Vísir - 05.04.1965, Side 5
ITlSIR . Mánudagnr 5. aprfl 1965.
5
GfiflAR
FERMiNGARGJAFIR
FR'A KODAK
KODAK VECTA
myndavél í gjafakassa, meC tösku
og tveim filmum, KR. 367,—
KODAK
INSTAMATIC100
meÖ innbyggðiun flashlampa, er alveg sjálfviik.
í gjafakassa með filmu,
4 flashperum og batteríum, KR. 983,—
Áh gjafakassa, KR. 864,—
KODAK
BROWNIE 44A
....ðdýrengóðvéL í tösku, ^KR.436,—
Flashlampi KR. 193,—
ÞaS eru til 4 mismunandi filmur I
KODAK INSTAMATIC :
VERICHROME PAN fyrir svart/hvítt,
KODACHROME-X fyrir lit-skúggamyndir og
KOÐACOLOR-X fyrir litmyndir. —
Myndastærðin er 9x9 sm.
Filmurnar eru í ljösþéttum KODAK-hylkjum
sem sett eru f vélina á augnabliki, engin
þræðing, og vélin er tilbúin til myndatöku.
mm ifetœm
SiMi 2 0313 BANKASTRÆTI 4
íslnn —
Framh. af bls. .7
en svo kalt var þann dag, að
Sveinn lá lengst af í rúminu
sökum „kulda og hungurs."
Næstu þrjá dagana hélzt sami
kuldinn og björg þraut hjá al-
menningi. En Sveinn, sem var
alUm manna orðvarastur kveð
ur vitanlegt að þeir Möller fakt
or og Steincke kaupmaður„hafi
bæði fleiri kjöttunnur brauð og
mjöl ,sem þeir liggja á og
geyma, þó að hungursdauði vofi
yfir allt í kringum þá,“ og hann
kveður almælt, að amtmaðurinn
á Möðruvöllum hafi fengið
kornmat hjá Möller handa sér.
Þann 14. júní kom sendimað-
urinn úr Vopnafjarðarförinni
með tóbakið. Þá fréttist til skipa
f ísnum. Hofsósskipið hafði
strandað við Siglufjörð, bark-
skipið til Akureyrar lá út við
Höfðastekk og reið Möller fakt
or strax þangað út eftir, að
vitja um það, en kom jafnnær
aftur sfðla nætur, því að skipið
hafði þá siglt út úr fjarðarkjaft
inum aftur austur fyrir. Þann
15. júní voru menn úti í Odd-
eyrarbót að eltast við höfr-
unga og náðu einhverjun}. Dag-
inn eftir var allt í einu komin
suðaustangola og hlýviðri, þá
fréttist að barkskipið væri í
hættu statt út af Hvanndala-
bjargi. 17. júní rak ísinn út í
fjarðarkjaftinn fyrir hlýrri sunn
angolu, og urðu menn nú von-
betri, og þann 18. bárust þær
miklu fréttir, að sýslumaður,
sem kominn var út í Siglufjörð
hefði ákveðið að halda uppboð
á hinu strandaða skipi þar, en
f því var mikið af mjölmat og
öðrum varningi, sem almenn-
ing vantaði mest. Tóku nokkrir
Akureyringar sig saman um að
fara þangað á tveim bátum, og
var Sveinn einn af þeim.
Til Siglufjarðar komu þeir fé-
lagar þann 19. júní, eftir harðan
þrettán tíma róður meðfram
landi. Báru þeir hafurtask sitt
f land og tjölduðu, strandaða
skipið lá langt úti í fsnum, en
farmurinn hafði verið borinnupp
f 'fjöruna og settur á segl, meðal
annars mjölvaran, sem öll var
meira og minna sjóblaut.
Uppboðið fór fram þann 21.
júnf, en þá var komið blíðskap-
arveður á daginn. Kalt var þeim
félögum þó að liggja í tjaldi á
nóttunni. „Manngrúi er hér
feikilegur og fjöldi hungraðra,
sem alltaf sjóða niður sjó-
blautan kornmat og hakka hann
hálfhráan úr pottunum með
skeljum, spýtum og hverju sem
fyrir verður. Við lágum f tjald
nefnum okkar hraktir og blautir
um nóttina. Ég sofnaði lítið.“
Uppboðinu lauk kl. 4 þann
22. júní. Báru þeir Sveinn og fé-
lagar hans þá á bát sinn og
reru sömu leið með landi til
baka, en nú tók róðurinn þá 21
klukkustund enda urðu íshöft
fyrir þeim allvfða. Þann 23. júní
var veður mildara en áður, fsinn
á brott úr Eyjafirði og hlaðafli
á báta af öllum fiski, sem bætti
mjög úr matarskortinum. Reynd
ist sær gjöfull sem oftar, og
sannaðist þar hin snjalla líking
Matthfasar í kvæðinu um hafís-
inn, að þá sé tekið brjóst úr
munni bami, þegar samfelld haf
þökin byrgi mönnum þann
nægtabrunn.
