Vísir - 12.01.1965, Blaðsíða 13
VlSIR . ÞriBjudagur 12. janúar 1965
73
BÍLSKÚR — ÓSKAST
Bílskúr eða annað hentugt pláss óskast undir tómstundastarfsemi
í Vesturbænum. Sími 20076 milli kl. 6—7 í kvöld.
ÍBÚÐ ÓSKAST
Lítil íbúð eða herbergi óskast, helzt í Austurbænum. Tilboð sendist
augl.deild Visis fyrir Iaugardag merkt ;,Húsnæði — 93".
SÞ A THUGAR HERNAÐAR
ÚTGJÖLD ÝMISSA RlKJA
HAFNARFJÖRÐUR
Hafnarfjörður og nágrenni. Tek
að mér ýmsar lagfæringar innan
húss. Uppl. i sima 50396.______
Hafnfirðingar!
Ef þér viljið selja eitthvað
sem þið þurfið ekki lengur á
að halda — eða kaupa eitthvað
sem yður vanhagar um — þá
notfærið yður hina hag-
kvæmu og ódýru smá-auglýs-
ingadálka í VisL
Komið eða hringið í auglýs-
ingadeildina, Ingólfsstræti 3. —
Sfmi 11663.
► Súkarno hugsar um fleira en
að senda innrásarmenn til Mal-
ajsiu. í frétt frá Singapore seg-
ir, að útvarpið f Jakarta hafi
tilkynnt, að fyrsta mannaða
indonesiska geimfarinu verði
skotið út í geiminn 1968, og
marskálkur að nafni Budhibajdo
heimildarmaður. Kom hann
fram f útvarpi i tilefni af því,
að' gervihnetti hafði verið skot-
ið í íoft upp frá Indonesiu.
► SAS eignaðist nýlega tutt-
ugustu Caravelle-þotu sfna og á
4 f pöntun.
► Starfsmenn í 5000 benzín-
afgreiðslustöðvum í Belgíu hófu
verkfall f gærmorgun.
► 14 milljónir erlendra
skemmtiferðamanna komu til
á íslandi óskar eftir
íbúðorherbergi
fyrir erlendan starfsmann.
Helzt búið húsgögnum.
Vinsamlega hringið í síma
20560.
Spánar árið sem leið. Aukning
20% miðað við 1963.
► Ensk stúlka Anne Rowston,
hefir undirgengizt 4 aðgerðir,
til þess að verða lægri í loft-
inu. Fyrir aðgerðirnar var hún
2.03 m. en er nú 1.88. — Hún
mun verða rúmliggjandi marga
mánuði. Hún hefir síðan þetta
varð kunnugt fengið um 200
bréf frá fólki í ýmsum lönd'um.
Þeirra meðal voru 4 bónorðs-
bréf.
► Frú Carmen Polo de Franco
— eiginkona einræðisherrans,
— mun verða viðstödd hátiða-
höld á Filipseyjum i stað manns
síns, þegar minnzt verður þess,
að 400 ár eru liðin frá því, að
Spánverjar lögðu undir sig eyj-
amar. Utanríkisráðherra Spánar
mun einnig verða viðstaddur.
Allmörg rikí og meðal þeirra rfk
in, sem mestum fjármunum verja
til hemaðarútgjalda, Bandarfkin og
Sovétríkin hafa nú teklð til ræki-
Iegrar athugunar vandamálin, sem
tengd em yfirfærslu hemaðarút-
gjalda til friðsamlegrar hagnýtingar
í sambandi við afvopnun, segir f
yfiriiti sem framkvæmdastjóri Sam
einuðu þjóðanna hefur látið semja
Um 40 riki og allmargar alþjóð-
legar stofnanir hafa svarað spurn.
ingalista sem Sþ hafa sent varð-
andi þetta mál. Skýrslan verður
rædd á yfirstandandi Allsherjar-
þingi og af Efnahags- og félags-
málaráðinu.
I svari sínu leggja Sovétríkin til
að ef öllu þvi fjármagni heimsins,
sem afvopnun myndi spara, væri
í fyTsta áfanga hægt að hagnýta
þriðjunginn til að létta skattbyrð-
ar almennings, þriðjunginn til efna
hagslegrar og félagslegrar þróun-
ar, sjötta hluta til alþjóðlegs starfs
á vettvangi vísinda, tækni og efna
hagsframfara, og sjötta hlutann til
efnahagsaðstoðar við vanþróuð
lönd.
