Vísir - 10.07.1965, Side 5
V1 S IR . Laugardagur 10. júlí 1965.
5
VÍSiR í GÆR
í gær kom Vísir ekki út
vegna vélarbilunar í prent-
smiðjunni Eddu, eins og til-
kynnt var bæði í hádegis og
kvöldútvarpi í gær. Hindraði
vélarbilun einnig útkomu Tím-
ans, sem þar er og prentaður.
Viðgerð var lokið f gærkvöldi
og kemur því Vísir út f dag á
tilsettum tíma.
Biður blaðið lesendur sína
velvirðingar á hindrun þeirri,
sem kom L veg fyrir að blað-
inu yrði dr'eift til kaupenda í
gærdag.
Samið —
Framh. af bls. 1:
fyrrgreindra verkalýðsfélaga
varðan
Það hefur orðið að samkomu
lagi með undirrituðum aðilum,
að framlengja kjarasamning aðil
anna dgs. 30. júní og 2. júlí
1964 með þeim breytingum sem
hér greinir:
I. Breytingar sem varða alla
samningana.
1. Vinnuvikan verði 44 klst.
með óskertu grunnkaupi, og
unnin á tímabilinu kl. 8—17
mánudaga til föstudaga og kl. 8
til kl. 12 á laugardögum. Á-
kvæði samninganna um vinnu-
tfma haldist að öðru leyti en
því að næturvinna telst frá kl.
12 á laugardögum.
2. Allt grunnkaup hækki um
4%.
3. Verkafólk sem öðlazt hefur
rétt til óskerts vikukaups, skal
eftir 2ja ára samfellt starf hjá
sama atvinnurekanda eiga rétt
á 5% kauphækkun á sama hátt
og mánaðarkaupsmenn.
4. í veikinda- og slysatilfellum
skal verkafólk, er réttar nýtur
skv. lögum nr. 16. 9. apríl 1958,
eiga auk ákvæða laganna, rétt á \
allt að 14 daga kaupi.
1 þessu sambandi skal vera
fylgt sömu reglum um greiðslur
og framangreind Iög kveða á
um.
5. Eftirvinnuálag skal vera 50%
á dagvinnukaup ,en nætur- og
helgidagaálag skal vera 91%
á dagvinnukaup.
6. Gjald atvinnurekenda í
styrktar- og/eða sjúkrasjóð'i fé
laganna greiðist samkvæmt
þeim reglum, er giltu á síð-
asta samningstímabili, einnig á
þeim, tíma, er samningar voru
lausir.
7. Tilsvarandi ákvæð'i orðist
svo: „Nú hefur verkamaður
eða verkakona unnið 6 klst.
eða meira samfellt í nætur-
vinnu og skal hann/hún þá fá
minnst 6 klst. hvíld ella greiðist
áfram nætuiVinnukaup, þó að
komið sé fram á dagvinnutíma
bil.“
8. Verkafólk, sem vinnur hluta
úr degi, samfellt hjá sama vinnu
veitenda, skal njóta sama rétt
ar um greiðslur fyrir samnings-
bundna frídaga, veikinda- og
slysadaga, starfsaldurshækkan-
ir og fleira og þeir, sem vinna
fullan vinnudag og skulu gre'iðsl
ur miðaðar við venjulegan
vinnutíma aðila.
Nú fellur niður vinna hjá at-
vinnurekenda svo sem vegna
þess að hráefn'i er ekki fyrir
hendi hjá fiskiðjuveri o.fl. skal
verkafólk einskis í missa varð-
andi framangre'ind réttindi af
þeim sökum.
TAXTATILFÆRSLUR
í öðrum kafla samkomulags-
ins eru ítarleg ákvæði um taxta
tllfærslur Dagsbrúnar og Hlíf-
ar og verða þau ákvæði ekki
rakin hér orðrétt.
Efn'i þeirra er m.a.: II. taxti
fellur niður og sameinast III.
taxta og númer taxtanna breyt
ist eftir þvf. Hafnarvinna fær-
ist úr 4. taxta f 5. taxta. Taxti
við Vinnu í frystiklefum, við kol
og salt, handlöngun hjá múrur
um, við holræsagerð og skurð
gröft, lýsishreinsun og nætur-
vörzlu hækkar.
