Vísir - 28.11.1964, Page 5

Vísir - 28.11.1964, Page 5
VISIR . Laugardagur 28. nóvember 1964. 5 Bók íslenzks ævintýramanns, sem borðist með Kúrdum íslendingur einn sem hefur ferð- azt út um heim og ient í miklum og nær því ótrúlegum ævintýrum, og gerzt liðsmaður uppre'isnar- manna í fjarlægu ríki, hefur nú skrifað bók um svaðilfarir sínar og iífshættur sem hann hefur lent í. Maður þessi er Erlendur Haraids- son, sem verið hefur blaðamaður við Aiþýðublaðið um skeið. Hann heitir Erlendur Haraldssun og uppreisn sú sem hann gerðist þátttakandi í var frelsisstrið Kúrda gegn Aröbum í norðurhluta írak. Erlendur lét sér ekki nægja að sitia við ritvél sína í ritstjómar- skrifstofunni, heidur dreif hann sig út í heim í leit að ævintýrum. Og frá ævintýrum sínum segir hann 1 bókinni „Með uppreisnai- mönnum í Kúrdistan" sem bóka- útgáfan Skuggsjá" gefur út. Er það 182 bls. bók með fjölda af mynd- um sem höfundur tók flestar sjáifur í* 1 dvöl sinni meðal Kúrda. Hann lýsir þjóðmenningu og sjájfstæðisbaráttu Kúrda ýtarlega, efi'svo fylgja frásagnir hans af för hans austur t'il Mesópótamíu, og dvölinni meðal uppreisnarmann- anna. Upphafið á þessu var, að hann kynntist nokkrum kúrdískum piltum í Berlín og fékk slíkan á- huga á sjálfstæðisbaráttu þeirra, að hann ákvað að vita hvort hann gæt'i ekki orðið þeim að liði, leiðin lá fyrst til Alexandriu hafnarborg- ar Egyptaiands síðan tii Beirut f Kennarar af Suðurlandi í fræðsluferð til Reykjavíkur . Hinn íslenzki ævintýramaður á asna sínum meðal uppreisnar- manna Kúrda. Libanon og ioks var Erlendi smygl- að inn i írak, þar sem hann gekk í lið með uppreisnarmönnum. Lýs'ir hann hinum brenndu héruð- um og kynnum sínum af ýmsum forystumönnum Kúrda. Hann telur að sú tíð muni upp renna, þegar Kúrdar fá sjálfstæði sitt og stofna eigin ríki í Norður-írak. Bættar samgöngur við Austurland Að undanförnu hefir verið unnið að samræmingu bílferða um Aust urland í sambandi við flugferðir Flugfélags íslands til Egilsstaða. Reglulegar bílferðir eru nú á milli Seyðisfjarðar, Borgarfjarðar, Norðfjarðar, Eskifjarðar, Reyðar fjarðar og Egilsstaða. Ennfremur milli Vopnafjarðar, Bakkafjarðar og Þórshafnar f sambandi við flug bangað. Seyðisfjörður — Egilsstaðir. 1 illan vetur verða bílferðir frá Seyð isfirði til Egilsstaðaflugvallar á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum. Þessar ferðir verða farnar á venjulegum langferðabíl- um meðan fært er vegna snjóa, en síðan á snjóbíl. Meðan venjulegum langferðabílum er enn fært vfir Fjarðarheiði, verða einnig ferðir milli Seyðisfjarðar og Egilsstaða í sambandi við flugferðir á mánu- dögum og föstudögum. Borgarfjörður — Egilsstaðir. — Milli Borgarfjarðar og Egilsstaða verða ferðir á fimmtudögum. Neskaupstaður — Eskifjörður — Reyðarfjörður — Egilsstaðir. Milli Norðfjarðar, Eskifjarðar, Reyðar- fjarðar og Egilsstaða verða ferðir á þriðjudögum