Vísir - 04.11.1964, Blaðsíða 2
2
V í S I R . Miðvikudagur 4. nóvember 1964
OLYMPÍUFARARNIR KOMNIR HEIM
Rætt við Inga Þorsteinsson, fararstjóra
flokksins um glæsilegustu I eika sögunnar
„Þetta var eitt ævin-
týri frá upphafi til
enda“, sagði Ingi Þor-
steinsson fararstjóri ís-
lenzka íþróttafólksins á
Olympíuleikunum í Tok-
yo, en íþróttafólkið kom
hingað til Reykjavíkur á
laugardagskvöldið eftir
langa og stranga ferð
heim frá hinni fjarlægu
milljónaborg, sem er nú
að komast í sitt fyrra
horf eftir hina miklu
Olympíuhátíð, — þá
mestu sem nokkru sinni
hefur farið fram. „Það er
ekkert orð til yfir þessa
leika nema „stórkost-
Iegt“, sagði Ingi.
Við hittum Inga á hinu vist-
lega heimili hans að Faxaskjóli
24 og þar h'ittum við fánabera
Islands á leikunum, tugþraut-
armanninn Valbjörn Þorláks-
son
Viu sj.'wðwm Valbjörn fyrst
af öllu hvað hæft hefði verið í
þeim staðhæfingum sænsks
blaðs, að íslendingar og Banda-
rlkjamenn hafi einir þjóða ekki
heilsað Hirahito, Japanskeisara,
þegar flokkarnir gengu inn á
leikvanginn Við opnunarathöfn-
ina.
„Það er tilhæfulaust með
öllu. Bæði við og Bandaríkja-
menn heilsuðum keisaranum.
enda var búið að æfa þá athöfn
að láta fánana falla fyrir framan
keisarastúkuna. Við vorummjög
undrandi á þessari einstæðu
frétt“, sagði Valbjöm, og Ingi
bætti við: „Við erum orðnir
vanir ýmsu af þessu tagi frá
Svlum og kippum okkur ekki
upp við það“.
— Og hvernig var keppnin
og framkvæmd leikanna?
„Þetta fór allt mjög vel
fram og íþróttafólkið var margt
alveg ótrúlegt í afrekum sín-
um,“ segir Ingi. „Framkvæmdin
var stórkostleg fyrir það, hvað
mikil reglusemi og stundvísi
var í öllu“. Og þegar hann seg-
ir þetta sjáum við í sjónvarp-
inu að fréttamynd er sýnd frá
Tokyó, það sér yfir áhorfenda-
skarann, og hver er þar I heið-
ursstúku nema Benedikt G.
Waage? Og nú er sýnt þegar
úrslit fóru fram í 100 metra
hlaupinu og negrarnir Hayes
og Tyus renna I mark vel á und
an keppinautum sínum „Já,
þetta var stórkostlegt“, segja
þeir Ingi og Valbjöm.
— Nú, og hvernig var lífið 1
Olympíuþorpinu?
„Það var fjölskrúðugt líf eins
og gefur að skilja. Þetta var
raunar borg með sínum borgar-
stjóra og þarna I borginni
bjuggu 7000 manns af eitthvað
rúmlega 90 þjóðernum. Það
vantaði því ekki heimsborgara-
braginn á borgina okkar. Þarna
var allt borgarlíf afar fullkom-
ið, búðir á hverju götuhorni,
matstaðir mjög fullkomnir, leik-
hús og dansstaðir. Við bjuggum
strákarnir og ég I tveim litlum
húsum, en Hrafnhildur var I
víggirtum búðum kvenfólksins.
Á kvöldin var hægt að fara I
alþjóðlega-klúbbinn, en þar
léku oft hljómsveitir eða dans-
að var eftir glymskratta, nú og
svo var hægt að bregða sér I
kvikmyndahús þarna í Olympíu
þorpinu. Morgnarnir hjá okkur
byrjuðu með morgunverði, en
síðan var æft létt á eftir.“
— Þið hafið auðvitað skoðað
fjölmarga merka staði í Tokyo?
