Vísir - 02.12.1964, Qupperneq 2
V I S I R . Miðvikudagur 2. desember 1964.
KnattspYriHinwður skrífar bók
Ssgði ungum drengjum í Vatnaskógi framhaldssögu í 7 köflum, sem hefur nú verið skrifuð
gefin út sem bók.
um tekst að verða góður knatt
spyrnumaður. Ég heyrði i út-
varpinu ræðu Björgvins
Schram, formanns Knattspyrnu
sambandsins. Hann sagði að
ýmsir erfiðleikar steðjuðu að
knattspyrnustarfinu, einnig að
knattspyrnan þyrfti að verða
almennari íþrótt, ekki bara
keppnisíþrótt heldur almenn-
ings eign. Og það er rétt og
vonandi verður bókin til að
hvetja unga drengi til að iðka
knattspymuna, og einnig að
drengirnir skilji að það ir
nauðsynlegt að gangast undir
aga og hlýðni til að komast á-
fram. Þetta hafa strákamir í
Vatnaskógi flestir skilið en bar
höfum við á hverju sumri milli
500—600 drengi“.
X-
ÞÓRIR GUÐBERGSSON. — Bók um knattspyrnu og ævin-
„Þessi saga varð eigin
lega til á sjö kvöldstund
um í Vatnaskógi“, sagði
Þórir S. Guðbergsson,
kennari, ungur maður,
sem nú hefur sent frá sér
fyrstu bók sína, sögu um
drengi í starfi, leik og
ævintýrum, sem hann
nefnir „Knattspyrnu-
drengurinn“.
Þórir var um árabil einn af
beztu knattspyrnumönnum í
yngri flokkunum, en hætti
knattspyrnustarfi sínu því mið-
ur ailt of ungur, en helgaði sig
starfi KFUM, ekki sízt I Vatna-
skógi þar sem hann hefur um 7
ára bil verið við einstakar vin-
sældir drengjanna.
„Knattspyman er alltaf núm-
er eitt á dagskránni hjá okkur
í Vatnskógi“, segir Þórir,
„þess vegna varð saga um
knattspyrnudreng afar vinsæl
og fékk góðan hljómgrunn.
Það er einu sinni svo að dreng-
ir á þeim aldri, sem hjá okkur
dveljast frá 10—16 ára, eru
þyrstir í alls konar sögur, og
við óliklegustu tækifæri verðum
við að finna upp á alls konar
frásögnum, í fjallgöngum, í
sólbaði, bátsferðum, og ekki
sízt á kvöldvökunum. Ég byrj-
aði að segja þeim söguna af
Þresti knattspyrnudreng og lauk
henni á 7 kvöldum, „bullaði“
hana upp úr mér jafnóðum og
undirbjó hana ekki neitt“.
— En hvenær var sagan svo
skrifuð?
„Það gerði ég í fyrra og ég
vil taka það fram, að það sem
fyrir mér vakti með sögunni er
að undirstrika giidi knatt-
spyrnunnar fyrir unga drengi
og þann aga sem nauðsynlegur
er hverjum manni að gangast
undir. Þannig verður Þröstur
að þola ýmislegt áður en hon-
Að lokum má geta þess, að
„Knattspyrnudrengurinn” er
mjög skemmtilega rituð bók og
ástæða til að óska Þóri til
hamingju með sína fyrstu barna
og uí 'ngabók. Inn í knatt-
spyrnuævintýri er fléttað ýms-
um atvikum og ævintýrum, sem
Þröstur og félagar hans lenda
i, m. a. koma þeir upp um
smyglaraflokk svo nokkuð sé
nefnt.
hefur fengið sitt nafn: FURAN er I nafnending -fur í nafni hans væri
hann kallaður. Hannes Þ. Sigurðs- þarna lögð til grundvallar og að
son sagði Vísi að skýringin v auki væri Ingólfur stór og sterk-
þessu væri sú, að hin ósænska | legur eins og furutré.
ivd
lslandsmeistararnir IR, sem leika á laugardaginn við írsku meistarana frá Belfast.
Ingólfur kallaður „furan"
£vrópubikarnum
Ingólfur Öskarsson fær stöðugi
lof hjá sænskum blöðum og félög-
um sínum hjá sænska handknatt-
leiksliðinu MALMBERGET. Malm
berget átti heldur slakan leik gegn
Umeá UK nýlega og hafði undir
‘‘ftir fyrri hálfleik 6:11, en í síðari
h-.lfleik breytti Ingólfur taflinu
þannig, að lið hans vann síðari
hálfleikinn með 13:2 og vannst
Ieikurinn þannig 19:13. Ingólfur
hefur ekki farið varhluta af við-
urnefnum Svía, en allir beztu
íþróttamenn landsins bera viður-
i nefni, sem dagblöðin nota jöfnum
höndum. Þannig heitir einn bezti
hlaupari Svía Esso Larsson, ekki
vegna þess að hann vinni hjá olíu-
félagi með sama nafni, heldur
vegna þess að hann heitir S. O.
Larsson, eirn hlaupari smávaxinn
mjög fékk nafnið „Tröllið" og
þannig mætti lengi telja. Ingólfur
Á laugardaginn kemur verður
blað brotið í sögu körfuknatt-
leiksíþróttarinnar á Islandi, —
ÍR leikur fyrsta leikinn í Evr-
ópubikarkeppninni í körfu-
knattleik og fer hann fram á
Keflavíkurflugvelli gegn Colleg-
ians frá Belfast á írlandi. Við
skulum vona að körfuknattleiks
menn verði jafn sigursælir i
þessu húsi og handknattleiks-
menn hafa verið til þessa.
Liðið sem hingað kemur er
eitt af þrem beztu liðum ír-
lands, en þar hefur körfuknatt-
ieikur átt miklu fylgi að fagna
undanfarin ár. Körfuknattleikur
er ekki gamall í írlandi og
Collegians stofnuðu körfuknatt-
leiksdeild ekki fyrr en 1952, og
markmiðið þá var að fá verk-
efni fyrir frjálsíþróttamennina
yfir veturinn.
Síðustu tvö árin hefur Isðið
verið mjög sterkt og unrvð
deildakeppnina og bikarkeppn-
ina í fyrra en var í úrslituni
1962-63.
Af ÍR-liðinu er það að segja,
að það er langbezta körfuknatt
lciksliðið hérlendis, en er ógn-
að óþægilega af KR-ingunum
seni undanfarin ár hafa sótt
mjög á í körfuknattleik. Engu
skal spáð um úrslitin á laug-
ardaginn, en ekki er samt ó-
líklegt. að hér verði snörp og
skemmtileg keppni, sem auðvif-
að getur lokið með sigri okkar
manna, ekki sízt ef áhorfendur
koma og hvetja heimaliðið.
Seinni leikur þessara Iiða verð-
ur sfðan í Belfast og mun fara
fram fyrir jól.