Vísir - 05.04.1965, Blaðsíða 4

Vísir - 05.04.1965, Blaðsíða 4
4 V1SIR . Mánudagur 5. aprfl 1965. íslenzka húsið verður til húsa í Regent Street í síðustu viku skoðuðu stjórn fyrirtækisins Iceland Food Center og framkvæmdastjóri þess Halldór Gröndal húsnæði það í Regent Street, sem stung- ið hafði verið upp á að taka undlr starfsemi fyrirtækisins. Þeim lfkaði vel við staðinn og hafa þeir nú gert samning un að festa sér húsnæðið. Jóni Haraldssyni arkitekt sem fór Mka út tfl London í síðustu viku að skoða staðii* hefur verið falið að gera teikningar að inn- réttingu, og mun hann vinna að þeim hér heima í samráði við f ramkvæmdast j órann. Vísir spurði Halldór Gröndal framkvæmdastjóra um förina til London, en hann kom heim nú um helgina. Hann sagði að þeim hefði litizt vel á staðinn, sér- staklega fyrir það að þetta væri á einum bezta stað í bænum. Það færi ekki á milli mála. I húsnæðinu er núna skrifstofa ísraelska flugfélagsins E1 Al. Halldór sagði hins vegar að plássið væri ekki mjög stórt, en þó engu minna en samsvar- andi fyrirtæki Dana, Norð- manna og Vestur-Þjóðverja hefðu. Væru aðstæður til rekstr- ar frekar þröngar, en í sam- ræmi við það sem tíðkaðist í Englandi fyrir slíkan rekstur. Fyrirkomulag í Iceland Food Center verður þannig, að fremst verður sölubúð, síðan kemur grill þar fyrir innan og veitinga- stofa og innst lítill cocktail-bar. Ætlunin er að fyrirtækið taki til starfa næsta haust. Spærlingur víða þjr sem menn hugðu síld vera A8 undanfömu hafa átt sér stað mfldar lóðningar á sild og spærling fyrtr suðurströndinni. í fyrstu var talað eingöngu um sfldarlóðningar, en bátar sem kastað hafa, fengu sumlr tómar spærling, en enga sfld. — Sfld fyrirfannst iíka sums staðar. Vtða þar sem lóðað var hefir án vafa verið spærlingur, sem menn hugðu sfldina vera. Um sfldina er það að segja, að hún mun. vera alldreifð — hefir ekki þjappazt saman. Gæti þetta verið vorgots- sild á leið á hrygningarsvæðin fyrir suðurströndinni, en þó er þetta órannsakað mál. Um spærlinginn er það að segja, að þetta er smávaxin tegund af þorskfiski, sérstök tegund, sem ekki nær nema 15—20 sm. lengd, og er góð áta fyrir stærri fiska, — Spærlingur hrúgast oft saman á grunnsævi. Þorskveiðamar. Afli á nótabáta frá Vestmanna- eyjum var mjög misjafn i gær, frá 1 tonni upp í 26 tonn á bát. Marg- ir voru með 10—15 tonn. Netabátar voru með 8—15 tonn og var þetta tveggja nátta fiskur. FIB — Áburdarverksm. — Framhald af bls. 1. til orkufrekrar framleiðslu, ] eins og vinnslu vatnsefnis. Áburðarverksmiðjan framleið ir nú um 2/3 hluta þess köfn- unarefnis, sem notað er í land- inu, sem samsvarar 30 þús. tonn um miðað við Kjarnaáburð. Að því er Hjálmar Finnsson segir má búast við að næstu árin fari raforka til verksmiðj- unnar enn minnkandi, þar sem umframorka Sogsvirkjunar er notuð í æ ríkari mæli af almenr. um neytendum. Skipið he'itir Heroya, er norskt og kemur með ammoníak ið frá Norsk Hydro, sem er heimsfræg áburðarverksmiðja. ------ i iqtnaiLi Vcrzlunarb. — Framh. af bls. 12. bankans. Voru reikningarn'ir sam þykktir samhlióða. í bankaráð voru þessir menn endurkjömir: Egill Guttormsson, stórkaupmaður, Þorvaldur Guð- mundsson forstjóri og Magnús J. Brynjólfsson kaupmaður. Vara- menn voru kiörnir Sveinn Bjöms- son, skókaupmaður, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, stórkaupmaður og Haraldur Sveinsson forstjóri. End urskoðendur voru kjömir Jón Heigason, kaupmaður og Sveinn Björnsson, stórkaupmaður. Fundurinn var fjölsóttur. Sóttu hann um 200 hluthafar. Engin ákvörðun um starfsemi tryggingafélagsins verður tek- in fyrr en könnun þessarj er lokið. Á undirskriftarlistum þeim, sem liggja frammi og sendir verða umboðsmönnum, segir m. a. að félagið muni fylgja í rékstri sínum þeim meginregl- um í tryggingastarfsemi, sem F.