Vísir - 31.03.1965, Blaðsíða 15
VISIR . Miðvikudagur 31. marz 1»65.
75
jgp
: CECIL ST. LAURENT:
SONUR
KARÓ-
S | r
LINU
Nú var því í rauninni þannig
varið, að samkomulag hafði ver
ið gert um það áður en Pilar
kom á fund Collins, að hann
hitti skæruliða daginn eftir. —
Hánn hugleiddi sem snöggv-
ast hversu einkennilegt það
væri, að Karólína hefði nú falið
honum hlutverk á hendur, sem
krafðist þess, að hann næði
fundi skæruliða. Ákvað hann nú
að draga ekki að fara á fund
þeirra, greip fram í fyrir Pilar,
er hún fór að þakka honum, skip
aði svo fyrir að söðla hest, og
klukkustundu síðar var hann á
reið á leið til fjalla, og lá veg-
urinn í bugðum, títt milli hálsa
og hæða. Sólskin var og það
var heitt. - Áreynslan, áhrif
ferðalagsins, að hafa jafnan eitt
hvað nýtt fyrir augum hugaræs-
ingin, vegna þess sem framund-
an kunni að vera, — allt hjálp-
aði þetta til þess, að honum
veittist léttara að gleyma von-
brigðum sínum. Honum var ekki
boðin hin mikla ást — hann var
beðinn um greiða. Jæja, kannski
var það bezt svo. Hann hafði átt
Karólínu heila nótt. Honum
hafði hlotnazt það, sem hann
hafði dreymt um árum saman.
Og það var ekki víst, að honum
hefði hlotnazt meira í löngu sam
lífi.
Komið var fram yfir sólsetur.
Hann hafði alltaf riðið á bratt-
ann, en nú var hann allt í einu
kominn upp á brún hæðar og svo
lá leiðin niður hlíð. Hann var
staddur í dal, sem var býsna
skuggalegur í kvöldskímunni.
Hann var slæmur í bakinu. Hann
. brosti af tilhugsuninni um, að
það væri ekki eingöngu vegna
þess, að hann hafði setið klukku-
stundum saman á hestbaki, að
T
A
R
l
A
Ið
Ánægðir yfir samningnum, sem
höfðingi þeirra hefur gert um
skipti á Tupelokonum fyrir Kiki
búpening hafa Tupelomennirnir
safnazt saman á torgi þorpsins
hann verkjaði svona í bakið.
— Spánskan mín er léleg, því
er nú verr, herrar mínir!
Hann sagði, þetta er flokkur
skuggalegra manna hafði um-
kringt hann og einn stungið
skammbyssuhlaupi milli rifja
hans. Hann svaraði á frönsku,
er tilraun var gerð til þess að
spyrja hann spjörunum úr. Einn
úr hópnum, svaraði á frönsku,
en talaði með sterkum Kastiliu
hreim:
- Hver eruð þér?
Kveikt var á blysi og sáu
menn nú, að hinn umkringdi var
klæddur einkennisbúningi ensks
liðsforingja. Það fór að örla á
dálítilli kurteisi hjá spyrjendum.
— Haldið þið áfram skæru-
hernaði?, sagði Collins og lét
sem hann væri hissa, þótt búið
sé að reka Frakka úr landi?
Collins var hin rólegasti.
Hann útskýrði fyrir þeim til-
ganginn með ferðalagi sínu. -
Hann ætlaði á fund forsprakka
skæruliða, en þegar hann bað
um, að sér yrði vísuð leið til
bækistöðvar Villa Campo mark
greifa, buðust þeir til að fylgja
honum til hans og var nú sem
fyrri grunsemdir hefðu gufað
upp í hugum þeirra. Og svo heils
uðu þeir með því að bera hendur
að húfum og svö var lagt af
stað.