3. taxti Dagsbrúnar verður
nú kr. 40.70 á tímann en hæsti
taxti, 9. taxti, verður kr. 51.62
á tfmann.
Þá e'iga sér einnig stað veru-
legar taxtahækkanir hjá verka
kvennaf élögunum.
Þá urðu aðilar samkomulags-
ins sammála um að skipa nefnd
til þess að ná samkomulagi um
kaup og kjör þeirra manna sem
vinna á stórv'irkum steypubíl-
um og gaffallyfturum í hafnar-
vinnu. Skal nefndin ljúka störf
um fyrir 1. september.
Húsnæðitmálin —
nhalú al bls i
Stefnt verði að því að nota fjölda
framleiðsluaðferðir og byggðar
ekki færri en 250 íbúðir á ári, er
byrjað verði á frá og með árinu
1966 fram til ársins 1970.
Af þessum 250 íbúðum verða
200 ætlaðar til sölu til láglauna-
fólks í verkalýðsfélögum, en 50
verði ráðstafað af Reykjavíkur-
borg, m. a. í sambandi við útrým-
ingu heilsuspillandi húsnæðis.
b) Með byggingum þessum verði
gerð tilraun til þess að sannreyna,
hve miklð megi laakka byggingar-
kostnað með góðri: skipulagningu
og fullkomnustu tækni, sem við
verður komið. Framkvæmd bygg-
inganna verði falin viðurkenndum
byggingaverktaka eða verktökum
á samkeppnisgrundvelli o.g með
sem víðtækustu útboði. Gerðar
verði sérstakar ráðstafanir til þess
að greiða fyrir innflutningi tækja
og byggingarhluta, eftir þvi sem
æskilegt reynist. Sérstaklega verði
athugað, hvort reyna eigi innflutn-
ing tilbúinna húsa, einkum til þess
að flýta fyrir því, að fyrstu íbúð-
irnar innan áætlunarinnar verði
tilbúnar.
íbúðirnar verði 2ja, 3ja og 4ra
herbergja, og verði þær staðsettar
í hverfum, þannig að við verði
komið sem mestrj hagkvæmni við
byggingarframkvæmdir. Gerð íbúð
anna og frágangur verði staðl-
aður, og það sjónarmið látið ráða,
að þær verði hagvæmar, smekk-
legar, en án óþarfa íburðar. Reynt
verði á allan hátt af opinberri
hálfu að greiða fyrir því, að hægt
verði að taka upp sem hagkvæm-
astar aðferðir við þessar íbúða-
byggingar í því skyni að lækka
byggingarkostnað.
c) Þeir meðlimir verkalýðsfé-
laga, sem fá kost á að kaupa þær
200 íbúðir á ári, sem að framan
greinir, skulu piga kost á allt að
80% Iáni út á verðmæti íbúðanna
að meðtöldu gatnagerðargjaldi.
Útborgun sé þannig hagað, að 5%
greiðist ári áður en inn er flutt,
en síðan 5% á ári í þrjú ár. Lán
Húsnæðismálastjórnar út á íbúðir
þéssar sé afborgunarlaust, á með-
an á útborgun stendur. Samið
verði við Atvinnuleysistrygginga-
sjóð um lánveitingar út á þessar
íbúðir, er komi tii viðbótar lánum
frá Húsnæðismálastjórn. 1 samn-
ingum þessum sé tryggt. að lán út
á þessar íbúðir geti orðið a.m.k.
til 33ja ára, þ.e.a.s. þrjú afborgun-
arlaus ár, en endurgreiðsla á 30
árum. Að öðru leyti séu kjörin hin
sömu og á lánum Húsnæðismála-
GERÐARDÓMUR í
FLUGMANNADEILUtmi
Fasta kauplð óbreytt — vinnutími
styttur — aukavinnuþóknun
Kjaradeila atvinnuflugmanna
hjá Loftleiðum, sem fljúga CL-
44 (Rolls Royce 400) er nú loks
til lykta leidd. Gerðardómurinn
í deilunni hefur kveðið upp
dóm og eru þetta heiztu atriði
hans: Hin föstu laun flugmanna
Loftlei'ða verða óbreytt. I öðru
lagi fá flugmenn nú greiðslu,
frá 175—350 kr., fyrir hverja
aukavinnustund. í þriðja lagi
styttist mánaðarvinnutfmi
þeirra úr 95 stundum í 88 stund-
ir.
