Vísir - 28.11.1964, Side 8

Vísir - 28.11.1964, Side 8
8 VIS IR . Laugardagur 28. nóvember 1964. Otgefandi: Blaðaútgáfan VISIR Ritstjóri: Gunnar G. Schram Aðstoðarritstjóri: Axe) Thorsteinson Fréttastjórar: Þorsteinn Ó. Thorarensen Björgvin Guðmundsson Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178 Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3 Áskriftargjald er 80 kr á mánuði t lausasölu 5 kr. eint — Sfmi 11660 (5 línur) Prentsmiðja Vísis - Edda h.t Afl einstaklingsins Ekki þarf um það að fjölyrða að íslenzkt þjóðfélag hefur frá því sögur hófust verið byggt á þreki og 'ramtaki framfarasinnaðra einstaklinga. Af tali og ikrifum ýmissa aðila hefur verið augljóst að margir heir, sem telja sig málsvara þess bezta, sem um ^etur í sögu íslenzku þjóðarinnar, hafa aldrei gert ;ér þessa staðreynd ljósa; þeir hafa ekki haldið trúnað /ið þær sögulegu staðreyndir að því aðeins hefur hér /erið haldið uppi menningarlífi að einstaklingar hafi 'engið að sýna hvað í þeim býr og þeir fengið tækifæri il að standa vörð um heilbrigða einstaklingshyggju ijóðinni allri til góðs. Það eru napurleg eftirköst þeirra tíma, þegar van- ;ruin á hlutverk einstaklingsins fór eins og eldur um únu um allan hinn menntaða heim, að enn skuli fyrir- 'innast., og það jafnvel í röðum svokallaðra lýðræðis- sinna, menn sem trúa ekki á mátt þess arfs sem við höfum hlotið frá forfeðrum okkar. Dæmi um þetta jtu umræður um stóriðju. Það er alrangt, svo dæmi sé ekið, að ekki sé hægt að reisa kísilgúrverksmiðju lema með meirihluta fjárframlagi úr ríkissjóði. Hér er i döfinni mál sem óhætt er að fullyrða að fjölmargir ‘insíaklingar mundu vilja eiga hlut að. Þessum einstakl- ngum ber að gefa tækifæri til að slá skjaldborg um ný >g nauðsynleg stórfyrirtæki, sem allri þjóðinni yrði il gagns og hagsbótar. I>að vakti athygli á sínum tíma, þegar forsætisráð- íerra landsins skýrði frá því, að sósíalistísk stjórn í srael væri ófeimin við að selja einstaklingum stór- yrirtæki þar í landi. Hið unga Ísraelsríki hefur í mörgu |j tð snúast og stjórnendur þess vita, að nauðsyn ber il að glæða áhuga allra á uppbyggingu landsins. Við erum ekki i ósvipuðum sporum. En spyrja má: Mundi vera grundvöllur fyrir því hér á landi, að ríkis- valdið hæfi stórframkvæmdir, en afhenti síðan fjár- sterkurn framkvæmda- og hugsjónamönnum þjóðnytja fyrirtæki? Þessi spurning hlýtur að vakna í sambandi g við kísilgúrverksmiðjuna. Við eigum að trúa á mátt einstaklingsins og gefa honum tækifæri til að finna kröftum sínum viðnám í heilbrigðu og gróandi þjóð- félagi. Vel mætti spyrja |>að er- einkennileg árátta á sumum mönnum hér á landi að þeir viti allt betur en allir aðrir. Þetta kemur ekki sízt fram í svokölluðum menningarskrifum dag- olaðanna. Hafa jafnvel aðskiljanleg einkamál blandazt mn í skrif þessi. Það ber að harma. Þeir sem því trúa t. d. að „tíu kerlingar“ móti nútímabókmenntir íslend- inga, svo vitnað sé í eitt af þessum „dókúmentum“, pru þannig á vegi staddir að vel mætti spyrja í fullri | 'vöru, hver ellefta kerlingin sé? 1 '■ummmmmMnHmBwmmwsuamsauBmmKtuumBnKKKtmKKtKKKKaMmKmm Frá sýningum Kóreu-ballettsins Arirang. ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ: ARIRANG Þjóðballett Kóreu Kóreograf og sólódansmær: Stella R. Kwon Hljómsveitarstjóri: John S. Kim Tjað hefur sína kosti að búa í þjóðbraut, ókosti líka eins og allir vita og mundi margur telja gestanauðina til þeirra; og þó er kosturinn sennilega helzt- ur, að oft ber þar göðan gest að garði, sem annars færi hjá. Fimmtugir og eldri muna hvernig var áður en vegur milli heimsfjórðunga var lagður hér við túnfótinn. Þá rakst hingað varla gestur, sem skemmtun var að, nema elzt dúllarar, sem út- hýst var á betri bæjum. Þó var til að góður listamaður kæmi hingað, ef einhver bað hann að gera það fyrir sín orð að taka á sig þann útúrkrók, en sjald- gæft var það og þótti viðburð ur. Nú eru frægustu og færustu