Vísir - 16.01.1965, Page 15

Vísir - 16.01.1965, Page 15
V í S IR . Laugardagur 16. janúar 1965 75 Konulík í farangursgeymslunni EFTIR GEORG GOODCHILD LEYNILOGREGLUSAGA Klukkan var 21 laugardagskvöld nokkurt í október, þegar hattlaus maður, mjög þreytulegur, kom inn í krána Svarta hestinn í grennd við Andover -og bað um tvöfaldan whiskysjúss. — Og tvær samlokur með svína- kjöti, sagði hann við þernuna. Hún fékk honum þær og fór hann með whiskyglasið og samlokurnar að borði úti í horni, en þarna voru nokkrir gestir fyrir. — Er nokkur benzíntankur hér í nágrenninu? spurði hann einn þeirra. — Enginn fyrr en þér komið til Andowe:' en það eru ekki nema fimm mílur þangað, ef þér akið Lundúnaþjóðveginn, ef þér þá ætlið þá leiðina. — Þakka yður fyrir, ég ætla ein mitt þá leiðina. Það leit út fyrir að gesturinn hefði sérlega góða lyst á samlok- unum, og er hann hafði lokið þessu, keypti hann vindlingapakka og bauð kráargestum glaðlega góða nótt. En það voru ekki tvær mín- útur liðnar þar til hann kom aftur og var sem hann væri skelfingu lostinn. — Það er búið að stela bílnum mínum. Má ég lána símann? — Ég skal spyrja forstjórann, sagði barþernan, og hvarf inn um dyr fyrir aftan borðið, og kom svo að vörmu spori og með henni krá- areigandinn, gildvaxinn náungi. — Það er þessi herra þarna, sagði hún. — Ég heiti Tarrant, sagði bíl- eigandinn Ég skildi bílinn minn eftir héma á bílastæðinu við krá- yðar fyrir tæpum stundarfjórðungi. Það var heimskulegt af mér, að læsa honum ekki, en ég ætlaði ekki að hafa nema stutta viðdvöl. Ég þarf að ná sambandi við lögregl- una. Má ég fá not af síma? — Velkomið, sagði kráareigand- inn. Komið inn hérna! Hann fór með Tarrant inn í her bergi það, sem hann notaði sem skrifsfofu. — Gerið þér svo vel, hringið strax í nr. 999. Tarrant náði þegar sambandi við lögreglustöðina í Andover, og lét í té upplýsingar um nafn sitt og heimilisfang, núm erið á bflnum, framleiðslunúmer sitt og annað, sem um var spurt. — Ég get ekki farið lengra í kvöld, sagði bíleigandinn að lok- um í símann, og ég hefði þurft að komast til London í kvöld. Hvað get ég gert? — Haldið kyrru fyrir þar sem þér eruð, sagði lögregluþjónninn. Það eru að fara út lögreglubílar til eftirlits. Ég skal senda einn til þess að aka yður á stöðina. — Þúsund þakkir, sagði Tarrant, þetta er mjög vinsamlegt af yður. Hann lagði tólið á og sneri sér að kráareigandanum gildvaxna. — Hvað kostar þetta? — Ekkert, herra Tarrant, sagði sá gildvaxni. Ekkert þessu líkt hefir gerzt fyrr hér hjá mér. Fjári hafið þér verið óheppinn. Var nokk urt verðmæti í bílnum? — Aðeins handtöskur mínar og nokkrir uppdrættir að byggingum. Ég fór til Truro og var þar tvo daga í viðskiptaerindum. Fór þaðan um klukkan 15 í dag. Þakka yður fyrir. Nú ætla ég að fara inn í barinn og fá mér einn sjúss til. Inni í barnum létu menn samúð í ljós við hann vegna óheppninnar, en barþernan náði í áætlun og gat frætt hann um, að lest færi til London eftir 40 mínútur. — Ég held þér náið í hana, sagði hún, ef lögreglan hefir einu sinni hraðann á. Þeir eru nú annars ekki vanir að flýta sér. En í þetta skipti var lögreglan ekki sein á sér. Tarrant þurfti ekki að bíða nema í 10 mínútur. Og það var yfirlögregluþjónninn sem kom. Tarrant gat þess við hann, að sá, sem stolið hafði bílnum, mundi ekki hafa komizt langt án þess að fá benzín á tankinn, hann hefði ver ið nær tómur. — Ég vonaði, að ég