Vísir - 14.12.1964, Page 15

Vísir - 14.12.1964, Page 15
V í SIR . Mánudagur 14. desember 1964. J lOLAÆVÍNTÝRI Á BLAÐINU JÓLASAGA FRÁ NOREGI Fyrir misseri var ég símastúlka í skrifstofu fréttablaðs •— hafði gegnt þvi starfi um nokkurt skeið, en um starfið hafði ég raunar sótt vegna þess að ég hafði sett mér það mark, að verða blaðakona. Ég leit á símavörzluna sem eins konar forleik að œvintýri meðan ég beið eftir tækifærinu. Það gat líka verið ágætt að venjast andrúmsloftinu kynnast dálítið ritstjórum og blaða mönnum, og allir vissu þeir nú orðið, hvert var mitt æðra mark, ef svo mætti kalla það. Og svo gerði Pétur Wynter fréttaritstjóri allt í einu boð eftir mér og ég var sannast að segja dálítið óstyrk á fótunum, þegar ég kom inn til hans, því að nú var honum orðið kunnugt um, að ég var orðin leið á að starfa við símavörzluna og langaði til þess að fá tækifæri til að sýna hvort ég hefði hæfileika til þess að verða blaðakona. Svo flaug mér allt í einu í hug, þegar ég var kominn inn til hans, að á- stæðan til þess að hann kveddi mig á sinn fund kynni að vera allt önnur — kannski hafði ég gert eihverja vitleysu og átti von á áminningu. Skrifstofan hans Péturs var í rauninni ekkert nema afþiljaður klefi á skrifstofuhæðinni. Það var ritvél á borðinu hans sem að líkum lætur og tveir símar og blöð og handrit og ég veit ekki hvað, i haugum. Hann leit upp. þegar ég kom inn, og mér fannst hann eitt- hvað svo þreytulegur, að allur beygur sem mér hafði búið I brjósti hvarf mér. Hann tók símann og ég virti hann fyrir mér á meðan hann talaði I sfmann. Hann var brún- hærður, hárið mikið og þykkt og úfið, og mér fanst einstaklega fall egur blær á því. Svipur hans var í rauninni aðlaðandi, en hið sama var ekki sagt um röddina, þegar han loks ávarpaði mig. Mér fannst hún hörð, næstum hryssingsleg. Orðin komu eins og skot úr vél- byssu. — Hvað heitið þér? — Marit Lie — Æ, já, nú man ég, fáið yður sæti. Hann hnykkti til höfðinu til þess að setjast í stól við skrifborðið og ég hneig niður. — Það eru víst þér sem viljið verða blaðakona? Hann sagði þetta með spurnar- hreim í röddinni, en beið ekki eftir svari og hélt áfram: ; i — Eins og yður er kunnugt ætl- ar blaðakonan okkar, sem annast kvennasíðuna, að fara að gifta sig og nú skulið þér fá tækifærið sem þér hafið beðið eftir. Ég ætla að reyna yður. Og ef þér dugið, eigið þér að taka við af henni. Þannig hófst ferill minn sem blaðakonu. Ég fékk það hlutverk að skrifa um brullaup og hátíða- höld, tízkusýningar og annað slíkt. Og ég ályktaði fljótt, að það væri eitthvað svipað að byrja í svona starfi sem öðrum. Maður væri dá litla stund að átta sig og venjast öllu og svo gengi allt af sjálfu sér. Og fyrst í stað skrifaði ég eftir eig in höfði, en svo kallaði Pétur mig inn til sín einn daginn og sagði um leið og hann ýtti til mín grein arkorni, sem ég var nýbúin að ganga frá: — Hver er tilgangurinn með þessu? — Tilgangurinn — þetta er lýs ing á öllu, þegar dóttir Windel- bergs skipaeiganda gifti sig. — Hvernig getur yður dottið í hug að skrifa annað eins og þetta? Hann tók upp handritið og hélt því svo langt frá andlitinu, að engu var líkara en af því stafaði einhver smithætta og las: — Allt var svo fagurlega skreytt að þar gat að líta alla vorsins liti — það var sem sinfónía litanna .. /Hann