Vísir - 10.07.1965, Síða 3

Vísir - 10.07.1965, Síða 3
V í S IR . Laugardagur 10. júlí 1965. Þessl skemmtilega mynd er tek in af þotunum á niðurleið. Hér munar sannarlega mjóu. undrið út um bllgluggann, stadd ir í umferðarkös á Hringbraut- inni. Þegar vélarnar mættust fyrst hafa eflaust einhverjir fengið fyrir hjartað, en útlitið átti eftir að verða svartara. Þeim leið til dæmis ekki vel í Nauthólsvikinni er þeir sáu Og þúsundirnar í öskjuhlíðinni bærðu höfuðin sem stör í vindi. Óhemjulegt safn lýsingarorða og blótsyrða mettuðu loftið — nú fer maður loks að skilja hvernig umhorfs hefur verið þegar flugvél flaug fyrsta sinn yfir Reykjavík. ☆ Þegar líða tók á sýninguna voru ýmsir komnir með háls- ríg og jafnbrátt sem amerísku þotuflugmennirnir höfðu komið voru þeir horfnir. Stutta stund arskóm og gátu þvl skotizt allar torfærur á tveim jafnfljótum. ☆ 1 þrjá stundarfjórðunga eftir lok sýningarinnar var umferðar kefi borgarinnar ekki á réttum kili. En fáir létu það á sig fá, þvi það er ekki á hverjum degi, sem slik hersveit kemur I heim- sókn. Er Bláu Englarnir höfðu lokið sýningunni yfir Reykjavík héldu þeir til Keflavíkur og gerðu þar nokkuð sem marga hefði fýst að sjá: þeir lentu allir samtím>- is, sex flugmenn á jafn mörgum þotum. Undrun, hrifningu og aðdáun mátti lesa úr hverju andlitl. Allir sem einn horfa menn á bandarísku flug kappana sýna listir sinar. Stundvíslega klukkan 18,30 litu þúsundir Reykvikinga nær samstundis til lofts er tvær af „Tiger“ vélum Bláu Englanna komu fljúgandi úr sitt hvorri átt inni niður að Fossvogi og skildu eftir sig tígulegan reykjamökk. Þá stuttu stund er þær nálguð- ust hvor aðra jókst spenna á- horfenda, unz þær mættust yfir Fossvogi þutu svo burt hver frá annarri og veltu sér þrjár veltur Flestir voru staddir á Öskju- hlíðartoppnum þegar sýningin hófst, en margir höfðu ekki komizt leiðar sinnar og urðu að láta sér nægja að skoða allt í einu eina þotuna koma hljóðlaust úr sólarátt fljúga út á hlið og stefna beint á áhorf- endaskarann. Nokkrir öskruðu en ein kona þó allra hæst, þótt flugmaðurinn bjargaði sér burt með þrumugný á síðasta augna bliki. Unglingsmaður nokkur hafði staðið stífur og hrærður yfir þessu afreki og sagði ekki annað en „Djöfullinn, maður“, þegar engillinn sveif frá. Stór hópur manna var samankominn úti í „eyjunni“ á miðjum flug- vellinum og minnti helzt á dá- leiddar hænur, er þeir sveigðu höfuðið háttbundið og jafnt. var sem menn væru eilítið vank aðir, en áttuðu sig síðan og hófst þá síðari hluti ævintýrs- ins. Eitthvað gekk mönnum illa að koma sér burtu og virðuleg- ir góðborgarar með hatta sátu óþolinmóðir í bílum sínum og neyttu síðasta úrræðis þess bíl- stjóra, er lent hefur í kös, að þeyta flautuna sem fastast. Þeg- ar fjórir bflar höfðu leikið flautu kvartett um stund smitaði hljómlistaráhuginn og æ fleiri tóku undir. Bílstjórarnir mynd uðu „bílflautuþjóðkór" og léku létt lög fyrir þá sem voru svo heppnir að mæta aðeins á Iðunn Þoturnar skildu oft eftir sig reykfald. ia<iuu*{qaU«ul É , h iJnsjí ENGLAFLUGIUPPHÆÐUM Mikill fjöldi bíla safnaðist saman hvar sem pláss var. Tvær „Tiger“ þotur mætast og snúa bökum saman yfir Skerfjafirði.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.