kæmist til Andover þó, bætti hann við. — Þessar upplýsingar læt ég fara áfram þegar, sagði lögreglu- þjónninn — þær ættu að greiða fyrir að hefðist upp á bílnum. Við þekkjum starfsmennina á öllum stöðvum, sem hafa opið á þessum tíma sólarhrings. Hann fékk svo lánaðan síma, og að því loknu sagði hann við Tarrant, að hann væri reiðubúinn að Ieggja af stað. Á leiðinni til járnbrautarstöðvarinnar hélt hann dálítinn fyrirlestur um að það væri heimskulegt að skilja bíla sína eftir ólæsta. — Ég veit það, sagði Tarrant, en ég var þreyttur og svangur og gleymdi mér, — þetta er í fyrsta skipti, sem mér hafa orðið slík mistök á. Héraðslögreglan hafði ekki haft heppnina með sér um nótt- ina — fann ekki bílinn, en næsta morgun fannst hann bak við runna í um það bii 7 km. fjarlægð frá Svarta hestinum. í aftursætinu var ferðataska, regnfrakki og linur hattur Hurðir bílsins voru læsar og það varð að draga hann til And- over. I fyrstunni hélt lögreglan, að um venjulegan bílþjófnað væri að ræða, og hún tilkynnti lög- reglunni að bíllinn væri fundinn og hann gæti sótt hann hvenær sem væri Tarrant kom með fyrstu lest og honum var vísað út í port- ið, þar sem bfllinn var geymdur. Honum hafði verið sagt að koma með aukalykil, ef hann ætti hann og nú tók hann hann upp og opn- aði bílinn. — Vantar nokkuð, spurði Iög- regluþjónninn. — Það lítur ekki út fyrir það, en ég ætla að gá i töskuna, en í henni var ekkert nema það sem menn hafa venjulega með sér á ferðalögum og í geymsluhólfið fyr ir framan framssétið vantaði ekk- ert heldur. — Nei, það hefur engu verið stolið, sagði hann. — Er nokkuð í farangursgeymsl unni? — Ekkert nema varadekkið og einhver verkfæri. — Það er bezt að þér gáið þar líka. Hann opnaði hana og er hann hafði snúið lyklinum hentist lok- ið upp og lögrégluþjónninn rak upp dálítið vein og Tarrant gapti, þvi að í farangursgeymslunni lá ung kona. sem eins og hnipraði sig saman — og hún var greini- lega dáin. Þungbúinn á svip læsti Iögregluþjónnin farangursgeymsl- unni. — Ég er smeykur um að það verði bið á því að þér fáið bíl- jnn, herra Tarrant, ég verð að gefa skýrslu um þetta þegar og kveðja lækni til þess að skoða Iík- ið og undirrita yfirlýsingu. McLean fulltrúi í Scotland Yard ók til Andover ásamt aðstoðar- manni sínum tveim tímum síðar, að beiðni héraðslögreglunnar. Það var búið að taka líkið úr bílnum og Tarrant hafði farið til næsta gistihúss og beið þar niðurstöð- unnar af líkskoðuninni og til þess að vera nærstaddur, ef lögreglan óskaði að ræða frekar við hann. — Það er ekki enn komið í ljós hver konan er, sagði læknirinn við McLean. Líkskoðunin er ekki Iok- ið, en það eru engin merki um, að nauðgun hafi átt sér stað. Lík- ur benda til að hún hafi látizt af völdum eiturs milli kl. 20—22 í gær kvöldi. Það virðist augljóst, að biinum hafi verið stolið til þess að aka burt með líkið og losa sig við það einhvers staðar, en glæpamað- urinn ekki komizt Iangt vegna þess að benzfnið var á þrotum. Þess sjást líka merki að bilnum hafi ver ið ýtt seinustu 20—30 metrana á þann stað, þar sem hann fannst. Sá — eða þeir sem það gerðu læstu síðan bílnum og tóku með sér lykilinn alveg vafalaust til þess að tefja fyrir eftirgrennslunum lög- reglunnar. McLean las þar næst hina vél- rituðu yfirlýsingu Tarrants og á- kvað að tala við hann þar sem ekki var tækifæri til þess að líta á Iíkið, þar sem líkskoðuninni var ekki lokið. — Hann