FAO (Matvæla- og landbúnaðar-
stofnun S.þ.) lætur þess getið í sam
bandi við möguleikana á að hag-
nýta sérmenntaða hermenn til borg
aralegra starfa, að hin vanþróuðu
lönd mundu geta haft mikið gagn
af þessum mönnum, þar sem þeir
séu betur skólaðir og þjálfaðir, en
almenningur í þessum löndum. Her
mennirnir geti með sérstakri þjálf
un orðið nýir leiðtogar í sveita-
þórpum, komið nýjum hugmyndum
á framfæri og átt frumkvæðið að
örari og stórstígari framförum í
þorpunum, þar sem stöðnunin sé
venjulega mest og rótgrónust.
Bandaríkin gera í svari sínu
kerfisbundna grein fyrir möguleik
TIL SÖLU
unum á að verða við hinum inn-
lendu kröfum að því er varðar
húsabyggingar, bætta aðbúð í borg
um og þéttbýli, auðlindir náttúrunn
ar, menntun, heilbrigðisþjónustu á-
samt almannatryggingum og fá-
tækrahjálp.
Ein tuttugu riki vfkja í svörum
sínum að spurningunni um, hvernig
nota megi þau hernaðarútgjöld
sem sparast, til aukinnar aðstoð-
ar við vanþróuð lönd. S.þ. munu
með tvennu móti geta undirbúið
slíka aukningu á hjálpinni til van
þróaðra landa, annars vegar með
þvf að aðstoða umrædd riki við að
semja áætlanir sem þau hafa hug
á að hrinda í framkvæmd, hins
vegar með því að betrumbæta og
liðka hið alþjóðlega hjálparkerfi.
Á ÓFÆTT BARN ÓSKORAÐAN
RÉTT TIL LÍFS?
Á hið ófædda barn rétt til lífs
strax þegar frjóvgun hefur átt sér
stað? Þessi spuming var umræðu-
grundvöllur á ráðstefnu um mann-
réttindi f vanþróuðum löndum, sem
S.þ. kvöddu saman snemma
á s.I. ári í höfuðborg Afganistans,
Kabúl. Skýr^lan frá þessari ráð-
stefnu hefur nýlega verið birt ,og
kemur þar fram hvemig formæl-
endur hinna vanþróuðu landa líta
á þetta tímabæra vandamál.
Með tilliti til þeirrar offjölgunar
fólks og jæirrar fátæktar, sem eru
megineinkenni margra landa í Asfu,
voru margir ræðumenn þeirrar
skoðunar, að ekki væri úr vegi að
leitast við, a. m. k. um stundarsak-
ir, að takmarka barnsfæðingar með
tiltækum ráðum. Á það er bent,
að slík stefna stríddi ekki gegn
hinum ýmsu trúarbrögðum í Asíu,
og að ákveðin ríki og óháð sam-
tök einstaklinga berðust fyrir henni
þar.
Að því er varðaði spuminguna
um, hvort takmarka bæri barns-
fæðingar eftir að frjóvgun hefði
átt sér stað, voru menn ekki á
einu máli.
ERLENDAR FRÉTTIR
í STUTTU MÁLI
Frúarleikfimi Í.R.
Konur í Kleppsholti og Heimahverfi: Í.R. hefir leik-
fimi fyrir konur í Langholtsskólanum á mánudögum
kl. 9,20 e. h. og á fimmtudögum kl. 8,30 e. h. Getum
bætt við nýjum þátttakendum.
Smekkbuxur bama kr. 75,00
Nankinsbuxur drengja kr. 110,00
Nankinsbuxur herra kr. 150,00
Telpnagolftreyjur kr. 120,00
Dömugolftreyjur kr. 290,00
Dömublússur frá kr. 90,00.
með fafriaðinn á fjölskylduna
Laugaveg 99, Snorrabrautar megin - Sími 24975
2ja herbergja íbúð við Hjallaveg.
Nýstandsett og máluð með nýjum
teppum. Laus nú þegar.
2ja herb. risíbúð, við Kaplaskjól,
hagstætt verð.
4ra herb. íbúð, við Hátún. Sér-
staklega vel innréttuð með harð-
viði.
4ra herb. íbúð við Ljósheima, sér
þvottahús á hæðinni. Teppi fylgja.
4ra herb. íbúð í Hlíðunum, jarð
hæð (slétt inn). Ný fbúð. um 120
ferm. Teppi geta fylgt.
4ra herb. íbúð við Barmahlíð.
Um 120 ferm. vönduð fbúð, með
harðviðarhurðum, sér inngangur.
