Vísir - 04.12.1964, Page 15

Vísir - 04.12.1964, Page 15
VlSIR . Föstudagur 4. desember 1964. /5 Aðferðimar verið margvisiegar rjrrjx Gamansöm saga um morðáform — eftir Nedru Tyre ur, gætti hann sín ekki og stakkst á höfuðið niður allan stigann. Klukkan var ellefu, stundin, sem að áliti ekkjufrúnna var heppileg- ust. Og það var á þeirri stundu, sem herra Shafer, í uppnæmi yfir örvæntingunni og ofdirfskunni og öðru, sem hann las í svip Allens, missteig sig í efsta þrepi stigans, með þeim afleiðingum, sem áður var greint. Lawrence Allen heyrði hann ekki hrapa niður stigann. Þegar honum rénaði reiðin eftir að hafa orðið svo æstur, að hann var í þann veg- inn að ráðast á þrælmennið, var hann dasaður, og þakkaði guði sín- um og skapara, að hann hafði ekki brjálazt gersamlega, um leið og hann viðurkenndi með sjálfum sér, að hann gæti ekki ábyrgzt hvað gerzt hefði, ef herra Shafer hefði ekki skellt hurðinni aftur fyrir nef- inu á honum. Hann gekk hægt til herbergis síns og fór að mála og þá færðist ró yfir hann og það örl- aði jafnvel á von í huga hans um framtíðina. Eftir dauða herra Shafers var eins og þær hefðu ósköp lítið að tala um ekkjufrúrnar og vinkonurn ar gömlu. Það var engu líkara en að allar viðræðuuppsprettur hefðu tæmzt, þegar þær höfðu lokið við að skipuleggja morðið á Shafer. Hin ágæb: dóttir Shafers kom heim og tók við stjórn hússins og þar ríkti nú andi friðar, kyrrðar og velvildar. Frú Grove flutti inn aftur með köttinn sinn og herra Floyd flutti Ifksi inn og enginn amaðist við þvf, bótt hanr. dæsti vegna brjóstmæðinnsr. Og dóttir herra Shafers hafði ekkert að at huga við það, þótt Allen málaði í herberginu sínu og um síðir hjálp- aði hún honum að fá tvær myndir teknar til sýningar á opinbéra má!- verkasningu. Allen gamli reyndist nefnilega ekki vera neinn fúskari. En frú Franklin var undir niðri dálítið gröm vinkonu sinni, Mat- ildu, að hún skyldi hafa, í raun- inni án hennar vitundar, fram- kvæmt þá hugmynd, sem var henn- ar hugmynd, — og framkvæmt hana án þess að hún væri viðstödd og til aðstoðar. „Og ég, sem i öll þessi ár hef haldið að Matilda væri feimin og hlédræg", hugsaði hún. Henni 'sámaði það sem sé all- verulega Undír niðri, að Matilda skyldi hafa ..spi'.r.ð út og það með henr.ar spi!i“, en þetta sýndi bara, að ’ raun'nni þekkti maður aklrei neinn niður í kjölinn, hugsaði hún. Að „hugsa sér“ að Matiida skyldi — í stað þess að fara og horfa á vorhatta í gluggum hattaverzlan- anna - hafa falið sig I kústaskápn- um í dimmum ganginum, tekið kúst og ýtt Shafer niður stigann og tV. feðra sinna .. Þessar gömlu vinkonur héldu á- fram að drekka saman árdegis- kaffi, en þær voru varar um sig. Hvor þeirra sem var sneri aldrei baki að hinni, og þegar þær horfð- ust í augu var hvor um sig sann- færð um að hin hefði kálað herra Shafer. S ö g u 1 o k Arthur Conun Doyle: Innsiglaða herbergið Framgjarn málflutningsmaður og áhugasamur um íþróttir, sem er til neyddur vegna viðskiptavona, að dveljast innan fjögurra veggja skrif stofu sinnar frá kl. 10 — 5 daglega, verður að nota kvöldin eftir því sem unnt er sér til líkamlegrar áreynslu í heilsubótar skyni. Þess- ar voru orsakirnar, sem lágu til grundvallar því, að ég fór í langar gönguferðir á kvöldin um hæðirnar í