Vísir - 26.04.1965, Side 3
V í S IR . Mánudagur 26. apríl 1965.
75
Talað við fulltrúa á landsfundi Sjálfstæðisfloklcsins:
□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□aaaaD<
3000 tunnur salt-
aoar í fyrra —
áður 140.000 t.
— Rætt v/ð Baldur Eir'iksson forseta bæjar-
stjórnar Siglufjarðar
Siglufjörður hefur orðið illi-
lega úti vegna færslu síldarinnar
á miðunum, hafa verið gerðar
nokkrar ákveðnar ráðstafanir
til þess að mæta vanda þeim
sem atvinnulífið hlýtur að hafa
orðið fyrir vegna þess?
Það er alltaf veríð að gera
ráðstafanir, en allt tekur sinn
tíma. Það er engan veginn auð-
velt að breyta um atvinnuvegi
í bæ, sem hefur einskorðað sig
við sfldariðnhð eins\Og hefur
verið gert á Siglufirði. Bæjar-
stjómin hefur gert ákveðna sam,
þykkt viðvíkjandi síldarflutn-
ingum og beint áskorunum til
þeirra aðila, sem málið er skyld
ast um að hefja síldarflutning
t. d. Síldarvi 'ismiðjur rík'isins
og Rauðku, sem er rekin af
Siglufjarðarkaupstað.
Einnig er von okkar að tak-
ast megi að flytja síld til söltun
ar til Siglufjarðar fyr'ir hin 20
plön, sem eru þar starfandi. 1
sumar voru saltaðar á þessum
plönum um 3000 tn., en fyrir
nokkrum árum nam söltunin um
140,000 tunnum.
Það er allt í hálfgerðum
dróma á Siglufirði núna. Eitt
sem stendur mjög bænum fyr’ir
þrifum t. d. í sambandi við auk
inn iðnað eru lélegar samgöng
ur Eins og kunnugt er lokast
Siglufjarðarskarð snemma á vet
uma og er lokað megin part
vetrar'ins. Nú hefur Vegamála-
stjómin boðið verkið við Stráka
veg út, og standa vonir til að
vegurinn geti verið fullgerður
1966.
Einnig var byrjað á flugvelli í
fyrrasumar og er trúlegt að því
, w
verki verði haldið áfram í sum-
ar.
Hefur hafís'inn torveldað sam
göngur á sjó við Siglufjörð í
vetur?
Néi, ekki verulega fyrir sam-
göngur. Flóabáturinn Drangur
hefur verið í ferðum í allan vet-
ur. Aftur á móti hefur ísinn haft
sín áhrif í sambandi við bát- Baldur Elrfksson.
ana, sem ekki hafa komizt á mið
in vegna hans. Hvern'ig er með íbúatölu
Hvernig er með útgerð á Siglufjarðar?
Siglufirði? Hún hefur farið heldur minnk
Það hefur verið reynt að auka andi undanfarin ár. Ibúar em
hana, t. d. kom hingað nýr tog nú 2500 — 2600.
ar’i síðastliðið vor, Siglfirðingur, Er ekki hætt við að fbúum
sem er skuttogari og hefur auk fari enn fækkandi ef síldin sýnir
þess aðstöðu til þess að veiða sig ekki næstu ár ?
í nót. Héðan reru fjórir bátar Það get ég ekkert sagt um.
í sambandi við frystihúsið fram Það er almennur áhugi að flytja
í febrúar I vetur, en fóru þá sfld til Siglufjarðar á Siglufirð’i
suður á vertíð. Torgarinn og þá einnig til söltunar auk
Hafl’iði seldi fyrir erlendan mark bræðslu og hefur því verið be'int
að þangað til í apríl, en á tíma til þeirra manna, sem hafa með
bilinu 25. marz til 20. apríl hef það* að gera, en það að
ur hann Iandað 350 tonnum á flytja síld til söltunar er mörg
Siglufirði. Auk þess róa héðan um vandkvæðum bundið, eins
smærri bátar þegar fiskast og og t. d. að fá leyfi Síldarútvegs
gefur. nefndar.
