Vísir - 20.11.1964, Blaðsíða 2

Vísir - 20.11.1964, Blaðsíða 2
V í SIR . Föstudagur 20. nóvember 1964 ^ikur fyrir horðgeru kurlmenn: 50 mínútna slagsmál færðu FH-sigur35:24gegnAJAX ril yfirgaf Hálogaland 135:24 í stærra lagi, að vísu, c : -y liinn stóri sigurvegari en sigur mjög sanngjam. I . jreigninni við dönsku Jvjér duttu í hug eftir að hafa séð í.r: 3tarana í handknatt- þennan slagsmálaleik orð eins af ,T . c hinum góðu gestum okkar fyrir ‘2 Kaupmannahafnarhð- nokkru Beftir ^rsta leik liðsins: I ið biðu 200 manns og fengu enga miða, það var UPPSELT, nokkuð j sem kemur talsvert oft fyrir á Há- logalandi og verður án efa í nýju íþróttahöll'inni í framtíðinni. FH byrjaði afar illa í þessum leik. Liðsmenn virtust ekki kunna sér hóf í skotum og fyrstu 9 skotin enduðu flest í höndum hins ágæta markvarðar Ajax. Hins veg- ar gekk Ajax allvel að finna göt'in á vðm FH og skoruðu fyrstu 3 mörkin. Harkan í leiknum upphófst reyndar þegar og dómarinn hafði gefið merki um að hefja leik. Bæði lið'in voru með tvöfalda vöm, | sem verður oft til að hleypa leikj- um upp. Einn Dananna neitað'i snemma að sættast við Kagnar eftir árekstur og það var greinilega þungt í mönnum. Eftir þetta urðu árekstrar bæði margir og þungir úti á litla gólfinu, sem virtist varla geta rúmað 14 svo stóra og stæði- lega menn. FH náði forystunni i 4:3, en í 6:5 var Ajax yfir og enn í 7:5, sem Hafnfirðingar jöfnuðu og komust yfir 8:7. Og enn náðu Danimlr forystu fyrst í 9:8 og sfðar náðu þeir tveggja marka mun 11:9, sem var jafnað og meira til, því næstu 6 mörk vom öll ættuð úr Hafnar- firði og þá var staðan skyndilega orðin 15:11 fyrir FH og í hálfle'ik var staðan 16:13. Seinni hálfleikur var ekki síður spennandi og ákaflega harkalega leikinn á köflum, en sigur FH blasti raunar við allan tímann, liðið bar af því danska á svo margan hátt, t.d. því að ALLIR liðsmenn FH virtust geta skotið, þó mest reyndi á Ragnar í því til- liti, en Danirnir réðu ekki við snilli hans í leiknum, og hefur Ragnar sjaldan verið eins góður Og nú. Fyrstu 4 mörkin skiptust jafnt n'iður á liðin, en næstu 6 mörk eru frá FH og skoraði Ragn- ar 4 þeirra og nú var staðan á 11. mínútu orðin að yfirburðastöðu FH 24:15, nokkuð sem iiðið gat alls ekki gloprað niður. Það kom Ifka á daginn að það reyndist auðvelt að halda í horfínu og jafnvel bæta nokkrum mörkum við forskotið. Þó tókst Dönum að minnka bilið nokkuð og komust næst í 26:22, en þá fylgd'i þriðji „6 marka kaflinn" í leiknum og staðan var orðin 32:22 og örfáar mínútur eftir og lauk leiknum 35: 24, með enn einum sigri fslenzks liðs gegn dönskum meisturum. Að vísu skygg'ir nokkuð á þenn- an sigur. Við lékum við okkur kunnar aðstæður, Hálogaland, sem Danir þekkja ekki nógu vel. Þó fannst mér að Danir léku vel, margir kaflar f leik þeirra voru mjög góð'ir, en þeir réðu ekki við hraða FH. Hins vegar má benda á .að þetta er fyrsti kappleikur FH í haust, einnig að lið þeirra nær ekki síðri leik í stórum sal. Ég spái að FH mundi sigra Ajax einnig f stórum sal, jafnvel þótt hann væri staðsettur f Kaupmanna höfn. FH-lið'ið er f góðri æfingu og ungu mennirnir í liðinu eru mjög skemmtilegir leikmenn og e'iga eftir að gera mjög vel í vetur. Beztu menn FH fundust mér Ragnar Jónsson, hreinn snillingur með boltann, og gerði ótrúlega hluti, fyrir írtan að hann gerði 13 glæsileg mörk f le'iknum, öm Hallsteinsson ágætur, nýliðarnir báðir mjög skemmtilegir þeir Jón Gestur og Geir Hallste'insson og Ragnar skorar eitt af þrettán. ið Ajax. Þetta kostaði liðið S0 mínútna slagsmál með nokkurra mínútna hléi á milli, slagsmál sem eiga lítið skylt við handknatt- leik eða íþróttir yfirleitt. Hafnarfjarðarliðið var betra í þessum leik en Jiðið frá Eyrarsundi, sigurinn „Þetta er ekki leikur fyrir kven- fólk, — heldur harðgera karl- menn“. Og það er hárrétt hjá þeim ágæta leikmanni, sem kvart- aði þó iðulega undan fangbrögðum v'ið Hafnfirðingana. Þetta var ekki leikur fyrir kvenfólk. Jafnvel konum meðal áhorfenda blöskraði að horfa upp á leik sem þennan. Áhorfendur á Hálogalandi í geer munu hafa verið milli 7—800 talsins, e'ins margir og húsakynni framast leyfa og þótti þó mörgum æði þröng um sig. Fyrir utan hús- NOKKUR ORÐ UM UMFERÐINA VIÐ HÁLOGALAND Hreint hneyksl'i er gamla íþróttahúsið að Hálogalandi að verðá og hefur þó löngum verið mikill neyðarkostur. Ekki að- eins að húsið sé vart helt á vind og veður, heldur eru and- stygg'ilegheitin utan dyra til há- borinnar skammar og verður að krefjast þess að úrbætur verði framkvæmdar. Kemur þar til að úti fyrir er mikið svað í veðri eins og var í gær- kvöldi og ekk'i sízt skipulags- leysið f sambandi við umferð að húsinu. í húsinu í gær munu hafa verið á 8. hundrað manns, all- flestir munu hafa komið akandi á bifreiðum. Það er ekki langt frá sanni að þarna hafi verið 150 bílar. En bílastæði? Varla nema fyrir 30 bíla í hæsta lagi. Olli þetta lögreglunni miklum erfiðle'ikum og Iokaðist Gnoð- arvogurinn á tímabili vegna bíla sem lagt hafði verið rangt. Varð fólk I húsunum f kring að kalla á lögregluna þegar það uppgötvaði að bílar þess voru lokaðir inn'i og kvikmyndahúsa ferðir af þeim sökum að verða úr sögunni. Að vísu er íþróttamönnum nú lofað nýju íþróttahúsi til notkunar næsta vetur, en það verður a.m.k. að kalla lögreglu á vettvang þegar búast má við fjöímenni að Hálogalandi, og það verður alla vega að gera nauðsynlegar úrbætur varðandi forina fyrir utan húsið.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.