Vísir - 12.01.1965, Blaðsíða 4
r ■
1' i'i’vjpijrir 12 ianúar 1965
Gíeymið ekki þætti manns
í skýrslum um um-
ferðarslys, sem ýmsir að
ilar bæði hér á landi og
erlendis létu frá sér fara
um áramótin síðustu
kom í ljós að umferðar-
slys fara enn í vöxt og
er nú víða svo komið að
fleiri menn farast í um-
ferðarslysum en af völd-
um skæðustu sjúkdóma.
Umferðarslysin eru
þannig orðin mikið heil-
brigðilegt vandamál.
Einnig hér á landi fjölgar um-
ferðarslysunum jafnt og þétt og
innan fárra ára verður sýnilega
stökkbreyting í þessu efni þegar
nýju vegalögin hafa fært nokk
uð af þeim ágætu vegum, sem
alla ökumenn dreymir um, en
sem þvf miður hafa einnig í för
með sér aukinn fjölda dauða-
slysa sökum þess að með nýjum
og góðum vegum eykst hraðinn
sennilega allt að helmingi. Það
ins í umferðinni
frá sundruðum heimilum eða
heimilum þar, sem ósætti hefur
rikt í uppvexti þeirra eru mun
Ifklegri til að valda slysum en
þeir sem alizt hafa upp í öruggu
og ástúðlegu umhverfi. Hafi
barnið þegar á unga aldri lært
að bera virðingu fyrir sjálfu sér
og öðrum verður það sem full
orðinn maður mun betri og far
sælli borgari en ef allt hefur
verið látið vaða á súðum kæru
leysisins í uppvexti þess. Sá sem
lærir að bera virðingu fyrir öðr
um sýnir tillitssemi í einu og
öllu, einnig akstri, hann virðir
eigur annarra og gætir vel þess
sem honum er trúað fyrir
í þessari grein mun ég eink
um ræða tvær leiðir til að auka
umferðaröryggið. Þessar leiðir
1) Bætt umferðar- og öku-
kennsla
2) Aukið og bætt lögreglu-
eftirlit.
Eftir Ólaf Gunnars-
son, sálfræðing
er þvf ekki nóg að leita allra
bragða til að bæta vegina, einn
ig þarf að fara allar færar leiðir
til þess að draga úr slysahætt
unni.
UMFERÐARSÁLFRÆÐI
MIKILVÆG.
Þótt umferðarsálfræðin sé enn
ung fræðigrein hefur hún samt
nú þegar sannað, að margt sem
máli skiptir í umferð er enn ekki
nægur gaumur gefinn.
Rannsókir, sem gerðar hafa
verið við háskóla í Bandaríkj
unum og Kanada sanna, að
persónuleiki mannsins og ástand
hans allt bæði sálrænt og líkam
legt valda mestu um það hvort
hann er líklegur til að valda
slysum eða ekki. Rannsóknir
hafa sýnt að bílstjórar, er koma
HÆFNISPRÓFANIR.
Bæði reynsla og rannsóknir
hafa sýnt, að hæfni manna er
mjög mismunandi á hvaða sviði
sem er, ökuhæfni lýtur sömu
lögmálum og öll önnur verk-
hæfni hvað þetta snertir. Allur
þorri manna getur orðið sæmi-
legir eða allgóðir bílstjórar,
nokkrir orðið úrvalsbílstjórar
og álfka margir geta aldrei ekið
bíl svo ekki stafi af því óeðlilega
mikil hætta bæði fyrir þá sjálfa
og aðra. Þessa hrakfallabálka
hafa nokkrar þjóðir útilokað frá
akstri með aðstoð hæfnisprófa.
Frakkar velja t. d. alla bílstjóra
sem ráðnir eru til að aka lang-
ferðabílum eða strætisvögnum
þannig að valdir eru með aðstoð
hæfnisprófana hæfustu um-
sækjendur hverju sinni. Þetta
bar þann árangur að á 13 árum
minnkaði slysni vagnstjóra í op
inberri þjónustu um 65% og
hafði þó bílum fjölgað og há-
markshraði verið aukinn veru
lega á sama tíma. Á þessum ár
um jókst hiná vegar slysni vöru
bílstjóra um 84%.
Frakkar athuga vandlega á
hæfnisprófastöðvum sínum
heilsu manna og þá sérstaklega
með tilliti til þeirra sjúkdóma,
sem geta verið ökumönnum
hættulegir Hjörtu þeirra eru at-
huguð nákvæmlega, sjón og
heyrn mæld, eins náttblinda og
Iitasýn og hæfni til að staðsetja
hljóð. Viðbragðshraði og jafn
vægisskynjun eru mæld.
Með eiginlegum hæfnispróf
um er mæld athygli og and-
svarahraði, ekki sízt dreifing
athyglinnar. Mat á hraða og
fjarlægð, andsvör við snöggum
og óvæntum eggjendum, ná
kvæmni, samhæfni t. d.
handa og fóta, hvað þreyti
mest vöðva mannsins ,er hann
fljótur að þreytast eða þolinn.
Loks eru menn prófaðir með
almennum greindarprófum.
FJÖLBVLISHÚS
MEÐALMENNSKUNNAR
Eins og upptalningin á því
sem gert er á hæfniprófanastöðv
um Frakka ber með sér væri ná
kvæm lýsing á einni slíkri stöð
ærið efni í langa grein. Við skul
um að sinni láta okkur nægja að
staldra við síðasta atriðið, al-
menna greind. Reynsla. og rann
sóknir hafa sýnt að meðalgreind
ir bílstjórar séu bezt til aksturs
fallnir.
