Vísir - 16.11.1964, Blaðsíða 9

Vísir - 16.11.1964, Blaðsíða 9
V í S IR . Mánudagur 16. nóvember 1964 yassw£<3.. i ' i 11 ii i iiihiiiiiiii mm—gwn 9 Fay Werner með nokkrum nemendum sínum. (Mynd BG) u' króiur Nú, ég er of hávaxm - 1.70 . of höfuðstór, of stutt í mittið, refið of langt, öklarnir ekki nógu sterkir, o.s.frv. Ég hef séð of margar skólasystur mínar berjast vonlausri baráttu, og ég er svo heppin að hafa áhuga á fleiru innan ballettsins en dansinum einurn. Mér þykir mjög gaman að kenna, og mig dreymir um að fást við kóreó- grafíu“. ,,Og er sá áhugi nývaknað- ur?“ „Nei, nei, ég samdi fyrsta áansinn minn, þegar ég var niu ára, og þegar ég var fjórtán, byrjaði ég að taka þátt í keppn- um um bezt sömdu dansana, eins og tíðkast víða í Bret- landi". íslenzku nemendurnir eru brennandi af dansgleði Samtal við Fay Werner, hinn nýja ballettmeistara Þjóðleikhússins kennslu og kóreógrafíu. Og nú er ég komin hingað til Islands“. „IJeldurðu, að þú verðir hér lengi?“ ,,Ja, eins lengi og þeir vilja hafa m'ig, býgt ég við. Mér finnst gaman að vinna með ís- lenzku nemendunum, og ég geri i Hún svífur um gólfið á bleik- um ballettskóm, grannvaxin stúlka með mislitan klút í dökku hárinu. Það er Fay Werner, hinn nýi ballett- meistari Þjóðleikhússins, að sýna nemendum sínum ýmiss konar danshreyfingar. Stund- um leiðréttir hún, við og við brosir hún ánægð og kinkar kolli. Þarna eru sextán stúlk- ur og einn piltur, öll hvert öðru áhugasamara á svipinn, enda er þetta bezti flokkur- inn. Með þeim æfir ein af ieikkonum Þjóðleikhússins, Bryndís Schram, sem auðvit- að er þaulvön að dansa bali- ett, þó að hún hafi snúið sér meira að ieiklistinni í seinni tíð. „Tæja, ég er að byrja að átta •'mig á hlutunum", segir Fay glaðlega, þegar tímanum er lok- ið, og fær sér sæti. „Það er rugl ingslegt fyrst að koma í nýtt umhverfi og fá nýja nemendur, en venst ótrúlega fljótt. Verst þykir mér að kunna ekki is- lenzku. Ég er i tímum, en ég er hrædd um, að það verði nokk uð langt þangað til ég get tal- að af einhverju gagni. Eldri nemendurn'ir skilja enskuna ágætlega, svo að allt gengur vel í tfmum með þeim. Aftur á móti túlkar aðstoðarkennarinn fyrir mig við hina, og það er skelfing seinlegt, þegar mig langar að fara út í rækilegar útskýringar. Ojæja, það ætti að venja mig af þeim ósið að vera of málug!" „TTvernig lízt þér á íslenzku x nemendurna?" „Að mörgu leyti varð ég alveg hissa, þegar ég fór að fylgjast með þeim. Það er gaman að sjá, hvað þeir eru brennandi af dansgleði og áhuga. Þeir hafa visst frjálsræði í stíl og hreyf- ingum, sem væri óhugsanlegt hjá enskum nemendum á sama stigi. 1 Englandi leggur tækni- skorturinn miklar hömlur á ball- ettnemendur, þangað til þeir eru komnir mjög langt. En hér virð- ist það ekki tekið jafnhátíðlega. Að sjálfsögðu stendur ýmislegt til bóta; meirj 'kvæmni og sjálfsögun er nauðsynleg, og þekking á hinum alhliða bak- grunn'i ballettsins er enn af skornum skammti, sem eðlilegt er. Mér þætti æskilegt, að þeim væri kennt meira um tónlist og aðrar listgreinar, sögu balletts- ins, karakterdansa, þjóðdansa, látbragðsléik o.s.frv. En það er ekki hægt að gera allt í einu — þetta er góð byrjun“. „tTvað eru lí skóla margir í bailett- Þióðléikhússins núna?“ „110, þar af 15 drengir" ,.Og hafa þeir jafnmikinn áhuga og stúlkurnar?" „Ekki síðri. Annars myndu þeir áreiðanlega ekki koma, þvi að þe'ir eiga alltaf á hættu stríðni félaga sinna sem engum þykir gaman að verða fyrir á þessum aldri. Ég vona, að þeim eigi eftir að fjölga mikið í skól- anum; við höfum alltof fáa herra eins og er“. „Hvernig Iíkar þér að fást við kennslu?" „Prýðilega. Mér finnst hún bæði skemmtileg og lærdóms- rík, og í svona störfum er mað- ur að læra alla ævina“. „JJreymdi þig ekki um að verða fræg ballerína, þegar þú varst lítil?