og fimmtudögum og einnig milli Eskifjarðar, Reyð- arfjarðar og Egilsstaða á laugar- Nú fyrir nokkru, efndi Kennara félags Suðurlands til fræðsluferðar til Reykjavíkur. Skoðuðu kennar- arnir fjóra nýlega skóla í Reykja- vík, sáu kennslu og skoðuðu kennslutæki í þessum skólum. Alls tóku um 40 kennarar þátt í þessari fræðsluferð, er jafnframt var fyrsta fræðsluferðin, sem kennarar utan af landi komá í til Reykjavíkur, og þiggja fyrirgreiðslu fræðsluyfir- valda borgarinnar. Þegar kennararnir komu til 5 leikrit sýnd í Þjóðleikhúsinu Um þessar mundir eru sýnd fimm leikrit í Þjóðleikhúsinu, en þar af er eitt þeirra sýnt á Litia sviðinu í Lindarbæ, og er það leikritið Kröfuhafar. Kraftaverk'ð hefur nú verið sýnt 20 sinnum, og ieikrit Guðmundar Steinssonar, Forsetaefnið, var sýnt í 10. sinn s.l. miðVikudag, 25. nóv., en það leikrit verður aðeins sýnt þrisvar sinnum enn. Óperettan Sardas- furstinnan verður sýnd í 25. sinn i kvöld (laugardag) og hefur að- sókn að henni verið ágæt að und- anförnu, Einnig sýnir Þjóðleikhúsið barnaleikinn Mjallhvít á morgun (sunnudag) ki. 3 og verður það 35. sýningin á leiknum. dögum. I því tilfelli að Oddsskarð lokist vegna snjóa, verða þessar ^^r^ir^J^fjar,,^ Eskifirði og Reyð ''a.ríirði. " i Með þessum ferðum eru allir stærstu kaupstaðir á Austurlandi komnir í samband með bílferðum, er bíiar frá Borgarfirði, Seyðisfirði, Neskaupstað Eskifirði og Reyðar- firði hittast á Egilsstöðum. Flugferðir milli Reykjavíkur og Egilsstaða eru á mánudögum, þriðjudögum, fimmtudögum, föstu dögum og laugardögum. í þriðja- dags- og föstudagsferðunum er komið við á Akureyri í báðum leiðum. Vopnafjörður — Bakkafjörður Þórshöfn. Fyrir atbeina póststjórn- arinnar eru komnar á bílferðir milli Vopnafjarðar, Bakkafjarðar og Þórshafnar í sambandi við fjug Fiugfélagsins þangað, sem í vetur er á miðvikudögum. • o VERZLUN VIÐ UTLOND 1 nýútkomnum Hagtíðindum er skýrsla yfir utanríkisverzlun ina á tímabilinu janúar—sept ember. Þar kemur í ljós, að inn flutningurinn á þessu tímabili hefur numið 3.9 milljörðum á móti 3.3 á sama tíma i fyrra og útflutningurinn 3.3 milljörðum á móti 2.6 í fyrra. Mestu viðskiptalöndin eru þessi: BANDARÍKIN Þangað hefur verið selt á tíma bilinu fyrir 593 millj., en keypt fyrir 492 milij. Langmestur hluti útflutnings til Bandaríkjanna er frystur fiskur fyrir 494 millj. en fryst rækja og humar er einn •g mjög stór liður eða fyrir 50 millj. kr. Stærstu innflutnings- íiðir þaðan eru korn fyrir 94 millj., vélar fyrir 7.3 millj., fiutningstæki, þ.e, bílar fyrir 65 millj., tóbak fyrir 30 millj., rafmagnsvélar fyrir 30 millj., ávextir fyrir 26 millj og skepnu fóður fyrir 25 millj. VESTUR-ÞÝZKALAND Þangað seljum við vörur fyrir 290 millj., en kaupum aftur fyr ir 420 millj. kr. Stærstu útflutningsliðir eru ísfiskur 58 millj., fiskimjöl 58 millj., síldarmjöl 54 millj., sfld- arlýsi 22 millj og