Gerðardómurinn, sem hæsti-
réttur skipaði þrjá menn I hinn
12. maí síðastliðinn samkvæmt
lögum Alþingis frá 4. maí sl.
kom saman kl. 3 í fyrradag í
skrifstofu Kjaradóms að Lauga-
vegi 18 og felldi dóm. Með
þeim úrskurði hefur verið bund-
inn endahnútur á flækjur í um-
deildri kjaradeilu.
Sem kunnugt er fóru flug-
menn á Rolls-Royce flugvélum
Loftleiða í verkfall hinn 3. apríl
vegna þess að samningar milli
fulltrúa þeirra annars vegar og
fyrirsvarsmanna Loftleiða h.f.
náðust ekki. En með lögum nr.
18 frá 4. maí, sem fyrr segir,
var boðið, að verkfall flug-
^m^npa þeirra, er hér um ræðir,
værijóheimilt frá gildistöku lag
anna. í annarri grein þessara
laga var boðið að Hæstiréttur
skyldi kveða þrjá menn í gerðar
dóm, sem ákvæði kjör flug-
manna á flugvélum af gerðinni
R-R 400. Þessir þrír menn voru
skipaðir f dóminn: Sveinbjörn
Jónsson, hrl., Benedikt Sigur-
jónsson hrl., og Svavar Pálsson,
lögg. endurskoðandi.
Flugmenn hófu störf þegar
eftir gildistöku laga Alþingis
(nr. 18/1965) en eigi varð sam-
komulag um hámark flugtíma-
fjölda. Urðu um þetta deilur.
Hinn 17. maí s.l. tókst sam- •
komulag milli aðila um það, að
Agnar Kofoed Hansen skyldi
skera úr til bráðabirgða.
Hann ákvað síðan, að hámarks-
flugstundafjöldi á mánuði
skyldi vera 95 klst. og vakttími
lengst 17 klst. á 24 stundum.
Flugmenn á Rolls-Rooye-vél
unum fóru hins vegar fram á,
að hámarksflugstundafjöldi
hverja 30 daga skyldi vera 60
klst. (til vara var gerð sú
krafa, að hámarksflugstunda-
fjöldi fyrir 30 daga yrði á-
kveðinn 68 klst.)
í kröfum sínum fóru flug-
menn fram á, að þeim yrðu
greiddar kr. 250 fyrir hverja
flugstund. Og það munu þeir fá
nú samkvæmt gerðardómnum í
stað kr. 220.80, þ.e.a.s. flug-
stjórar og aðstoðarflugmpnn
' kr 125 eins þg þeir fóru fram á.
f kröfum um‘'fðsé ikúfí'flug-
stjóra var far'ið fram á kr. 29.
200 á mánuði (fyrir fyrsta ár)
og kr. 38 þús. á mán. fyrir 15.
ár. Aðstoðarflugmenn skyldu fá
24.128.000 á mánuði. Gerðar-
dómur ákvað að föstu launin
skyldu vera hin sömu og sam-
ið var um í fyrrasumar: Flug-
stjórar skuli fá kr. 14.600-
19.000 á mán. (1.-15. ár) og að
stoðarflugmenn kr. 12-14.200
þús. kr. miðað við starfsaldur.
Gerðardómur ákvað, að Loft
leiðir h.f. tryggi hverjum flug-
manni þóknun fyrir 780 flug-
stundir á ár'i. Ennfremur að „ef
flugstjóri flýgur meira en 70
stundir á einhverjum alman-
aksmánuði, skal auk framan-
greinds flugstundagjalds,
greiða honum þóknun er nem-
ur krónur 350.00 fyrir hverja
flogna flugstund fram yfir 70
flugstundir f mánuðinum. Að-
stoðarflugmönnum skal greiða
umrædda þóknun að hálfu mið
að við flugstjóra."
Ákvörðun gerðardómsins gild
ir frá 4. maí 1965 til 1. febrúar
1966.
Viðtal við formann Loftleiða
Vísir hringdi í gærkvöldi í
form. Loftleiða, Kristján Guð-
laugsson, hrl., t'il þess að leita
álits hans á úrskurði gerðar-
dóms í kjaradeilu flugmann-
anna á Rolls-Roycevélunum.