“ „Jú, mikil ósköp. Mig hefur alltaf langað til að dansa, frá því að ég man fyrst eftir, og aii$ýftaíf kojn -.^kkert ,minna til greina en aö verða fræg stjarna. En ég varð skynsamari með aldrinum og sá þá, hversu of- boðsleg samkeppnin er í ball- etthe'iminum og hve örðugt er að vinna fyrir sér sem ballett- dansmær. Til að komast inn í flokka vá borð við Konunglega brezka ballettinn og Festival ballettinn verður maður að hafa algerlega fullkominn líkamsvöxt og hárrétt hlutföll, að ekki sé minnzt á tæknilegar og listræn- „Vannstu kannske verðlaun?“ „Já, ég held, að ég hafi alltaf unnið. Það hleypti í mig kjarki, og síðar þjálfaði ég mig sér- staklega í þessum tveimur grein um: kennslu og kóreógrafíu. Eftir að ég var útskrifuð úr ballettskólanum, fór ég til Ir- lands og starfaði þar með Þjóð- lega írska ballettinum, dansaði á sýningum og aðstoðaði ball- ettmeistarann við kpnnslu, ,Þyj m'iður varð flokkurinn gjáld- þrota, svo að þeir neyddust til að leggja hann niður. Það fannst mér mikil synd“. „Fórstu þá aftur til Eng- lands?“ „Já, þá fór ég til London og vann þar við sjónvarp og kvik- myndir. Þar kom margt til gre'ina — ballett, látbragðsleik- ur, söguiegir dansar, leiklist o.fl. Síðan var ég i Bandaríkjunum tvö sumur og fékkst þar við mér vonir um að starfa hér einnig sem kóreógraf. Það er ekki nóg að læra sporin, maður þarf að venjast því að koma fram og dansa fyrir áhorfendur, og hér væri tilval'ið að notá litla sviðið í Lindarbæ fyrir sameinaðar leiklistar- iOg ball- ettsýningar, hafa t.d. stuttan e'inþáttung og ballett á eftir eða öfugt“. „TTver eru helztu áhugamál þín fyrir utan ballettinn?" „Ó, mér finnst gaman að ótal- mörgu. Ég hlakka til að skoða Iandið, og sérstaklega er ég mikið fyrir útreiðar, þó að það sé óballettleg skemmtun. Ég hef á tilfinningunni, að mér e'igi eftir að líða mjög vel hérna, og ef maður er svo lánsamur að eignast góða vini, getur maður verið hamingjusamur hvar sem er í heim'inum“. — SSB hip*:naríki og helvíti JTvers vegna hafa menn flutt um þúsundir ára þessa kenningu um himnaríki og hel- vfti? Var þetta eintómur skáld- skapur hrekkvísra manna, til þess ýmist að g'inna eða hrella fávísar sálir? Ónei, vissulega ekki. Annað lá þar til grundvall ar. Snemma á þroskaskeiði mannsins skynjaðj hann, annað hvort ósjálfrátt eða sjálfrátt, að í raun og veru hefur mannkyn aldre’i átt um að velja nema tvær leiðir: veg farsældar eða glötunar. Þetta var túlkað hin- um sterku orðum: himnaríki og hel-víti. I kvæði eftir skáidið Hetne, þar sem alvara er sögð í gamni, hefur hinn snjalli Ijóðaþýðari, Magnús Ásgelrsson, þýtt eitt stefið á þessa Ieið: Nú er héimur heillasnauður, hvers kyns eymd og plága skæð. Á efsta lofti er drottinn dauður og djöfullinn á neðstu hæð. Um alilangt ske'” hefur mönn um V—17 boðuð óspart þessi lífs skoðun: Enginn Guð f himnun- um, enginn himnadrottinn þar, ekkert að tilbiðja og tigna, og i undirdjúpunum ekkert að óttast, enginn „glóðaflagða-gramur“ þar með horn og klaufir til að kynda glötuðum sálum kvala- bál. Báðir búnir að vera: ljóss- insfaðir og m ^r’höfðinginn. Ónei, góðir hálsar, svo einfalt' er málið ekki. Það er aðeins ekki ein djúpt á hel-vítinu nú eins og áður var í trúarvitund manna, því að það hefur flutzt upp á yfirborð jarðar. Staðreynd irnar, sem bæði orðin, himna- ríki og hel-víti tákna, eru enn óumflýjanlegur vcruleiki. Enn er til sæla og kvöl, enn er ti! spillt líf og heilbrigt líf, enn er til farsæld 'g ófarsæld, enn er til dáðríkt og fagurt mannlíf og einnig hryllilega spillt glæpa- mannslíf, sæluríkt lff og kvala- líf. Framh á bls 10

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.