Hampstead og Highgate, og hreinsa þannig úr öndunarfærum mínum hið óhreina loft í Abchurch Lane. Það var á einni þessara gönguferða út um hvippinn og hvappinn, sem ég fywst hitti Felix Stanniford, og var það upphaf þess furðulegasta, sem fyrir mig hefur komið á lífsleiðinni. Það var kvöld nokkurt seint í apríl eða snemma í maí 1894. Ég hafði lagt leið mína allt til yztu marka bæjarlands Lundúnaborgar að norðanverðu og var nú á heim- ieið um eina af þessum fallegu göt- um með trjám beggja vegna og há- um múrsteinshúsum, en slíkar göt- ur teygjast æ lengra út í sveit- irnar utan borgarinnar. Þetta vor- kvöld var fagurt veður, tunglið skein á heiðum himni. Ég hafði gengið margar mílur, farinn að lýjast dálítið, og var þvl farinn að hægja á mér, og gat gefið mér tíma til þess að líta vel í kringum mig. Beindist nú athygli mín eink- um að einu húsanna, sem leið mín lá fram hjá. Þetta var mjög stórt hús, sem stóð inni á stórri lóð, kippkorn frá strætinu. Á húsinu var nútímasvip- ur og þó minni en á hinum húsun- um, sem særðu fegurðarsmekk minn í grófleika sínum. Þarna hafði myndazt gap í beina, samsvarandi röð, með fiöt sem lárviðarrunnar uxu á, en handan he”*u,r gnæfði húsið dökkt og skugga* Greini- legt var, að þarna hafði verið sveit- arsetur, sennilega einhvers efnaðs kaupsýslumans; áður en strætið var lagt, en smám saman verið umkringt hinum rauðleitu múr- steinshúsum stórborgarinnar. Ég fór að hugsa um, að er fram liðu stundir myndi þróunin verða sú, að þetta ætti eftir að hverfa, eftir að hafa komizt í eigu einhvers, sem byggir smáhús í gróða skyni, og að þarna myndu upp rísa á flöt- inni miklu tíu eða tólf smáhús af þeirri gerð, sem leigð eru fyrir um 80 pund á ári. Og eftir að mér hafði orðið þetta umhugsunarefni kom fyrir atvik, sem varð þess valdandi, að hugurinn beindist í allt aðra átt. Einum þessara fjórhjóla leigu- vagna, sem eru smánarblettur á Lundúnaborg, var ekið með miklu skrölti beint á móti hjólreiðamanni sem hafði ljós á reiðhjóli sínu. Annað sem hreyfing var á sást ekki á strætinu, sem var baðað í tunglsljósi, en samt sem áður varð þarna árekstur með eins óskiljan- legum hætti og þegar tvö hafskip rekast hvort á annað á hinu víða Atlantshafi. Áreksturinn var hjól- reiðamanninum að kenna, Hann ætl aði sér að hjóla beint fyrir framan vagninn, en misreiknaði fjarlægð- ina, og lenti á bógi hestsins og valt um koll. Maðurinn reis á fæt- ur nöldrandi og bölvandi, en vagn- stjórinn galt í sömu mynt, og mun svo hafa flogið í hug allt í einu, að hjólreiðamaðurinn mundi ekki hafa veitt athygli númeri hans, sló í hestínn og ók hratt burtu. Hjól- reiðamaðurinn hélt um handföng- in á brotnu reiðhjólinu, og settist svo allt í einu niður dæsandi og sagði: — Guð minn góður! Ég hljóp til hans. — Hafið þér meitt yður? spurði ég- — Það er ökklinn á mér. Bara tognun, held ég, en það er tals- vert sárt. Verið svo vinsamlegur að hjálpa mér að standa upp. Það lagði á hann gulleita birtu frá reiðhjólsluktinni, þar sem hann lá, og ég hjálpaði honum að rísa á fætur. Þetta var herramannsleg- ur maður, með lítið, svart yfir- skegg og stór, brún augu. Hann virtist maður viðkvæmur og dálítið taugaóstyrkur, kinnfiskasoginn, sennilega ekki heilsuhraustur. Hann stóð upp með aðstoð minni, en