Vísir - 14.04.1965, Blaðsíða 6

Vísir - 14.04.1965, Blaðsíða 6
VÍSIR . Miðvikudagur 14. aprfl 1965. Útlitií gott í öræfaferð - segir Guömundur Jónasson Guðmundur Jónasson fer nú um páskana, eins og mörg und- anfarin ár austur í Öræfi með farþega héðan úr bænum. Vísir hafði við hann stutt spjall um ferðina og annað í sambandi við ferðir um páskana. — Nú er hentugasti tíminn á árinu að fara austur í Öræfa- sveit, sagði Guðmundur, vegna þess að fljótin, sem eru aðal- tálminn, eru minnst á þessum tima. Leysingar eru ekki veru- legar ennþá. Með mér fara að þessu sinni um 100 manns, sem er heldur minna en í fyrra, þá fóru um 120 manns. Ástæðan fyrir því að nú fara heldur færri er lík- lega sú, að í fyrra komumst við ekki lengra en að Skriðuklaustri. Vatnsföllin fyrir austan Skriðu- klaustur höfðu bólgnað svo mik- ið upp, að með öllu var ófært yfir þau. Nú aftur á móti lítur mjög vel út eftir því sem ég hef heyrt. Vegna kuldanna und- anfarið eru árnar eins og þær verða minnstar. Þetta verður fimm dagá ferð. Gist í tvær nætur í félagsheim- ilinu að Hofi í öræfasveit, en ég hef fengið það til ráðstöfun- ar. Einnig verður gist í tvær nætur að Skriðuklaustri, fyrstu nóttina og þá seinustu. Verði veðrið gott, reikna ég með að einhverjir vilji gista í tjöldum og hef ég því með mér tjöld. Viltu ekki gefa fólki, sem nú fer í einhverjar ferðir um pásk- ana, ráðleggingar? Ja, það væri þá helzt það, að klæða sig vel. Það er helzt það, sem að er hjá fólki ef eitthvað er að. Það er enginn vandi að fækka klæðum ef veðrið verður gott, en aftur á móti er erfitt að klæðast þeim fötum, sem ekki eru til. Einnig vil ég vara fólk við að flana ekki út í neitt. Fólk getur hæglega fest bíla sína uppi í óbyggðum, eða þeir bilað. Ég hef heyrt um að það hafi komið fyrir, t. d. nú í haust að menn úr Húnavatnssýslu festu bíl sinn við Seyðisá. Þetta voru ungir menn og hraustir og kom það þvi ekki að sök. Þeir gengu til byggða og voru um 20 tíma á leiðinni, en það hefðu ekki allir leikið eftir þeim. Olav — Leikur einleik á fiðlu með Sinfóníuhljómsveitinni Ingvar Jónasson leikur í fyrsta sinn einleik á fiðlu með Sinfóníu hljómsveitinni á næstu tónleikum hennar, sem verða á skírdagskvöld Ingvar er 37 ára að aldri, kennari við Tónlistarskólann og hefur Ieik Ferðalög — ■ Framhald af bls. .1. ana og fjöldi manns hefur notfært sér skíðafargjöldin til ísafjarðar, og eins fil Akureyrar, en þar fer Skíða landsmótið nú fram og hpfst í dag í'Hlíðarfjalli. í dag.eru 4 ferð- ir til Akureyrar. , . Gúllfoss fer einnig til Vést- mannaeyja í kvöld til að losa þar farm og iesta, en fjölmargir hafa hringt og fengið far með skipihu, én það kemur aftúr á föstudag fyrir hádegí. Farið með Gnllfossi kostar 560 krónur fram og til baka, en fæði er ekki inriifal- ið. Án efa munu margir skreppa um næsta nágrenni Reykjavíkur 1 góða '• veðrinu um páskana og má í því tilefni m’inna á að veitirigástaðir í næsta nágrenni eru opnir. Þegar er opið I Skíðaskálanum I Hvera- dölum, þar sem margir koma og fá sér hressingu, og í dag hefur Valhöll á Þingvöllum starfsemi sína og er það talsvert fyrr en ver- ið hefur á undanfömum árum. Ingvar Jónasson ið með Sinfóníunni í 15 ár. Stund að hann fyrst nám hér en fór svo til framhaldsnáms til London og síðar til Vínarborgar. Stjórnandi hljómleikanna verður Igor Buketoff. Á efnisskránni verða þessi verk flutt í fyrsta sinn hér á landi: Svíta fyrir strengi op. 1 eft ir Carl.Nielsen, Sálmaforleikur eftir Yardumian, Sinfónía Sacra eftir Hanson, en þessir tveir síðast- töldu eru bandarísk tónskáld og Páskaforleikur eftir Rimsky Korsa koff. Ingvar Jónasson leikur á tón- le'ikunum Fiðlukonsert nr. 1 í g- moll eftir Max Bruch. Aflinn — Framh. af bls. 1. frá Eyjum ekki athafnað sig .og vom farnir að koma inn er biaðið átti tal við frétta ritara sinn í Eyjum kl. 9-10. Líklegt er að meira af þorski hafi verið landað í gær, en á nokkrum öðrum degi þorskver tíðar til þessa, en ýtarlegar upplýsingar eru ekki fyrir hendi úr sumum verstöðvum, þegar þetta er skrifað. Batni gæftir aftur eru menn bjartsýnni um að úr rætist og síðari hluti vertíðar verði drjúg ur. Afli eftirtalinna báta, sem eru með nót og