Iét blöði detta á borðið fyr ir framan sig. — Hlustið nú á mig, Marit. Ef yður býr einhver skáldskapar hneigð í brjósti verðið þér að gera yður grein fyrir, að þetta er ekki sá rétti vettvangur til þess að svala henni. Skáldlegar lýsingar á at- burðum dagsins eru broslegar í aug um lesandanna. Hitt er svo annað mál, að frásögnin verður að vera létt og lifandi — og blátt áfram. Hér var alveg fullnægjandi að segja: Borðið var fagurlega eða smekklega skreytt... — En þannig skrifa allir, sagði ég. — En við þurfum á fólki að halda, sem skrifar þannig, — við viljum ekki mærðarfullar, há- stemmdar lýsingar á atburðum dagsins. Ég tók handritið og lagði af stað til dyra. — Hve gömul eruð þér? urraði hann áður en ég komst alla leið að dyrunum. — Tuttugu og tveggja. Hann yppti öxlum — og brosti. — Ég veit að þetta getur verið- dálítið erfitt í byrjun, sagði hann eins og hann væri hundrað ára, en hann var áreiðanlega ekki nema um þrítugt. En hann brosti fallega, þegar han vildi svo við hafa. Það mátti hann eiga. Og það var einhver nota leg tilfinning ríkjandi hið innra með mér þegar ég settist aftur við skrifborðið Ég hafði komist á snoðir um það hjá starfsfólki við blaðið, ' sem hafði þekkt Pétur áður en | hann varð fyrir þeim harmi að | missa konu sína og son í járn- j brautarslysi, — að áður en það gerðist hafði hann brosað miklu oftar en hann nú gerði. Ég þekkti hann ekki þá, en ég var nú farin að kynnast honum, og bar mikla virðingu fyrir honum vegna starfs hans í þágu blaðsins, og snemma veitti ég því athygli, að honum var háttvísi f blóð borin gagnvart öllum, sem erindi áttu við blaðið, komu sáróánægðir yfir einhverju en voru harla glaðir eftir svipnum að dæma, þegar þeir fóru. Og þess vegna var mér auðvelt furðu snemma að taka því með jafnaðar geði, þegar hann gerði boð eftir mér af því að hann þurfti að „hleypa út gufu.“ — Þú verður að láta á þér skilj ast, sagði hann einu sinni, þegar hann var farinn að þúa mig, að þeg ar kunnur borgari gengur í það heilaga verðurðu að setja myndina mitt á síðuna. — Það fer ekki vel á því vegna heildarsvipsins á síðunni, sagði ég Og það er svona álíka „spennandi" að horfa á brúðurina og afturend ann á strætisvagni. Sannast að segja finnst mér hún alveg hræði- leg. — Mér stendur alveg á sama hvernig hún lítur út — og hver : þín persónulega skoðun er skiptir | ekki máli. Sjáðu, ef þú flytur mynd ina á miðja síðuna... — Gott og vel, sagði ég. Það kom fyrir æ oftar, að hann fékk mér skemmtileg verkefni í hendur, og þá ræddi hann við mig um þau, eins og sá, sem er hverju smáatriði kunnur, og ég verð að játa, að leiðbeiningar hans voru á- gætar og mér ákaflega gagnlegar, og smám saman fór ég að hlakka æ tH be»*. er hann fékk mér sétt'OF verkefni í hendur. Voriö var bá liðið og komið síðsumar, og nú >far hausdíð komið. Það var þá svo komið, að það var farið að brosa að því heima, að ég sagði: Pétur segir... eða: I gær, þegar við Pétur... og þar fram etfir götunum ... Ég hugsaði stöðugt um hann og mig langaði stundum til þess að strjúka um kollinn á honum og reyna að fá hann til að brosa. En hann hugsað'i ekki um annað en starfið. — Komdu, Marit, átti hann til með að segja, við skulum skreppa í matstofuna og fá okkur kaffi og smurt brauð, og svo brunaði hann út og ág á eftir eins og hvolpur, og