Vísir


Vísir - 30.04.1965, Qupperneq 5

Vísir - 30.04.1965, Qupperneq 5
V í S IR . Föstudaginn 30. apríl 1965. þingsjá Vísis bingsjá Vísis þ i n g s j á V í s RANNSÓKNIR ÍÞÁGU A TVINNU VEGANNA Fundir voru í báðum deildum Alþingis í gær. Mörg mál vorii á dagskrá beggja deilda og flest til 2. eða 3 umræðu. í neðri deild urðu mestar um- ræður um frv. um rannsóknir i þágu atvinnuveganna og frv. um ioðdýrarækt, sem iengi hefur ver- ið á dagskrá deildarínnar. í efri deild mælti menntamála- ráðherra fyrir frv. um mennta- skóla, en bað er komið frá neðri de'Id. P^NNSÓKNIR í ÞÁGU A '’VINNUVEGA Benedikt Gröndal mælti i neðri deild fyrir áliti menntamála- nefndar á stjórnarfrv. um rann- sóknir í þágu atvinnuveganna. Flýtur nefndin allmargar breyt- ingartillögur við frv. en mælir að öðru leyti einróma með, að það verði samþykkt. Frv. þetta hefur legið fyrir Alþingi síðan 1962 en hefur ekki hlotið af- greiðslu fyrr en nú, að það virð- ist ætla að komast í gegnum þingið. I áliti menntamálanefndar seg- ir, að nefndin hafi fjallað ýtar- lega um frv. og nefndarmenn séu sammála um það meginatriði, að Alþingi megi ekki lengur draga að koma skipulags- málum vísinda- rannsókna í betra horf, ef þjóðinni eigi nokkurn tíma að auðnast að færa sér sjálf- ar rannsóknirnar betur f nyt en hingað til. Þess vegna er brýn nauðsyn að afgreiða þetta mál og dveljast ekki lengur við silki- húfur, heldur komast að kjarna málsins. Höfuðatriði breytingartillagna nefndarinnar eru þessar: 1. Nefndin leggur til, að fjölg- að sé f rannsóknaráði úr 17 mönn um í 21. Leggur hún til. að í ráðinu sitji 7 alþingismenn, en ekki 5, og er það í samræmi við þróun mála á þingi. Virðist og æskilegt, að rannsóknaráð verði sá tengiliður milli vísindastofn- ana og löggjafarþings, sem skap- aður hefur verið með sérstökum nefndum í öðrum löndum. Þá er gert ráð fyrir að forstjórar allra fimm rannsóknarstofnana eigi sæti í ráðinu, en var áður gert ráð fyrir 3 fulltrúum þeirra. Loks er lagt til, að menntamálaráð- herra verði formaður rannsókna- ráðs, og mun það væntanlega auka vald og virðingu ráðsins. 2. Með breytingu við 4. gr. er forstjórum rannsóknarstofnan- anna heimilað að taka sæti í framkvæmdanefnd ráðsins. 3. Fellt er niður, að fram- kvæmdastjóri rannsóknaráðs þurfi að hafa háskólapróf „í raun vísindum", enda gætu menn menntaðir f öðrum greinum vel gegnt því starfi. 4. Sama breytingartillaga er gerð um stjórnir allra rannsókn- arstofnananna: einn maður sé skipaður af ráðherra án tilnefn- ingar, annar samkvæmt tilnefn- ingu viðkomandi stofnunar <Fiski- félags, Búnaðarfélags o. s. frv.) og hinn þriðji tilnefndur af ráð- gjafamefnd. 5. Forstjórar stofnananna sknlu. semja starfsáætianir þeirra og leggja fyrir stjómir, og þeir skulu ráða starfsfólk. Er brtt. þessa efnis gerð um allar stofnanimar. 6. Nefndin leggur til að ráð- gjafarnefnd skuli vera við allar rannsóknarstofnanir. Gert er ráð fyrir að forstjórar stofnananna eigi sæti í þessum nefndum, en séu ekki sjálfkjömir formenn þeirra. Þá er lagt til, að ráð- herra geti með samþykki stjóma viðkomandi stofnana fjölgað í ráðgjafamefndum og veitt nýjum aðilum sæti í þeim, ef ástæða þykir til. 7. Með brtt. við 54. gr. er gert ráð fyrir, að ráðherra ákveði, að fengnu áliti forstjóra og stjórnar, deildaskiptingu rannsóknarstofn- ana og skipi deildarstjóra. 8. í 56. gr. er gert ráð fyrir, að ríkisstjórnin ráðstafi húseign Atvinnudeildar háskólans 1 þágu íslenzkrar vísindastarfsemi. Um leið og rikið sér rannsóknarstofn- unum fyrir nýju húsrými, er eðli- legt, að háskólinn fái þetta hús til sinna afnota. 9. í brtt. við 57. gr. er gert ráð fyrir að framkvæmdas jj óri rann- sóknaráðs kalli forstjóra stofnan- anna saman til funda til að ræða sameiginleg málefni. 10. 