ÞRJÚ HAFÍSSKÁLD
Þrjú öndvegisskáld íslenzk
hafa ort mikil kvæði um hafís-
inn, og eru öll uppi á sömu öld
inni, Matthías Jochumsson,
Hannes Hafstein og Einar Bene
diktsson. Allir eiga þeir það
sameiginlegt að hafa átt heima
á Norðurlandi, Matthías síðari
hhita ævf nstonar. Hanaes á
bemsku- og ungli ngsárum, Ein-
ar um nokknrt skeið á ungUngs
árum sfnum norður á Héðins-
hðfða, en þangað fluttist hann,
eins og kunnugt er, með föður
sínum eftir að foreldrar hans
skildu samvistir. Ekki er nóg
með það, að mjög séu þessi þrjú
kvæði ólfk að formi og tjáningu
heldur túlka þau sitt hvert við
horf til landsins foma fjanda,
og er táknrænt hve það verður
að sama skapi óhlutdrægara og
mildara hjá þeim Hannesi og
Einari, sem þeir em yngri menn
en vestfirzki víkingurinn.
Kvæði hans er kveðið af ham-
remi kraftaskáldsins, hann geng
ur þar á hólm við erkifjanda
þjóðarinnar og dregur ekki af
sér, enda veit hann þar engan
veifiskata fyrir. Kvæði Hannes
ar er hetjudrápan um forystu-
manninn, sem leiðbeinir fari og
skipshöfn ömgga lelð gegnum
síbreytilega jakabreiðuna — og
mundi margur mega þar kenna
stjómmálamanninn, sem á í
vök að verjast gegn misskiln-
ingi og þröngsýni. „öllum hafís
er verri hjartans ís,“ segir
hann og heldur svo líkingunni
áfram þannig, að allir mega
skilja. Kvæði Einars er háheim-
spekilegt, en óhlutlægara en
kvæði Hannesar, hann sér f haf-
ísnum eins konar „hliðstæðu“
hreinsunareldsins f trúarbrögð-
um af austrænni rót — hánor-
rænan dularmátt sem skýrir sál
ir sinna og magnar þær undra
orku kaldra segulstrauma.
Hvemig skyldu nútímaskáld
kveða um hafísinn? Eða kannski
þeim þyki hann ekki drápunn-
ar verður?
Kirkja —
h. bls. 3:
ar gjafir_ og má þar fyrst nefna
kirkjuklukkuna, sem numin var
brott úr gömlu Mosfellskirkj-
unni á haustnóttum árið 1888 og
varðveitt á Hrfsbrú, hefur klukk
an nú verið sett vinstra megin
við altari nýju kirkjunnar. Ann-
ar gamall gripur var einnig
færður kirkjunni silfurkaleikur,
sem sömuleiðis var numinn
brott úr gömlu kirkjunni á Mos
felli. Einnig bámst kirkjunni
hökull, sem vígður var f ldrkj-
unni og er hann gjöf frá nokkr-
um vinum Stefáns Þorlákssonar,
koparstjakar frá hjónunum á
Litla Mosfelli þeim Katrfnu Guð
mundsdóttur og Skarphéðni Sig
urðssyni, silfurskál i minningu
Sveins Gíslasonar í Leirvogs-
tungu silfurstjakar frá Elin-
borgu og Ólafíu Andrésdætrum
frá Hrísbrú, böm séra Magnúsar
Þorsteinssonar gáfu blóm, blóma
vasa úr silfri og oblátudisk sem
vfgður var við altarisgönguna,
Lára Skúladóttir frá Mosfelli gaf
silfurstjaka, sem var gjöf
synodusarpresta á silfurbrúð-
kaupsdegi foreldra hennar, alt-
arisdúk og altarisbrún úr hör
gaf Sigrún Jónsdóttir, biskup og
biskupsfrú gáfu kirkjunni sálma
bækur, auk þess barst kirkjunni
fjöldi blóma.
Eftir athöfnina bauð Kven-
félag Lágafellssóknar vígslu-
gestum til kaffidrykkju að Hlé-
garði.
Máiverk —
Framh. af bls. 12.
sömu ferð eftir Dayes, en þær
eru nú komnar í eigu Þjóð-
minjasafnsins.