Auka þarf tekjur
sveitarfélaga
— Viðtal v/ð Jónatan Einarsson, oddvita
i Bolungarvik
Jónatan Einarsson.
Dlaðið náði tali af Jónatan
Einarssyni oddvita frá Bol-
ungarvík, en hann er fulltrúi á
Landsfundi Sjálfstæðisflokksins,
og spurði hann frétta að vestan.
— Hvemig hefur vertíðin ver
ið hjá ykkur?
— Það virðist ætla að rætast
úr henni. Haustvertíðin var léleg
og afli lítill framan af. En hann
hefur orðið góður í marz og
aprfl og má geta þess að Heið-
rún, sem fiskar með línu fékk
16 tonn f gær og 19 tonn í fyrra
dag og verður það að teljast
gott. Og tveir netabátar okkar,
Einar Hálfdáns og Guðmundur
Péturs, hafa fiskað hátt á 4-
hundrað tonn í apríl.
— Hvað nuindir þú vilja segja
um samgöngumál ykkar Vestfirð
inga?
— Það horfir betur I þeim
málum en áður og við erum
þakklátir stjórnarvöldunum, fyr
ir aukinn skilning þeirra, sem
sýnir sig bezt I þeirri fram-
kvæmdaáætlun fyrir Vestfirði,
sem gerð hefur verið. Fyrsti á-
fangi þeirrar áætlunar, sem
fjallar um samgöngur, lofar
góðu. Brýnasta hagsmunamál
okkar í því sambandi, er að
tengja saman hin stærri byggðar
lög með vegum, sem færir yrðu
allt árið. Það hefur miklu meiri
þýðningu en menn almennt gera
sér ljóst. Og ég vil benda á í
því sambandi að Bolungarvík
fór fyrst veruiega að dafna, þeg
ar þangað kom vegur, því áður
var þetta eins og að búa á eyju.
— En mál málanna á Bolung-
arvík er höfnin. Síðustu 5 árin
hefur verið gert stórt átak 1
þeim málum og nú hefur verið
lokið við byggingu brimbrjóts.
Og það vántar ekki nema herzlu
muninn til að hvaða íslenzkt
skip sem er geti athafnað sig
þar, þarf varla annað en að
ijúka við að dýpka höfnina.
— Byggingarframkvæmdir í
þorpinu?
— Það hafa staðið yfir mikl
ar byggingaframkvæmdir und-
anfarið og er nú t. d. verið að
ljúka við skólabyggingu. Og í-
búunum fjölgar alttaf heldur,
eru nú rúmlega 900.
— Og hvað viltu svo segja
að Iokum um málefni dreifbýl-
isins?
— Sveitarfélögin út um landið
þurfa að fá mun meiri tekjur til
framkvæmda, til þess m. a. að
framkvæmdir á vegum hins opin
bera séu í einhverju samræmi
við framkvæmdir einstaklinga.
Þróun tímans hlýtur að vera
sú að íbúar byggðarlaganna út
um landið fái sem flesta hluti
sambærilega við Reykjavík. Það
er atvinnuöryggi í Bolungarvík
og flestir hafa þar góðar tekjur
en það eitt gerir það efcki að
verkum, að það sé eftirsókn-
arvert að lifa þar. Þar verður
fleira að koma til t. d. að bæta
aðstöðu til menntunar o. fl. Og
það má geta þess, að það er al
menn ánægja með það að nú
skuli ákveðið að reisa mennta-
skóla á Isafirði. Ætti hann að
geta orðið mikil lyftistöng fyrir
alla Vestfirði.
