Vísir - 30.04.1965, Síða 2
SÍÐAN
Sophia Loren og Ponti geta
fengið fimm ára fangelsi
Sékuð um fjöðkvæni og þdtttöku í því
Sophia Loren, hin fagra í-
talska filmdis og maður hennar
kvikmyndaframleiðandinn Car-
lo Ponti eiga nú á hættu að
verða dæmd í 5 ára fangelsi, ef
þau tapa máli því sem höfðað
hefur verið gegn þeim, en þau
eru sökuð um fjölkvæni. Er
þetta mál höfðað eftir 8 ára
undirbúning og kemur það fyrir
rétt í Rómaborg 6. júlí.
Orðrómurinn um fjölkvæni
hefur verið á reiki allt frá því
að þau Ponti og Sophia giftu
sig í september 1957 í Mexikó.
Ponti hafði fengið lögskilnað
þrem árum áður — einnig í
Mexikó, frá fyrri konu sinni,
hershöfðingjadðtturinni Giulinu
Fiastra, en með henni á hann
tvö börn, 14 og 16 ára. ítalskir
dómstólar hafa að venjum ka-
þólskra neitað að veita skilnað
Þess vegna líta Italir svo á að
Ponti sé giftur tveim konum,
þar eð fyrra hjónabandinu sé
ekki löglega slitið.
Þegar eftir hjónaband þeirra
Sophiu og Ponti bárust fjölmarg
ar kærur til saksóknara. Margir
virtust hafa horn í síðu þeirra.
Hundrað kærur bárust á árun-
um 1957-1959 frá ýmsum ein-
staklingum.
í september 1962 tókst þeim
að fá ógilt hið mexíkanska
hjónaband sitt til að losna við
málaferlin og Sophia sagði þá:
„Ég elska Carlo, en fréttin um ó
gildingu hjónabands okkar er
samt bezta frétt sem ég hef
fengið."
Samt var haldið áfraro að
herja á þau hjúin. Itölsk yfir-
völd litu svo á að þau hefðu
framið afbrot og því bæri að
hegna þeim. Ponti sótti nýlega
—- og fékk — franskan ríkis-
borgararétt, en ítölsk yfirvöld
halda enn áfram að telja að
honum beri að svara til saka
á Italíu fyrir afbrot framin með
an hann var enn Itali.
Málaferlin hófust þegar í árs
byrjun 1962 en rannsókn máls-
ins hefur orðið ótrúlega um-
fangsmikil.
Fari svo að þau Ponti og Lor
en verði dæmd sek um fjöl-
kvæni geta þau fengið frá árs-
fangelsi allt upp í fimm ár,
Sophia og Ponti — hamingjusöm en fá ekki náð hjá páfa.
Ponti fyrir fjölkvæni og Loren
fyrir hlutdeild.
Þau hjón'in, því vissulega eru
þau hjón og það mjög ham-
ingjusöm. eru orðin langþreytt
á löndum sínum vegna máls
þessa. „Ég á enga ósk heitari
en þá að giftast og eiga böm,"
segir Sophia, en það virðast
mörg ljón á veginum að hjóna-
band þe'irra Pontis og hennar
verði skoðað sem löglegt.
alls staðar hægt að koma hon-
úm fyrir, en aðeins tveir menn
'rúmast í þessu litla kríl.i Senni-
lega verður þessi bíll Vinsæll
mjólkurbúðabíll og vinsæll í
snatt fyrir húsmæður.
Það skal nefnt hér.til dæmis
hvað smábíll þessi er handhæg
ur í umferð að 'hægt er að
snúa honum á 13 feta svæði,
en fiestir aðrir bflar nota til
þess 33 fet.
☆
☆
Bíll fyrir „manninn í miðbænum
— og mjólkurbúðarb'ill konunnar
Myndin sem hér fylgir með
er af bíl framtíðarinnar, — bíln
um sem leysir vandamál þess
sem ekur mest um miðborgina,
ekur á vinnustað og heim, eða
ekur milli verzlana og fyrir-
tækja. Bíllinn er aðeins rúmir
tveir metrar á lengd og það er
Á bílastæðum ieggja bfln
um hvort heldur sem maður vill
meðfram gangstéttinni eða með
annan hvons er.dann að henni,
en það sparei’ sltííjanJéga geysi
mikið rúm og Isysir eitt stmrsta
vandamál umferðarinnar i heim
inum f dag. Breidd bflsins er
eitthvað rúmlega 1.80 metrar.
Bfllinn er brezkur svo sem
sjá má og er fyrirtækið Back-
well í Somerset framleiðandi.