lyfti þegar upp öðrum fætinum eins og hann kenndi til í honum. — Ég get ekki stigið í hann, sagði hann. — Hvar eigið þér heima? spurði ég- — Hérna, sagði hann og hnykkti til höfðinu í áttina til stóra, skugga lega hússins inni í garðinum. Ég var að hjóla að hliðinu þegar ó- hræsis leiguvagnsstjórinn ók á mig. ■ Gætuð þér hjálpað mér að komast ,þangað? I Mér fannst sjálfsagt, að rétta jhonum hjálparhönd, kom reiðhjóli 'hans inn í garðinn, og studdi hann svo að aðaldyrum hússins. Það var ;hvergi ljós í húsinu og eins þögult |og þar hefði aldrei nokkur lifandi sál búið. — Þetta mun duga, sagði hann. Þakka yður kærlega fýnr. Hann fór að reyna að stinga lyklinum í skrána, en fórst það ó- hönduglega. -t; Nei, þér verðið að lofa mér að hjálpa yður inn fyrir. Hann svaraði önuglega, en hik- andi og mun hafa gert sér grein fyrir, að hann gæti ekki án hjálp- ar minnar komizt. Ég opnaði dyrn- ar. í forstofunni var kolamyrkur. Hann skjögraði áfram, studdur af mér. — Dyrnar þarna til hægri, sagði hann og þreifaði fyrir sér í myrkr- inu. Ég opnaði dyrnar og svo tókst honum einhvern veginn að kveikja á eldspýtu. Það var lampi á borð- inu og við hjálpuðumst að við að kveikja á honum. — Nú get ég bjargað mér, sagði han. Yður er óhætt að skilja mig eftir. Góða nótt. Og þar með hneig hann iður í hægindastól. Það hafði steinliðið yfir hann. Ég varð gripinn ónotatilfinningu. Náunginn var náfölur í framan og draugslegur og ég var ekki viss um hvort hann var lífs eða liðinn. En allt í einu bærðust varir hans og brjóstkassinn lyftist upp, það glitti í hvítu augna hans og hann var ft&S-ŒSSmtPam 7,a* . ' • > ! W.V.V.W.,.VAVA,/JY. REST-BEZT-koddar Endurnýjum gömlu sængurnar, eigum dún- og fiðurheld ver, Seljum æðardúns- og gæsadúnssængur — og kodda af ýmsum stærðum. DtJN- OG FIÐURHREINSUN Vatnsstíg 3. Siml 18740. í WASV.' TIL SÖLU 2 herb. íbúð ódýr risíbúð við Miklubraut. 2 herb. íbúð í Vesturbænum. 3 herb. íbúð við Kleppsveg. Þvotta- hús á hæðinni. 3-4 herb. íbúð við Nökkvavog, kjall ari. j 4 herb. íbús við Hjallaveg, bílskúr fylgir. 4 herb. góð ibúð við Ljósheima, ve! innréttuð íbúð, svalir, tvö- falt gler, eppi fylgja. 4 herb. stór íbúð við Barmahlíð, bílskúr. 5 herb. íbúð í sambyggingu við Álf heima. 2 stofur, 3 svefnherbergi, eldhús, bað, sér þvottahús á hæðinni. tvennar svalir, íbúðar- herbergi með snyrtingu fylgir á jarðhæð. Sér geymsla í kjallara. Endaíbúð. 6 herb. endaibúð við Hvassaleiti í sambyggingu, herb. fylgir í kjall ara. TIL SÖLU í SMÍÐUM Einbýlishús við Mánabraut í Kópa vogi, byrjað verður á húsinu eft ir áramót. Hæðin um 130 ferm. 5 herb. og eldhús, bað þvotta- hús, geymsla, á jarðhæð er inn- byggður bílskúr geymslur og hiti. Selst fokhelt. Teikning ligg ur fyrir á skrifstofunni. J:n Ingimarsson fögm. Hafnarstr 4, ;imi 20555, sölum Si';urgeir "annússon kvöldsimi 349^’ Blómabúbin Staddir í rjóðrinu arstöðinni er horft á fallhlífarstökkið hjá verzlun- með aðdáun fífldjarfa frá þotunni sem á sér stað og þessi óþekkti fallhlífarstökkvari lendir á þessum litla stað méð prýði. Drottinn minn dýri, karlmaður heldur þetta er ekki kona, segír einn, já, þetta er Naomi hjúkrun- arkona, ekkert hræðir hana. Hrísateig 1 simar 38420 & 34174

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.