Vísir - 28.11.1964, Qupperneq 3
Laugardagur 28. nóvember 1964
3
Nýja módelið af trébíinum, sem er með sturtupalli. Kúrekar og Indíánar, ný tegund leikfanga, sem án efa verða vinsæl.
Tjað var nýfallinn snjór á jörðu
er við brunuðum í áttina til
Reykjalundar til þess að fá að
skoða leikfangaverksmiðjuna
þar. Ósjálfrátt leitaði hugurinn
til jólanna og glaðra barnaand-
lita, þegar þau leika sér að liýju
leikföngunum sínum.
☆
Þegar til Reykjalundar er kom
ið, hittum við fyrst að máli Jón
Þórðarson, framleiðslustjóra.
Hann segir okkur, að alltaf sé
komið með eitthvað nýtt á mark
aðinn á ári hverju. Leikfanga-
framleiðslan byggist á leigumót
um, sem fengin eru frá Dan-
mörku og eru of dýr til þess
að framleiða hér á landi. Þar
sem þurfi að skilá mótunum, er
skipt um tegundir árlega og er
komið fram með 30 tegundir á
ári. Leikföngin eru flest úr plasti
núorðið, en árið 1953 byrjaði
framleiðslan á þeim, áður voru
framleidd tréleikföng, mest bil-
ar, og enn eru trébílarnir svo
vinsælir, að varla er hægt að
anna eftirspurninni. — En við
reynum það ser.- við getum,
íblKFÖNG TIL JÓLANNA
segir Jón, og nú er að koma á
markaðinn ný gerð af trébílun-
um, mikið endurbætt.
Af leikföngunum eru bílarnir
langvinsælastir, sérstaklega þeir
sem hægt er að sturta af og
keyra á ýmiss konar flutning og
af telpnaleikföngunum matar-
og kaffistell og greiðslusettin,
en erfiðara er um vik að fá hluti
fyrir telpur. Annars er fram-
leiðslan mjög fjölþætt allt frá
bamahringlum að Lego-system-
inu svokallaða, eða kubbunurn
yinsælu, sem segja má að börn
á öllum aldri leiki sér að og
Hopplaspilinu, sem er fyrir alla
fjölskylduna.
Við göngum um vinnusalina
og sjáum nýlegar vélar í gangi,
í einni þeirra er verið að fram-
leiða plastjeppa og afköstin eru
40 — 58 á klukkutíma. í öðrum
sal vinna fast að 50 manns við
að skeyta saman og ganga frá
leikföngunum í umbúðir. Að
lokum endum við á lagernum,
þar sem við rennum augum yfir
allar birgðirnar, og mundi hver
einasti krakki vilja vera kominn
þar i okkar stað, ef þeim væru
gefnar frjálsar hendur. Við yf- Hoppla, Jón Þórðarson framleiðslustjóri, hittir beint
irgefum staðinn þar sem allir i eitt gatið.
eru önnum kafnir við að búa út
leikföngin í hendur barnan 'j
fyrir jólin.
Kristin Eliníusardóttir málar einn Indíánann stríðs-
málningu.
Dagur Jóhannesson við skútusmíðar.
Steingrímur Sigurðsson og Ólafur Jóhannesson, sem hefur lengstan starfsaldur, slípa nýja módelið til.