Talsmaður firmans sagði að það
gerði sér góðar vonir um undir
tektir almennings ,enda væri
hér um lausn á erfiðu vanda-
máli að ræða, auk þess sem
bíli þessi yrði mjög ódýr.
Kári skrifar:
Ibúar Dominikanska lýðveld-
isins heilsuðu sumri með því að
berjast á götum úti, meðan
Vopnfirðingar og fleir’i landar
vorir ge~-'u skrúðgöngur. Og á
Isafirði fóru nýlega þrír piltar
í skemmtiferð á bátkríli, en svo
fór um sjóferð þá, að bátnum
hvolfdi og máttu strákarnir
synda til lands um ískaldan sjó
inn. En einn þeirra þoldi ekki
kuldann, og það varð honum til
lffs, að starfsmaður í skipa-
smfðastöð hafði nýlega lært
blástursaðferð við iífgun úr
dauðadái hjá ísfirzkum skátum.
Þetta er að verða daglegt
brauð, að mannslífum sé bjarg-
að með þessari aðferð, og algjör
nauðsyn er, að sem flestir
kynni sér þessa aðferð. Ég
minntist nýlega á, hér í dálk-
unum, að Hjálparsveit skáta og
Slysavarnarfélagið hafi látið út
búa handhægt kort með leið-
beiningum um þessa aðferð, og
ég vil eindregið hvetja þá, sem
enn hafa ekki lært aðferðina,
til að hafa samband við Slysa-
varnarfélagið, eða einhverja
deild þess, fá hjá þeim eintak
af kortinu og kynna sér það
rækilega, helzt bera það ætið
á sér.
Hér er að lokum bréf frá
„bíógesti“, sem er ekki ánægð-
ur með auglýsingamyndir kvik-
myndahúsanna. Um það mál
geta eðlilega verið skiptar skoð-
anir, en ég vildi einnig fá að
leggja orð í belg, og fara fram
á að auglýsingamyndir verði ein
ungis sýndar f hléum. Þegar
hvers kyns aukamyndir taka
upp undir hálfa klukkustund,
þá er fjöldi fólks, sem ekki
nennir að sjá þær, og kemur
ekki ínn fyrr en 20 mfnútum
eftir að sýning á að hefjast, öðr
um bíógestum til ama.
Auglýsingamyndir.
„Það er öðruvísi varið með
kvikmyndahúsin íslenzku, en
samsvarandi skemmtistaði er-
lendis. Meðan þau gera allt sem
í þeirra valdi stendur til þess að
geta keppt við sjónvarpið, þá
demba íslenzku kvikmyndahús-
in yfir gesti sfna þvf, sem hef
ur farið verst með erlent sjón-
varp, þ.e. auglýsingar. Sýndar
eru auglýsingamynd’ir upp í 10
mínútur af sýningartfma og
sömu myndirnar sýndar skipti
eftir skipti og láta stjómendur
kvikmyndahúsanna kvalastun-
ur áhorfenda sig engu skipta.
heldur halda forhertir áfram
að sýna þessar ömurleg-
ustu myndir allra mynda. Nú er
það svo, að auglýsingamyndir
geta verið skemmtilegar og þeir
sem hafa komið til Danmerkur
þekkja það, að fólk kemur oft
heldur fyrr en sýning hefst til
þess að sjá auglýsingamyndirn
ar, sem í þvf landi eru sýndar
áður en hinn raunverulegi sýn-
ingartími hefst. Þó heid ég að
enginn Dani með einhverri virð
ingu fyrir sjálfum sér mundi
nokkurn tíma koma fyrir tim-
ann til þess að sjá myndir þær,
sem íslenzkum kvikmyndahús-
gestum er boðið upp á að horfa
á í sýningartíma, sem þeir
borga fullt verð fyrir.
Ekki skal efa að húsin hafa
af þessum auglýsingamyndum
nokkrar tekjur, sem þau hafa
full not fyrir, en vegna hvers
geta þau ekki farið eftir sömu
kurtei§i og ssmsvsrandi
skemmtihfls eFlendis, sð
gegti sfna sjálfs ákverða. hvsFt
þeir ksera sig ftS hnFfft á
þeggar myndir. Það gæti verið
áhijgamál gesta, sem og fyrir-
tækja þeirra sem auglýsa, þar
sem á þann hátt yrði úr því
skorið hvaða myndir áhorfend-
ur vilja sjá. Ég trúi því ekki að
iélegar og leiðinlegar auglýs-
ingamyndir geti haft neitt nema
nejkvætt f för með sér fyrir við-
koroandi fyrirtæki, og þá sér-
staklega ef gestir eru neyddir
til þess að horfa á þær.“
Bíógestur.