saltsíld 14 millj, Stærstu innflutningsliðir eru vélar 74 millj. kr., bíiar 54 millj. rafmagnsvélar 48 milij. SOVÉTRÍKIN Þangað höfum við selt vörur á umræddu tímabiii fyrir 320 millj. kr., en keypt fyrir 324 millj. kr. Þorri útflutningsins er fryst fiskflök fyrir 255 millj. en saltsíld fyrir 34 millj. og fryst síld fyrir 12 millj. Nær því allur innflutningur þaðan er olía og benzin fyrir 235 millj. kr. og þó járn og stál fyrir 27 millj. BRETLAND Þangað seldum við á um- ræddu tímabili Jyrir 560 millj. kr. ep kaupum fyrir 555 millj. kr. Stærstu liðir í útflutningi þangað eru síldarmjöl fyrir 211 millj., fryst fiskflök 88 miilj., ísfiskur 80 millj. f innflutningi er hæsti liðurinn bílar 150 millj. kr. vélar 87 millj. og spunagarn 43 milij. kr. Ætti þetta yfiriit að gefa nokkra hugmynd um verzlunina við helztu viðskiptalönd okkar Reykjavíkur héldu þeir beint á fræðsluskrifstofu Reykjavíkurborg- ar, þar sem Jónas B. Jónsson, fræðslustjóri tók á móti þeim, ásamt Ragnari Georgssyni og Þórði Kristjánssyni. — Að því búnu voru fjórir af skólum borgarinnar skoð- aðir, það voru Réttarholtsskóli, Breiðagerðisskóli, Hlíðarskóli og hinn nýbyggði skóli í Álftamýri. Vakti sá síðarnefndi einkum athygli kennaranna, en flestir þeirra höfðu ekki séð þær nýjungar, né mörg af þeim nýtízku kennslu- tækjum sem skólinn hefur. í Hlíðarskólanum þáðu kennar- arnir veitingar og flutti þar Jónas B. Jónsson, fræðslustjóri stutt á- varp. Gat hann þess að þetta væri í fyrsta skiptið, sem kennarar úti á landsbyggðinni skipulegðu ferðir til Reykjavíkur til þess að skoða skóla og þau kennslutæki sem not uð væru í skólum Reykjavíkur- borgar. Fararstjóri kennaranna Vigfús Oddson, kennari á Hellu, htfur beðið blaðið að flytja fræðslu- stjóra og fræðsluyfirvöldunum í Reykjavík þakkir fyrir mjög góðar móttökur og þótti\jíennurunum ferð in takast mjög vel A0VENTUKRANSAR Verð við alla hæfi Sim. 22822-19775 Að gefnu tilefni vilja neðanskráð samtök taka fram eftir- farandi. Samkvæmt ákvæðum 11. greinar kjaradóms Verzlunarmanna frá 6. febr. ’64 er 1. desem- ber ekki samningsbundinn frídagur verzl- unarmanna. 1. desember ber því að skoða sem virkan dag. Félag íslenzkra iðnrekenda Félag íslenzkra stórkaupmanna Kaupfélag Reykjavíkur og nágreimis Verzlunarráð íslands Vinnumálasambandið. Vinnuveitendasamband íslands. Samningar íslands v/ð erlend r'iki — 1. bindi 1 þessu bindi eru allir alþjóðasamningar og samnin£ar við fleiri ríki en eitt, sem taldir eru í gildi í árslok 1961 að undanskildum tæknilegum samningum og lánssamningum. Dr. Helgi P. Briem hefur búið ritið undir prentun og er það 875 blaðsíður að stærð. Ritið kostar kr. 500,00 eintakið og er til sölu í utanríkisráðuneytinu í Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg. Utanríkisráðuneytið, hinn 26. nóv. 1964 m iMMHfc I- itgKaa

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.