Vísir - 12.05.1965, Qupperneq 5
V1SIR . Miðvikudagur 12. maí 1965.
utlönd í niorgun
utlönd
morgun
utlönd í morgun
utlönd í morgun
Rusk komim tíl LONDON
Tekur þótt í umræðunni
um VIETNAM á Nuto-fundi
Brezka útvarpið skýrði frá því í
morgun snemma ,að Dean Rusk
utanríkisráðherra Bandaríkanna
væri á leið til London flugleiðis
til v5ss að taka þátt í ráðherra-
fir ii Norður-Atlantshafsbanda-
kí's'ns, en ekki hafði verið búizt
v'" "onum á fundinn, vegna þess
að 'x.nn væri önnum kafinn út af
málum varðandi Dominikanska
lýðveldið. Kom Ball aðstoðarutan-
ríkisráðherra í stað hans og fer
hann vestur yfir haf síðdegis.
Það er vegna Vietnammálsins,
sem Rusk kemur, en það er á
dagskrá fundarins í dag.
Á fundinum hefur verið unnið
í nefndum og með viðræðum milli
Dean Rusk
einstakra ráðherra, að lausn
ýmissa erfiðra mála.
Þýzkaland
Sagt er, að þann'ig hafi náðst
samkomulag milli Breta, Frakka
og Bandaríkamanna um sameigin-
lega yfirlýsingu varðandi Þýzka-
landsvandamálið, og sé þar tekið
tillit bæði til skoðana Breta og
Bandríkjamanna annarsvegar, og
Frakka hinsvegar, en samkomu-
lagið er ekki sízt mikilvægt að því
leyti, að með því er staðfest að
allar þrjár vestrænu þjóðimar
hvika ekki frá þvf, að hemáms-
veldin fjögur verði að'ilar að
hverju því framtíðar samkomu-
lagi, sem gert verður.
Kýpur
Þá hefur Martin utanrikisráð-
herra Kanada unnið að frambúð-
ar samkomulag til lausnar Kýpur
de'ilunni. Kveðst hann — eftir að
hafa rætt Við utanríkisráðherra
Grikklands og Tyrklands, sem báð
ir sitja Lundúnafundinn, aldrei
hafa verið vonbetr'i um frambúð-
arsamkomulag.
Aðvörun Wilsons
Þegar Harold Wilson forsætis-
ráðherra Bretlands setti fundinn i
gær, sagði hann, að Bretland
hvorki gæt’i né vildi halda áfram
að bera hinar þungu efnahags-
legu byrðar, sem á það væm
lagðar, innan vébanda samstarfs-
ins í bandalaginu, — það væri
engin sanngirni í að láta hlut
Bretlands til varna NATO vera
eins mikinn í hlutfalli við fram-
lög annarra og hann væri nú og
þessi byrði væri ein meginorsök
óhagstæðs greiðslujafnaðar.
Stjómmálafréttaritarar segja, að
hann hafi aðallega haft Rinarher-
'inn og kostnaðinn við hann í huga.
í honum eru 50,000 menn og kosn
aður Breta við að hafa þennan
her þarna nemur um 4,8 milljörð
um króna.
Ný-nazistasamtök / Svíþiói
Áformað að beifo vopauoi
og sfeypa sfjórninni
í NTB-frétt segir, að það hafi
vakið stórkostlega athygli er
sænski yfirlögreglustjórinn Carl
Persson skýrði frá því i gær-
kvöldi, að komizt hefði upp um sam
tök sænskra nýnazista til þess að
be'ta vopnavaldi til þess að steypa
ríkisstjórninni.
Lagermaður óskast
Lagermaður óskast í gosdrykkjaverksmiðju
vora. Uppl. hjá verkstjóranum Þverholti 22.
H.i'. Ölgerðin Egill Skallagrímsson
Atvinna óskast
35 ára gamall maður óskar eftir atvinnu við
akstur, er vanur akstri leigubifreiða. Sími
40441.
Hann sagði, að mikill fjöldi
manna myndi verða yfirheyrður.
Fundizt hafa vopnabirgðir, sem
leynifélag nýnazista hafði viðað
að sér. Meðal handtekinna er „for
inginn“ Björn Lundahl. Var hann
handtekinn í Haparanda og var-þá
vopnaður. Vopnabirgðir fundust í
aðalstöð samtakanna í húsi við
Jarlsgatan í Stokkhólmi og einnig
grafnar í jörðu við Gávle.
