Vísir - 24.06.1965, Side 11
V í S I R . Fimnr' 24.
f J
KR kom á óvart í miklu
markaregni í Laugardal
Höfðu 3:1 yfir á tímubili,
úrvulinu tókst uð jufnu 4:4 í
Aðeins nokkrum mínútum eftir að Mogens Johan-
sen, hinn reyndi markvörður Sjálandsúrvalsins fékk
afhentan fagran blómvönd frá KR-ingum í tilefni af
25. leik hans með úrvalinu, „afhentu“ KR-ingar hon-
um boltann í netið. Staðan var 1:0 KR í vil og aðeins
3 mínútur liðnar af leik. Og sennilega hafa fáir af
þeim 5600 áhorfendum, sem komu inn á Laugardals-
völl í gærkvöldi, þorað að vona að KR og úrvalslið
knattspyrnumanna af Sjálandi skildu með jafnan hlut,
eftir fjörugan og skemmtilegan leik, þar sem knött-
urinn var sóttur átta sinnum í netið.
Þegar leikur KR og SBU hófst í
gærkvöldi var austan strekkingur
og völlurinn blautur eftir rigning-
arúða. En áhorfendur þurftu ekki
að bíða lengi eftir fyrsta markinu.
© Baldvin \ Baldvinsson skorar
fallega strax á 3. mín. með skalla
eftir vel framkvæmda hornspyrnu
hjá Sigurþór. Johansen markvörð-
ur gerði heiðarlega tilraun til þess
að verja, en knötturinn strauk fing
urgóma hans og hafnaði ofarlega í
hægra horni. 1:0.
• Á 10. mín. bendir Steinn Guð-
mundsson dómari ákveðið á víta
spy,rnupiinktinn,. eftir að,. sóknar-
leikmanni SBU hafði verið brugðið
gróflega inni í teig. Ove Andersen
tekur spyrnuna og skorar auðveld-
Kennslubækur
fyrir golfmenn
Forráðamenn Golfklúbbs Reykja
víkur vinna nú að því, að útvega
erlendan golfkennara til starfa á
golfveili félagsins við Grafarholt.
Verður væntanlega hægt að til-
kynna um frekari námskeið fyrir
byrjendur á næstunni.
Stjórn G.R. hefur keypt nokkurt
magn af kennslubókum á ensku
fyrir byrjendur. Bækur þessar, sem
kosta kr. 25.00, er hægt að fá
keyptarhjá formanni G.R., Þorvaldi
Ásgeirssyni, Vonarstræti 12, Birgð
ir eru takmarkaðar og er því byrj-
endum ráðlagt að tryggja sér ein
tak sem fyrst.
en Sjúlnnds-
seinni húlfleik
lega með föstu skoti neðst í
vinstra hom.
• Boltanum spyrnt fram miðjuna
til Gunnars. Niels Yde miðvörður
á í höggi við hann, og slær boltann
með hendi, en boltinn hrekkur til
Baldvins, sem kemst einn inn fyrir
vörnina. Dómarinn er of fljótur
á sér og dæmir hendi, þannig að
Danirnir hagnast á brotinu. Sveinn
Jónsson tekur aukaspymu, sem
hafnar hjá Þórólfi inni í teig. Þór-
ólfur „vippar" knettinum skemmti
lega yfir Johansen markvörð og
til Ellerts, sem stóð framar og
skallaði í netið. Sennilega hafa
báðir verið rangstæðir. Dönsku
leikmennimir stöðvuðu leik strax,
en dómarinn dæmdi mark.
• 3:1 fyrir KR kemur á marka-
töfluna. Sigurþór skorar stórglæsi-
legt mark með hörkuskoti af 25
m. færi, sem lenti undir slá og inn.
32 mín. liðnar af leik.
:@';!!Átnb Dyemose skoraði fyrif
SBU, eftir að Danirnir höfðu léikið
upp miðjuna. Dyremose fékk bolt-
ann inn í vítateig lyfti honum yfir
varnarleikmann KR og skallar
fallega í vinstra hornið.
Þannig lauk fyrri hálfleiknum
3:2 fyrir KR. Hálfleikurinn var
mjög jafn og yfirleitt skemmtilega
leikinn, en KR átti þó fleiri hættu
leg tækifæri. — Ekki þurfti heldur
að bíða þess lengi að fyrsta mark
ið kæmi eftir leikhlé.
• Danirnir jafna strax á 3. min.
Larsen vinstri útherji óð óvaldaður
upp vinstri kant og skoraði auð-
veldlega fram hjá Heimi, sem kom
hlaupandi á móti honum.