löndrið.u f Þorláks- höfn var sem h,éi;,;spgir: Óskar Háildórssori 75 tonri, ÁsbjöfriTO: Þorsteinn 65. Sigurvon 65, Ögri 50, Vigri 50, Súlan 40, Jör- undur II. 40, Þórður Jónasson 40 Pétur Sigurðsson og senni- lega fleiri úm 30 torin. Afli netabáta frá Reykjavík var jafnari og betri en verið hefur. Lisfamenn — Framh. af bls. 8 Háskólabíói og annað kvöld mun það svo koma fram á tónleikum fyrir almenning í Háskólabíói og á fimmtudag kl. 17. Skrif- stofa skemmtikrafta sér um tvo síðasttöldu tónleikana. Stúdentsefni Verzlunarskólans „dimitteruðu“ í gær. Tóku þeir upp á því nýmæli að fara á reiðhjóium um bæinn, en hingað til hafa dráttarvélar aðallega verið notaðar til þess. Hér hafa Verzlunarskólanemar gefið heiisusamlegt fordæmi. Framh. af bls. 1. indamaður Vísis brá sér um borð í Kronprins Olav í morgun og hafði stutt spjall við skip- stjórann, Djurhuus, sem er fær- eyskur að uppruna. — Hvernig gekk ferðin hing- að upp Djurhuus? — Ferðin gekk mjög vel. Við fengum slæmt í sjóinn skömmu áður en við komum til Færeyja og stóð skipið sig mjög vel í þeirri reynslu. í Færeyjum feng um við góðar móttökur, margir komu niður á bryggju til að taka á móti okkur og lúðrasveit stóð á bryggjunni þegar við kom um. Ferðin frá Færeyjum til ís- lands var hin ánægjulegasta. Við fengum hið bezta veður og vorum miklu fljótari í ferðum en á Drottningunni gömlu. Kron prins Olav fer 18l/2 hnút á móti því að Drottningin fór 12 hnúta. Svo hér munar nokkru. Prinsinn er því 3Y2 sólarhring héðan til Hafnar með viðkomu í Færeyj- um, en Drottningin var 5 sólar- hringa. —, Ert þú ekki ánægður með að hafa fengið þama nýtt skip? — Jú skiljanlega. Nýr prins er betri en gömul drottning. Drottningin var orðin skelfilega gömul. Þetta er að vísu ekki alveg nýtt skip, var byggt 1937, en það er samt miklu betra en það gamla. Það er einnig miklu stærra, eða 1874 tonn og getur tekið 295 farþega. — í hvaða ferðum var skipið notað áður? — Það var í ferðum milli Osló og Hafnar frá 1937 þangað til fyrir ári, en í ár hefur það verið í ferðum á milli Hafnar og Friðrikshafnar, sem er hafnar bær í N-Jótlandi, en mikill hluti fólks, sem fer frá Skandinaviu fer þar yfir þegar það fer suður á bóginn. — Hvað hefur þú siglt lengi til íslands? — Ég byrjaði 1937 og var 3. stýrimaður fram að striðsbyrj un, en á stríðsárunum var ég á skipum í Eystrasaltinu. 1945 byrjaði ég svo aftur að sigla tii íslands, sem annar stýrimaður, en var öðru hvoru 1. stýrimað- ur. Árið 1961 varð ég skipstjóri og hef verið það síðan. — Hvernig kanntu við það að sigla hingað? — Prýðilega, ég þurfti fyrst að venjast veðrinu og hef ég lært að sætta mig við það. Einn ig hef eignazt hér marga kunn- ingja, sem er mikils virði. Ég kann vel við hið bjarta sumar, en það er verst að maður þarf að borga fyrir það á veturoa. Hjartavernd — Framh. af bls. 16 Hjartaverndar önnur stórmál tí! úr lausnar og kemur fyrst til greina sérstök bifreið búin öllum tækjum til almenningsrannsókna í hinum dreifðu byggðum landsins og seinna undirbúningur að stofnun hress- ingar- og endumæringarstöðvar fyr ir hjartasjúka. Ef þetta á að takast, vonast stjóm Hjartavemdar til að þeir einstak- lingar og fyrirtæki sem enn hefur ekki unnizt tími að tala við, muni bregðast eins vel við og þeir að- ilar, sem nú þegar hefur verið leit- að til og hafa sýnt málstaðnum óvenju góðan skilning og velvilja. VORKVÖLD með rússneskum þjóðlistamönnum frá STÓRA LEIK- , HÚSINU í Moskvu í HÁSKÓLABÍÓI miðvikudaginn 14. apríl kl. 9 og fimmtudaginn 15. apríl kl. 5. 1. Píanóleikur: V. VIKTOROV, konsert- meistari. 2. Listdans: E. RJABINKINA, sólódansmær. 3. Einsöngur: A. IVANOV, baritonsöngv- arinn frægi. Aðgöngumiðar hjá Lárusi Blöndal, Mál og menningu og Háskólabíói. SKRIFSTOFA SKEMMTIKRAFTA Pétur Pétursson. Skrifstofustúlka óskar eftir atvinnu síðari hluta dags. Tilboð sendist Vísi fyrir 22. þ. m. merkt „Vön — 203“. urnar ----í GLEYMMÉREI alla páskana- Opið til kl. 13.00 á skírdag og til kl. 14.00 á annan í páskum. GLEYMMÉREI. Sundlaugavegi 12 . Sími 22851 Rennismiður Rennismiður eða vélvirki óskast strax. STÁLUMBÚÐIR h/f. Kleppsvegi. Sími 36145

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.