Vísir - 20.11.1964, Blaðsíða 5

Vísir - 20.11.1964, Blaðsíða 5
VI SIR . Föstudagur 20. nóvember 1964 5 útlönd í morgun utlönd í rnorgun útlönd í morgun útlönd í morgun Samkoaulag / morgun á ráiherrufundi EFTA -landa Gordon Walker Á ráðherrafundi Fríverzlun- arbandalagsins (EFTA), sem haldinn er í Genf, náðist sam- komulag í morgun, en fundur- inn hafði staðið alla nóttina. Ekki var þá kunnugt nánar um samkomulagið og beðið nán ari frétta. Fundurinn var hald- inn fyrir luktum dyrum. í gærkvöldi fréttist, að 15% innflutningstollahækkunin í Bret landi, hefði sætt harðri gagn- rýni á fundinum f gær, og hver ræðumaðurinn af öðrum talið brotið í bág við tilganginn með EFTA og reglur þess, með því að stofna til hennar. í>á var það harðlega gagnrýnt að gripið var til þessara ráðstafana án þess að ræða um það við önnur að- aðildarríki í bandalaginu. Loks Lokusókn hufín til Stunleyville Stjömarherinn í Kongo, sem tók Kindu herskildi á dögunum, hefir nú hafið sókn til Stanleyville — seinasta stórvirkis uppreistarmanna Fréttir bárust um það í gærkvöld til Leopoldville, að stjórnarher- sveitirnar hefðu þegar sótt fram um 100 km. og samtímis að Tsjombe forsætisráðherra hefði á nýjan leik skorað á uppreistar- menn að jefast upp og hefja sam- starf við sambandsstjórnina. Kemur mjög fram í fréttum, að þeir muni ætla að nota sér að þeir hafa hundruð hvítra manna á valdi sínu, og eru flestir belgiskir, en margir bandariskir, og hafa uppreistarmenn allmarga í hald'i sem gisla. Einn hinná bandarísku manna í haldi hjá þeim er trúboðslæknirinn Carlson, sem nýlega var dæmdur til lífláts af herrétti í Stanleyville. Héldu uppreisnarmenn því fram, að hann væri ofursti í Bandaríkja- hernum, en því var neitað í Wash- ington. Aftaka Carlson hefur verið ákveðin n.k. mánudag, en viðræð- var rætt um það sem áfall og hnekki fyrir öll hin aðildarríkin en torveldaður var með þessu aðgangur þeirra að stærsta markaðinum f bandalaginu. Þeir Gordon Walker utanríkis ráðherra Bretlands og Jay verzl- unarmálaráðherra, héldu uppi vömum og sögðu brýna nauð syn hafa borið til hækkunarinn ar til þess - að draga úr óhag- stæðum greiðslujöfnuði og treysta gengi sterlingspundsins, en traust gengi þess myndi er til lengdar léti, gagna öllum aðildarríkjunum. Þeir sögðu ekki unnt að fella niður þegar 15% innflutnings- tollaaukninguna, en lofuðu að málið yrði tekið fyrir undir næsta vor, en þvf hafði raunar Callaghan lofað í fjárlagaræðu sinni á dögunum. ur hafa farið fram milli banda- ríska ræðismannsins í Stanleyville og Gbeny, aðalleiðtoga uppreisn- armanna þar, um örlög hans, og það seinasta, sem gerzt hefur í málinu er, að Bandaríkjastjórn hef ir beðið Gbeny að nefna fundar- stað og stund. Margrét Danaprinsessa Margrét prinsessa, ríkisarfi Danmerkur, er urn þessar mundir í heiin sókn í Londón. Myndin er tekin af henni, er hún var nýbúin að síma til konungshallarinnar í Kaupmannah., til þess að segja frá óhappi, sem hún varð fyrir, er hún var gestur Northampton lávarðs og lady Nort- hampton, f Castle Ashby House, sem reist var á 16. öld, en kastalinn stendur í þorpi, sem um 100 manns búa í. Þjófar brutust inn í svefn- herbergi hennar þar um seinustu helgi — meðan hún og aðrir gestir skemmtu sér við dans og fleira niðri. Stálu þjófarnir skartgripum prinsessunnar um 10.000 stpd, virði. Fundir voru í báðum deildum og sameinuðu þingi í gær. 1 sameinuðu þingi fóru fram at kvæðagreiðslur um nefndir. f efri deild var eitt mál á dagskrá, um bann við tóbaksauglýsingum, sem Magnús Jónsson flytur. I neðri deild voru 3 mál á dag- skrá, innlent lán, sem var tekið til 2. og 3 umr. og afgreitt sem Iög frá Alþingi. Þá kom frá