Vísir - 12.05.1965, Page 16
af Arlis komnir
Miðvikudagur 12. maí 1965
Arlismenn á flugvallarhótelinu í morgun.
til Kefíavíkur
Langar að fara úr ísnum í eldinn,
þ.e. af Arlis í Surtsey
ísbrjóturinn Edisto kom til Kefla
vfkur í morgun kl. 7,30 með vfs-
indamenn og aðstoðarmenn þeirra
af fsjakanum Arlis II., sem nú
hefur verið yfirgefinn og sveimar
einmana um og stefnir í norðvestur
og sveigir sennilega fyrir suður-
odda Grænlands og norður með
landinu.
Blaðamaður og ljósmyndari frá
Vfsi hittu þá að máli mennina af
Edisto í morgun á Keflavíkurflug-
velli. Þeir eru 17 talsins mennimir,
sem voru á jakanum nú slðast,
menn ýmissa vísindagreina, haf-
fræði, veðurfræði, fiskifræði, og
auk þess ýmsir aðstoðarmenn
þeirra. Þrír þessara manna hafa
verið á jakanum síðan 1961 að at-
huganir hófust þar. Að vísu hafa
þeir skroppið heim til Bandaríkj-
anna í stutt leyfi en vistin á jak-
anum er orðin löng og ströng.
Strax og commander D. Nicker-
son skipstjóri á Edisto hinum
stolta ísbrjót Banarikjaflota hafði
kastað út akkemm á ytri höfninni
í Keflavík tóku þyrlurnar að fljúga
út á skipið til að flytja vistimar á
land. Var flogið með þær á Kefla-
víkurflugvöll þar sem tekið var á
móti þeim skammt frá flugvallar
hótelinu. Einnig flugu Arlis-menn
með þyrlu til vallarins.
Nickerson skipstjóri sagði blaða-
manni að ferðin út á Arlis hefði
verið ströng ferð. En skipið komst
ekki alveg að jakanum, og þyrlur
fluttu vfsindatæki og annað minni
háttar um borð í skipið alls um 20
þús pund. Einnig vom sleðar not-
aðir í því skyni. Var veridnu lokið
á sunnudagskvöld og þá lagt af
stað út úr hinum mikla lagnaðaris
sem umlykur Arlis II. Lenti skipið
í geysimiklum stormi, sem reyndar
varð hjálplegur, því ísinn gliðnaði
og ágæt læna myndaðist fyrir Ed-
sto til að s’igla út á opið haf. Það
Framh. á bls. 6
LANDSVIRKJUN
AÐ LÖGUM
J gær var samþykkt á Alþingl sem
lög frumvarp ríkisstjórnarinnar
um Landsvirkjun í Þjórsá við Búr-
fell. í hinum nýju lögum er gert
ráð fyrir því að reist skuli allt að
210 þús. kw. raforkuver við Búr-
fell á næstu árum. Það mun kosta
um 1700 millj. að varaaflsstöövum
meðtöldum, en þær em taldar nauð
synlegar vegna ísreks í ánni. Vænt-
anlega mun Alþjóðabankinn í Was-
hington lána til virkjunarfram-
kvæmda þessara, en ráðgert er, að
hluti raforkunnar um 60% verði
seldur alumínbræðslu Svisslend-
inga, ef samningar takast. 40% raf
orkunnar verður þá notað til innan
landsnota.
Landsvirkjunin verður sameign
rikisins og Reykjavikurborgar.
Tekur Landsvirkjunin formlega við
í sumar öllum eignum Sogsvirkjun
arinnar og vatnsréttindum í ám á
Suðurlandi. Síðar geta Norðlend-
ingar gengið til eignaraðildar að
Landsvirkjun með Laxárstöðvar sfn
ar.
Við meðferð málslns á þingi bar
stjómarandstaðan fram ýmsar
breytingartillögur, m.a. um að ekki
yrðu virkjuð nema 70 þús. kw og
aðelns tll nota fyrir íslendinga
sjáifa. Breytingartillögur við fmm
varpið vom allar felldar.
Þyrla flýgur upp frá Edisto með tæki visindamannanna.
Ætiaði að strjúka úr landi
í gær barst lögreglunni f Reykja j hafði út af Keflarvíkurflugvell’i þá
vfk beiðrii frá lögreglunni á um morguninn og hafði í hyggju
Keflavíkurflugvelli um að leita að strjúka úr landi. Hafði hann
uppi amerískan sjóliða, sem stolizt I farið út óeinkennisklæddur. Beiðni
700skólamenn á móti hér i sumar
Fjölmennasta norræna mótið, sem
haldið hefur verið hér ú landi
Á milli 600-700 kennarar og
aðrir þátttakendur vfðsvegar að
af Norðurlöndum koma hingað
á Norræna skólamótið, sem hald
ið verður hér dagana 22.-24. júlí
Verður þetta fjölmennasta nor-
ræna mótið, sem haldið hefur
verið hér á landi til þessa.
