Vísir - 03.07.1965, Page 8

Vísir - 03.07.1965, Page 8
p (*a VlSIR . Laugardagur 3. júlí 1965. VÍSIR (Jtgetandi: Blaðaútgáfan VISIR Ritstjóri: Gunnar G. Schram Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjórar: Jónas Kristjánsson Þorstemn Ö Thorarensen Ritstjórnarskrifstoíur Laugavegi 178 Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3 Askriftargjald er 80 kr á mánuði 1 lausasölu 7 kr. eint. — Simi 11660 (5 línur) Prentsmiðja Visis — Edda h.f Ný byggingasvæði Fyrir nokkrum dögum birtist hér í blaðinu ítarleg frásögn af nýjasta hverfi Reykjavíkur, Árbæjarhverf- inu, þar sem íbúðarhúsabyggingar eru nú nýhafnar. Á þessum fagra stað í útjaðri borgarinnar mun á næstu mánuðum og misserum rísa 4—6000 manna hverfi. Skipulagning og bygging þessa stóra nýja íbúðahverfis mun leysa úr húsnæðisvandræðum margra og nú vinna borgaryfirvöldin að því að skipu- leggja annað nýtt byggðahverfi, Fossvoginn, og að því búnu Breiðholtshverfið svonefnda. Þannig þarf áfram að vinna markvisst að því að skipuleggja ný hverfi, svo ekki standi á úthlutun lóða og gerð gatna og holræsa, heldur að þeir sem hug hafa á því að byggja yfir sig og fjölskyldu sína geti sem allra fyrst fengið jarðnæði til þess. J>egar rætt er um lausn húsnæðismála Reykvíkinga má minna á það, hve mjög lán húsnæðismálastjóm- ar hafa hækkað frá því 'sem áður(v^ þíú er lánað allt að 28Ö þúsund ■ krónum ,út á íbúð. nEr það um >;< 280% hækkun lánanna frá því sem var á tímúm vinstri stjórnarinnar. Sá samanburður er þó vitan- íega ekki raunhæfur vegna hækkaðs byggingarkostn- aðar, nema tillit sé tekið til þeirrar hækkunar á þessu tímabili. Hækkun byggingarvísitölunnar er á því tímabili þó innan við 100%, svo af því sést að lánin hafa mjög hækkað að raunverulegu verðgildi. Svo mjög hafa sjóðir Húsnæðismálastjórnar nú verið efld- ir, að tekjur þeirra eru nú tífaldar borið saman við það, sem var fyrir tveimur árum. Það er gleðileg staðreynd og öllum í hag, sem hyggjast koma sér upp eigin íbúð. Orð Gunnars „Ég vona, að afhendingin megi verða báðum þjóð- unum til gæfu“, sagði Per Hækkerup utanríkisráð- herra Dana í gær, er hann undirritaði, ásamt Gunn- ari Thoroddsen, samning um afhendingu hluta ís- lenzku handritanna. Við íslendingar tökum af heil- um hug undir þessi orð hins danska ráðherra. í hand- ritamálinu hefur danska þjóðin sýnt stórhug og rík- isstjórn hennar djörfung, sem íslenzka þjóðin mun ætíð mikils meta. Við undirritun samningsins vitn- aði Gunnar Thoroddsen í orð Gunnars á Hlíðarenda, er hann mælti til Njáls: „Góðar eru gjafir þínar en meira þykir mér vert um vinfengi þitt og sona þinna“ Undir þessi orð tekur öll íslenzka þjóðin. Danir hafa sýnt í verki, að þeir skilja og meta að verðleikum hver menningarfjársjóður handritin eru okkur íslend- ingum, uppspretta þjóðernistilfinningar og samhengi sögu. Sú gjörð danska þingsins og mikils meirihluta iönsku þjóðarinnar að afhenda handritm mun á ís- iandi metin sem vináttu- og drengskaparbragð er seint mun fyrnast. Allur er varinn góður Er tappinn öruggur? Þessi spuming er undir skopmynd Anders í Svenska Dagbladet. Mynd af Boumedienne er á tappanum í flöskunni með al- slrska rauðvíninu (Vin Rouge d’ Algier) — en niðri í flöskunni er annar tappi sem flýtur þar á yfirborðinu og á honum er mynd af Ben Bella. Rýkur hinn tappinn úr stútnum — og hin- um stungið í hann i staðinn? Eða er það, sem gerzt hefir aðe’ins byrjunin, og hvers örlög verða þá að drukkna í rauðum legi? Það var mikil áherzla lögð á það í upphafi byltingarinnar, sem nú er um hálfs mánaðar gömul, að þetta væri blóðsút- hellingalaus bylting. En það kom brátt í ljós að stuðnings- mönnum Ben Bella varð aðeins haldið niðri með því að tefla fram herliði gráu