Teppi fylgja. Bflskúr
5 herb. endaíbúð, við Álfheima
Sér þvottahús á hæðinni fbúðar-
herbergi fylgir á jarðhæð.
5 herb. ný íbúð við Háaleitis-
braut um 120 ferm. Tvær saml.
stofur, 3 svefnherb, hol, eldhús
með borðkrók, bað, sér geymsla í
kjallara, sameign f þvottahúsi.
6 herb. endaíbúð, i sambyggingu
við Hvassaleiti (suðurendi). —
Tvennar svalir. tbúðarherbergi
fylgir f kjallara
" Ingimarsson lögm.
Hafnarstræti 4. — Simi 20555.
Sölum.: Sigurgeir Magnússon,
Kvöldsími 34940
Ýmsir ræðumenn voru þeirrar
skoðunar, að virða bæri rétt barns
ins til lífs frá því andartaki þegar
frjóvgun ætti sér stað. Mörg trú-
Bílasala
Matthíasar
Símar 24540 og 24541.
Mercedes Benz 189, 190 og 220
1955-1964.
Chevrolet Chewelle ’64 lítið ekinn
Ford Comet ’62 ’63 og ’64
góðir bílar.
Consul Cortina ’62 og ’64 lftið
keyrðir.
Opel Rekord ’58-’64
Opel Caravan ’55-’64
Volvo station ’55, ’59 og ’62
Saab ’62, ’63 ’64
Moskowitch ’57-’64
Volkswagen ’56-’64
Austin Gipsy ’62 ’63 benzín og
diesel bílar.
Land Rover ’61 ’62 ’63
Hillman Imp ’64 ókeyrður
Taunus 17 M ’62 ’63 ’64
Höfum einnig mikið úrval af vöru.
bifreiðum, sendiferðabifreiðum,
langferðabifreiðum og Dodge
Weaponum, allir árgangar.
Bílasala
Matthíasar
arbrögð aðhyllast ótvírætt þessa
meginreglu, sam á rætur sfnar f
rétti hvers einstaklings tfl að lifa,
sögðu þeir, og vitnuðu jafnframt
trl mannréttindayfirlýsingarinnar.
Aðrir ræðumenn slógu vamagla
og vildu hafa fyrirvara. Var rætt
fram og aftur um þá fuHyrðingu,
að lffið hæfist á stund frjóvgun-
arinnar, og bentu margir á vfsmda-
leg rök fyrir því, að í eiginlegum
skilningi væri ekki hægt að tala
um „lff“ einstaklingsins fyrstu þrjá
mánuði meðgöngutímans.
Menn studdu að vísu hið al-
menna bann við fóstureyðingum,
sem finna má í löggjöf flestra landa
en viðurkenndu jafnframt, að á öll-
um skeiðum meðgöngutímans gætu
komið upp kringiunstæður, sem
réttlættu fóstureyðingu einkum þeg
ar læknar gætu fært rök að því,
að lff móðurinnar væri i hættu eða
heilsu hennar alvarlega ógnað, ef
fæðing ætti sér stað. Líta bæri á
rétt móðurinnar sem jafnmikilvagg-
an rétti hins ófædda bams, ef
ekki mikilvægari.
Að áliti þessara ræðumanna, ^jtti
fóstureyðing líka að vera leyfileg
til að girða fyrir að vanþroska
eða vansköpuð böm væm alin í
þennan heim, eins og nýlega hefði
átt sér stað um mæður sem tekið
höfðu deyfilyf um meðgöngutím-
ann. Einn ræðumanna kastaði fram
þeirri spumingu, hvort fóstureyð-
ing á fyrstu fremur mán. með-
göngutímans ætti ekki að vera leyfi
leg, þegar um væri að ræða börn
sem getin væru utan hjónabands
og mundu af þeim sökum verða að
þola misrétti í þjóðfélaginu. Þessari
hugmynd var vísað á bug af öðrum,
sem lögðu áherzlu á, að í stað þess
gætu menn upprætt fordóma af
þessu tagi með aukinni menntun
og verndað ógiftar mæður og óskil-
getin börn með betri löggjöf og
öðrum ráðum.
Þátttakendur í þessari ráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna voru ráðherr-
ar, lagaprófessorar og aðrir sér-
fræðingar frá 16 ríkjum í Asíu.
(Frá S.þ.).
Blómabúbin
MMMM
Hrisateig 1
simar 38420 & 34174
TWntun p
prcnt«ml&ja & gimmfaitmplcfcr*
Elnboitlt — StalOMM
í