„Ég hef ekki nema gott eitt
um þetta að segja.“ Hann kvað
báða aðila telja málið farsæl-
lega til lykta leitt eftir atvikum
„Að mínum dómi er þetta mjög
skynsamlegur og vel unninn úr
skurður af hálfu gerðardóms-
ins. Ég get ekki nema lokið lofs
orði á dóminn, — hann var
vel undirbyggður í alla staði.“
stjórnar á hverjum tíma, sbr. þó
lið 4).
d) Yfirumsjón með framkvæmd
þessarar byggingaráætlunar verði
í höndum nefndar, er skipuð sé
tveimur fulltrúum frá Húsnæðis-
málastjórn, einum frá Reykjavík-
urborg, einum tilnefndum af Al-
þýðusambandi íslands og einum
af fulltrúaráði verkalýðsfélaganna
í Reykjavík. Félagsmálaráðherra
skipi formann nefndarinnar. Allur
undirbúningskostnaður á vegum
nefndarinnar og sérfræðilegra ráðu
nauta hennar verð'i greiddur af
Byggingarsjóði ríkisins og Reykja-
víkurborg.
4) Unnið verði að því af hálfu
ríkis og sveitarfélaga að tryggja
láglaunafólki húsnæði, sem ekki
kosti það meira en hóflegan hluta
árstekna. í þessu skyni verði nú
hafin endurskoðun laga um verka-
mannabústaði og gildandi lagaá-
kvæð'i um opinbera aðstoð vegna
útrýmingar heilsuspillandi húsnæð-
is með það fyrir augum að sam-
eina til' frambúðar í e'inum laga-
bálki og samræma öll ákvæði um
opinbera aðstoð við húsnæðisöfl-
un láglaunafólks, þar á meðal um
þær íbúðabyggingar, sem um ræð
'ir í lið 3) hér að framan. Verði
samkomulag um nýtt kerfi á þessu
sviði væri rétt, að það tæki við
framkvæmd þeirrar byggingaráætl
unar, sem lýst er í l'ið 3) hér að
framan. Ríkisstjórnin hafi fuljt
samráð við verkalýðsfélögin um
þessa endurskoðun laga um hús-
næðismál láglaunafólks.
Yfirlýsing
í réttlætisins nafni verður ekki
hjá því komizt að taka fram, að
skoðanir á leikritum, sem sýnd hafa
verið í Þjóðleikhúsinu, sem mér eru
lagðar í munn í grein eftir sænsk-
an blaðamann, er var þýdd og birt
í Vísi í fyrrad. tru þar settar fram
algerlega á ábyrgð viðkomandi
sænsks blaðamanns og eru mér því
óviðkomandi.
Sveinn Einarsson.
Teknar úr umferð
Hjá ýmsum bifreiðaeigendum
Reykjavikurborgar hefur dregizt úr
hömlu að koma bifreiðum sínum til
skoðunar á tilteknum tíma og
veldur þetta ýmiss konar óþægind
um hjá Bifreiðaeftirlitinu og líka
hjá lögreglunni.
Nú er lögreglan tekin að fylgj-
Eiginmaður minn,
ast með þeim bifreiðum, sem ekki
hafa komið til skoðunar á ákveðn.
tíma. Héðan í frá mega þeir bif-
reiðaeigendur, sem trassað hafa
að fara með farartæki sín til skoð-
unar eiga á hættu að bifreiðirnar
verði stöðvaðar með lögregluvaldi
og þeir sjálfir kærðir og sektaðir.
KARL SIGURÐSSON, Ieikari,
verður jarðsunginn frá Neskirkju mánudaginn 12. júlí
kl. 13,30. Þeim, sem vildu minnast hans er bent á
Húsbyggingarsjóð Leikfélags Reykjavíkur. Minningar-
spjöld fást á skrifstofu L.R., bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar og hjá raftækjaverzlun Júlíusar
Björnssonar.
Fyrir hönd föður hans og barna okkar,
Anna Sigurðardóttir
Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
minningarathöfn
ÖGLU SVEINBJÖRNSDÓTTUR
Rannveig Helgadóttir, Sveinbjörn Egilsson,
Kristín, Ulfar og Helgi.