ég hafði það eitt mér til hugg- unar, að hann dró engar hinna með sér, þegar hann langaði í kaffi og smurt brauð. Um miðbik desembermánaðar kallaði Pétur á mig inn í skrifstofu sípa, bauð mér sæti og vindling, ég fann á öllu, að eitthvað var á uppsiglingu. — Ég veit vel, að þig langar til að skrifa eftir eigin höfði, Marit... Hann leit á mig um leið og hann sagði þetta og andartak varð ég gripin hræðslu. Kannski hafði ég verið „vegin og léttvæg fundin“ og þetta væri inngangur að því, að þeir þyrftu ekki lengur á mér að halda á blaðinu. — Já, það er víst svo, en er það ekki það, sem alla blaðamenn lang- ar til. — Þú gerir sjálfri sér erfiðará fyrir með að vera að hugleiða lang- anir annarra. Hann hnerraði. — Þú ert að fá kvef, sagði ég, af hverju reynirðu ekki að fá eitt- hvað við þvi? — Þakka þér fyrir umhyggjuna, amma gamla, sagði hann og snýtti sér ófeiminn eins og gamall hrepp- stjóri.Æn það yar um ritmennsku- hæfileika þína, sem við ætluðum að tala. .v.v.w.v.w.v.v.v.v.v.v SÆNGUR REST-BEZT-koddar Endumýjum gömlu sængurnar, eigum dún- og fiðurheld ver. Seljum æðardúns- og gæsadúnssængur —* og kodda af ýmsum stærðum. don- og FIÐURHREINSUN Vatnsstig 3. Sim) 18740. •.v.v.v.v.v.v.v.v/.v, r ANP I,SlR,WlSVnO STAY... TO HELP TáK.ZAN. XVE R.A7I0EP 6EMERALYEATS, ASYC.ING T0 BE STATIONE7 HERE-FOK 60 PAYS. Þyrlur Mombuzzis eru komnar til verzlunarstöðvarinnar til þess að flytja samsærismennina og Vagabundana til flugvallarins til yfirheyrslu og dómsrannsóknar. Við höfum ekki haft neinar fregn ir af sjúkraþyrlunni Tarzan, en ég hef aðra þyrlu reiðubúna, sem kom í þessu til þess að flytja þig til Mombuzzis ef þú skyldir skipta um skoðun. Nei, þakka þér fyrir Judd yfirforingi. — Mig — Hvers vegna? — Vegna þess, að þú átt að fá tækifæri til þess að breiða út væng- ina. Hann Ieit út eins og dómari, sem er að lesa upp úrskurð og ég sá. að hann naut þess, þótt hann reyndi að láta ekki á því bera. — Þér er hér með falið að ann- ast hina daglegu „jólapistla" — þú lætur þann fyrsta koma á morg- un. Þú átt að skrifa smápistil dag- lega, um eitthvert sérstakt efni varðandi jólin og undirbúning jól- anrta. Og þú mátt vera eins frum leg og þú vilt. 1 Hárgreiðslu- og snyrtlstofa ‘ STEINU og DÓDÓ Laugavep 18 3. hæð flyfta) Simi 24616 Hárgreiðslustofan PERMA Garðsenda 21, slmi 33968 Hárgreiðslustofa Ólafar Bjöms dóttur. HATONl 6, slmi 15493. Hárgreiðslustofan PIROL i Grettisgötu 31 slmi 14787. Hárgreiðslustofa VESTURBÆJAR Grenimel 9. slmi 19218. Hárgreiðslustofa I AUSTURBÆJAR , (Marla Guðmundsdóttir) Laugaveg 13. simi 14656. 1 Nuddstofa á sama stað Dömuhárgreiðsia við allra hæf1 IT.IARNARSTOFAN | Tjarnargötu 11 Vonarstrætls- megin. slmi 14662 ________1 Hárgreiðslustofan Asgarði 22. J Simi 35610. j 22997 ' Gréttisgötu 62 ST Simi 1861L Swvailagötu T2 Hárgreiðslustofan * v i n y s ^ Grundarstíg 2a \ Sími 21777 HÁRGREIÐSLU STOFAN langar til að gera þennan stað að til þess að hjálpa Tarzan. Ég hef sjúkrastöð fyrir þá ættflokka, haft samband við Yeats hershöfð sem misst hafa hægri hendina ingja og beðið um að fá að vera vegna aðgerða Omarbræðranna. hér sem hjúkrunarkona í tvo mán Og ég, herra, vil vera um kyrrt uði. ÁSTHILDUR KÆRNESTED^ GUÐLEIF SVEINSDÓTTIR SIMI 12614 HÁALEITISBRAUT 20 ■CKf

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.