Vísir - 14.05.1965, Side 1
í dag er hinn „opinberi“
komudagur kríunnar. í hugum
almennings kemur krían ævin-
lega þennan sama dag og
Reykvikingar halda jafnvel aí>
hún beini fluginu rakleiðis í
hólmann á Reykjavíkurtjöm,
enda hefur hann verið tekinn
frá, sérstaklega fyrir kríuna, af
girtur þannig, að álftirnar geti
ekki lagt hólmann undir sig.
Þessa mynd tók ljósmyndari
Vísis, Bragi Guðmundsson, £
gær með aðdráttarlinsu og
stækkaði myndina slðan mikið
Krían sést hér steypa sér
inn á hólmann, en það er eins
og álftin lfti öfundaraugum á
litla fuglinn, sem nýtur þess-
ara iríiklu forréttinda.
Fróðir menn um fuglamál
sögðu í morgun, að hún hefði
komið snemma í þessum mán-
uði og sézt víða úti við strönd-
ina eftir sitt erfiða flug yfir
hafið frá löndunum v'ið Suður-
skaut jarðar. Og fyrir nokkrum
dögum byrjaði krían land-
nám sitt í hólmanum. Hún hef
ur þvf verið á undan áætlun í
þetta skipti
Fyrir enda borðsins við gluggana em, talið frá vinstri: Jón Bergs, Benedikt Gröndal, Guðmundur Vilhjálms-
son, Ingvar Vilhjálmsson, Indriði Pálsson^ Kjartan Thors og Björgvin Sigurðsson.
Formaður Vinnuveitendasam-
bands islands, Kjartan Thors,
setti í gær aðalfund sambandsins
á Hótel Sögu. Bauð hann fundar-
menn velkomna og minntist Eiías-
ar Þorsteinssonar, sem var einn
stjórnarmanna og lézt nýlega. Vott
uðu fundarmenn hinum látna virð-
ingu með því að rísa úr sætum.
Framkvæmdastjóri Vinnuveit
endasambandsins, Björgvin Sig-
urðsson, flutti skýrslu sfðasta
starfsárs og endurskoðaða reikn-
inga og var hvort tveggja sam-
þykkt.
Fór síðan fram stjórnarkosning,
en alls eru 39 manns f stjórn sam-
bandsins. Kosnar voru fastar
starfsnefndir fundarins. Þingið
kom aftur saman fyrir hádegi í dag
og hófu nefndir þá að skila áliti
sfnu.
SKIPSTJÓRI HAFBI í HÓTUNUM
OG ÓGNAÐIMEÐ RAKETTUB YSSU
Skipstjórinn á Aiderskot,
Leslie Cumby.
Frá fréttamanni Vísis,
Valdimar Jóhannessyni,
sem staddur er á Norð-
fh-ðL
Eitt það alvarlegasta, sem
komið hefur fram við réttar-
höldin hér yfir brezka skip-
stjöranum Lesiie Cumby, er
það, að hann tók um skeið
fram rakettubyssu og ógnaði
varðskipsmönnum, sem voru
í stjómklefanum, með henni.
Þegar skipstjórinn var spurð
ur um þetta atvik fyrir rétt-
inum, sagði hann að þetta hefði
aðeins verið „practical joke“
eða í glettni gert.
Skammbyssu beitt
Skipstjórinn og stýrimaður
hans Leonard Kurz er var skip
stjóri á öðrum togara fyrir
nokkrum mánuðum og var þá
líka dæmdur fyrir landhelgis-
brot á ísafirði, höfðu báðir í
frammi hótanir og margháttað-
an mótþróa og auk þess gáfu
þeir skipshöfninni fyrirmæli um
að safnast að stjórnklefanum
vopnaðir með barefli og axir.
Átti 1. stýrimaður Höskuldur
Skarphéðinsson engra kosta völ
annarra en að taka skammbyssu
sína úr sliðrum til að verja sig
gegn yfirvofandi árás skipshafn
ar.
30 togarar í hóp
Hér verður nú rakið nokkuð
það helzta sem kom fram við
réttarhöldin sem hófust kl. 5
síðdegis. Fyrst er að segja frá
þvf að Guðmundur Kjærnested
skipherra skýrði frá þvf að Þór
hefði komið þama að um 30
brezkum togurum sem voru á
togveiðum. Hefðu þeir allir verið
á hraðri leið út og gæti það
bent til þess að hópurinn hefði
verið að veiðum innan landhelgi.
En þegar Þór kom að mældist
honum svo til að tveir togaranna
væru enn innan landhelgi. Ætl-
aði hann að ná f þá báða, en
annar þeirra komst inn í togara
þvöguna. Varð þá að láta nægja
að snúa sér að hinu skipinu, sem
var togarinn Aldershot.
Meitilför sjást
á togvírum
Nú ber mest f milli hjá varð-
skipsmönnum og hinum brezka
íogaraskipstjóra, hvort hann
hafi verið að veiðum. Varðskips
menn halda því fram að hann
hafi verið með vörpuna úti en
höggvið hana af sér. Skipstjór-
inn segist ekki hafa verið á
veiðum þarna, heldur hafi hann
fyrir löngu verið búinn að missa
vörpuna út, þegar hann var á
veiðum við Langanes.
Framh. á bls. 6
Þrír íslenzkir varðskipsmenn í stjórnklefa togarans. Myndin var tekin á hafi úti, þegar verið var að
sigla togaranum til lands.