Vísir - 20.11.1964, Blaðsíða 16
/
Fttstudagur 20. nóv. 1964
Stykkishólmsbátar
hafa aflað vel
Stykkishólmsbátar hafa lítið ró-
ið siðustu dagana sökum ógæfta.
En fram að þeim tíma öfluðu
þeir sæmilega vel, h'ins vegar var
langsótt á miðin.
Tveir bátar hafa stundað síld-
veiðar frá Stykkishólmi að undan
fömu og var sildin þá ýmist sölt-
uð eða fryst.
Véladeild SÍS flyt-
ur í ný húsakynni
Á mánudaginn flytur véladeild
SIS f nýja húsið að Ármúla 3 með
skrifstofur sínar, en verzlun deild
arinnar flutti f húsið fyrir alllöngu
sfðan. Verður véladeildin þarna
með húsnæði á tveim hæðum fyrir
skrifstofur og verzlunina, en að
auld kjallara, en tvær efstu hæðir
hússins verða Samvinnutrygging-
ar með og taka þær bráðum í
notkun.
Teiknistofa SÍS sá um allar teikn
ingar hússins og sá um byggingar-
framkvæmdir. Mjög nýstárleg er
innrétting skrifstofanna, sem er öil
úr harðviðarhlerum, sem hægt er
að færa til á auðveldan hátt.
Framkvæmdastjóri Véladeildar,
Hjalti Pálsson, sýndi blaðamönn-
um nýju skrifstofurnar í gær.
Sagði Hjalti að næsta verkefni væri
að koma upp bflaverkstæði, sem
ætti að vera fyrir norðan skrif-
stofubygginguna. Véladeildinni er
skipt f þrennt, búvéladeild, raf-
magnsdeild og bifreiðadeild. Deild
arstjóri búvéladeildar er Ásgeir
Jónsson, rafmagnsdeildar Einar
Birnir og bifreiðadeildar Árni Árna
son. Skrifstofustjóri hefur verið
ráðinn Óskar Gunnarsson.
Prófessor Þorbjöm Sigurgeirsson við hina nýju eðlisfræðistofnun.
Raunvísindastofnunin tiibú-
in næsta sumar
Þrjár nýjar deildir verða þar til húsa
í sumar var byrjað að byggja
fyrsta áfanga Raunvísindastofnun-
ar Háskóla Islands hjá Háskólabiói
og hefir verkinu miðað sérlega vel
svo að nú er lokið við að steypa
upp húsið, kjallara og tvær hæðir,
gólfflötur hverrar bæðar er 540
fermetrar. Er búizt við, að hægt
verði að taka húsið f notkun
Skilja skipin eftir í reiíi■
leysi í höfninni í Reykjavík
Viðtal við Valgeir Björnsson, hafnarstjóra
MUdl brögð hafa verið að þvi,
að skipstjómarmcnn skilji skip sin
eftir I reiðileysi f Reykjavíkurhöfn,
og hafl enga vaktmenn um borð,
þótt þess sé greinilega krafizt í
reglugerð.
Vísir átti f morgun tal við Valgeir
Björnsson hafnarstjóra. Hann sagði,
að Hafnarskrifstofan hefði nú hafiö
herferð gegn þessu gæzluleysi, þvf
nú er einmitt sá tfmi f vændum,
þegar öryggið í höfninni er mest
aðkallandi.
— Það hafa verið ákaflega mikil
brögð að þvf, sagði Valgeir, að fiski
skip séu skilin eftir mannlaus í
vesturhöfnínni, en þetta hefur líka
komið fyrir með togara utan af
landi. Nú eru þrengslin mikil f höfn
inni, einkum hjá fiskibátunum, og
FARFUGLAHEIM
ILINU BREYTT
Eins og áður hefur verið skýrt
frá keypti Farfugladeild Reykja-
vfkur þriggja hæða hús á horni
Laufásvegar og Baldursgötu ný-
Iega og ráku þar gistiheimili sitt
f suraar.
Ýmsar breytingar þurfti að gera
á húsnæðinu til að það yrði hent-
ugt fyrir slfka starfsemi, sem Far-
fuglar reka. Var byrjað á þe'im f
vor áður en sumarstarfsemin hófst,
en tekið til við þær aftur f haust
þegar henni lauk. Hafa Farfuglar
sjálfir unnið að þessum breyting-
um í frfstundum sínum og sem
sjálfboðavinnu og hefur jafnan
veriö unn'ið tvö kvöld í viku,
mánudags- og fimmtudagskvöld.
Helztu breytingarnar sem gerðar
hafa vc/J á húsnæðinu eru ann-
ars vegar fólgnar f þvf að brjóta
niður skilrúm eða milliveggi á 2.
hæð húss'ins í þvf augnamiði að
gera þa. samfelldan fundar- eða
samkomusal fyrir starfsemina.
Hins vegar er önnur aðalbreytingin
í sambandi við hreinlætisklefa Á
þeirrf breytingu var byrjað í vor
en tókst ekki að Ijúka við hana
áður en sumarstarfsemin hófst.