Alls hafa fimm forsprakkar ver-
ið handteknir og .liggja þegar fyrir
játningar þeirra um sum atriði, og
er líklegt að játningarnar nægi til
þess að þeir fái tíu ára fangelsis-
dóm fyrir landráð.
Skjöl sem fundust í aðalbækistöð
inni virðast og fullgild sönnunar
gögn fyrir landráðastarfsemi ný-
nazistanna, þeir eru allir tiltölu-
1 lega vmgir menn, BiöfnXúndahrer'
______f—t—a— ‘
Lítið ■
gluggann
Gjörið svo vel að ganga í
bæinn og kynna yður úr-
valið af lömpum og raf-
magnstækjum.
Ljós og hiti h.f.
Garðastræti 2. Sími 15184
ÓDÝR UTANLANDSFERÐ
25 DAGA FERÐ 5. JÚNÍ - 30.
Farið verður með M.s. HEKLU á 1. farrými. Ferðast er um þessi lönd:
Færeyjar, Noreg, Danmörku, Svíþjóð, Þýzkaland, Holland, Belgíu og Frakkland. Dvalið er í
viku í Kaupmannahöfn og 8 daga í París, allt innifalið, hótel, matur, ferðir o. fl.
Þóttfökugjald aðeins kr. 14.900
Nokkur sæti laus, pantið strax. Uppselt í allar aðrar ferðir okkar í sumar.
Allar nánari upplýsingar gefur fararstjórinn Sigfús J. Johnsen, símar 1959 og 1202, Vestmanna-
eyjum.
í STUTTU
MÁLI
► í NTB-frétt segir, að Harold
Wilson forsætisráðherra Bret-
lands geri í dag nýja tilraun
til að hindra klofning í Verka-
lýðsflokknum út af ákvörðun-
inni um þjóðnýtingu stáliðnað-
arins. Wilson var nýlega mjög
harðorður um „uppreisnar-
menn“ í flokknum gegn þjóð-
nýtingunni, og átti þar aðal-
lega við Wyatt og Donelly. Við
umfæðuna í neðri málstofunni
gaf Brown efnahagsmálaráðh.
i skyn, að til tilslakana kynni
að koma í sambandi við hluta
bréfaeign stálfyrirtækja er þjóð
nýtingin kemst í framkvæmd,
og eru ummæli hans talin hafa
aukið á erfiðleika Wilsons. Vís
að er á bug öllum tilgátum
um að Brown muni biðjast
lausnar.
► NTB-frétt frá Tokíó segir,
að haft sé eftir Tunku Abdul
Rahman, ’forsætisráðherra Mala
jsíu, að hann efist um, að unnt
verði að leysa deiluna um Mal-
ajsiu meðan Súkamó forseti
fari með völd í Indónesíu.
Tunku var í Japan í 10 daga
einkaheimsókn og hélt heimleið
is sl. mánudag.
► Um sl. helgi voru miklar
jarðhræringar á ný f E1 Salva-
dor, þar sem yfir 100 manns
fórust fyrir nokkru siðan. Jarð-
hræringanna varð einnig vart
í suðurhluta Perú.
► Þrír indónesískir skterulið-
ö- ar voru drepnir í Sarawak á
Borneo sl. sunnudag.
► Um sl. helgi var stolið
skartgripum að verðmæti
50.000 dollarar frá kvikmynda-
leikkonunni Jayne Mansfield
úr íbúð hennar f New York.
Innbrotsþjófarnir notuðu tæki-
færið þegar Jayne og maöur
hennar vom á göngu í Central
Park.
► Sophia Loren, Rock Hud-
son og franski leikarinn Pierre
Brice hafa fengið „bambi“verð
Iaun vestur-þýzka kvikmynda-
iðnaðarins sem „vinsælustu
kvikmyndaleikaramir 1964.“
Höfum kuupendur
með miklar útborganir að ein-
býlishúsi Hafnarfirði, Garða-
, hreppi eða Kópavogi. Útborgun
. 1 millj. kr.
3ja herbergja íbúðum í Rvík.
TIL SÖLU.
3ja herb. íbúð við Njálsgötu.
3ja herb. fbúð við Fálkagötu.
3ja herb. Ibúð við Hagamel.
;8 herb. íbúð á Seltjamamesi,
ásamt stórri eignarlóð.
LOGMANNAL
og fasteignaskrifstofan
USTURSTRÆTI 17. 4. HÆD. . SÍMI 17466
lumadur Gudmundur Ólaísson heimas: 17733
TWrrtun ?
prcntsmiðfa í. gémmifttmplagerð
Elnholtl l - Slml 20960
I