1 brtt. við 63. gr. er gert ráð fyrir, að sérfræðingar rann- sóknarstofnana geti kennt við Háskóla íslands, og skal skipa þeim málum með reglugerð. Sigurvin Einarsson tók næstur til máls og sagðist vera sam- þykkur frv I meg inatriðum en þó vera á móti tveim greinum þess þar sem gert væri ráð fyrir að lagður væri á skattur á iðnfyrirtæki til að standast straum af kostnaði við rannsóknir. Skatt ur þessi mun nema sem svarar 2 0/00 af kaupgjaldi í nokkrum iðngreinum. Einar Olgeirsson mælti fyrir breyt- ingartillögu um að komið verði á fót sérstakri tæknistofnun sjávarútvegsins. Voru breytingar- tillögur nefndar- innar síðan sam- þykktar og frv. svo breyttu vísað til 3. umr. ENN UM LOÐDÝRARÆKT Þá var fram haldið í neðri deild 2. umr. um frv. um loðdýrarækt og varð ekki lokið. Sigurður Ágústsson tók fyrstur til máls og sagðist vera undr- andi á þeim umræðum ,sem fram hefðu farið um frv. Það væri engu líkara en með þessu frv. ætti að flytja minka til landsins í stórum stíl og sleppa þeim síð- an lausum. En nú væri það stað reynd, að við íslendingar hefð- um betri skilyrði til minkaeldis en flestar aðrar þjóðir og því væri það illa farið ef frv. yrði ekki samþykkt á þessu þingi. Björn Pálsson mælti fyrir breyt ingartillögu, sem hann flytur við frv. um að einn maður verði sendur til útlanda I þeim tilgangi að kynna sér þessi mál til hlítar, áður en minkar verði fluttir til landins. Sagði hann það vera und- irstöðuatriði, að málið væri rannsakað áður en út í það væri lagt. Jónas Pétursson, en hann er einn af flutningsmönnum frv. svar aði nokkrum atriðum sem fram höfðu komið I ræðum manna og sagði m.a. að umræðurnar stað festu það, að hér væri um til- finningamál að ræða fyrir marga. Það væri ekki hægt að sanna, að af þessu yrði fjárhagslegur ávinningur nema tilraunir yrðu hafnar. Sjálfsagt væri að gæta ýtrustu varúðar enda væri hægt af stað farið í frv. Benedikt Gröndal sagði, að svar ið við því, hvernig þetta mundi reynast væri þegar fengið. Þá mæltist hann eindregið til að beð ið yrði eftir umsögn Náttúru- verndarráðs áður en umræðunni lyki, því samkv. lögum ætti það að láta álit sitt i ljós. Var umræðunni síðan frestað um sinn, en búast má við að frv. komi til atkvæðagreiðslu í dag. Uppsetningar á sfónvarps- og útvarpsloftnetum og kerfum í blokkir. Vanir menn. Verð hvergi hagkvæmara. Uppl. í Frístundabúðinni Hverfisgötu 59, sími 18722. Gróðurmold Mold mokuð á bíla að Álftamýri 1 sunnud. og næstu daga. Byggingarfélag verkamanna, J Reykjavík. TSL SÖLU < 2ja herbergja íbúð í I. byggingarflokki. Félags menn, sem neyta vilja forkaupsréttar, sendi umsóknir sínar í skrifstofu félagsins, Stór- holti 16, fyrir kl. 12 á hádegi miðvikudaginn 5. maí n.k. Stjómin. Blémabúðin Gleymmérei Afskorin blóm og póttablóm, fræ og laukar. Opið til kl. 2 laugardag og sunnudag. GLEYMMÉREI Sundlaugavegi 12 . Sími 22851 Bifreiðaeigendur HAGTRYGGING H.F. býður yður bifreiðatryggingar samkvæmt reglum, sem mjög koma til móts við þær reglur, sem hinir löggiltu endurskoðendur gömlu tryggingarfélaganna hafa árangurs- laust ráðlagt félögum þessum. (Sjá grein í Mbl. 29/4 og Vísi sama dag). HAGTRYGGING H.F. Bolholti 4 . Símar 38580 og 38581 jww^vw^wvívav-- .... þvoið moÖ Vex vörur- valdar vörur- EFNAVERKSMIÐJAN > O z N ISLENZKU FATNAÐUR I9G5 Þessi fyrirtæki sýna framleiðslu sína: Andrés Andrésson hf. Barnafatagerðin sf. Dúkur hf. Elgur hf. Fatagerðin Burkni hf. Föt hf. Klæðagerðin Skikkja Kólibríföt L. H. MuIIer Fatagerð Lady hf. Max hf. Model Magasín Prjónastofan Iðunn hf. Prjónastofan Peysan Prjónastofa önnu Pórðardóttur hf. SAVA Skjólfatagerðin hf. Sokkaverksmiðjan Eva hf. Sportver hf. Últíma hf. Vinnufatagerð fslands hf. Vörur sem sýndar eru: Prjónafatnaður. Bamafatnaður Lffstykkjavörur Skyrtur Kvenfatnaður Karlmannafatnaður Vinnufatnaður Karlmannafrakkar Sportfatnaður Sjóklæði Úlpur Viðleguútbúnaður Vettlingar Hálsbindi Nærfatnaður Sokkar o. m. fl. KAUPSTEFNA OG SÝNING I LlDÓ 30. APRlL - 9. MAI Sýningin er opin kl. 15.00 - 22.00 STRÆTISVAGNAIEIÐIR 8-20-22-23

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.