Vísir - 17.11.1964, Blaðsíða 2
7
V í SIR . Þriðjudagur 17. nóvember 1964
KOMIN í BÓKABIÍÐIR
Þetta er sjálfsævisaga Heinz Knoke, eins
fremsta orustuflugmanns Þjóðverja í síðari
heimsstyrjöldinni. Hann lýsir hinum æsi-
■■■ ■ spennandi loftorustum af svo mikilli snilli, að '
atburðirnár eru Ijós.lifanði ^fyfir aii|upi les-
andans og frásögniri heldur höríum förignum
frá byrjun.
Hann háði meira en 2000 viðureignir og skaut
niður fimmtíu og tvo andstæðinga.
Bókaútgáfan FÍFILL
Opíð til II. 22X3
alla daga
KRÓNAN . Mávahlíð 25 . Sími 10733
Bamakjólar með ermum, bláir og rauðir.
Verð aðeins kr. 165.00.
Barnaskjort, hvít, gul og blá
Verð frá kr. 95.00.
með fafriaðinn á fjöískylduna
Laugaveg 99, Snorrabrautar megín - Sími 24975
VALSLIÐIÐ — vinnur það Danmerkurmeistara í kvöld? — Það er
alis ekki útilokað að svo verði.
Dönsku meistaramir I hand-
knattleik, AJAX, leika í kvöld
á Hálogalandi við gestgjafa
sína, Vai. AJAX gekk ekki vel
í viðureigninni við íslandsmeist-
arana Fram, en undirritaður
vill spá spennandi keppni í
kvöld, jafnvel þótt hér séu að
leik Danmerkurmeistarar og lið
úr 2. deild á íslandi.
Kemur það til af því að er-
lendu liði hefur aldrei gengið
vel í fyrsta leik sínum á Há-
logalandi. Er það raunar auð-
skilið þvi völlurlnn er helmingi
minni en alls staðar er notaður
og mjög erfitt er að átta sig á
aðstæðunum fyrr en eftir einn
til tvo Ieiki. Valsliðið er hins
vegar mjög gott lið þótt það
leiki enn ekki f 1. deild og er
raunar erfiður biti fyrlr mörg
1. deildarliðin.
Leikurinn f kvöld hefst kl.
20.15 og er ráðlegt fyrlr fólk
að tryggja sér miða f tfma, enda
má búast við mikilli aðsókn f
kvöld, en áhorfendastæðin f
Hálogalandi eru eins og salur-
inn sjálfur, — sorglega Iftil, og
rúma með góðu móti aðeins um
700 manns.
- SEGIR LISTON
Það varð ekkert af hinu
mikla einvígi þeirra Listons og
Clay í nótt. Milljónir áhuga-
manna um aiian heim urðu
fyrir miklum vonbrigðum, en
auðvitað var ekkert hægt að
gera f málinu, — Cassius Clay
eða Mohammed Ali var veikur
á sjúkrahúsi og læknar urðu að
beita busa sínum á stæltan
kvið hans.
„Þetta hefði getað verið
verra“, sagði andstæðingur
þessa fræga sjúklings, „það
Í;ef3i getað verið ég sjálfur",
bætti hann við, þegar hann
frétti af erkióvini sínum á leið
í sjúkrahús fárveikum.
Clay, sem var fluttur á
sjúkrahús í Boston var sagður
við beztu heilsu á sunnudaginn
og læknir hans sagði að upp-
skurðurinn við kviðslitinu væri
mjög vel heppnaður .
Talið er að Clay verði ekki
fær um að hefja æfingar fyrr
en í fyrsta lagi eftir 4 mánuði
og megi alls ekki fara að keppa
fyrr en eftir G mánuði. Clay
var að horfa á sjónvarp á hóteli
sínu, þegar hann varð skyndi-
lega veikur. Myndin sem hann
horfði á: „Cæsar litli“.
Framkvæmdastjórar keppn-
innar eru um þessar mundir við
mun lakari heilsu en Clay. Þeir
sjá fram á mikið tap. Tapið í
Boston Gardens, þar sem keppn
in átti að fara fram er talið
rúmar 2 millj. króna, sem eru
hreinir smámunir miðað við
það sem Sportvision Incorpora-
ted tapar, — ekki undir 90
milljónum fsl. króna.
Síðasta athugasemd frá List-
on um þennan atburð var:
„Hefði Clay ekki hlaupið um
götumar eins og krakkabjálfi,
hefði þetta ekki komið fyrir“.