Á götuhæð byggingarinnar hef-
ur verzlun verið til húsa fram til
þessa, en hún rýmir húsnæðið um
n. k. áramót og þá er hugmynd
Farfuglanna að flytja skrifstofur
sfnar þangað með .vorinu, en þær
hafa til þessa verið á næstu hæð
fyrir ofan. Áður en af þvf getur
orðið þarf að sjálfsögðu einhverra
lagfæringa við þar sem verzlun'in
var til húsa
Ýmsar fleiri bollaleggingar eru
á döfinni hjá Farfuglum, en það
fer eftir fjárhagslegri getu þe’irra
hvað úr rætist með þær.
Farfuglar halda í vetur, eins og
að undanförnu, uppi skemmtana-
l h á f>
stöðugt þarf að færa skipin til.
Skapast ýmsir erfiðleikar af þvf, ef
enginn vaktmaður er til staðar í
þeim tilfellum, og þarf Hafnar-
skrifstofan þá oft að færa þessi skip
til. Svo er öryggisis'ins vegna nauð
synlegt, að vaktmaður sé um borð,
því skipin geta slitnað upp f vond-
um veðrum, skemmzt, skemmt önn
ur skip eða hafnarmannvirki. Þá
höfum við einnig dæmi þess, að
rónar hafi farið um borð og framið
spellvirki f mannlausum skipum.
Það er ekki langt sfðan botnventill
var á þann hátt opnaður f togara,
og hann var nærri sokkinn, áður
en menn komu á vettvang.
1 rauninni er skylt, sagði Valgeir,
— að hafa vaktmenn um borð í
hverri fleytu f höfninni, en við leggj
um mesta áherzlu á, að vaktmaður
sé um borð í fiskiskipunum og f
stærri skipunum.
næsta sumar, að því er prófessor
Þorbjörn Sigurgeirsson formaður
byggingamefndar tjáði Vísi i morg-
un.
Prófessor Þorbjörn sagði að þeg-
ar væri byrjað að vipna að fram-
k\æmdum 'innanhúss og yrðu
fjórar deildir þama til húsa,
Eðlisfræðistofpunin,. sem hann
veitir sjálfur forstöðu, og þrjár
nýjar deildir, sem taka þar til
starfa, stærðfræðideild, efnafræði-
deild og jarðeðlisfræðideild. Ekki
hafa enn verið ráðnir forstöðu-
menn þeirra deilda, að því er prö-
fessor Þorbjörn bezt vissi. Við
Eðlisfræðistofnunina eru nú starf-
andi, auk hans, þrír vísindamenn,
Páll Theódórsson, eðlisfræðingur,
Bragi Árnason, efnafræðingur, og
dr. Þorsteinn Sæmundsson, stjarn-
fræðingur.
Þriðja bindi ævi-
sögu Hannesar
Hafstein komið út
Lokabindi ritverks Kristjáns Al-
bertssonar kom út hjá Almenna
bókafélaginu í gær.
í miðbindi ævisögunnar sagði
aðallega frá stjórnmálum á fyrr'i
ráðherraárum Hannesar Hafsteins,
1904—1909. En í þessu síðasta
bindi segir ítarlega af persónuleg-
um högum hans, innri og ytri,
bæði á fyrri stjórnarárum hans,
síðan f sambandi Við lát konu
hans, og loks á efri árum, við vax-
andi heilsuleysi. Stjórnmálaátök
eru áfram viðburðarík og hörð.
Sagt er m. a frá því þegar Hannes
Hafstein er felldur frá völdum
1909, frá afdrifum sambandsmáls-
ins á þvl þ'ingi, frá valdabaráttunni
innan Sjálfstæðisflokksins, sem
lyktaði -með því að Björn Jónsson
varð hlutskarpastur og hinni sögu-
Framh ð bls 6
Hannes Hafstein
Kommúnistajiing hefst í dag
Síðdegis i dag hefst 14. flokks
þing hins íslenzka kommúnista
flokks Sósfalistaflokksins. Hafa
að undanförnu átt sér stað
hörð átök innan flokksins og er
þar nú mikil ólga vegna óá-
nægju flokksmanna með gamla
forystu og ágreining um afstöð
una til Alþýðubandalagsins. Má
búast við því að þingið verði
sögulegt.
Það hefst með rreðu Einars
Olgeirssonar formanns flokks-
ins. Þá hafa hann og Lúðvík
Jósepsson, varaformaður flokks-
ins, framsögu um stjórnmála-
viðhorfið, verkalýðshreyfing-
una og næstu verkefni flokks-
ins. Á morgun mun þingið taka
til umræðu það efni sem flestir
munu biða eftir, eða skipulags
mál Alþýðubandalagsins. Um
það hefir framsögu Guðmundur
Hjartarson. Þá verður rætt um
kommúnistaflokkinn og starf-
semi hans og hefir þar fram-
sögu Kjartan Ólafsson fram-
kvæmdastjóri flokksins. Einnig
verður rætt um menningarmál,
og hefir framsögu Árni Berg-
mann blaðamaður við Þjóðvilj-
ann. ,
Vísir mun greina frá þvi sem
gerist á flokksþinginu næstu
daga.