Vísir - 20.11.1964, Side 6

Vísir - 20.11.1964, Side 6
6 V í SIR . Föstudagur 20. nóvember 1964 Á helgislóðum — Framn ai ois 1 fannst.ven á hann var letrað Pontius Pilatus. Steinninn er ilia farinn, en þó má lesa nafn- ið. Þetta er sagt að sé legsteinn Pontiusar Pilatusar, en þetta er í fyrsta sinn, sem nafn hans finnst skráð utan í Nýja testa- mentinu. Þannig hafa þessar rannsóknir, eins og margar fleiri sýnt fram á sannleiksgildi Testa mentanna. í GALILEU. Forsœtisráðherrahjónin komu elnnig 1 Beerseba, þar sem sagt er, að Abraham hafi búið með sonum sínum, og til Dauða hafsins, þar sem fjallshltðarnar eru úr salti. Þar má sjá hina frœgu saltstólpa f grennd við þar sem áður var borgin Sódóma. T andslagi á þessum slóðum svipar til Sveifluháls við Krýsu. vfk, og á ððrum stað við vatnið svipar þvf til landslagsins f Hval firði. 1 þessu landi er atlt annað hvort yngra en 25 ára eða eldra en 2000 ára. Það er urmull af sögustöðum þarna, en flestir minna þeir á Gamla testamentið.; Þar við bsetist, að Israel nútím- ans tekur ekki yfir nema hluta af Gyðingalandi gamla tfmans. Fjöidi sögustaða er utan vand- lega varinna landamœranna. Betlehem er ekki f ísrael og held ur ekki gamla Jerúsalem. Urðu forsætlsráðherrahjðnln að láta sér nægja að horfa á þessar borgir úr fjariœgð. í nýju Jerú- salem eru fáir helgistaðir, en þó var þeim sýndur staðuriinn, þar sem sfðasta kvöldmáltíðin átti að hafa verið snædd. 1 Galileu eru flestir sögustað- imir í ísraei. Þar komu forsætis ráðherrahjónin til Nazaret, sem stendur á tveimur fjöllum og í dalverpinu á milli þeirra. Þar var þeim sýndur staðurinn, sem sagður er hafa verið heimili fjöl skyldu Jesú, en það er neðan- jarðarhellir. Yfir hellinum hef ur verið reist kirkja, og ráðgert er að byggja þar aðra stærri. Kaþólskir menn hafa mikla helgi á þessum helii og kom páfinn þangað f fyrra. Það hefur djúp áhrif á kristna menn að koma til Nazaret og sjá þar svipuð um- merki og voru á dögum Krists. A OLÍUFJALLINU. Þá komu forsætisráðherrahjón in tii Genesaretvatns og borgar innar Tfberias ,sem er þar v'ið. Þar sjást rústir ævaforns sam- komuhúss Gyðinga, sem Jesús kom að sögn f. Þar við hliðina er sagt, að móðir Sfmonar Pét- urs hafi búið. A þessum slóðum er taiið að Jesús hafi fyrst kynnt boðskap sinn og gert ýmis kraftaverk. Þarna kvaddi hann fyrstu postulana til liðs við sig og á vatninu gekk hann og lægði öldurnar. Rétt við vatnið er staðurinn. SKRIFSTOFUR vorar verða lokaðar laugardaginn 21. þ. m. vegna flutnings að Ármúla 3. Skrifstofurnar verða opnaðar í nýja húsnæð- inu mánudaginn 23. nóvember. S. t S. Véladeild, Ármúla 3, sími 38900. DÚNA 1 DÚNA 1 er nýtt glæsilegt sófasett framleitt eftir ströngustu kröfum tímans um gæði útlit og endingu. DÚNA 1 fæst með mismunandi áklæði eftir vali kaupenda. DÚNA 1 er ódýrt sófasett. DÚNA I fæst með afborgunum. DÚNA 1 fæst í Hnotunni. Þórsgötu 1. Ath.: Verzlunin er opin til kl. 22 á föstu- dögum. HUOTAN húsgagnaverzlun. Þórsgötu 1. Sími 20820. ! Skrifstofuhúsnæði | góðum stáð f bænum neniugt fynr skrifstofur eða smá fðnað er tii leigu nú þegar. Tiiboð merkt, — Hagkvæmt 105 sendist afgr. Vfsis sem fyrst. Opið til kl. 22 á föstudögum og til kl. 4 á laugardögum. Klæðaverzlunin, Klapparstíg 40. STÚLKUR ÓSKAST Vanar saumastúlkur óskast strax. Nærfatagerðin Harpa, Laugav. 