Í.B. hefur sett fram, þ.e. á- hættuskipingu eftir aldri, starfi, ökuþekkingu, akstursreynslu, ökuumhverfi o.fl. Ennfremur verður tryggingaþegum gefinn kostur á sjálfsáhættu í skyldu- tryggingum. Strax í morgun, klukkustund eftir að skrifstofa félagsins opn aði voru menn byrjað'ir að skrifa sig fyrir fjárupphæðum, sem þeir eru reiðubúnir að 'eggia fram eða ábyrgjast ef fé- lagið verður stofnað. Eins og fyrr segir er lágmarksframlag 5 þús. kr., þar af 2 þús. kr. tfl út borgunar strax ef félagið verð- ur stofnað. Loftleidir « r Hilmar og Jakob Islands- meistarar í tvímenning Se'int í gærkvöldi lauk tvímenn- ingskeppni Islandsmótsins í bridge og sigruðu Hílmar Guðmundsson og Jakob Bjarnason frá Bridgefé- lagi Reykjavfkur. Röð og stig efstu paranna í méistaraflokki var þannig: 1. Hilmar Guðmundsson — Jakob Bjarnason BR 1584 stig. 2. Sfmon Símonarson — Þorgeir Sigurðsson BR 1545 stig. 3. Ásmundur Pálsson — Hjalti E1 iasson BR 1542 stig. 4. Jón Arason — Sigurður Helga- son BR 1516 stig. 5. Steinþór Ásgeirsson — Þor- steinn Þorsteinsson TBK 1513 stig. 6. Ásbjörn Jónsson — Jón Ás- björnsson BR 1503 stig. 7. Kristján Andrésson — Reynir Eyjólfsson BH 1502 stig. 8. Einar Þorfinnsson — Gunnar Guðmundsson BR 1499 stig. 9. Stefán Guðjohnsen — Þórir Sig urðsson BR 1491 stig. 10. Rósmundur Guðmundsson — Stefán Jónson TBK 1448 stig. Einn'ig var keppt í I. flokki og sigruðu þar með miklum yfirburð um Ólafur Þorsteinsson og Sveinn Helgason frá Bridgefélagi Reykja- víkur. Röð og stig þriggja efstu var þannig: 1. Ólafur Þorsteinsson — Sveinn Helgason BR 1667 stig. 2. Óli Öm Ólafsson — Alfred Vikt- orsson 1585 stig. 3. Oliver Kristófersson — Vilhjálm ur Aðalsteinsson BAK 1555 stig. Sveitakeppni íslandsmótsins hefst n.k. mánudagskvöld og verð ur spilað á Hótel Sögu. Framh. at bls. 1 Loftleiðir virtust þeirra skoðun- ar, að tölumar, sem hér að framan greinir væru sízt of háar. — Formaður samn- inganefndar flugmanna, taldi tölumar hins vegar alrangar og nefndi sem dæmi, að það væri ekki rétt að telja tryggingu flug manna sem Iið í launum þeirra. Fomaður samninganefndar flugmanna sagði, að þeir byggðu kröfur sínar á þvf, að það tíðk aðist alls staðar, að laun flug- manna hækkuðu eftir því sem vélarnar er þeir stýrðu stækk- uðu. Hann sagði að þegar Rolls Royce flugvélarnar hefðu komið, hefðu flugmennirnir farið að fljúga þeim með þeim fyrirvara að gerðir yrðu samningar um sérstök kjör á þeim og teldu flugmenn að launin samkvæmt nýjum samningum ættu þá að greiðast aftur í tíma til þeirrar stundar er þeir hófu það flug. Þá sagði hann að flugmennim ir gætu ekkert sagt við því, þó erlendar leiguflugvélar af ann- arri tegund væru teknar á leigu og ennfremur væru þeir flug- mennimir reiðubúnir að fljúga eldri flugvélunum samkvæmt samningum. Þó bæri þess að geta að samningarnir frá s. 1. vori um flug á eldri flugvélum hefðu verið gerðir með þeim fyrirvara, að samningar tækj- ust um laun á Rolls Royce-vél- unum. , Verkfall þetta sem stöðvar hin ar dým flugvélar Loftleiða nær aðeins til 24 manna, það er 12 flugstjóra og 12 aðstoðarflug- manna. Það snertir ekki kjör annarra í áhöfninni. Lækningastofa Hef opnað lækningastofu á Klapparstíg 25, sími 11228. Viðtalstími 1,30—3 á laugard. 10—11. Símaviðtalstími kl. 9—10 í síma 12711 Þorgeir Jónsson, læknir í fermingaveizluna Smurt brauð, snittur og brauðtertur. Pantið tímanlega. Fjölbreytt álegg. Pantanir teknar í síma 24631. BRAUÐHÚSIÐ Lougavegi 126 ARSHATIÐ Árshátíð Kvenstúdentafélgs íslands verður haldin í Þjóðleikhúskjallaranum miðvikud. 7. apríl, og hefst með borðhaldi kl. 20 Stjómin. Afgreiðslustúlka óskast Afgreiðslustúlka óskast. Vaktaskipti. Uppl. RAUÐA MYLLAN, Laugavegi 22 og í sími 13628. Byggingavinna Verkamenn óskast í byggingavinnu. Uppl. í síma 33395 og 18017 Hjarðarhaga 44 kl. 4—7 daglega. Laust embætti er forsefi íslands veifir Sýslumannsembættið í Snæfellsness- og Hnappadalssýslu er laust til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi ríkisstarfs- manna. Umsóknarfrestur til 1. maí 1965. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið 3. apríl 1965.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.