fyrir járnum í Algeirsborg, Constantine og ., Bon?. Fréttir bárust um átök, að skotið hefði verið á stórar fylkingar stúdenta, sem höfðu að einkunnarorðum: Lifi Ben Bella, niður með morðingjann Boumedienne og þar fram eftir götunum. Vafalaust hafa þessar Beðið átekta með viðurkenn- ingu á byltingarráðinu í Alsír fréttir verði allmjög ýktar, sumar hverjar að minnsta kosti og af þeim sökum lét Bylting- arráðið loka kúbanskri frétta- stofu í Alsír, svo sem greint hef ur verið í fréttum og vísa úr landi tveimur fréttamönnum L‘Humanité, sem er höfuðmál- gagn franskra kommúnista. En NTB-fréttir í gær hermdu, að í óe'irðum í Bone (hafnarbæ A1 geirsborgar) myndu um 30 menn hafa fallið, er herlið skaut á fylkingar stuðnings- manna Ben Bella — flestir 22. júnf. Nú er þar þó sagt allt með kyrrum kjörum, en vopn- að lið hvarvetna, en verðir fjarlægðir inni £ Algeirsborg af torgum og götuhornum. ÞÖGLIR MENN t yflrlitsgrein í norsku blaði nú í vikunni segir á þessa Ieið: Aðalmennirnir í París eru þöglir menn. Þeir hafa verið þöglir í tíu daga. Það á við um Ben Bella og það á við um manninn, sem sá um, að honum væri steypt af valdastóli. Eng- inn utan þröngs hrings getur sagt með vissu hvort þaggað hefur verið niðri f Ben Bella til frambúðar eða hvort hann bara er „dauður stjórnmálalega, en annars við beztu heilsu“, eins og einn af talsmönnumbylting- arráðsins komst að orði nýlega. Og enginn utan þessa sama hrings getur sagt með nokkurri vissu hvort Boumedienne hef- ur sett sér það mark að verða forsætisráðherra. Hann hefur aldrei sagt að hann væri hinn nýi leiðtogi — aldrei komið fram í útvarpið og gert þjóð- inni nána grein fyrir því, sem gerzt hefur. Hið eina sem mað- ur veit með fullri vissu er að Boumedienne undirritaði til- kynninguna , að „harðstjór- anum“ Ben Bella, hefði verið steypt og Byltingarráð tekið stjórn landsins í sínar hendur. í greininni er bent á, að ekki sé vitað um nöfn allra, sem sæti eiga í ráðinu — né hvaða stjórnmálastefnu það muní taka. Og þetta ráð hafi beðið sinn fyrsta alvarlega ósigur, þeg ar ekkert gat orðið af því, að haldin yrði ráðstefna Asíu- og Afríkuþjóða í Algeirsborg eins og ákveðið var. í greininni er þetta rakið nokkru frekar á þessa leið: „Eina huggunin fyrir þessa herra (í Byltingarráðinu) er, að Chou En-Lai og Súkarnó verða að bera með þeim þann álits hnekk, sem af þessu leiddi — eða leiðtogum Kína og Indónes- íu — þessum tveimur herrum sem af miklum fjálgléik höfðu lýst órofa vináttu sinni við Ben Bella á mektardögum hans, en voru svo áfjáðir í að halda til streitu að ráðstefnan yrði hald- in svo sem ákveðið hafði verið að þeir af eigin hvötum litu framhjá þeirri staðreynd, að væntanlegur gestgjafi þeirra var skynd’ilega horfinn — og létu sig hafa það að viður- kenna strax byltingarstjómina“ Ráðstefnunni hefur nú ver- ið frestað þar til í nóvember — er þriðja tilrauriin verður gerð til þess að kalla saman Algeirs borgarráðstefnu, en margt getur gerzt á 4 mánuðum. Það gæti verið að þeir ættu eftir að iðrast þess be’isklega að hafa verið svo fljótir á sér að veita blessun sína þeim, sem steyptu Ben Bella. Margt get- ur gerzt þennan tfma. Léið- togar bæði Sovétríkjanna og Egyptalands hafa að minnsta kosti tekið þá afstöðu að bíða átekta. Bandaríkin og Frakk- land hafa slegið á frest að við- urkenna hina nýju stjórn. þótt af öðrum ástæðum sé en liggja til grundvallar ákvörðununum í Moskvu og Kairo. í hinum vestræna heim'i vona menn án þess að gera sér neinar gylli- vonir, að Byltingarráðið mark stefnu sem verði ekki eins langt til vinstri og stefna Ben Bellr var — og leiðtogar landa eim og Sovétríkjanna óttast það Þess vegna er beðið. a

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.