89 III - Sfmi 16590. þar sem sagan segir, að Jesús j hafi mettað mörg þúsund manns j á örfáum fiskum og brauðhleif-1 um Þar hafa verið grafnar upp j rústir tveggja kirkna og kom f ljós, að gólf annarrar þeirra ; var prýtt mosaikmyndum af! nokkrum brauðhleifum og fisk- i um Sýnir þetta helgina, sem hefur færzt yfir þennan stað. I Það var í ljósaskiptunum, þegar forsætisráðherrahjónin komu að þeirri hlfð við Genesa- retvatn, þar sem Fjallræðan á að hafa verið haldin. Þessi hlíð var iðjagræn í þurrkunum vegna áveitu, og var það tilkomumikil sjón af vatnsbakkanum. Forsæt isráðherra óskaði eftir að fara upp hæðina, þótt það væri krók ur á leiðinni. Slíkur staður hlýt- ur að hafa áhrif á lærða sem leikmenn. Þótt menn geti efazt um kraftaverk, þá er Fjallræð- an staðreynd, þessi fegursta og háleitasta ræða sögunnar. Þarna hefur verið reist lítil en stílhrein kapella. Israelsmenn töluðu ætíð með virðingu um helgidóma kristinna manna, þótt þeir telji ekki Nýja testamentið með biblíunni og telji Jesú sértrúarmann. Forsætisráðherra drap einnig á ýmis önnur atriði í sambandi við ferð sína. Að erindi hans loknu söng Svala Nielsen með aðstoð kirkjukórsins. Hcmnes Hafstein Framh. at bls. 16. legu ferð hans til Danmerkur í sambandi við skipun hans sem ráðherra. Verður efni bókarinnar ekki frekar rakið hér. í lokabindinu er nafnaskrá og heim'ildarskrá fyrir öll bindin, auk myndaskrár og eftirmála. Fjöldi mynda er f bökinni. Bókin sem er 370 bls. er prent- uð í Steindórsprenti h.f. og bundin í Féiagsbókbandinu h.f. ■ Prentmót h.f. gerði myndamót. Atli Már- teiknaði kápu, kjöl og t'itilsíðu. Virðuleg útför Ól- afs Friðrikssonar Bálför Ólaf. Friðrikssonar var gerð frá Fossvogskapeliu í fyrra- dag. Var útförin hin virðuiegasta. Sjómannafélag Reykjavíkur, Verka mannafélagið Dagsbrún og Al- þýðusamband íslands sáu um út- Ólafur Friðriksson. förina. Voru fánar Sjómannafé- Iagsins og Dagsbrúnar sveipaðir svörtum sorgarslæðum í kapell- unni. Ólafur Friðriksson var einn helzti brautryðjandi verkalýðs- hreyfingarinnar hér á landi. Hann kynnt'ist jafnaðarstefnu og verka- lýðsbaráttu í Danmörku og hóf þegar undirbúning að stofnun jafn aðarmannafélaga og verkalýðsfé- laga, er hann kom heim rétt fyrir 'fyrri heimsstyrjöldina. Hann stofn aði fyrsta jafnaðarmannafélagið á Akureyri og varð e'inn helzti stofn andi Hásetafélags Reykjavíkur sem síðar varð Sjómannafélag Reykjavíkur. Ólafur stofnaði blað- ið Dagsbrún og varð ritstjóri þess og stðar Alþýðublaðsins um langt skeið. Hann átti mik'inn þátt í stofnun Alþýðusambandsins og Alþýðuflokksins. Um langt skeið átti Ólafur sæti ( bæjarstjórn Reykjavíkur fyrir Alþýðuflokkinn og hann sat e'innig f stjórn Dags- brúnar og Sjómannafélagsins. — Þeir sem lifðu og störfuðu með Ólafi Friðrikssyni á árum braut- ryðjendastarfs hans segja, að þeir hafi aldrei kynnzt öðrum éins eidmóði og ræðuskörungi og Ólafi. Ólafur var mikill ræðumaður, tal- aði ávallt blaðlaust en undirbjó sig vel. Marg’ir telja hann einn bezta ræðumann, er hér hefur verið uppi. Hannibal Valdimarsson forseti ASÍ minntist Ólafs á Alþýðusam- bandsþingi og Emil Jónsson for- maður Alþýðuflokks'ins minntist hans I Alþýðubiaðinu. Emil sagði m. a. í minningargrein sinni um Ólaf: „Hann var brautryðjandinn, sem hóf merkið. Það merki mun standa þó maðurinn falii". Styrkið Flateyrar-söfnunina: FH — AJAX — Framhald af bls. 2. Birgir þéttur fyrir í vörninni og fór mjög f taugamar á Ajax- mönnum. Og auðvitað sakaði ekki að hafa tvö tromp