Allir riðu þeir múlösnum. Þeg
ar í bækistöðina kom fannst hon
um staðurinn með kofum sin-
um minna hann, hvort tveggja
í senn á Zigauna-hreysi og áning
arstöðvar hersveita austur í
Rússlandi. Bál loguðu hér og þar
um búðirnar og i nánd við eld-
ana höfðu margir lagzt niður til
þess að sofa. Þeir höfðu vafið
um sig kápum sínum eða voðum
með þeim konum sínum og dætr-
um, sem þeir óska eftir að fá
skipt á. Nú er kominn tlmi fyrir
okkur Naomi að athuga hvað Tup
elokonur álíta um samning Tula
sváfu með barðastóra hatta
andlitinu til skjóls, en sumir
sátu uppi og reyktu og mösuðu
saman. Collins veitti því athygli,
er menn umkringdu hann af ein
skærri forvitni, að ekki einn ein
asti maður í fangabúðunum var
klæddur eins og hinir.
— Markgreifinn af Villa
Campo er ekki hér, sagði einn
skæruliðanna kurteislega og
mælti á franska tungu. En við
eigum von á honum. Ef þér viljið
gista á okkar vegum er hús hér
nærliggjandi, þar sem þér getið
fengið inni í. Okkur mun takast
að finna eitthvað handa yður til
þess að hvílast á.
Collins fór nærri um hvernig
sér mundi líða í spönsku gisti-
húsi og kvaðst geta sofið undir
berum himni, það væri milt í
veðri.
Honum var fengin kápa, sem
hann lagði ofan á bing úr barr-
trjáanálum. Nálægt honum lá
maður, sem hafði vafið um sig
munkskufli. Lá maður þessi vak
andi, reis upp við dogg, er Coll-
ins kom, kveikti sér í vindli og
fór brátt að tala við hann. Mað
urinn mælti á spönsku, en Coll-
57
ins skildi hann ekki. Þá spurði
munkurinn hann hvort hann
kynni latínu, en fór svo að tala
frönsku reiprennandi.
— Þér eruð enskur og landar
yðar hafa hjálpað okkur, — ef
þið hefðuð ekki brugðið við
mundu frönsku hersveitirnar
enn vera á Spáni og Ferdinand
VII enn vera fangi hjá Serkj-
um. Hann á okkur, skærulið-
unum líf sitt og frelsi og heiður
að þakka - og krúnuna. Þegar
hann kom heim undirritaði hann
stjórnarskrá og ef stjórnað hefði
verið samkvæmt henni hefði
endi verið bundinn á alla kúgun,
og við sem héldum tryggð við
hann og börðumst fyrir hann á
þeim árum, er mest syrti í álinn,
hefðum fengið okkar laun, en
þeir sem voru í Madrid og lágu
marflatir fyrir Pepe konungi
hefðu verið gerðir höfðinu
styttri á höggstokknum. En allt
fór á annan veg en við hugðum.
í stað þess að virða stjórnar-
skrána segir konungurinn nú, að
við hefðum neytt hann til þess
að undirrita hana. Hann reif
hana í tætlur og hann lætur sömu
menn vera við hirð sína og
gengu Jósef konungi á hönd. —
Hann segist taka þá fram yfir
hermenn, sem ekki hafi verið
höfðingja. Höfðingi ykkar gefur
mér Tarzan leyfi til þess að
spyrja ykkur einnar spurningar.
Kikistríðsmennirnir, sem þrá ykk
þjálfaðir í aga, og nú eru erlend-
ar heiðnar' venjur látnar gilda
og fyrirlitnar hetjurnar, sem
börðust til þess að hann gæti
setzt aftur á konungsstól. Vita
skuld höfum við neitað að leggja
niður vopnin og ef við náum í
svikara dæmum við hann í stað
konungsins.
, — Collibs hlustaði með því
meiri áhuga sem lengur leið á
þessa ræðu munksins — ef til
vill kæmist hann nú á slóð d’Arr
anda ofursta?
Honum flaug í hug að spyrja
manninn um hann en hvernig er
hægt að stöðva Spánverja, sem
telur sig hafa verið órétti beitt-
an, og lætur dæluna ganga?