listamenn heims stöðugt á ferð- inni fram og aftur hér um garð, á leið milli heimsálfa, einir eða í hópum; snillingar, og oft þarf einungis framtakssemi til að telja þá á að vera hér nætur- sakir, að heimilisfólk megi njóta listar þeirra, þó að þeir séu allt- af á hraðri ferð milli höfuðból- anna. Annað er það, sem einnig má kallast nýtilkomið, að við get- um nú boðið þeim f hús. Og þó að ráðsmaður okkar þar sé sakaður um margt, og ekki allt- af með réttu, verður að þakka honum það hve vel hann fylgist með ferðum þess fólks hér um garð, sem erindi á í hans salar- kynni. og er laginn á að fá það til að koma þar fram. Yfirleitt hafa það verið góðir gestir og margir ágætir, Arirang, þjóð ballett Kóreu — ekki „þjóðar ballett", eins og í leikskrá stenc1 ur — er í tölu þeirra beztu jg óvefengjanlega sá fjölhæfasl' gestahópur, sem komið hefur fram á svið Þjóðleikhússins, skipaður listdönsurum, söngvur- um og hljóðfæraleikurum, og hvert sæti vel skipað. Raunar er ekki gott að dæma um hljóðfæraleikarana, þar seni margflest hljóðfærin eru okkur framandi og eins tónlistin sjálf Þó eru tónar þeirra sumra alls ekki óþægilegir í vestrænum eyr um, og má þar til nefna kóre- önsku hörpuna. En svo eru þarna einnig vestræn hljóðfæri, og var ekki annað að heyra en að þau væru i þjálfuðum höndum, og öll hefur tónlistin verið færð það í vesturáttina, að við get- um notið hennar sem listar, en leggjum ekki eingöngu við henni eyrun sem forvitnilegu og ann- arlegu fyrirbæri. Þannig var það líka með dansana; þeim hefur verið hnikað til í samræmi við vestrænan Iistsmekk, án þess þo að þeir glötuðu þjóðlegum sér- kennum sínum um of. Hvernig það hefur tekizt, er ekki okkar að dæma, þar sem við höfum ekki til samanburðar uppruna- lega mynd þeirra; við verðum eingöngu að líta á þá — og pá tónlistina einnig — eins og það talar til okkar í þessum búningi Hitt er svo spurning, hvort koma flokksins hefði ekki orðið okkur áhrifameiri og eftirminn:- legri, ef listamennirnir hefðu engu breytt okkur t'il geðs, en flutt okkur sína þjóðlegu æva- fornu list, ómengaða af vest- rænni tfzku ... Það skal þegar fram tekið að hvort tveggja, tónlistin og dans arnir, var sérstæð og sérkenm leg list þrátt fyrir vestræna yf- irbragðið. Ekki er rétt að tala þarna um ballett t vestrænum skilningi. Þarna er um að ræða eins konar þjóðlífsmyndir og bjóðsagnatúlkun í dansformi. þar sem beitt er ýmsum tákn- rænum tjáningarbrögðum, sem Iítt eiga skylt við það, sem við köllum ballett, en list var það engu að síður, eins og tónlistin. Það er áreiðanlegt, að þau Stella R. Kwon, sem séð hefur um kóreograffuna og kemur sjálf fram sem sólódansmær, og John S. Kim, sem „stílfært" hef ur tónlistina og stjórnar hljóm- sveitinni, eru bæði smekkvís og kunnáttumenn, hvort á sínu sviði. Hvarvetna bar flutningur- inn vitni öruggri þjálfun og aga og mikilli smekkvísi. Söngurinn var til dæmis frábær — radd- irnar miklar að styrk og gæð- um og þjálfun þeirra fullkomn- ari tæknilega en við eigum að venjast á Vesturlöndum, nema þá kannski í úrvals óperuflokk- um. Undarlega minnti raddbe-t- ingin mig ' á stundum á söng þann, sem kenndur er við kós akkana rússnesku, en bað er annað mál. Einsöngvararnir hefðu s.aðið sig með prýði hvaða vestrænni óperu sem væri — einkum fannst mér sóló- söngkonurnar bera af, bæði að raddgæðum og raddsviði, sam- anborið við það, sem við eigum að venjast. Einkum var mýkt raddanna undraverð — og í fyllsta samræmi Við óvenjulega svifmýkt danshreyfinganna, séi í lagi handanna. ■Y/"íða lá dansinn á takmörkum látbragðsleiks, sem var senn látlaus og auðskilinn, enda studdur af söng, sviðsbúnaði og bún'ingum. Mikið var þarna um litadýrð, og hin frábæra fimi danse.ida í meðferð á slæðum og slæðuborðum“, vakti að von um undrun áhorfenda. Þá báru og sum dansatriðin vitni gam- ansem'i og kýmni, en hófstilltri Framh. á bls. 10

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.