• Sigurþór skorar sitt annað
mark og það fjórða fyrir KR, þeg
ar 10 mínútur eru liðnar af seinni
hálfleik. KR-ingar höfðu leikið
skemmtilega upp hægri kant og
Gunnar Felixson lagði boltann vel
fyrir Sigurþór, sem afgreiddi hann
af stuttu fær í hægra hom.
• Sfðasta mark leiksins skoraði
Jörgen Jörgensen auðveldlega á
12. mín. eftir að hafa fengið góða
sendingu inn i vítateig. KR-ingar
héldu því ákveðið fram að Jörgen-
sen hafi verið rangstæður, en bæði
Steinn dómari og Baldur línuvörð
ur dæma mark. Staðan 4:4.
Það sem eftir var af leiknum var
fremur þófkennt eða þar til rétt
undir lokin að nokkur hættuleg
tækifæri sköpuðust, en endahnút
inn vantaði. Á 15. mín. seinni hálf-
leiks varð Þórólfur Beck að yfir-
gefa völlinn vegna meiðsla í fæti,
sem hann hlaut skömmu fyrir lok
fyrri hálfleiks. í hans stað kom
Theodór Guðmundsson. Án efa
verður skemmtilegt að fylgjast
með hvernig Sjálandsúrvalinu geng
ur á móti íslandsmeisturunum
Keflavík og tilraunalandsliðinu, en
nú em síðustu tækifæri fyrir knatt
spymumenn okkar að sýna hvort
þeir séu hæfir að klæðast landsliðs
búningum í landsleiknum á móti
Dönum.
Lubbi.
LIÐ KR:
KR-liðið átti sinn bezta Ieik
nú í sumar á móti SBU f gær.
Þótt Þórólfur Beck skoraði
ekkert mark í leiknum, styrkti
hann liðið mikið og veitti félög
um sínum styrk. Sendingar
hans voru oft á tíðum nákvæm
ar og áður en hann meiddist í
fyrri hálfleik ógnaði hann
danska liðinu mikið, þótt hans
væri vel gætt. Beztu mennirnir
í liði K.R. auk Þórólfs voru
Heimir, Sigurþór og Ellert. Bald
vin var og ágætur.
LIÐ SBU:
Sjálenzka úrvalsliðið virðist
skipað mjög jöfnum leikmönn-
um sem em léttir og höfðu á-
berandi betri boltameðferð en
KR-liðið. Hins vegar háði það
liðinu oft f gær hvað það
dreifði spilinu lítið, reyndi að
brjótast upp miðjuna, og nota
ekki útherjana. „Miðtríóið“
Jörgensen, Dyremose og Ander-
sen eru allir skemmtilegir og
hættulegir sóknarleikmenn og
ekki má heldur gleyma Johan-
sen markverði liðsins, en ekki
var hægt að saka hann um neitt
af þeim fjórum mörkum, sein
SBU fékk á sig í fyrsta leik
sinum í gær.
"•m**' "s <"
.
; :lntin >
0«! J
Dómari dæmdi 6 sinnum
mark, ea leik lauk 5:0
Dómarar verða að gæta meira hófs
Spurning er, hversu langt vald
dómara í knattspyrnuleik getur
náð. Dómarinn er sá maðurinn
á vellinum, sem mest völdin
hefur, og þær mínútur, sem
hann er S vellinum, er hann ein-
valdur orð hans eru lög. „Ég
er rfkið“. sagði Lúðvík gamli
14. Frakkakonungur og slíkt hið
sama virðist skfna út úr gjörð-
um sumra knattspyrnudómara
okkar.
Lítið dæmi um þetta: Leik f
miðsumarsmóti 1. flokks lauk
með stórum sigri Fram yfir
Þrótti. Leikmenn beggja liða, 22
talsins, áhorfendur talsvert mik
ið fleiri og jafnvel Iínuverðir
gengu frá leikvelli að Ioknum
leik og töldu að Fram hefði
sigrað 6:0. En hvað gerist? Dóm
arinn skrifar á skýrslu sína a'á
leikurinn hafi farið 5:0. Að vfsu
ekkert alvarlegt í þessu tilviki,
en gæti hafa verið verra.
Allir voru sammála um að
leiknum hefði lyktað með 6:0
sigri nema einvaldurinn á vell-
inum og þar við sat Opinber-
Iega fór þessi Ieikur 5:0, enda
þótt Framarar hafi 6 sinnum
sett boltann í net mótherjanna
og dómarinn jafnoft lagt bless-
un sfna á mörkin.
Dómarar verða að gæta meira
hófs í dómum sinum. Þeir eru
ekki „ríkið“ og eru mannlegir
Og getur skjátlazt. — jbp —
Mogens Johansen, danski markvörðurinn, stekkur upp og grípur fyrir
I framan nefið á Baldvin Baldvinssyni^ miðherja KR. (Ljósm. B. B.).