Vísir - 02.12.1964, Page 5
V1 S IR . Miðvikudagur 2. desember 1964. 5
I, útlönd í morgun útlönd í inorr,un útlönd í raorgun útjönd í morsun |
Fundur í Oryggisráði um Kongó
Allsherjarþingið sett í gær
Sextán þjóðir hafa Krafizt
fundar í Öryggisráði um að
gerðir Belga og Bandaríkja-
manna til þess að bjarga hvít-
um mönnum í Kongó, en ekki
'ékkst nema helmingur Afríku-
þjóða í samtökunum til að und-
irrita fundarkröfuna.
19. Allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna var sett í gær. Forseti
þess var kjörinn með lófataki,
Alex Quaison-Sackey, fastafull-
trúi Ghana hjá Sþ undanfarm 5
ár, en hann er fertugur dð
aldri, og yngsti forseti Allsherj-
arþingsins til þessa. Þrjú ný
aðildarríki hlutu samþykkt:
Malawi (Nyasaland), Zambia
(Norður-Rhodesia) og Malta —
öll brezkar nýlendur áður en
þær hlutu sjálfstæði.
Samkomulag náðist um það
í gær, að við umræðuna um
mál almennt, þar sem fiestir
fulltrúar láti ljós sitt skina. en
þessi umræða kann að standa
fram undir jól, skuli engin at-
kvæðagreiðsla fara fram og er
með þessu komið í veg fyrir að
skuldaskilamálið valdi hættu-
legum árekstrum í bili, en
tryggt að áfram verði reynt að
ná samkomulagi.
Fréttaritari brezka útvarps-
ins segir að kjör Quaison-Sack-
ey til forseta sýni vaxandi áhrif
Afríku á vettvangi Sameinuðu
þjóðanna.
FUNDURINN í
ÖRYGGISRÁÐI
Fundarins í Öryggisráði ósk-
uðu fulltrúar 16 landa, Afghan-
istan, Júgóslavíu og 14 Afríku-
landa. Hann mun verða hald-
inn í fyrsta lagi á morgun —
ef til vill ekki fyrr en á fimmtu
dag. Flans er óskað á þeim grund
velli, að með aðgerðunum hafi
verið stofnað til ófriðarhættu í
Afríku en er til aðgerðanna var
stofnað lýstu Belgar og Banda-
ríkjamenn yfir, að hér væri um
mannúðaraðgerðir að ræða, og
gerðu stjórn Sþ grein fyrir þeim
PERONÁ LEIÐ TIL
L
V..
SUDUR-AMCRÍKU
*
Aform hans köEluð „mesta alþjéðlega leyndarmálað77 nú
n r m* r ■
Pafi a leið
til Bombay
Páll páfi VI.
Páll páfi VI. lagði af stað frá
! Rómaborg um kl. 4 i nótt áleiðis
! á kirkjuþingið í Bombay í Indlandi
Þegar hann kemur þangað verð
i ur það i fyrsta skipti í sögunni
| sem páfi kemur til Asíulands.
Flugvélin kom við í Beirut til
1 endurnýjunar á eldsneytisbirgðum
Mikill fjöldi manna hafði safnazt
saman á flugstöðinni, en begar páfi
ekur um hádégisbilið í dag frá
flugvellinum í Bombay inn I borg-
ina búast menn við að viðstaddar
2 millj. manna.
þetta var birt grein hér í blaðinu)
og nú virðist hann hafa látið til
skarar skiða með þetta. Miklar
bollaleggingar eru um það hvort
Peron muni fara alla leið til
Argentínu þegar, eða til einhvers
annars Suður-Ameríkuríkis fyrst,
þar sem hann nýtur stuðnings og
persónulegra vinsælda. — Peron-
istar eru vel skipulagðir í Argen-
tínu, og ólíklegt, að Peron hafi
lagt upp í ferðina fyrr en þeir
Flugvél Perons hefir viðdvöl m.
a. í Uruguay og kann Peron að
hafa þar viðdvöl.
Um allan heim bíða menn nú
með óþreyju nánari fregna af við-
brögðum Argentínustjórnar vegna
þessarar Suður-Ameríkuferðar
Juans Peron.
► Rússar hafa skotið geimfari
á Foft í sama tilgangi og Banda
ríkjamenn skutu geimfarina
MARINER IV á Ioft, þ. e. ti!
þess að afla sjónvarpsmynda aí
Mars og reyna þannig að fá
staðfest hvort líf er á þeirri
plánetu eða ekki. Rússum mun
hafa tekizt ágætlega að skjóta
geimfari sínu á loft. — MAR-
INER IV. er ekki alveg á rsttri
leið en bandarískir visindamenn
eru vongóðir um að geta beint
honum á braut svo nálægt
Mars, að sjónmyndatökuáform-
ið heppnist.
£>■ NTB-frétt hermir, að Bour-
guiba forseti Tunis muni heim-
sækja Malajsíu. Landvarnaráð-
herra Tunis verður með í ferð-
inni.
► Stjórnin í Sudan hefir ákveð-
ið, að konur fái kosningarrétt
í kosningunum, sem fram eiga
að fara I marz næstkomandi.
í höfuðborgum sumra komm-
únistalanda var stofnað til mót-
mæla og kröfugangna út af
björgunarleiðangri Belga og
Bandaríkjamanna til Kongó.
Var æpt hátt um, að um hern-
aðarlegar aðgerðir væri að
ræða, en þó er nú belgiska falí-
hlífaliðið komið heim, að lok-
inni björgunarferðinni, eins óg
lofað var. Einna mest gekk á í
Moskvu, Kairo og fleiri borgum
í Kairo var brennt til ösku bóka
safn bandaríska sendiráðsins
og víða var ruðzt inn í sendi-
ráðsbyggingar og spjöll unnin,
eftir að rúður höfðu verið brotn
ar og bílum velt um og kveikt
í þeim. Myndirnar eru frá
Moskvu er hörundsdökkir og
sovézkir stúdentar unnu slík
hetjuverk. Á annarri myndinni
sést bíll Henry Tanners, frétta-
ritara New York Times. Hann
á danska konu, en hennar bíll
var stórskemmdur. Hin myndin
er af stúdentum með áróðurs-
miða fyrir utan járngrindur
bandaríska sendiráðsins í
Moskvu. Milli grindanna sér í
brotnar rúður sendiráðsins.
Sagt var í fréttum frá Moskvu,
að „fylkingar Afríkustúdenta
hefðu brotizt gegnum þunna
röð lögreglumanna", sem á
verði voru.
Fréttastofur töluðu um það í
morgun sem „mesta“ alþjóðlega
Ieyndarmál“ hvert Peron fyrrv.
einræðisherra væri að fara, en
frétzt hafði að hann hefði lagt af
stað í gær flugleiðis frá Madrid,
eftir að flugvélin, sem hann tók sér
far í, hafði tafizt í 45 mínútur —
en einkaritari Perons kvaðst
„ekkert um þetta vita“.
Það hefir um nokkurt skeið ver
ið mikið rætt um, að Peron kynni
að hverfa heim innan tíðar