Bráðgreindur maður finnur
ekki næga fullnægingu á akstri
þegar til lengdar lætur. Honum
hættir því við að hugsa um önn
ur mál meðan hann ekur og
þeim mun greindari sem hann er
þeim mun meiri hætta er á, að
hann gleymi sér alveg við hug-
ræna lausn þeirra viðfangsefna,
sem krefjast úrlausnar í huga
hans. Aksturinn lýtur þá stjórn
óæðri hluta taugakerfisins á
meðan. Ef snögga hættu ber að
höndum getur slíkt hugarástand
hæglega leitt til árekstra og jafn
vel slysa.
En hættulegri en bráðgreindi
bílstjórinn er þó hinn van-
gefni. Samkvæmt íslenzkum
umferðarlögum og framkvæmd
þeirra geta menn tekið bílpróf
og öðlazt ökuréttindi 17 ára
gamlir. Samkvæmt þvi, sem
vitað er um dreifingu almennr-
ar greindar þýðir þetta að
greindaraldur hinna vangefnustu
sem öðlast ökuréttindi hér á
landi er ekki nema 11 — 12 ár.
Nú er það svo með pilta á
þessu greindarstigi, að þeir búa
jafnan yfir næsta litlum sáltöfr
um, séu þeir ófríðir í þokkabót
verður afleiðingin einatt sú, að
aðrir sækjast lítt eftir félags-
skap þeirra. Einkum eiga þeir
oft erfitt uppdráttar hjá veika
kyninu. Slíkum piltum er bíll
fyrst og fremst félagslega mik-
ilvægur, einkum ef hann er stór
og gljáandi.
Þegar unglingur, sem búið
hefur við 8 ára stöðuga ósigra
í skólanum, sem ekki tekur til
lit til sannanlegrar námsgetu
hans, en reynir af öllum mætti
að draga hann inn í fjölbýlishús
meðalmennskunnar fær hann
nú loksins tækifæri til að sýna
mátt sinn og manndóm. Þegar
bíllinn er fenginn er það næsta
auðvelt. Aðeins að stíga örlítið
fastar á benzíngjafann og bíll-
inn þýtur af stað. Þetta er
blómaskeið hins vangefna pilts.
Greindari jafnaldrar hans eru í
skólum til þess að búa sig undir
ýmiss konar ævistörf. Hann
hefur frá náttúrunnar hendi ekki
hæfileika til sérnáms og ein-
stöku sinnum hefur skólinn
þrúgað hann svo mjög, að hann
heldur sig ófæran til allra náms
iðkana, þótt svo sé ekki. Leið
hans liggur beint út í atvinnu-
lífið, þar sem honum er tekið
tveim höndum af atvinnurek-
endum, sem alltaf vantar vinnu-
afl. Um leið fer önnur stétt að
hafa mikinn áhuga á honum,
Ólafur Gunnarsson, sálfræð
ingur.
það eru gróðamennirnir. Menn
sem aðeins hugsa um skjótfeng-
inn gróða, sem lítið er fyrir
haft. Slfkir verzlunarmenn gera
sér ekki sfzt dátt við þá sem
minnstri gagnrýni geta beitt
gagnyart þeim og vamingi
þeirra.
Ef allt gengur vel, er hinn
grunnhyggni piltur áður en
varir seztur undir stýri á stór-
um bfl, sem flikkaður hefur
verið upp að utan. Má vera að
við hlið hins unga ökumanns
sitji blómarós á svipuðu greind
arstigi og hann sjálfur og í
sömu sæluvímunni. Eins vel
getur þó verið, að stúlkan í
framsætinu sé mun greindari en
grunnhyggni aðdáandinn henn-
ar og hún sé aðeins að nota
hann til að aka sér og félögum
sínum hvert sem hana listir.
Eitt er víst, að hetjan við
stýrið hugsar meira um draum
dísina, sem nú situr við hlið
hans en veginn framundan og
umferðina á undan og eftir.
Hvar og hvernig ökuferðin end
ar fer svo eftir ýmsu, en af
frásögnum blaðanna er augljóst,
að furðuoft eyðileggjast bílarnir
gersamlega án þess að stórslys
verði á mönnum. Þetta breytist
vitanlega með bættum vegum.
Þá verður eins og áður var sagt
hraðinn um það bil helmingi
meiri og dauðaslysum fjölgar.
Árlega lenda fleiri hundruð bíla í árekstrum og tjónið sk;ptir milljónum.
Notið frístundirnar
lærið vélritun. Kenni almenna vélritun (blind-
skrift) Einnig uppsetningu og frágang verzl-
unarbréfa. Fámennir flokkar einnig einkatím-
ar. Ný námskeið eru að hefjast. Innritun og
allar nánari upplýsingar í síma 38383 á skrif-
stofutíma.
Rögnvaldur Ólafsson.
Húsgögn til sölu
Vegna brottflutnings af landinu er til sölu danskt sófa-
sett (remance) sófi, 3 stólar skenkur, sófaborð, auto-
matic Pfaff saumavél í skrifborði, prjónavél, þvotta-
vél með suðu (Servis) skrifborð og sófaborð úr
teak, danskt hjónarúm, sem sett er í skáp, með
dýnum, borðstofuborð með 4 stólum, skápur með 7
skúffum (dúffoner) teak sófaborð og 3 léttir stólar, allt
danskt. Ennfremur svefnsófi 1. manns, Hansahillur,
lampar, svefnstóll bamarúm, bamavagn og bama-
kerra, barnastóll o. fl. Einnig blóm. Nánari uppl. í
síma 20115 í kvöld og annað kvöld.