nefnd frv. uni verðtryggingu launa og Lúðvík Jósefsson mælti fyrir frv. sem hann flytur um ásamt fleirum um endurálagningu skatta og út- svara á einstaklinga á síðasta ári. Bann við tóbaksaugiýsingum. Magnús Jónsson mælti í efri deild fyrir frv. um breytingu á iög um um einkas. ríkisins á tób. Er gert ráð fyrir að við 2. grein lag- anna bætist ml.gr. á þá leið að tóbaksaug lýsingar hvers konar séu bann aðar. í greinar gerð frv. segir, að lengi hafi ver Skuldabréfalánið afgreitt ið í gildi bann við að auglýsa á- fengi, þar eð almennt hefur verið viðurkennt, að þjóðfélagsleg nauð syn væri að sporna gegn áfengis nautn. Nú þykir óvefengjanlega sannað af vísindamönnum, að tóbak hafi að miklum mun skað legri áhrif en áður hefur verið talið og eigi m. a. ríkan þátt í myndun krabbameins, eins hins geigvænlegasta sjúkdóms, er nú herjar þjóðina, svo sem flestar aðr ar þjóðir. Víða hafa veruleg átök verið gerð í því skyni að vinna gegn tóbaksnautn, fyrst og fremst vindlingareykingum, er taldar eru skaðvænlegasta' tóbaksnotkunin. Hér á Iandi hefur sala vindlinga minnkað verulega, en nú þykir sækja í hið fyrra horf. Augljóst er, að íhuga þarf af fullri alvöru tiltækileg úrræði til þess að hefja nýja baráttu gegn reykingum, ekki sízt meðal unglinga. Er þess að vænta. að fræðsluyfirvöld beiti sem verða má áróðri í skólum í þessum tilgangi og heilbrigðisyfir völd athugi aðrar leið- ir er til greina geti komið. Þessu frumvarpi er eingöngu ætlað að stemma stigu við auglýsingum tóbaksvara. Getur naumast valdið ágreiningi, að sú ráðstöfun sé sjálf sögð Sagði flm. frv. þetta vera einfalt í sniðum óg ekki þurfa skýringa við. Það væri vísindalega sannað, að viss tegund tóbaks get ur valdið alvarlegum meinsemd- um Ástæðan fyrir flutningi þessa fr\>. væri fyrst og fremst sú, að eftir að dró úr sígarettusölu hafa sígarettuframleiðendur hugsað sér til hreyfings og hér á landi væri farið að auglýsa tóbak í kvik myijdahúsum. En þessa auglýs- ingaherferð ætti að kæfa ( tæka tíð eða þegar í byrjun og þess vegna væri frv. flutt. Síðan var frv. vísað til 2. umr. og allsherj arnefndar. Innlent lán Frumvarp rlkisstjornarinnar um útgáfu vísitölutryggðra skulda bréfa var tekið til 2. og 3. umr, í neðri deild og j afgreitt sem lög k frá Alþingi. — V Davíð Ólafsson f hafð; framsögu ' Jfk fyrir meirihl. .......... fjárhagsn. /. f§ sem mælti með ! samþykkt frv. með smávægi legri breytingu. Minnihlutinn, Lúðvík Jósefsson, skilaði séráliti og tók upp tillögur Björns Jónssonar frá umræðum í efri deild, að vextir yrðu aðeins 4 — 5%, og fé því, sem aflast á þennan hátt skuli varið samkv. nánari ákvörðun Alþingis. Fjár- rnálaráðherra, Gunnar Thorodd sen svaraði þessu nokkrum orð- um. Sagði hann, að nokkurs mis skilnings gætti hjá síðasta ræðu- manni um það atriði að verið væri að draga íjáveitingavald ið úr höndum A1 þingis. Allar þær framkvæmdir, sem ríkisstjórn- in hyggst verja fénu til, hafa áður verið heimil aðar af Alþingi og það hefur áður falið ríkisstjórninni að útvega V í þessu skyni og þess vegna hlýtui það að teljast óþarfi að fá nýja heimild. Þá voru breytingatillögur Lúð víks felldar og frv. vísað til 3 umræðu, sem hófst strax á eftn Bar Einar Ágústsson þá fram breytingartillögu á þá leið, að skuldabréf þessi skuli skráð á nafn eigenda. Sagði þetta auð velda störf skatt stjóra. En breyt. til þessi var einn ig felld og frv. síðan afgreitt sem lög frá Al- í stuttu máli Davíð Ólafsson mælti fyrir nefndaráliti á stjórnarfrv. um verötryggingu launa. Lúðvík Jósefsson mælti fyrir frv. um endurálagningu útsvars og tekjuskatts einstaklinga árið 1964.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.