hringdi eftir Tarrant og spurði hann nokkurra spurninga. — Bifreið yðar var, segið þér, stolið meðan þér sátuð inni í Svarta hestinum? Voru fleiri bílar á bilastæðinu? — Já, tveir. Ég veitti þeim ekki nána athygli, en annar mun hafa verið á Londrower. — Voru þeir þar þegar þér kom uð út aftur? — Já. Ætli einhverjir þeirra sem voru inni í kránni hafi ekki átt þá — Hvaðan komuð þér þetta kvöld? — Frá Truro. Ég var þar á fimmtudag og föstudag. Ég er arki tekt og fór þangað til eftirlits með byggingum. — Þér hafið ekki veitt neinum grunsamlegum manni eða mönn- um athygli þegar þér lögðuð bíln- um? — Nei, það var mjög dimmt. — Jæja, það var leitt, að þér getið ekki fengið bílinn enn. Það er margt sem enn bíður rannsókn- ar. — Já. Það borgar sig varla fyrir mig.að fara.heim og verða svo kannski að koma aftur. Ég verð að hringja í konuna mína og segja henni það. Og ég sem ætlaði að eiga rólega helgi heima. Þegar þeir sem verið höfðu í Svarta hestinum þetta kvöid voru yfirheyrðir, staðfestu þeir í raun- inni yfirlýsingu Tarrants. Og Brooke lögreglumaður hafði orð á því að konan hlyti að hafa verið tekin upp í bílinn nærri strax eft- ir að honum hafði verið stolið og gat það því ekki hafa verið langt frá kránni. McLean. Líkskoðuninni er ekki lok ur óku á staðinn, þar sem bíllinn fannst. — Ég er ekki viss um að þetta fái staðizt, sagði McLean. Það er eitthvað gruggugt. Af hverju t.d. keypti Tafrant sígarettur í barnum þar sem í bílnum var full dós af þeim? — Kannski bíllinn hafi alls ekki verið á bílastæði krárinnar? — Við höfum aðeins orð Tarr- ants fyrir því. Enginn annar sá hann þar. Það var lítið benzín á geyminum. Kannski hefur hann allt í einu verið í örvæntingar- fullri aðstöðu — með konulík í far- angursgeymslunni. Hann gæti hafa 1 Hárgreiðsiu- og snvrtistofa I STEINU og DÓDÖ i Laugavep 18 3. hæð flyfta) , Simi 24816 Hárgreiðslustofan PERMA Garðsenda 21. slmi 33968 Hárgreiðslustofa Ólafar Björns dóttur HATÚNl 6. slmi 15493._________ Hárgreiðslustofan P I R O L Grettisgötu 31 simi 14787. Hárgreiðslustofa VESTURBÆJAR Grenimel 9. =imi 19218. Hárgreiðslustofa AUSTURBÆJAR I (Marla Guðmuridsdóttir) Laugavep 13. simi 14656. Nuddstofa á sama stað Dömuhárgreiðsla við allra hæf | T.IARNARSTOFAN Tiarnargötu II Vonarstrætls- megin. slmi 14662 ASTHILDUR KÆRNESTEDi CUÐLEIF SVEINSDÓTTIR S'IMI 12614 HÁALEITISBRAUT 20 Grundarstig 2a Simi 21777 Hárgreiðslustofan R^.vallagötu '. 2 Simi 18611 T A TAKZMl AW7 TSHULU, PICKE7 UP SY MOWKUZZI'S 'COPTEE, 5E6IU THE JUKSLE-RIVEK SEAECH C0K NUKSE NAOAM‘5 K.l7NAf’?6E5. ÖEWERALYEATS L0ANE? U5 HS ELE?KANT-SUN AN7 P-UM-7UIA EULLETS ,TARZAN! X CAN ^ SLAST THE SfEEFSOAT'S HULL AKIF SINK ) ITl CAKI UJFSE KlAOtAl SWIM? J ■ a Tarzan og Tshulu hafa verið teknir upp f þyrlu Mombuzzis og hefja leitina f frumskóginum að þeim sem rændu Naomi hjúkr unarkonu. Yeats hershöfðingi lánaði okkur fflabyssu sína og dum-dum kúlurnar, Tarzan. Ég get skotið f burtu yfirbyggingu bátsins og sökkt honum. Kann Naomi hjúkrunarkona að synda? Það er of áhættusamt Tshulu, segir Tarzan. Þessir djöflar munu nota hana eins og skjöld fyrir sig ef við notum byssukúlur. REST-BEZT -koddar Endurnýium gömlu ,« sængurnat sigum 'I dún- og fiðurheld ver *J noMi.m æðardúns- og J* tæsadúnssængui — og kodda af ýmsum !) stærðum )■ DUN- OG ;! FIÐURHREINSUN «! Vatnsstlg 3 Sími 18740. J* AWMWiWWWWW

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.