Vísir - 14.04.1965, Page 11
FRAM NÁÐI ABEINS
JÖFNU GECN GULLFOSS
llla nýtt tækifæri Framara — éfal
stangarskot og 5 víti varin
Barátta Framara og Gull-
foss-manna á Hálogalandi
mun líklega verða sú síð-
asta í þeim sal í handknatt-
leik í vetur og var jafn-
framt sú lang harðvítug-
íista. Var harkan í leiknum
WNAAAAAAAAAAAAA/VyV'i
óstjórnleg og vísaði dóm-
urinn, Reynir Ólafsson, 5
leikmönnum af velli um
stundarsakir, — en í raun-
inni hefði verið ástæða til
að vísa mun fleiri út af.
Gullfoss-menn máttu ann-
ars þakka fyrir jafnteflið,
19:19, og eins hve vægt var
tekið á allt of grófum brot-
um þeirra.
Varnir beggja voru mjög góðar,
sérstaklega í fyrri hálfleik og mark
vörðunum óx ásmegin við að hafa
svo traustan vegg fyrir framan sig
og vörðu báðir vel. Danir komust
yfir í upphafi, en Guðjón Jónsson
jafnaði. Næstu 3 mörk voru frá
Dönum og leiddu þeir mestallan
hálfleikinn, en Fram tókst að jafna
og ná forystu seint í hálfleiknum,
mest fyrir góðan leikkafla Guð-
jóns Jónssonar ,sem fyrst sendi
stórkostlega sendingu inn á línu til
Sigurðar Eiharssönáf, 'g'ein jafnaði
7:7 og skoraði síðan tvö falleg
mörk. Fram hafði yfir í hálfleik
10:8.
Danir jöfnuðu í 11:11 i seinni
hálfleik og í 12:12 og 13:13 en kom
ust aftur yfir í 14:13 og skömmu
síðar var farið að syrta heldur í
álinn hjá Fram, þvi Danirnir skor
uðu þrjú mörk í röð og voru þá
yfir 17:14.
Þá loks byrjaði Gunnlaugur að
skjóta, en hlutskipti hans í þessum
leik var sannarlega ekki öfunds-
vert, því að hann var nánast hund
eltur og á honum níðzt. Gunnlaug-
ur skoraði nú tvö mörk en Danir
skora eitt mark á milli og síðan
skorar hann aftur og Guðjón jafn-
ar 18:18.
Þá gerist það að Gunnlaugur er
rekinn út af velli þegar 3 minútur
eru eftir. Var það i annað sinn
þetta kvöld sem hann var látinn
víkja af velli. I fyrsta skiptið mun
ástæðan hafa verið að hann sagði:
„Ef þetta eru ekki skref...“ og
í seinna skiptið: „ ... þá held ég
þetta séu nú skref“. Annars mót-
mæltu Danir sumum dómum líka
en voru ekki látnir víkja af velli
og var það heldur mikið misræmi.
/Eftir þptta var ekkert mark skor-
að, nema að Gylfi Hjálmarsson skor
aði en þá voru dæmd á hann of
mörg skref.
Framliðið var langt frá sínu
bezta í þessum leik, en átti skilið
engu að síður að vinna með 4—5
mö rkuffi'M' er ekki eðlilegt að
lata mariívörð verja 5 vítaköst í
einum leik. Það er líka óheppni
að láta stengumar hafa fyrir 10—
12 skotum í leik, en það gerðist
Fyrsti sigur Keflavíkur
Þarna er 2. flokkur kvenna í Keflavík. Þær unnu
fyrsta íslandsmótið fyrir ÍBK. Þjálfari þeirra er
Pétur Bjarnason.
í þessum leik. Danimir vom líka
heldur harðhentir i vörninni og
varzla þeirra á Gunnlaugi var furðu
leg og hefði átt að dæma harðar
á hana en gert var. Beztu menn
í leiknum vom Gylfi Jóhannsson,
sem skoraði mest af mörkum Fram
Þorgeir markvörður, Guðjón á smá
köflum og Gunnlaugur sömuleið-1
is. Beztu menn Dananna vom mark
vörðurinn og Skipper Nielsen.
Reynir Ólafsson, dómari, var sá
maðurinn í þéttskipuðu Hálogalandi
sem ég fann mest til með. Það er
erfitt hlutskipti að vera dómari í
slíkum darraðardans, sem hand-
bolti getur orðið. Reynir dæmdi
yfirleitt alls ekki illa, en var heldur
vægur og gerði stórar glompur und
ir lokin. Reynir er eftir sem áður
einn okkar efnilegustu manna í
þetta sarf, en hér lenti hann á sín
um erfiðasta leik til þessa, og von-
andi hefur hann lært talsvert á
þessum leik.
i Gunnlaugur Hjálmarsson var ó-
ánægður eftir leikinn: „Það getur
verið að dómar Reynis hafi verið
réttlátir gagnvart mér, — en fyrir
Danina var þetta eins og Skálholts
hátíð fyrir fanga á Litla-Hrauni náð
un allan tímann", sagði hann.
— jbp —
ALLT A SAMA STAÐ
Stýrishlífar
barnasæti
róIfmottur
"kubakkar
'iiljós
jömur
hjólkoppar
EGILL VILHJÁLMSSON H.F.
Laugavegi 118 . Sími 2-22-40
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í smíði innréttinga í borgar-
sjúkrahúsið í Fossvogi. Útboðsgögn eru afhent
í skrifstofu vorri Vonarstræti 8,. gegn 1000
króna skilatryggingu.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar.
Nýtt — Nýtt
Ilmkertafyllingar
GJAFAVÖRUBÚÐIN, Laugavegi 76
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í að leggja hitaveitu utanhúss
í eftirtaldar götur: Lágmúla, Bolholt og
Brautarholt svo og hluta af Skipholti, Lauga-
vegi, Suðurlandsbraut og Ármúla. Útboðs-
gögn eru afhent í skrifstofu vorri Vonarstræti
8 gegn 3000 króna skilatryggingu.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar.
Drengjohattar
Ný sending amerískir drengjahattar með
eyrnaskjóli.
LÍTIÐ í SKEMMUGLUGGANN
Skemmuglugginn
/