Nokkrar myndanna, sem nú
voru boðnar upp, voru frá
Orkneyjum og Færeyjum, en
níu frá íslandi. Það vakti at-
hygli, þegar að þeim kom, að
hinir velþekktu listaverkasalar
Thos. Agnew & Sons í 43 Old
Bond Street hófu ákveðin boð f
þessar myndir. Lauk svo, að
þeir náðu átta þeirra, .en einni
náðu listaverkasalamir Leger.
Var það mynd af brennisteins-
námum við Krýsufk og fór hún
á 160 pund.
Agnew bauð f myndimar af
hálfu íslenzkra opinberra aðila.
Þeir fengu myndina af Reykja-
vfkurhöfn, sem hér birtist, á
280 pund, aðra mynd af Reykja-
vík og höfninni á 150 pund,
mynd af tjaldbúðum við Reykja
vík á 70 pund, mynd af Stapa
á Snæfellsjökli á 110 pund,
mynd af Heklu á 130 pund,
mynd af Hafnarfirði á 85 pund,
mynd af tindi Snæfellsjökuls á
130 pund og mynd af Vest-
mannaeyjum, sem varð dýmst
á 480 pund. Alls eru þetta 1535
pund eða nálægt 200 þúsund
krónum, þegar umboðslaunum
hefur verið bætt við.
Mönnum hefur fram að þessu
verið lítið kunnugt um þessar
myndir. f sáfni Alderley lávarð-
anna, en þær eru merk menn-
ingarsögules heimild um ís-
lenzkt þjóðlíf í lok átjándu ald-
ar. Má fastlega reikna með því,
að þær verði hafðar til sýnis í
Þjóðminjasafninu, þegar þær
koma til landsins, en blaðið
fékk í morgun staðfest, að fs-
lenzka ríkið og fleiri opinberir
aðilar hafi staðið á bak við til-
boð Agnew.
Slys —
Framh. af bls. 1.
hann jeppa niður flugbrautina
Rákust bílarnir á með fyrr-
greindum afleið’ingum. Félagi
Harðar meiddist en ekki lífs-
hættulega. Var hann fluttur í
Landakotsspftala. Ökumaður
jeppabifreiðarinnar skarst í and
lit'i.
Um kl. 14.15 á laugardaginn
slösuðust 3 ungir piltar í á-
rekstri við Baldurshaga. Vom
þeir á austurleið og óku ný-
legri Skodab'ifreið, sem faðir
eins piltsins átti. Slysið varð
með þeim hætti, að Skodabif-
re'iðin var að aka framúr ann-
arri bifreið á hæðinni við Bald-
urshaga, þegar stór vöruflutn-
ingabifreið kom á mót'i. Mun
ökumanni Skodabifreiðarinnar
hafa fatazt eitthvað aksturinn
og lenti bifreiðin á vinstra fram
homi vörubifreiðarinnar. Á-
reksturinn varð mjög harður og
kastaðist Skodabifreiðin út af
veginum og lenti á hliðinni. Pilt-
amir f Skodabifreiðinni slösuð-
ust allir, en ökumaðurinn þó
mest. Var hann fluttur f sjúkra
hús, en félagar hans 2 fengu
að fara heim eftir að gert hafði
verið að sámm þeirra í Slysa-
varðstofunni.
Um kl. 18 á laugardag varð
geysiharður árekstur inni á
Laugarnesvegi. Stórskemmdist
þar lítil fólksbifreið af gerðínni
Prins og er hún að kalla má
ónýt. Áreksturinn átti sér stað
móts við húsið nr. 78 við Laug
amesveg. Simca-fólksbifreið
var ekið vestur Laugamesveg,
en Prinsinn ók austur og var sú
síðarnefnda að beygja til hægri
að húsi, þegar áreksturinn átti
sér stað. Lenti S'imca-bifreiðin
aftan á Prinsinum ög varð á-
reksturinn geysiharður. Snerist
Prinsinn í heilan hring og kast-
aðist ökumaður hans út. Simca-
bifreiðin rann sfðan stjómlaust
áfram alllangan spöl. Ökumaður
Prins-bifreiðarinnar var fluttur
á Slysavarðstofuna, en meiðsli
hans vom ekki talin mjög alvar
leg.
Fimmtón
fórust í
landskjúlfta
í morgun
Hátt á annað hundrað húsa
hmndu og að minnsta kosti 15
menn biðu bana er landskjálfti
lagði í rústir að mestu tvö þorp
á Grikklandi snemma f morgun.
Fréttaritarar blaða telja, að
helmingi fleiri munl hafa farizt
og yfir 100 manns meiðzt.