Vísir - 10.07.1965, Síða 1

Vísir - 10.07.1965, Síða 1
VISIR Samið um 13,1% beina kauphækkun, auk verulegra hækkana meö taxtatilfærslum og aldurshækkunum SAGT EFTIR SAMNINGANA Björgvin Sigurðsson — Þetta var all dýr hækkun, nokkru dýrari en sú fyrir norðan og austan, sagði Björgvin Sigurðsson, frkvstj. Vinnuveitenda- sambands Islands, er Vísir leitaði álits hans á samning- unum. — Kauphækkun þessi á- samt kjarabótum er í raun 13.1% hækkun á tímakaup. Þama var samið um styttri vinnuviku, aukna aldurs- uppbót, taxtatilfærslur og fleira og hætt við að svo mikil hækkun kunni að stór skaða útflutningsframleiðsl- una og geti haft veruleg á- hrif á verðlag í landinu. Guðm.J. Guðmundsson — Þetta er stórmerkur sigur, sem unnizt hefur, sagði Guðmundur J. Guð- mundsson, varaformaður Dagsbrúnar. — 44 stunda vinnuvika, aldurshækkun og fleiri veikindafridagar eru allt mál sem þörf voru. Þó er kauphækkunin sjálf of Iág og enn vantar á að lagfær- ingar á samningunum séu fullnægjandi. Ég vil segja að þetta sé mikill sigur, á borð við samn ingana 1930, þegar vinnudag ur styttist úr 12 stundum f 10 stundir og 1942 niður í 8 stundir. Þó vil ég halda því fram, að verkafólk hér á landi búi við skarðan hlut. I gær náðist samkomulag í kaupgjaldsdeilu Dags- brúnar, Hlífar, Framtíðarinnar og Framsóknar við vinnuveitendur. Var samkomulagið undirritað í lok sólarhrings sáttafundar í Alþingishúsinu í gær kl 18. Var það síðan borið undir atkvæði á fund- um verklýðsfélaganna og vinnuveitenda sem haldnir voru í gærkvöldi og samþykkt þar. Sam- komulagið gildir í tæpt ár, til l.Júní 1966. Það er uppsegjanlegt með mánaðar fyrirvara. hækkunaratriðum, valda vísi- töluhækkun launa um ca. 8%. Sú vísitöluhækkun á laun al- mennt kemur til framkvæmda á næstu mánuðum. Undirstrika skal að vísitöluhækkun þessi greiðist til viðbótar við hinar umsömdu launahækkanir verka lýðsfélaganna sem fyrr var get- ið. if Þótt samið hafi nú verið við félög verkamanna og verka- kvenna viðsvegar á landinu er eftir að semja um kaup og kjör við félög iðnaðarmanna og ým- issa annarra starfsgreina. Verð ur nú tekið til við þá samninga. Hér fer á eftir orðrétt sam- komulagið sem I gær var gert, sá hluti j>ess sem alla samninga Framh. á bls. 5. * * * * Efni samkomulagsins er í meginatriðum sem hér segir: Allt grunnkaup hækkar um 4%. Vinnuvikan styttist um 4 tíma, úr 48 timum í 44 tíma, með óskertu grunnkaupi. Jafngildir þetta ákvæði 9.1% kauphækkun. Verkafólk á vikukaupi á rétt á 5% kauphækkun eftir 2 ára samfellt starf hjá sama vinnuveitenda. Ýmis ákvæði svo sem taxtatilfærslur og veikindaákvæði fela f sér allmiklar kjarahætur. ic Hin beina kauphækkun til þessara fjögurra verklýðsfélaga ásamt þeirri kauphækkun sem í vinnutímastyttingunni felst er því 13.1%. Við þetta bætast svo kjarabætur sem i aldurshækkun um og takxtatilfærslum og öðr um fríðindum felast. Er því ljóst að heildarkauphækkunin nemur hér allmörgum prósentum fram yfir 13.1%. ★ Eftir upplýsingum sem Vfs- ir aflaði sér í gærkvöldi mun samkomulag það sem gert hef- ur verið fyrir sunnan og norðan og austan, ásamt öðrum kaup- Myndin er tekin við undirskrift samninganna. Á myndinni sjást frá vinstri Kjartan Thors, Guðmund ur J. Guðmundsson (snýr baki í myndavélina), Bj örgvin Sigurðsson, sem er að undirrita samninginn, Skúli Pálsson, Barði Friðriksson, Torfi Hjartarson sáttasemjari (standandi) og Hermann Guð- mundsson formaður Hiífar. Víðtækar aðgerðir í húsnæðismáium BLAÐIÐ i DAG — Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar um húsnæðismól Vísi barst i gærkveldi yfir- ýsing rikisstjómarinnar um húsnæðismál, sem fylgir í kjöl- far sami.inga vinnuveitenda og verkalýðsfélaga f gær. Fjallar yfirlýsingin um ýtarlegar að- gerðir í húsnæðismálum, svo sem hækkun lá.ia fyrra árs úr 150 þúsund krónum f 200 þúsund, endurskoðun hámarks- lána miðað við vísitölu og ár- lega hækkun, er ekki sé minni en 15 þúsund krónur á ári og -m byggingu hagkvæmra íbúða fyrir láglaunafólk f verkalýðs- félögunum, þar sem notaðar verði fjöldaframleiðsluaðferðir og eigi byggðar færri en 250 ibúðir á ári. vfjrlýsingin hljóð- ar sv— I tilefni af lokum samninga við verkalýðsfélögin og að und- angengnum viðræðum við full- trúa rikisstjórnarinnar og full- trúa frá Alþýðusambandi Is- lands varðandi húsnæðismál, lýsir ríkisstjórnin yfir því, að hún muni beita sér fyrir eftir- farandi: 1) Lánsupphæð til þeirra um- sækjenda um íbúðalán. sem hófu byggingarframkvæmdir á tímabilinu 1. apríl til 31. des- ember 1964 hækki úr 150 í 200 þús. kr. út á hverja íbúð. Ríkisstjómin tryggi viðbótar- fjáröflun til Húsnæðismála- stjórnar á þessu ári, er nemi þvi viðbótarfjármagni, sem þessi hækkun krefst. 2) Hámarkslán Húsnæðis- málastjórnar verði endurskoðað frá og með 1. janúar 1966, með híiðsjón af hækkun vfsitölu byggingarkostnaðar frá því 1. júlí 1964. Lánsupphæðir verði síðan endurskoðaðar árlega með hliðsjón af breytingum byggingarkostnaðar frá því ár- ið áður. Næstu fimm árin skal hækkun lánsupphæðar ekki nema lægri fjárhæð en 15 þús. kr. á ári, jafnvel þótt byggingarkostnaður hækki lítið eða ekki. 3) Bygging hagkvæmra íbúða fyrir láglaunafólk { verkalýðs- félögum. a) Ríkisstjórnii. og Reykja- víkurborg í samvinnu við verkalýðsfélögin hefjist handa um byggingu hagkvæmra og ódýrra íbúða i fjölbýlishúsum. Framhald bls. 5

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.