„Því miður gátum við lítið
gert að slíku. Meðan á leikunum
stóð var ekki nokkur möguleiki
á að gera það, og líklega væru
hugmyndir okkar um Japan lítið
skýrari ef við hefðum ekki
verið svo ljónheppin, að ís-
lenzk fjölskylda hafði samband-
við okkur I þorpinu, og hafði
meira að segja mikið fyrir að
ná I okkur. Það er fjölskylda
Vestur-íslendingsins Frankl’ins
Ásmundssonar og frú Ernu
Gunnarsdóttur. Þetta ágæta
fólk sýndi okkur fádæma gest-
risni og það er þeim að þakka
að við fengum að sjá ýmislegt
sem ella hefði ekki verið mögu-
leiki á, t.d. Koka-sai, frægt
leikhús þar sem konur fara með
öll hlutverkin, fræg matsölu-
hús, þar sem japanskar erfða-
venjur eru enn við Iýði. Við
heimsóttum þau hjónin og böm
þeirra og höfðum mikið sam-
band við þau og Hrafnhildur
varð eftir hjá þeim og verður
þar I hálfan mánuð. Franklin
vinnur sem ráðgjafi við jap-
anska flotann, en hann er for-
ingi í bandaríska flotanum og
hafa þau hjón búið I 2 ár rúm
I Tokyo.“
— Þannig að þið hafið ekki
þurft að kvarta yfir lélegum
móttökum?
„Nei, þvert á móti. Það var
leikið við okkur hvar sem við
fórum. Okasaki, konsúll Islands
I Japan tók á móti okkur á
flugvellinum og hafði þá beðið
lengi eftir okkur, því flugvél-
inni seinkaði mikið. Hann var
okkur einnig mjög hjálplegur I
hvívetna meðan við vorum I
Tokyo og heimsóttum við hann
einu sinni. Nú og Japanir sjálf-
ir eru mjög skemmtilega kurt-
eisir og gestrisnir eins og kunn
ugt er og maður gat ekki annað
en hrifizt af þeim. Við fengum
fjölmörg bréf frá japönskum
börnum og ungmennum, og
fengum þau jafnóðum þýdd af
hinum ágæta túlki okkar, sem
jafnan var til reiðu. Bréfin voru
öll á þá leið að við skyldum
herða okkur, og gera okkar
bezta, að kennararnir hefðu
sagt þe’im frá íslandi og þau
væru mjög forvitin að fá að
vita meira um þetta fjarlæga
land. Einn bekkur I unglinga-
skóla sendi okkur heilan
stranga af málverkum að gjöf,
mörg bráðfalleg."
— Og hvernig var verzlunar-
lífið I þessari miklu borg?
„Það var fjörugt og marg-
breytilegt. Við skoðuðum það
með þeim Franklin og frú Ernu
og keyptum okkur ýmisjegt smá
vegis, margt á ótrúlega lágu
verði miðað við verðlag hér.
Mjög vinsælt var að kaupa
klæðnað japanskra kvenna,
svokallaðan Kimono, og nú
sækir Ingi konu sína og hún
sýnir okkur einn slíkan sem
Ingi keypti í Tokyo, mjög
skrautlegur búningur. „Ég var
að máta hann áðan,“ segir frú-
Framhald á bls. 7.
íslenzki flokkurinn gengur inn á Olympiuleikvanginn við opnun ieikanna
SPANVHUAR LCIKA HCR
TV0IANDSICIKI
Island leikur tvo landslelki
við Spán eftir 3 vikur á Kefla-
víkurflugvelli. Þetta fékkst á
hreint með sí:nsl:eyti, sem
stjórn Handknattleikssambands-
ins fékk i gærdag.
„Ég ræddi vlð fulltrúa Spán-
verja á aiþjóðaþinginu í Búda-
pest, sem fram f^r 19. og 20.
september í haust“, sagði Ás-
bjtírn Sigurjónsson i viðtali i
gær, „og þar voru drög gerð
að landsieikjum landanna hér
en nú má segja ð fuilvíst sé
að leikimir fari fram.
Ásbjörn kvað Spánverjana
koma hingað frá Oslo, en þar
leika þeir iandsiei.. við Norð-
menn áður en hingað verður
haldið. Hingað koma hinir suð-
rænu gestir 23. nóv. en leik-
irnir fara f ram laugardaginn
24. og sunnudaginn 25.
nóvember, báðir, því miður á
Kefiavíkurflugvelli, því enn er
ekkert hús til hér þar sem lands
leikur getur farið fram í þess-
ari einu íþróttagrein, sem við
erum einhvers megnugir.
ísland lék landslelk við
Spán í Barcelona í fyrra eins
og kunnugt er, — en Spánn
vann þann ieik með nokkrum
mun, en aðstæðurnar til að
leika voru heldur slæmar fyrir
okkar menn og má búast við
að hér verði jafnari leikur, en
bæði liðin ættu að geta sýnt
góðan handknattleik.
WWKiiRDBa
E3