— Þér komið frá Englandi,
hélt munkurinn áfram, svo að
þér getið ekki vitað hversu kom-
ið er hér. Við, sem höfum bar-
izt og þraukað svo lengi, erum
reiðir og hryggir og farnir að
efast um framtíð Spánar. Við
gerðum okkur vonir um Spán,
þar sem frjálslyndi ríkti, en vald
hafarnir eru sinnulausir og kæru
lausir. Og þeir, sem gerðu upp-
reist vegna góðs málefnis, fá
nú að launum, að farið er með
þá sem venjulega glæpamenn,
en þeir sem ganga í lið með
þeim, sem hafa illan málstað,
eru lofsungnir og hylltir sem ætt
jarðarvinir.
Munkurinn tók sér loks dálitla
hvíld, horfði vonleysislega til
himins, andvarpaði og hélt á-
fram:
- Það, sem er skelfilegast af
öllu er það, að almenningur í
landinu er okkur andstæður.
Þeir gera krossmark í hvert
sinn, sem þeir heyra orðið stjórn
arskrá. Og almenningur vill ein
valdskonung og er það vissulega
gleðiefni Ferdinand konungi og
bófunum í Madrid. Það er okkur
mikið sorgarefni, að alþýða
manna er ekki með okkur.
— Takið þið ekki höndum
marga föðurlandssvikara?
Collins gat loks skotið fram
þessari spurningu.
— Heilög þrenning sé mér til
vitnis um það, að kjallarinn und-
ir kirkjunni er fullur af slíkum
svikurum, og nokkrir verða
skotnir í fyrramálið.
Collins spurði einskis frek-
ar. Hann lagðist til svefns og
hann var svo þreyttur, að hann
sofnaði þegar í stað.
Þegar hann vaknaði stóð mað
ur nokkur hjá honum og virti
hann fyrir sér. Skammt frá sátu
skæruliðar að snæðingi. Þeir
dýfðu ausum og bollum í stóra
potta, sem rauk úr, til þess að
ná sér í heitan súkkulaðidrykk.
Maðurinn, sem horfði á Coll-
ins var klæddur spönskum liðs-
foringjabúningi. Hann var klædd
ur eru auðugir menn. Spurning
min er: Viljið þið allar fara til
Kikilandsins til þess að verða
eig'inkoria auðugs Kikieigin-
manns?
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
STEINU og DÓDÓ
Laugavegi 18 3. hæð (lyfta)
Simi 24616
Hárgreiðslustofan PERMA
Garðsenda ?I, sími 33968.
Hárgreiðsli:stofa Ólafar
Björnsdóttur
HATÚNI 6, simi 15493.
Hárgreiðslustofan
PIROL
Grettisgötu 31, sími 14787
Hárgreiðslustofa
VESTURBÆJAR
Grenimel 9, sími 19218.
I Hárgreiðslustofa
I AUSTURBÆJAR
(María Guðmundsdóttir)
Laugavegi 13, simi 14656
Nuddstofa á sama stað.
Dömuhárgreiðsla við allra hæfi
1 TJARNARSTOFAN
I Tjarnargötu 11. Vonarstraetis-
megin simi 14662.
! Hárgreiðslustofan
i Asgarði 22, simi 35310.
HARGREIDSLU
STOFAN
est
' {
ÁSTHILDUR KÆRNESTEdM
GUÐLEIF SVEINSDÓTTIR
SÍMI 12614
HÁALEITISBRAUT 20
VENUS
Grundarstig 2A
Simi 21777
Hárgreiðslustofan
Sólvailagötu 2
Simi 18615
Endumýjum gömlu sængum-
ar, eigum dún- og fiðurheld
ver, æðardúns- og gæsadúns-
sængur og kodda af ýmsum
stærðurr - PÓSTSENDUM.
Rest bezt koddar
Dún- og fiður-
hreinsun,
Vatnsstig £ Slmi 18740
(örfá skreí frá Laugavegi)
PP
Hárgreiðsiustofa