þar sem mark- verðimir voru, Hjalti og Kristófer. Hjá Ajax vom beztir landsliðs- maðurinn Ejlertsen, sem er góður handknattleiksmaður en afleitur dómari, a.m.k. var það oft furðu- le0t hvað hann gat mótmælt aug- Ijósum brotum t.d. þegar hann stóð hálfan metra inni f teignum og reyndi að varna marki. Bjarne Nissen átti ágætan leik og gerði margt fallega á lfnunni og Jörgen Eriksen er seigur leikmaður, sem kemst Iangt án þess að sýna mikla lagn'i, Markmenn liðsins em líka góðir. Valur Benediktsson dæmdi leik- inn allvel. Auðvitað mátti víða finna að og einkum það sem hon- um sást yfir. En skilyrðin öll vom eins óhagstæð og frekast gat ver- ið, harður leikur og ólöglegur, mjög illdæmdur, en furðu vel kom- izt frá honum. — jbp — Farfuglar — tramM -*? r>is 16 starfsemi fyrir félaga sína og fer sú starfsemi öll fram að Fríkirkju- vegi 11. Hafa Farfuglar öll mið- vikudagskvöld til umráða og er dansað annað hvert miðvikudags- kvöld, en hin kvöldin eru kvöld- vökur með skemmtiatriðum ýms- um og fræðandi efn'i. Eftir n. k. áramót er búizt við að meira eða minna af þessari skemmtistarfsemi færist upp í félagsheimiíið £ 1 Laufásvegi 41. un í Háskóiabfói Kvöldskemmtun verður haldin í Háskólabíói næsta mánudags- kvöld. Hefst skemmtunin stund- arfjórðung yfir ellefu og stendur yfir í tvo tíma. öllum ágóða verð- ur varið til söfnunarinnar, sem nú stendur yfir vegna sjóslysanna frá Flateyri. Þarna koma fram hinir ólíkustu skemmtikraftar og efnisskráin er mjög fjölbreytt. Allir, sem við- riðn'ir eru skemmtunina á ein- hvern hátt gera það endurgjalds- laust. Þessir aðilar koma fram: Hljómsveit Svavars Gests ásamt söngvurum þeim Ellý Vilhjálms og Ragnari Bjarnasyni. Leikararnir Róbert Arnfinnsson og Rúrik Har- aldsson munu fara með gamanbátt. Ungur piltur frá Siglufirði, Ás- mundur Pálsson sýnir töfrabrögð, Sigrún Jónsdóttir og Nova-tríóið úr Leikhúskjallaranu munu leika og syngja og þá lætur Ómar Ragn arsson t'il sín heyra ásamt undir- leikara sínum Grétari Ólasyni. Karlakórinn Fóstbræður sem er önnum kafinn vegna væntanlegra hljómleika sinna lét ekki á sér standa, en kórnum stjórnar sem kunnugt er Ragnar Björnsson. Jón B. Gunnlaugsson mun herma eftir ýmsum góðborgurum og Guð- Ármenningar. Munið æfinguna í kvöld. Keppt vérður'i hástökki án atrfennrf og langstökki án atrennu. Stjórnin. mundur Guðjónsson, söngvari, tek ur lagið með aðstoð Skúla Hall- dórssonar, tónskálds. Einnig munu leggja sitt af n:örkum Árni Tryggvason, leikari, og Savanna tríóið. Aðgöngumiðar 'á krónur hundr- að verða seldir í Háskólabiói frá kl. 3 e. h. í dag og eftir það á venjulegum bíótíma. Olía —» Frh. at b!s. 1: neina verðhækkun þeirra að ræða í samkeppni við Hamra- fellið. Sannleikurinn er sá að tilboð S.Í.S. var svo miklu hærra að fráleitt hefði verið fyrir olíufélögin að taka bvi varðandi olíuflutninga til lands- ins. Ballett — Dvöl þessa flokks verður ekki löng hér. Hann sýnir í Þjóðleikhúsinu Iaugardags- sunnudags- og mánudagskvöld. Það er eingöngu þjóðlegur bal- lett og sönaur, sem þau flytja, og leiktjöldin eru öll austur- lenzk, eins og skrautlegir bún- ingar listamannanna. Stjórnandi flokksins er próf. John S. Kim. Hann var áður stjórnandi symfóníuhljðmsveit- ar og tónskáld, en hefur síð- ustu árin einbeitt sér að þjóð- legri kóreanskri tónlist, Og ár- angurinn getum við séð um helg ina. é*

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.