Ef síldin kæmi
aftur, breyttist
allt til batnaðar
— Samtal v/ð Ingvar Jónsson, hrepp-
stjóra á Skagastrónd
i hópi fulltrúa á landsfundi
Sjálfstæðismanna hittum við
hreppstjórann á Skagaströnd
Ingvar Jónsson. Var okfcur for-
vitni að heyra hvemig ástandið
væri nú þama norður við Húna
Ingvar Jónsson.
flóa, þar sem hafísinn hefur nú
fært allt f sfnar heljar greipar
svo að sigling þangað er bönnuð
og lifsafkoma manna þrengist
enn vegna þess að haffsinn bann
ar mönnum að stunda bjargræð
isveginn, fiskveiðar f Flóanum.
— Þegar ég fór að heiman
fyrir tveim dögum sá hvergi í
auða vök, fyrr en maður var
kominn hálfa leið inn að Blöndu
ósi. Þetta eru hrein hafþök og
sér efcki út yfir ísinn. ísinn hef
ur nú verið þarna síðan í marz,
en hann var ekki svona þéttur
þangað til fyrir einni viku.
— Flutningaskip hafa ekki
komizt til ykkar í langan tíma?
— Nei þau hafa ekki sézt
hjá okkur síðan snemma I marz.
En flutningarnir valda engum
verulegum vandræðum, það er
allt flutt landveg. Meira að segja
olía og benzín hefur verið flutt
landveginn til okkar. Það alvar
legasta er að fiskveiðar eru úti-
lokaðar meðan ísinn kreppir
þannig að okkur. Þrír bátar ætl
uðu að stunda þorskanetaveiðar.
Þær hefjast vénjulega í byrjun
marz, en einmitt í þann tíð kom
ísinn. Það frestaði því að neta
veiðamar byrjuðu. Loks hóf
einn þeirra veiðar, en það bar
ekki mikinn árangur, þvf að
hann missti netin f fsinn og
hafði því aðeins tap af því.
Og nú liggja bátarnir ónotað-
ir, sem hefðu getað veitt um
20 manns atvinnu fyrir utan að
gera að aflanum. En áhafnimar
eru að sjálfsögðu á kauptrygg-
ingu, þó ekkert veiðist.
Nú svo var talsverður viðbún
aður að hef ja hrognkelsaveiðar f
vor. Hækkandi verð á hrognum
gaf mönnum góða vonir um arð
af þessum veiðum á trillubátum.
En þær vonir hafa lika brugð-
izt. Menn bfða nú samt enn í
voninni að hafísinn fari sem
fýrst að lóna frá.
— Það er orðið langt sfðan
hafísinn hefur gert sig heima
kominn í Húnaflóa?
— Já, þetta hefur efcki gerzt
síðan 1918.
— Er hann eins mikill nú og
hann var þá?
— Hann var öðru vísi þá,
það var meira af borgarfs, en
nú eru þetta hafþök. Hvort hann
er meiri eða minni, skal ég ekki
segja, svo mikið er víst, að hann
lokar alveg höfninni.
— Það hlýtur að vera erfitt
ástand sem skapast við þetta?
— Já, og þetta bætist nú ofan
á allt annað. Það er t. d. miklum
erfiðleikum bundið að innheimta
gjöldin þegar ástandið er svona.
Maður man tímana tvenna. Ég
minnist þess, þegar Húnaflói var
fullur af sfld og 3-4 hundruð
skip voru þar á veiðum. Og það
var lfka mikill þorskur í Húna
flóa en hefur verið minni sfð-
ustu árin. Minnkandi þorskafli
hefur lfka valdið erfiðleikum.
- Fækkar fólki þá í kauptún-
inu?
— Nei þvf hefur nú ekki fækk
að að ráði. í fyrra voru íbúamir
624, en nú eru þeir 614. En það
sem bagar okkur helzt er, að
það vill vera athafnamesta fólk-
ið sem flytur brott. Það reynir
að verða sér úti um störf á
stöðum þar sem lfflegra er.
Frh. á bls. 21.