Vísir - 26.03.1965, Blaðsíða 16

Vísir - 26.03.1965, Blaðsíða 16
 ISIR Hádegisverðar- fundur Varðbergs Á hádegisverðarfundi Varðbergs á morgun mun dr. Magnús Z. Sig- urðsson hagfræðingur halda ræðu. Verður fundurinn haldinn í Þjóð- leikhúskjallaranum og hefst kl. 12. 30. Magnús mun segja frá persónu- legum kynnum sínum af stjómar- fari í löndunum fyrir austan járn- tjald. Hann var búsettur í Tékkó- Framh. á bls. 6 Fyrirlestur um kynþúttumúl Dr. C. Eric Lincoln, prófessor í félagssambúð (Social Reiations) við Clark College í Atlanta, f Georgíu fylki, flytur fyrirlestur, sem haim nefnir „The American Negro Move ment: Violent or NoImolent,', í Sig túni kl. 2 á laugardag á vegum Stúdentafélags Reykjavíkur. Dr. Lincoln, sem er blökkumaiðtir er sérfræðlngur í kynþáttamálun- um í Bandaríkjunum, en einkum hefur hann helgað sig athugun á því hvernig þjóðabrot eða minni- hlutakynþættir haga lífi sínu og starfi í stóru þjóðfélagi, sem oft er þeim mótsnú'ið eða fjandsamlegt Allmargar bækur hafa kom'ið út eftir dr. Lincoln og bók hans „The Black Muslims in America, er tal in bezta heimildarrit um þessa hreyfingu, sem kom mjög við Framh. á bls. 6 SINFÓNÍUTÓNLEIKAR í GARÐAHREPPI ÞRJUFELOG STOFNA SAMSTARFS NEFND I UMFERÐARMÁLUM Mikill tónlistaráhugi er í Garðahreppi og hefur þar nýlega verið stofnað fjölmennt tónlist- arfélag, sem rekur tónlistar- skóla. Félagið fékk Sinfónín- hljómsveit Islands til þess að koma í bamaskóla Garðahrepps á miðvikudagskvöldið og halda þar tónleika. Tónleikamir voru mjög vel sóttir, eða ems og skól inn gat frekast rúmað. 1 lokin voru tónlistarmennimir hylltir ákaft. Á myndinni sést hljóm- sveit irstjórinn Páll Pampichler Pálsson lengst til vinstri, þá bak svipurinn á Guðmundi Jónssyni söngvara. Vangasvipurinn sést á hljómsveitarmönnunum Bimi Ólafssyni og Þorvaldi Stein- grfmssyni. Myndin sýnir einnig, hversu þétt var skipað í salnum Slysavamafélag íslands, Fé- Iag fslenzkra bifreiðaeigenda og Bindindisfélag ökumanna hafa stofnað tii samstarfsnefndar um umferðamál Ákveðið er að nefnd in hljóti nafnið Samstarfsnefnd í umferðarmálum, og markmið hennar er fyrst og fremst að vinna að auknu umferðaröryggi og umferðarmenningu í samráði og samstarfi við Iöggjafa og lög reglu, borgara og borgaryfirvöld bifreiðaeftirlit, tryggingafélög og vegamálastjórn, sögðu nefnd armenn á fundi með blaðamönn um f gærdag. Slysavarnafélag íslands skrif- aði F.Í.B. og B.F.Ö. bréf í janúar sl. þess efn'is, að þau félög, ásamt S.V.F.I. stofnuðu til samstarfs um umferðarmál. I þessu bréfi var og bent á, að þessi félög, sem að meira og minna leyti störfuðu að sama marki í umferðar- og öryggis- málum ættu að samstilla þau öfl, sem lægju f skipulagðri starfsemi hinna fjölmðrgu fé- lagsdeilda þessara aðila víðs vegar um landið og með sam- eiginlegu átaki ættu þau að geta komið enn méiru til leiðar, en hvert í sínu lagi. I nefndinni eiga sæti: Hann- es Hafstein frá S.V.F.I. form., Magnús H. Valdimarsson frá F.I.B. og Ásbjöm Magnússon frá B.F.Ö. Nefndafundir hafa verið haldnir vikulega þar sem rædd hafa verið mörg vanda- mál varðandi umferðina, og á hvern hátt þessu samstarfi skuli sem bezt varið. Nefndin hefur rætt um að leita til annarra frjálsra félagssamtaka, sem einnig hafa skipulagða starfsemi félagsdeilda úti um land, og vilja stuðla að auknu öryggi almennings í hinni ört vaxandi umferð. I þessu sambandi má nefna eftirtalda aðila: Rauða kross Islands, Skátahreyfing- una og æskulýðsráð hinna ýmsu bæja og sveitafélaga. «------------------------------ Samstarfsnefnd i umferðarmálum: Magnús H. Valdiimarsson, framkvæmdastjóri F.I.B. Hannes Hafstein fulltrúi S. V. F. I. og Ásbjöm Magnússon form. B. F. Ö. Tryggva Helgasyni veitt leyfi til vöruflutninga í lofti Tryggva Helgasyni flugmanni á Akureyri hefur nú verið veitt loft ferðaskirtelnl til vöruflutninga í | lofti með stóra flugvélinni sinni og fyrir siðustu helgi fór vélin hlaðin vörum tll Vopnafjarðar. Flugmálastjómin hefur ekki vilj- að veita Tryggva loftferðaskírteinl fyrir vélina vegna þess að flugskýli er ekki til staðar fyrir hana á Ak- ureyrarflugvelli. Nú hefur flugmála stjórnin þó veitt undanþágu fyrir flugvélina, sem eingöngu er miðað við vöruflutninga. Þetta leyfi var veitt i vikunni sem leið og þegar í stað hófst Tryggvi handa moj vöraflutninga í lofti. Meirí ís á Akur- eyrarpolli en ver- ið hefur í mörg ár Lagnaðarísinn á AkureyrarpoIIi er nú smám saman að færast utar og er kominn norður fyrir tangann. Enn er þó auður sjór að togara- bryggjunni og þar geta skip enn- þá athafnað sig. Annars er ísinn kominn lengra út en skeð hefur um margra ára skeið. Annars búast Akureyringar ekki mikið við skipakomum úr þessu þar sem siglingaleiðir bæði að aust an og vestan eru tepptar. Flóabát- urinn Drangur er eina skipið sem hreyfir sig úr Akureyrarhöfn, og á þriðjudag kom það úr Skagafjarð- ar- og Siglufjarðarferð til Akureyr ar. Þá var ísinn á pollinum orðinn það þykkur, 8 tommur, að Drangur treysti sér ekki til að brjótast í gegnum hann og lagðist við togara bryggjuna. Ekki taldi skipstjórinn á Drang að fs hefði neinsstaðar hamlað ferðum á leiðinni. Akureyringar hafa undanfarið höggvið vakir á Akureyrarpoll og stundað dorgveiðar, en aflað bæði fátt og smátt. I gærmorgun var þó örlítið örari veiði en verið hefur undanfarið.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.