Barrv sigraöi í Arizona, en með miklu minni atkvæðamun. Kennedy-stefnan. f fréttaauka í London í nótt var sagt í viðtali um kosninga- úrslitin: Johnson sigraði ekki vegna þess, að hann lofaði neinu. Hann kom fram fyrir bjóðina sc.'.r sá, er veit, að þjððin gerir sér grein fyrir að hann hefir starfað og starfar áfrarn í anda einkunnarorðanna: Við skulum halda stefnunni — þ, e. Kenne- dystefnunni, „Let us continue «« I öðru útvarpsviðtali var svo að orði komizt. að flokkur repu? blikana — flokkur Lincolns — ! væri nú flokkur „hvítra manr.a í blökkumannaríkjunum", en a öðrum er bent á, að yfir 20 milljönir atkvæða, sem Gold ater fái, sé ekki „til að for- ; akta“, þótt • itanlega séu þar margir úr fylkingum hvítra manna í blökkumannaríkjunum og margir hafi kosið Barry af tryggð við flokkinn, en ekki vegna þess að þeir í rauninni aðhyllist skoðanir hans. — Þá var bent á, að Barry Goldwater eigi ekki sæti á næsta þjóðþingi Bandaríkjanna. Johnson sigraði í Suður-Dakota. Fréttir árdegis herma, að ! Johnson forseti eigi sigur vis- an í Suður-Dakota, en þar hafa demokratar sigrað aðeins tvisv- ar áður. Suður-Dakota hefir 4 kjörmenn. — Kjörmenn eru alls 538 og Johnscn hafði, er þetta fréttist, fengið yfir 490 en er úrslit voru augljós í 47 ríkjum hafði hann 471. Laust fyrir klukkan 10 eft'r islenzkum tíma var atkvæða tala Johnsons 37,578.821 en Goklwaters yfir 23 miiljónir. Nokkru f rir hádegi bars' NTB-frétt um, að atkvæðatala Johnsons væri 33.6 milliónir Goldwaters 24,4 milíi. og John- son hefði fylgdi 486 kjörmanr.a og Barrv Goldwater 47. er kjörmenn eru samtals 5S8. í öldungadeiidinni eiga dem'' kratar vis 66 þingsæti, repu blikanar 33. Af 25 nýkiörnum ríkisstjör um eru 18 demokratar og 7 renublikanar (áður 16 desnok’ og 9 republikanar). sjónvaipsiækin norsku hafa góða reynslu hér á landi. Þér fáið ekki betra sjón- varp en Radionette. At- hugið verð og greiðslu- skilmála áður en þér gerið kaup annars staðar. SMDMMI Aðalstræti 18 . Sími 16995 □□□DDaaDaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa tatiaje.L . uaaaaaaaaaaaaaaaaaaaacaua^uci^^

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.