Þátttakendur frá hinum Norð-
urlöndunum hafa Jeigt skip, er
tekur um 370 farþega, og er
það þegar fullsk’ipað. Aðrir
þátttakendur koma flestir með
leiguflugvélum. Ferðaskrifstofa
rfkisins mun annast útvegun á
gist’ingu í samráði við fulltrúa
undirbúningsnefndar. Þeir þátt-
takendur sem koma með skip-
inu munu búa um borð.
Á sfðasta skólamót'inu, sem
haldið var í Kaupmannahöfn
1961 var samþykkt að halda
næsta mót, hið 19. f Reykjavfk.
Er þetta fyrsta skólamótið, sem
haldið verður hér á landi'.
Fyrsta skólamótið, fyrir öll
Norðurlönd var haldið í Gauta
borg árið 1870. Frá þeim tfma
hafa þessi mót verið haldin
til skiptis á Norðurlöndum,
oftast í höfuðborg viðkomandi
lands, með nokkurra ára milli-
bili. í framtíðinni er ætunin að
halda þessi mót á fimm ára
fresti.
Norrænu skólamót’in fjalla
um þau mál, sem efst eru á
baugi hverju sinni á sviði
skóla- og uppeldismála, allt
frá barnafræðslu upp f háskóla.
Viðfangsefni skólamóts’ins hér
verður: Þróun í uppeldi og
kerinslu á Norðurlöndum. Alls
munu um 30 erindi verða flutt
sem fjalla m.a. um skyldu-
námsskóla, menntaskóla og
menntun kennara. Á dagskrá
mótsins verða ennfremur við-
ræðufundir og 1 rökræður að
loknum framsöguerindum. Að
móti loknu verður gefið út rit
með framsöguerindum og öðru
þvf helzta, sem fram kemur á
mótinu. Af erlendu fyrirlesur-
unum má geta Helge Sivertsen,
menntamálaráðherra Noregs,
K. Gro-Nielsen, kennaraskóla-
rektor Danmörku, Jónas Orr-
íng, fræðslumálastjóra Svíþjóð
og Martti Takala, prófessor,
rektor Finnlandi. Af íslands
hálfu flytja aðalerindi: prófess-
or dr. phil. Matthías Jónasson,
Helgi Elfasson, fræðslumála-
stjóri, dr. Broddi Jóhannesson,
skólastjóri og Magnús Gíslason
fil. lic., námsstjóri.
Undirbúningur að skólamót-
inu hér hófst fyrir tveim árum
og var skipuð átján manna
undirbúningsnefnd tilnefnd af
Menntamálaráðuneytinu, Rvíkur
Sambandi fsl. barnakennara,
Landssambandi framhaldsskóla
kennara og félagi menntaskóla-
kennara, með fulltrúum þessara
aðila. Form. nefndarinnar er
Helgi Elíasson, fræðslumálastj.
Væntir undirbúningsnefndin
Framh. ð bls. 6
þessi kom til íslenzku lögreghmnar
á flugvell’inum frá amerísku her-
lögreglunni. Eftir nokkra eftir-
grennslan fannst sjóliðinn f húsi
einu hér í borg og var hann geymd
ur á Iögreglustöðinrii þar til her-
lögreglan kom og sótti hann. Sem
kunnugt er, er liðhlaup með allra
alvarlegustu brotum f hernum.
Surtur byrjur
uftur með
fuilum krufti
Vestmannaeyjum f morgun.
Menn voru famir að halda,
að Surtur væri að hætta sfnu
gosi, þar sem hann lá heldur
lágt niðri um helgina og þang
að til í gær. En í morgun var
hann aftur farinn af stað af
fullum krafti. Sést héðan úr
Eyjum mikill gufumökkur sem
stendur upp af rönd eyjunnar,
þar sem hraunið rennur til sjáv
ar. Ber það vott um að mikið
hraunrennsli sé áfram úr eld-
fjallinu.
ASKRIFTARSmi VISIS ER 1-16-61
VÍSIR ER ODÝRASTA DAGDLAÐIÐ í ÁSKRIFT — KOSTAR 80 [ZR. Á NIÁNUDI